Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1994, Side 22
22
LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1994
Sérstæð sakamál
Carmela Vexler.
Dewey Kells.
Carmela Vexler frá Macon í Ge-
orgíu í Bandaríkjunum ákvað ung
að gerast lögfræðingur og það kom
engum á óvart. Faðir hennar, Earl
C. Vexler, var einn af frægustu
vamarlögfræðingum í ríkinu og
hafði tekið að sér íjölmörg erfið
sakamál undanfarna þrjá áratugi,
þar á meðal mörg morðmál. Aðeins
tveir af skjólstæðingum hans höfðu
þó lokið lífmu í rafmagnsstólnum.
Dóttir hann var aðeins nítján ára
þegar hún lauk fyrrihlutaprófi í
lögfræði, og þegar hún var orðin
tuttugu og eins árs hefði hún getað
fetað í fótspor föðurins. En Car-
mela vildi ná lengra. Hún vildi taka
doktorspróf og gamall fjölskyldu-
vinur, Clifford Croxall dómari,
lagði til að hún veldi sér sem efni
nokkur óleyst sakamál í Georgíu.
Stúlknahvörf
„Frá mínum yngri árum man ég
eftir þremur málum," sagði Crox-
all. „Ungar stúlkur hurfu eins og
dögg fyrir sólu. Það var sem þær
hefðu beinlínis gufað upp. Ein
hvarf í nóvember 1929 og tvær í
mars 1931. Enginn hefur nokkru
sinni komist að því hvað varð um
þær. Reyndu nú að komast til botns
í þessum málum. Það skiptir þó
ekki öllu þótt þú getir ekki leyst
gáturnar. Ef vel er að verki staðið
ættirðu að gera fengið doktors-
gráðu út á ritgerð um þessi mál.“
Hugmyndin var Carmelu að
skapi, en hún gerði sér í upphafi
grein fyrir því að viðfangsefnið yrði
ekki létt. Hugsanleg vitni væru fyr-
ir löngu dáin eða flutt í aðra lands-
hluta. En Carmela lét það ekki á
sig fá og unnusti hennar, Dewey
Kells, tuttugu og þriggja ára lög-
fræðingur, hét henni aðstoð sinni.
Góður vinur fjölskyldunnar,
Sidney Papes, sem var í lögregl-
unni, útvegaði Carmelu leyfi til að
lesa gömlu málsskjöhn og fyrrum
skólasystir Carmelu, Sylvia Dixon,
skjalavörður í aðalsafni lögregl-
unnar, hjálpaði við að finna skjöhn.
Á leið heim úr kirkju
Skýrslurnar fjöhuöu um hvörf
tveggja systra, Milred og Christine
Neal, fimmtán og átján ára. Milred
hvarf sunnudag einn milh klukkan
átta og níu um kvöld á leið heim
frá kirkju og eins fór um Christine
þremur vikum síðar. Þá haföi hún
verið gifr í þrjár vikur.
Hálfu öðru ári áður hafði De-
borah Jackson, níu ára, horfið á
leið heim úr sunnudagaskóla í
sömu kirkju um klukkan hálffjög-
ur síðdegis.
Rannsóknarlögreglan hafði látið
í ljós þá skoðun að einhver hefði
lokkaö stúlkurnar upp í bíl til sín.
Ökumaður hefði síðan ekið með
þær út fyrir borgina, nauðgað
þeim, drepið og grafið. Það var að-
eins einn galh við þessa kenningu.
Ættingjum hafði fundist ótrúlegt
ef ekki óhugsandi að stúlkumar
létu ókunnugan mann fá sig til að
setjast upp í bíl hjá honum. Þá hafði
ekki tekist að fmna eitt einasta
vitni sem séð hafði neitt sem bent
gat til þess að stúlkunum hefði ver-
ið þröngvað upp í bíl.
Önnur lík mál
Eftir að hafa lesið lögregluskýrsl-
urnar gömlu var Carmela htlu
nær. Og nú var komið fram á árið
1976, en atburðirnir höfðu gerst
1929 og 1931.
Meðan Carmela og Dewey höfðu
setið við lestur hafði Sylvia Dixon
haldið áfram að lesa skýrslur. Hún
gat nú bætt við nokkrum um hvarf
stúlkna á aldrinum tíu til tuttugu
ára sem horfið höfðu í Atlanta og
Savannah í Georgíu, en einnig í
grannríkinu Suður-Karóhnu. Og
Sylvía hafði fundið eitt sem var
samnefnari allra hvarfanna. Ahar
höfðu stúlkumar horfið sporlaust
á leið heim frá kirkju.
Með aðstoð Sylvíu komst Car-
mela í samband við áttatíu og sjö
ára gamlan rannsóknarlögreglu-
fuhtrúa, James Ponder, en hann
hafði stjómað rannsókn í þremur
af málunum. Þrátt fyrir háan aldur
var minni hans enn gott.
Var kominn
á sporið en...
„Þú ert að leita að því sem er
sameiginlegt með þessum hvörf-
um, ungfrú Vexler,“ sagði Ponder.
„Ég fann það árið 1932, en engar
sannanir. Ég vil engin nöfn nefna,
en kannaðu hver var prestur hér
þegar stúlkumar hurfu. Líttu svo
betur á hin máhn og farðu í skjala-
safn kirkjunnar. Þá held ég að þú
komist að einhverju óvæntu."
„Ég blekkti yfirvöld kirkjunnar
dálítið,“ sagði Carmela síðar. „Ég
lét þau halda að ég væri að kanna
kirkjusögu Georgíu því ég óttaðist
að hindranir yrðu lagðar í veg fyr-
ir mig ef ég segði hvað mér gekk í
raun og veru til.“
Það reyndist ekki erfitt að kom-
ast að því hver hafði verið prestur
í Macon þegar stúlkumar þrjár
hurfu. Þaö var Solomon Aitken,
fæddur 1861 en vígður th prests
tuttugu og fimm ára gamah. Árið
1891 hafði hann kvænst Adele
Gradow. Hjónabandið var bam-
laust. Aitken lést 1933 og kona hans
fjórum árum síðar.
Á öðrum vettvangi
Aitken hafði verið sóknarprestur
í Columbia í Suður-Karólínu frá
1918 til 1924. Rannsóknir Carmelu
Solomon Aitken og kona hans
Adele.
sýndu að stúlkurnar sem höfðu
horfið þar höfðu gert það á þessum
ámm. Og þannig var þetta í borg
eftir borg. Fyrir og eftir dvöl Ait-
kens í þeim haföi ekkert gerst, en
meðan hann var þar hvarf stúlka
eftir stúlku. Carmela heimsótti nú
rannsóknarlögreglumanninn
gamla og sagði: „Sá sem þú grunað-
ir var Solomon Aitken sóknar-
prestur eða var það ekki?“
„Það er rétt, ungfrú. Ég var sann-
færður um að það hefði verið hann
sem myrti þær, en mig vantaði
sannanir. Rannsóknir mínar
sýndu að yfirmenn hans vissu lík-
lega hvað hann gerði og fluttu hann
stað úr stað til þess aö forðast
hneyksli."
Loks hafði Ponder gefist upp. Yf-
irmenn kirkjunnar höfðu neitað
allri aðstoð og loks hafði hans eigin
yfirmaður beðið hann að hætta
rannsókn á ferh sóknarprestsins
því fráleitt mætti teljast að kirkj-
unnar maður gerðist sekur um
slíka glæpi.
Sönnunargagns
leitað
„Ég lét mér th hugar koma,“ sagði
Carmela síðar, „aö maður eins og
Aitken sóknarprestur hyrfi ekki af
jörðinni án þess að skhja eftir ein-
hvers konar játningu á syndum
sínum. En mér fannst ég sek um
blekkingu þegar ég bað yfirvöld
kirkjunnar um leyfi th að fá að
skoða gömul skjöl þar eð ég væri
að kynna mér kirkjusöguna."
ÖU skjöl kirkjunnar í Macon voru
geymd í kirkjunni. Og heitt ág-
ústssíðdegi 1976 sat Carmela með
talsverðan hjartslátt og virti fyrir
sér hhlurnar í hvelfingunni undir
gólfi þessarar eitt hundrað og þrjá-
tíu ára gömlu byggingar. Þarna
voru öll þau skjöl sem sóknarprest-
arnir höfðu skhið eftir þennan
langa tíma. Og þar var hka mappa
sem á stóð: „Solomon Aitken, dr.
theol.“
Þrátt fyrir að hitans úti gætti
niðri í hvelfingunni fór kuldahroh-
ur um Carmelu þegar hún sá um-
slag í möppunni, en á því stóð: „Má
ekki opnast fyrr en eftir lát mitt.
Solomon Aitken."
„Ég spurði mig hvort ég hefði
leyfi til að opna umslagið,“ sagði
Carmela síðar. „Svo komst ég aö
þeiri niðurstöðu að ég gæti ekki
hætt rannsókninni þama, eftir
margra mánaða vinnu.“
Játningin
Á gulnuðu blaði stóð það sem
Carmela hafði búist við að sjá:
„Ég, Solomon Aitken, sem er við
fulla andlega hehsu og í jafnvægi,
geri mér ljóst að ég á skammt ólif-
að, og játa hér með að ég hef átt
kynmök við drepið eftirfarandi
stúlkur..."
Á eftir fylgdu nöfn sextán stúlkna
og komu þau heim og saman við
nöfn stúlknanna sem komu við
sögu rannsóknar Carmelu. í játn-
ingarbréfinu sagði en fremur:
„Ég hafði enga stjóm á mér þegar
löngunin th að vera með ungum
stúlkum kom yfir mig. Margar af
þeim voru undir aldri og þegar ég
hafði lokkað þær upp í rúm varð
ég að drepa þær svo þær segðu for-
eldrum sínum ekki frá.“
Örlög systranna, sem rannsókn
Carmelu hafði fyrst beinst að,
höfðu orðið þau að deyja... af sér-
stakri ástæðu. Hin fimmtán ára
gamla Mhred var ólétt og Aitken
var faðir bamsins. Hún sagði prest-
inum að hún yrði að segja foreldr-
um sínum frá honum. Þá var syst-
irin, Christine, einnig ólétt eftir
Aitken þegar hún gifti sig.
Játninginvar
alllöng og lauk
á þennan hátt:
„Nú, þegar ég hef gert fuha játn-
ingu og hreinsað sál mína, get ég
gengiö á fund skapara míns og látið
leiða mig fyrir dómstól hans með
vissu um að hann fyrirgefur mér
hinar mörgu syndir mínar.“
Hvort það gerðist hafa menn að
sjálfsögöu látið ósagt í umfjöllun
um þetta mál. Aitken sóknarprest-
ur komst hins vegar hjá því að
verða leiddur fyrir jarðneskan
dómara því ofan af honum var fyrst
flett fjörutíu og þremur árum eftir
lát hans.
Carmela Vexler hafði komist til
botns í því efni sem ritgerð hennar
fjahaði hún og í ársbyrjun 1978 fékk
hún doktorsgráðu sína.