Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1994, Side 25
LAUGARDAGUR 29. JANUAR 1994
25
Bridge
Reykjavíkiirmeistaramótið í sveitakeppni:
SveitVerðbréfa-
markaðar íslands-
banka sigraði
Hjördís Eyþórsdóttir, spilafélagi Ásmundar Pálssonar í sveit VÍB, hefur
verið mjög sigursæl í mótum síðastiiðna mánuði. DV-mynd ÞÖK
Úrslitaleikir Reykjavíkurmótsins í
sveitakeppni fóru fram um síðustu
helgi og sigraði sveit VÍB sveit Trygg-
ingamiðstöðvarinnar í spennandi
úrslitaleik.
Reykjavíkurmeistarar 1994 eru
Karl Sigurhjartarson, Ásmundur
Pálsson, Guðlaugur R. Jóhannsson,
Hjördís Eyþórsdóttir og Örn Am-
þórsson. Þess má geta að Ásmundur
og Hjördís era einnig nýbakaðir
Reykjavíkurmeistarar í tvímenn-
ingskeppni.
Sveit VÍB spilaði við sveit Símonar
Símonarsonar í undanúrslitunum og
gjörsigraði hana með 184-72. Hinn
undanúrslitaleikurinn var milli
sveitar Tryggingamiðstöðvarinnar
og Hjólbarðahallarinnar og sigruðu
þeir fyrrnefndu örugglega með
167-100.
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
Tryggingamiðstöðin byrjaði úr-
shtaleikinn mjög vel og vann fyrst-u
lotu, 61-12. VÍB vann hins vegar tvær
næstu lotur, þá fyrri 28-13 og þá síð-
ari 47-37. Staðan fyrir síðustu lotu
var því 111-87 og allt gat gerst. VÍB
vann hins vegar þá lotu, 82-20, og var
orðin Reykjavíkurmeistari.
Ég fylgdist með þriðju lotu sem var
frekar illa spiluð. Við skulum skoða
eitt skemmtilegt spil úr henni.
V/Allir
* K G 3 2
V Á 10 7 '
♦ 8 4 2
* Á 9 7
♦ D 9 7 5
9 D
♦ G 10 3
+ D 8 6 3 2
♦ -
9 KG543
♦ ÁKD7
+ K G 10 5
í opna salnum sátu n-s Hjördís og
Ásmundur en a-v Sigurður Vil-
hjálmsson og Valur Sigurðsson.
Sagnir gengu þannig:
Vestur Norður Austur Suður
pass Uauf pass lhjarta
1 spaði pass 2 spaðar 4 spaðar
pass 5hjörtu pass 6þjörtu
pass pass pass
Athyglisverð fjögurra spaða sögn hjá
Ásmundi og ég myndi segja að hún
þýddi nákvæmlega það sem hann
átti: 0-5-4-4.
Ekki besta slemma í heimi en lík-
lega vilja flestir vera í henni.
Valur hitti á baneitrað útspil fyrir
Ásmund en hann spilaði út spaðaf-
jarka. Ásmundur var nokkuð fljótur
að láta gosann en hver spilar undan
ás í slemmu, nema ef til vill Valur?
AUa vega var öllum Ijóst að Ásmund-
ur átti engan spaða. Austur lét
drottninguna og Ásmundur tromp-
aði. Það liggur beinast við að ráöast
á trompið og það gerði Ásmundur.
Hann spilaði hins vegar htlu trompi
og svínaði tíunni. Og þar með var
slemman töpuð, eða hvað? Nei, aust-
ur virtist ekki með á nótunum, alla
vega spilaði hann ekki spaða til baka
heldur tígli!
Ásmundur vissi ekki að hann hafði
tapað slemmunni í öðrum slag og
hann drap á ásinn og spilaði trompi
á ás. Hann getur nú unnið slemmuna
með því að svína laufi en hann kaus
eðhlega að taka trompin af Val. Síðan
tók hann tíglana og þá var skipting
andstæðinganna ljós. Valur hafði
byrjað með 5-4-3-1 og eina vinnings-
vonin væri að hann ætti laufdrottn-
inguna einspil. Veik von var að hann
hefði byijað með 4-4-3-2 en þá þurfti
hann að eiga nákvæmlega 8-6 í laufi.
Ásmundur lagði því á stað með laufa-
tíu og þegar fjarkinn kom frá Val jók
hann hraðann og drap með ás. Lau-
fanían fylgdi í kjölfarið og austur
rumskaði ekki þegar hann lét htið;
og slemman var unnin.
í lokaða salnum varð Siguröur
Sverrisson einnig sagnhafi í sex
hjörtum, án þess að andstæðingamir
sæju ástæðu til þess að segja nokk-
uð. Vestur spilaði út tígh og Sigurður
gerði strax sömu mistök og Ásmund-
ur þegar hann svínaði hjartatíu í
öörum slag. Spaði til baka minnkaði
svigrúmið þótt hann gæti unnið
slemmuna með því aö svína laufi
gegnum austur í fimmta slag. Einn
niður og VÍB græddi 15 impa.
m a lu ö ö i
9 9 8 6 2
♦ 965
A
Reykjavíkurmótið í sveitakeppni:
Spennandi úrslitaleikur
Sveit Verðbréfamarkaðar Islands-
banka varð Reykjavíkurmeistari í
sveitakeppni um síðustu helgi með
því að sigra sveit Tryggingamið-
stöðvarinnar, 169-131, í 64 spila úr-
slitaleik. í undanúrshtum vann sveit
VÍB Símon Símonarson nokkuð ör-
ugglega og Tryggingamiðstöðin lagði
sveit Hjólbarðahaharinnar sömu-
leiðis af öryggi.
Úrshtaleikurinn um tithinn var
mjög sveiflukenndur. í fyrstu leit út
fyrir sigur sveitar Tryggingamiö-
stöðvarinnar sem skoraði 61 impa
gegn 12 í fyrstu 16 sphunum. Sveit
VIB saxaði á forskotið í tveimur
næstu lotunum, 28-13 og 47-37. Stað-
an fyrir síðustu 16 sphin var 111-87.
Lokalotan var síðan einstefna af
hálfu VÍB sem skoraði 82 impa gegn
20 impum Tryggingamiðstöðvarinn-
ar.
Nýkrýndir Reykjavíkurmeistarar í
sveitakeppni eru Hjördís Eyþórsdótt-
ir, Ásmundur Pálsson, Guðlaugur
R. Jóhannsson, Örn Arnþórsson og
Karl Sigurhjartarson. Ásmundur og
Hjördís voru einnig í sveitinni sem
vann þennan tith í fyrra. Spharar í
sveit Tryggingamiðstöðvarinnar eru
Sigmröur Sverrisson, Hrólfur Hjalta-
son, Sigurður Vilhjálmsson, Valur
Sigurösson, Bragi Hauksson og Sig-
tryggur Sigurðsson.
Reykjavíkurmótið gaf jafnframt
rétt th keppni í undankeppni íslands-
móts í sveitakeppni. Kvóti Reykja-
víkur er 15 sveitir og fyrir helgina
höfðu 12 sveitir þegar unnið sér rétt
th þátttöku. Sex sveitir háðu keppni
um þau 3 sæti sem eftir voru um
helgina og sveitir Sigurðar Sigur-
jónssonar, Guðlaugs Sveinssonar og
Arons Þorfinnsson áunnu sér þann
rétt um helgina.
INNANHÚSS- 99
ARKITEKTÚR
í frítíma yðar með bréfaskriftum
Engrar sérstakrar undirbúningsmenntunar er krafist til
þátttöku. Spennandi atvinna eða aðeins til eigin nota.
Námskeiðið er m.a. um húsgögn og húsgagnaröðun, liti,
lýsingu, list, þar tilheyrir listiðnaður, gamall og nýr stíll,
blóm, skipulagning, nýtísku eldhús, gólflagnir,, vegg-
klæðningar, vefnaðarvara, þar tilheyrir gólfteppi, hús-
gagnaefni og gluggatjöld ásamt hagsýni o.fl.
Eg óska án skuldbindingar að fá sendan bækling yðar um
INNANHÚSS-ARKITEKT-NÁMSKEIÐ
Nafn .........................
Heimilisfang .......................
Akademisk Brevskole
Jyllandsvej 15 • Postboks 234
2000 Frederiksberg 9 Kobenhavn 9 Danmark
FAGOR
ÞVOTTAVÉLAfí & tttó
Magn af þvotti 5 kg
Þvottakerfi 17
Hitar síðasta skoivatn
Sér hitastillir 0-9CPC
Ryðfrí tromla og belgur
Hraðþvottakerfi
Áfangaþeytivinda
Sjálfvirkt vatnsmagn
Hæg vatnskæling
Sparneytin
Hljóðlát
VINSAMLEGAST ATHUGIÐ NÝTT HEIMILISFANG
RONNING
BORGARTÚNI 24
SÍMI 68 58 68
Gólíeínatoá
25%
afsláttur í örfáa áaga af öllum teppum,
iúkum og gólfflísum.
- miðstöð heimilanna