Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1994, Side 23
LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1994
23
Námskeið í hraðlestri í vikunni:
Dularfullar fyrir-
spumir bárust
- en þingmenn og ráðherrar létu ekki sjá sig
Ólafur með nokkur hraðlestrarverkefni fyrir utan Alþingishúsið. Ef al-
þingismenn og ráðherrar hefðu verið búnir að kynnast þeim í Hraðlestr-
arskólanum hefði viðskiptaráðherra tæpast tekist að lauma búvörulaga-
frumvarpinu fræga í gegnum þingið. DV-mynd S
r,Það kom nú enginn þingmaður
né ráðherra á þetta námskeið. Ég
vona að auglýsingin hafi ekki farið
neitt þversum í þá. Mér fannst
svarið hennar Salome í DV vera
svolítið í þeim dúr. En ég er með
ýmislegt á prjónunum til þess að
ná til þeirra, þó það hefði helst
þurft að vinnast í samráði við þá.“
Þetta sagði Ólafur H. Johnson,
skólastjóri Hraðlestrarskólans.
Hann auglýsti sem kunnugt er
námskeið í hraðlestri í vikunni og
beindi þeirri auglýsingu sérstak-
lega til ráðherra og þingmanna.
Auglýsingin vakti verðskuldaða
athygli en sfjórnmálamennirnir
létu hins vegar ekki sjá sig.
Ólafur sagðist vita um nokkra
þingmenn sem hefðu sótt hrað-
lestrarnámskeið áður en þeir fóru
á þing. „En þeir hafa yfirleitt aldrei
komið eftir að þeir komust á þing,“
sagði hann. „Það er ljóst að í svona
starfi er lestrarálagið mikið og í
rauninni alveg óskiljanlegt að
menn grípi ekki svona tækifæri og
reyni að hressa upp á lestrarhrað-
ann.“
Ólafur sagði að gerð hefði verið
könnun í Bandaríkjunum og út-
koman hefði verið sú að langflestir
þingmanna þar hefðu sótt svona
námskeið. Bandaríkjamenn væru
opnari fyrir svona löguðu, en þó
mætti segja að þessi lestrartækni
heföi átt að vera búin að ná til koll-
ega þeirra hér á landi
„Ég held að mönnum hér fmnist
þetta svolítið feimnismál. Þeir
hugsi sem svo: Lítur það ekki út
eins og ég sé eitthvað illa á vegi
staddur ef ég fer að fara á þetta
lestrarnámskeið?
Auðvitað er það ekki þannig. Það
er alveg sama hve hraðlæsir menn
eru, það bæta allir við sig. Við mið-
um við fjórfóldun á lestrarhraða
með sambærilegri eða meiri eftir-
tekt. Ef menn ná ekki að tvöfalda
hraðann á námskeiðinu þá fá þeir
það endurgreitt. Ég held að það
hafi verið tveir frá því að skólinn
hóf starf, fyrir 15 árum, sem hafa
fengið endurgreitt. Allir aðrir hafa
meir en tvöfaldað lestrarhraðann."
'Aðspurður hvort einhver fyrir-
spurn hefði borist frá alþingis-
mönnum fyrir námskeiðið nú í vik-
unni, sagðist Ólafur ekki frá því.
„Ég er einna helst á því að ég
hafi fengið tvær eða þrjár. Þetta
voru svona undarlegar símhring-
ingar þar sem var spurt og spurt.
Þær voru svolítið af öðrum toga en
ég hef átt að venjast. Ekki get ég
fullyrt að þær hafi verið frá þing-
mönnum komnar, en það hvarflaði
að mér að verið væri að kanna
þetta fyrir einhvern."
Ólafur sagðist hafa gert vart við
sig á þinginu öðru hverju til að
kynna starfsemi skólans. Ekki
hefði verið spenningur fyrir nám-
inu meðal þingmanna þá.
„Ég er að hugsa um að minna
aftur á skólann meðal þingmanna
á næstunni. Það getur vel verið að
menn séu opnari fyrir þessu eftir
þessa umræðu sem átt hefur sér
stað að undanförnu og geri sér
grein fyrir að aukin hraðlestrar-
tækni eykur hæfni þeirra til að
kynna sér þau mál sem fara í gegn-
umþingið." -JSS
Launþegar styðja
Hilmar Guðlaugsson
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Hilmar Guðlaugsson múrari
hefur verið borgarfulltrúi reykvískra launþega. Stuðningsmenn skora
á alla Sjálfstæðismenn að tryggja honum 4. sæti á lista flokksins.
AÐSTOÐ VEITT Á KJÖRÐAG - SKRIFSTOFA STUÐNINGSMANNA ENGJATEIG 17-19 - SÍMAR 684286, 684287 OG 684288