Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1994, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1994, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 5. MARS 1994 Það dugar ekkert minna en jeppar og vélsleðar til að komast að og frá Þrasastöðum á vetrum. Þau íris og Jón Elvar láta það ekki á sig fá. DV-myndir Þórhallur Þrasastaðí komnar. Þetta hefur ekki verið verra í vetur en það að ég hef alltaf komist þriðja hvern dag niður í sveitina." Lifa ekki afbúskapnum Nú skilst manni að þetta hafi ver- ið frekar harður vetur og stórviðri geisað á stundum? „Æth það .hafl nú ekki verið meira gert úr því en efni standa fil,“ segir íris. „Þetta hefur ekki verið neitt harður vetur, það er helst síðustu vikuna sem gert hefur leiðindatið. Það hefur reyndar komið dagur og dagur sem snjóað hefur dálítið í logni. Við sleppum oft svo vel héma fram frá við vind. Það getur verið bölvaður beljandi neðan við Hóla þó hér hreyfi vart vind,“ segir Jón. En varla lifið þið af þessum bú- stofni? „Nei, við gerum það ekki og ætl- um okkur að komast í vinnu í sum- ar. Þaö tekur ekki orðið nema viku að heyja þannig að það er heldur ekki yfir neinu að vera fyrir okk- ur. Við erum þokkalega vongóð með vinnu í sumar,“ sagði Jón. „Já, og ef við fáum ekki vinnu hérna í Fljótunum þá er stutt yfir heiðina til Ólafsfjarðar. Annars væri nátt- úrlega líka gott með tíð og tíma aö koma sér upp einhverri aukabú- grein. Einhverju öðru en ferða- þjónustu sem allir ætla í núna,“ sagði íris. Gottsauðland Jón sagði agalegt að geta ekki Búa á einum afskekktasta stað landsins: Ævintýraþráin býr í okkur - segja íris Jónsdóttir og Jón Elvar Númason sem hófu búskap í afdölum íris Jónsdóttir og Jón Elvar Númason á Þrasastöðum hófu búskap sl. haust langt inni í afdölum. Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki: „Okkur fannst allt í lagi að flytja hingað enda þekkti Jón vel til. Maður fmnur ekki svo mikið fyrir einangruninni," segir íris Jóns- dóttir frá Selfossi sem nú er orðin hússtýra á Þrasastöðum í Stíflu. íris og unnusti hennar, Jón Elvar Númason, hófu búskap sl. haust á einu afskekktasta býli landsins. Þau hafa þegar fengið aö kynnast vetrarhörkum og einangruninni en láta það ekki á sig fá. Fljótin eru af mörgum talin ein fallegasta sveit landsins. Perla þeirra er Stíflan, sá hluti sveitar- innar, sem er framan Skeiðsfoss- virkjunar og Stífluhóla. Stíflan er falleg í dag en enn fegurri var hún áöur en Skeiðsfossvirkjun kom til við lok fimmta tugs aldarinnar. Uppistöðulón virkjunarinnar færði tæpan tug jarða undir vatn, undir- lendi fór mestallt undir lónið, þar á meðal hinn fallegi gróður er vafði sig meðfram bökkum árinnar er hðast um dahnn. En þó Stíflan sé sumarblíð sveit, getur verið harð- býlt þar að vetrum og trúlega er hún þá með afskekktari plássum landsins. Römm er sú taug er orða- tiltæki sem notað er um trygg- lyndi. Það á vel við um þær þijár fjölskyldur sem búa í Stíflu í dag. Tvíbýlt er á Deplum, þar sem búa Ástvaldur Hjálmarsson og Sigríður Sveinsdóttir og fjölskylda Hauks, sonar þeirra. Þá hóf í haust búskap á Þrasa- stöðum, fremsta bænum í dalnum, komungt sambýhsfólk. Jón Elvar, sem fæddur er og uppalinn á Þrasa- stöðum, 21 árs að aldri, og unnusta hans, íris, sem er tveimur árum eldri. Það er fátítt að svo ungt fólk byrji búskap í sveit í dag og mörg- um finnst það sjálfsagt skrýtið að ungt fólk setji sig niður í fásinni lengst frammi í afdal þar sem að- eins vélsleðinn og vel búnir jeppar rjúfa einangmnina að vetrinum. Þurfti talsverðrar lagfæringar Blaðamanni DV lék forvitni á að vitja búendanna ungu á Þrasastöð- um og um leið gafst honum tæki- færi til að prófa gönguskíðin aö nýju, eftir aldarfjórðungs hlé. Veðrið var dásamlegt í Stíflunni og unaðslegt að ganga eftir Gauta- staðavatninu ísilögðu og þegar því sleppti var að baki stærsti hluti sjö kílómetra göngunnar frá Skeiðs- fossvirkjun að Þrasastööum. íris birtist á hlaðinu og bauð blaðamann velkominn en Jón, sem haföi bragöið sér á vélsleðanum niður í sveitina, kom í hlaðið í þann mund sem blaðamaður hafði lokið fyrsta kaffibohanum í nýstand- settu eldhúsinu á Þrasastöðum. Það var í mörgu að snúast fyrir þau Jón og íris í haust. íbúðarhúsið var lagfært mikið og era vistarverar nú orðnar hinar snotrustu. Þá þurfti að innrétta fjárhúsin algjör- lega upp á nýtt þar sem aht tréverk var rifið innan úr þeim eftir aö fjár- stofninn var skorinn niður vegna riðu 1987. Þá bjó á Þrasastöðum Númi, faðir Jóns, sem veitti nú dygga aðstoð við uppbygginguna hjá syni sínum. „Það þurfti margt að gera í haust og við vorum sVolítið sein fyrir. Það bjargaði öllu hvað tíðarfarið var gott fram eftir haustinu því það stóð á endum að daginn eftir að við lukum við að setja síðustu einangr- unarmottuna í húsin þurfti að taka féð á gjöf,“ sagði Jón. Kynntust á bændaskólanum Bústofninn á Þrasastöðum er rúmlega 200 fjár og 11 hestar. Þaö hafðist ekki að flytja kúna neðan úr sveitinni fyrir fyrstu hríðar í haust og það mun víst bíða til vors að hún komi í nýja sumarhaga því eins og Jón sagði mundi nytin hrið- faha í henni með þvæhngi á þess- um árstíma. Þau Jón Elvar og íris kynntust á Bændaskólanum á Hvanneyri og útskrifuðust þau sem búfræðingar frá skólanum á hðnu vori. Þannig að þið ættuð að geta búið, bæði búfræðingar? „Já, það er víst ætlast th þess. Annars fannst okkur skorta dálítið á verkmenntunina eins og vih nú verða í skólum," sagði íris. „Ja, það var að minnsta kosti margt sem maður kunni áður,“ bætti Jón viö. Hvernig leist svo kaupstaðar- stelpunni á að flytja á þennan af- skekkta stað? „Mér fannst það aht í lagi fyrst að Jón þekkti tíl héma. Við erum bæöi mikið fyrir búskap, útívera og svo blundar ævintýraþráin í okkur. Annars verð ég ekkert svo vör við einangrun hérna. Það er aldrei svo slæmt lengi að við kom- umst ekki það sem vhjum á vélsleð- anum.“ Jón tekur undir þetta og segir aht annaö líf hjá þeim að búa þama fremra núna heldur en hafi verið hjá föður hans á sínum tíma. Suzuki Fox jeppinn sem hann eigi komist líka svo mikið í snjó, sér- staklega þegar hleypt sé aðeins úr dekkjunum. „Pabbi þurfti oft að berjast áfram í fleiri tíma á dráttarvélinni og þá vora hka ekki framdrifsvélamar nýtt þessa góðu sumarhaga betur, „Hér er frábært sauðland. Ég var með langbestu meðalvigtína í haust, og var heppinn hvað þetta var fituféll htíð hjá mér, miðað við hvað dilkarnir voru rosalega þung- ir. Meðalvigtin var 19,1 kg af tæp- lega 150 dilkum. Það fékkst samt thtölulega lítið fyrir þetta. Það er líklega besta verðið fyrir ulhna af afurðum í dag. Uharverðið hækk- aði mikið í haust enda leggjum við áherslu á góða meðferð hennar. Við rúðum strax og féð var tekið inn í nóvemberbyrjun í haust og ætlum svo að rýja í næsta mánuði aftur," segir Jón. „Já, rúningurinn var lík- lega eitt af því fáa verklega sem við lærðum í skólanum," bættí íris viö. Sambýlisfólkið á Þrasastööum samþykkti þá ályktun blaðamanns að það væri ekki heiglum hent að byija búskap í sveit í dag. Þau sögðu að það sem hefði gert þeim það kleift var að jörðina og kvótann hefðu þau fengið með góðum kjör- um hjá foreldram Jóns. Þau íris og Jón vora líka sammála um að nýta þyrftí kvótann og eigin fram- leiðslu eins og mögulegt væri. „Já, maður getur svo ekki leyft sér neitt óskaplega mikiö. Það veröur allavega ekki farið tíl út- landa mörgum sinnum á ári,“ sagði íris. Þau Jón og íris hta út fyrir aö vera dugnaðarþjarkar og sjálfsagt eiga þau eftír aö bjarga sér þama inni við fjöhin háu. Þar sem sóhn hafði enn ekki náð að senda geisla sína th fóstudaginn 4. febrúar. íris sagði þau á Deplum hafa séö sólina aöeins um daginn. Hún hefði náð að senda geisla sína niður dalina en þeir ekki náð fyrir fjöllunum fram th þeirra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.