Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1994, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1994, Side 36
s4 LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1994 Sviðsljós Sænska krónprinsessan slær í gegn: Allir falla fyrirViktoríu Óhætt er að segja að Viktoría, krónprinsessa Svía, haíi slegið í gegn eftir að hún fór að taka þátt í sam- kvæmislífi kóngafólksins. Það er ekki bara að hún hafi meðfæddan „sjarma" og ótrúlega útgeislun held- ur gerir útht hennar og uppeldi hana að veröugum fulltrúa konungshall- arinnar. Móðir hennar, Sylvía drottning, þurfti heldur betur að læra „sitt fag“ þegar hún gerðist meðlimur sænsku konungsfjölskyld- unnar, og þykir henni hafa tekist ótrúlega vel með eigin börn. Og nú, aöeins 16 ára, er Viktoría, dóttir hennar, orðin veröugur fulltrúi lands síns og krúnunnar. Hververður sá heppni? Það var í silfurbrúðkaupi Haralds Noregskonungs og Sonju drottningar sem Viktoría krónprinsessa kom fyrst opinberlega fram meðal kónga- fólksins í Evrópu. Þessi 16 ára stúlka tók þátt í tveggja daga hátíðahöldum og virtist pjóta hverrar einustu mín- hstu. Hún virtist eiga auðvelt meö að b il 'jLÆ Viktoria með Willem Alexander á dansleik sem haldinn var i tilefni silfurbrúðkaups Haraldar Noregs- konungs og Sonju drottningu. Með Friðriki Danaprins. Einn af fyrstu samkvæmiskjólum Viktoríu sem hún var i við opinbera heimsókn Noregskonungs til Sví- þjóðar. Sylvia drottning getur veriö hreykin af dóttur sinni sem var aðeins fimmt- án ára þegar hún kiæddist þessum samkvæmiskjól í svörtum og gulum litum. slaka á meðal jafnaldra sinna og lék við hvem sinn fingur. Það er talið mjög af hinu góða fyrir verðandi drottningu að kynnast rík- isörfum annarra landa og umgangast þá. Þar með sleppur hún við alls konar kjaftasögur um ástarsambönd. Því geta krónprinsarnir Hákon, Frið- rik og Willem Alexander dansaö við krónprinsessuna og jafnvel daðrað svohtið við hana án þess að sögu- sagnir fari af stað. Að vísu eiga þeir tveir síðamefndu bræður, þannig að annar hvor þeirra gæti sem best end- að í sænsku konungsfjölskyldunni. Þá þykir sjálfsagt að taka með í reikninginn þær breytingar sem orð- ið hafa á landssiðum á seinni árum, þegar rætt er um væntanlegan eigin- mann krónprinsessunnar. Nú er ekkert því til fyrirstöðu að ungt kóngafólk giftist út fyrir eigin raðir. Að vísu er enginn aðall í Noregi en Viktoría gæti sem best gifst baróni í heimalandi sínu. Hvað sem því hður verður áreiðan- lega fylgst með hveiju fótmáli krón- prinsessunnar. Hún á áreiöanlega eftir að heilla marga óbreytta sem konungborna á næstunni. Viktoria í fallegum taftkjól. Hún hefur svipaðan háls og axlir og móðir hennar og þykir bera mjög vel flegna kjóla. Drew Barrymore brosir út að eyrum þessa dagana. Leikur á móti Whoopy \ Drew Barrymore vakti mikla athygli þegar hún kom á kvikmyndahátíð ný- lega, brosandi út að eyrum og með nýja hárgreiðslu. Hún hafði breytt um háraht og látiö greiða hárið í stutta lokka sem líktust helst tappatogurum. Það er annars af þessari frægu leik- konu að frétta að hún hefur steinhætt neyslu áfengis og fíkniefna. Hún er að undirbúa leik í kvikmyndinni „Boys on the Side“ þar sem hún leikur ástar- atriði á móti hinni þekktu Whoopy Goldberg sem fer með hlutverk sam- kynhneigðrar konu í myndinni. ... að mikll tilhlökkun ríkti nú hjá hinum fræga Adnan Khashoggi. Hann og eiginkona hans, Shap- ira, eíga von á barni og það mun ekkert til sparað þegar erfinginn lítur dagsins Ijós. ... Marlon gamli Brandon hefði lent í hlutverki jólasveinsins ný- lega. Hann mátti aka mörg hundruð kilómetra til að koma síðbúnum jólapökkum til sonar síns, Christian, sem situr í fang- elsi. í pökkunum voru m.a. hnetukökur, eftirlæti sonarins. ... að Madonna hefði borgað himinhátt verð fyrir gosbrunn í karlmannsliki sem hún ætlar að hafa i garðinum sínum. Hún varð hamslaus þegar hún sá hvar vatnsbunan kom út og varð að eignast styttuna. ... að Joan Collins hefði mætt á tískusýningu i París á dögunum, svo nýlyit i andliti aö eftir því hefði verið teklð. Menn eru nú farnir að spyrja sig hve margar andiitslyftingar Collins þoli. ... að Stephanie prinsessa hygðist flytjast ásamt fjölskyldu sinni til Parísar. Þar á hún lúxus- íbúð sem hún keypti 1991. íbúðin er staðsett rétt hjá Effelturninum. ... að margir hefðu áhyggjur af fyrirsætunni Kate Moss sem fyr- irmynd ungra stúlkna. Hún er ekkert nema beinin og skinnið og gætu unglingsstúlkur tekið upp ýmsar vafasamar aðferðír til þess að likjast henni sem mest.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.