Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1994, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1994, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 5. MARS 1994 iv. & Sfl X Þrjár senjórítur frá Mexikó, Hilda og Anjelica, sem búa hér á landi, og systir Hildu, dansarinn Rosa, sem kom hingaó til lands í eina viku til að dansa fyrir íslendinga á mexíkóskum dögum. DV-myndir Brynjar Gauti Senjórítur frá Mexíkó: Vantar sól og brosandi fólk - segja þær Anjelica og Hilda en eru engu að síður ánægðar á íslandi „Viö vorum meö mexíkóska daga í fyrra og þeir tókust mjög vel þann- ig aö ákveðið var að endurtaka þá. Það hefur verið heilmikill undir- búningur en þetta hefur verið skemmtilegt," segja þær Anjelica Cantú Dárila og Hilda Torres Ortiz sem hafa matreitt mexíkóskan mat undanfama viku á Hótel Loftleið- um. Þær Anjelica og Hilda tala mjög góða íslensku enda eru þær giftar íslenskum mönnum og bú- settar hér á landi. „Það kom okkur mikið á óvart þegar við vorum beðnar um að elda á þessum dögum en þetta hefur verið mjög gaman. Viö erum fáar konur hér á landi frá Mexíkó, að- eins sex,“ segja þær. Anjelica hefur verið á íslandi í fimm ár. Hún kom hingað fyrst sem skiptinemi og kynntist þá eigin- manni sínum. Hilda kynntist eigin- manni sínum í Mexíkó þar sem hann var á ferðalagi árið 1986. „Við vorum góðir vinir fyrst og hann bauð mér að koma hingað í heim- sókn. Einnig átti ég góða íslenska vinkonu sem ég kynntist í Mexíkó. Ég vissi því dálítið um landiö þegar ég kynntist manninum mínum,“ segir Hilda. „Mér leist vel á að flytja til íslands. Ég kom hingað um sum- ar og það var mjög fallegt. Viö gift- um okkur fyrst hér á laridi og síðan í Mexíkó. Það var eiginlega erfiðast fyrir mig að yfirgefa fjölskyldu mína þar sem tengsl eru mjög sterk. Eg sakna fjölskyldu minnar mikið og fæ oft heimþrá," segir Hilda ennfremur. Undanfarna daga hefur systir hennar búið hjá henni, Rosa Isela Torres Ortiz, en hún er danskennari og kom hingað til lands til að dansa á mexíkósku dögunum. Kynntust á íslandi Þær Hilda og Anjelica þekktust ekki í Mexíkó heldur kynntust þær á íslandi, í Háskóla íslands þar sem báðar stunduðu íslenskunám. Nú eru þær í saumaklúbbi ásamt nokkrum vinkonum sínum frá Suður-Ameríku. Þær hittast einu sinni í mánuði og tala þá eingöngu spænsku og búa til mexíkóskan mat. Anjelica kom fyrst hingað til lands árið 1987 sem skiptinemi. „Ég ætlaði mér aldrei að koma hing- að,“ útskýrir hún. „Það var hins vegar allt fullt á ítahu og Frakk- landi og þeim stöðum sem ég hafði hug á að fara til. Ég spurði því hvert ég gæti farið og var þá boðið ísland. Ég hafði ekki hugmynd um land eða þjóð. Hélt að fólkið liti út eins og Grænlendingar. Síðan kynntist ég stúlku frá Finnlandi sem sagði mér hvernig væri hér á landi og hvatti mig til að fara því hér væri mjög fallegt. Þá fór ég að velta þessu fyrir mér, keypti bækur um ísland og fannst mjög spenn- andi að fara hingað," segir hún. Ásveitaheimili íVopnafirói Anjelica var þó mjög óheppin í byijun. Hún fékk heimili í Reykja- vík en varð að flýja þaðan þar sem húsbóndinn á heimilinu var ofbeld- ishneigður drykkjumaður. „Ég fékk þá annað heimili á Vopna- firði. Mér leist ekki á það í byijun að fara í sveit enda kom ég frá Starað á götu Hilda segist finna fyrir þessu líka því stundum þegar hún fer út í búð að versla er hún ávörpuð á ensku. Þær eru þó sammála um að þetta sé að breytast enda hefur dökku fólki fjölgað mjög mikið í landinu. Ennþá er þó starað á þær á götu. „Þetta er skiljanlegt í litlu landi sem var mjög einangrað," segir Hilda. Þær eru sammála um að suörænt fólk sé miklu léttara og opnara en hinir „köldu“ íslendingar. „Það er ekkert skrítið," segja þær. „Þar sem alltaf er sól og hiti er engin ástæöa til annars en að syngja og brosa." Anjelica segir að það taki langan tíma að kynnast Islendingum en þegar það tekst er vart hægt að finna betri vini. „Ég á nokkrar vin- konur sem eru gullmolar," segir hún. Hilda segir að þaö skipti miklu máli að vera í takt við þjóðfélagið sem óneitanlega er mjög sérstakt. Hún er spænskukennari, kennir m.a. nemendum í Verslunarskóla íslands og Menntaskólanum í Kópavogi. „Það er mikill áhuga á spænskunámi og íslendingar eru mjög fljótir að ná spænskunni enda eru þeir duglegt fólk.“ í góðu sambandi við Mexíkó Hilda fer til Mexíkó einu sinni á ári til að heimsækja íjölskyldu sína. Hún á von á barni í maí þann- ig að hún vonast til að móðir henn- ar komi í heimsókn í sumar. Hilda heldur miklu sambandi við fjöl- skyldu sína. Anjelica heldur líka góðu sambandi við sína fjölskyldu en hún hefur þó ekki komist til Mexíkó þar sem það er mjög dýrt og vart fyrir þá sem standa í hús- byggingu. Þegar þær eru spurður hvers þær sakni mest að heiman fyrir utan fjölskyldurnar eru þær fljótar að svara; „Sólarinnar." - En ætli það sé eitthvað sem þær vildu breyta hér á landi? „Já, að íslendingar hætti að líta á okkur sem útlendinga og fari að líta á okkur sem íslendinga,“ svara þær. „Við erum íslendingar en alls ekki nýbúar eða Ný-íslendingar. Ég þoli bara ekki slík orð,“ segir Anjelica og hryllir sig. „í Mexíkó er tekið á móti útlendingum með mikilli gestrisni og farið með þá eins og kónga enda allir velkomnir. Ég hélt að þannig yrði tekiö á móti mér hér þegar ég kom fyrst," segir Hilda. „Ég varð því mjög undrandi þegar ég fann hve íslendingar eru lokaðir en mér líður mjög vel hér.“ Anjelica tekur undir og segir að þaö sé bæöi gott og gaman aö vera á íslandi. Mexíkódögunum lýkur á morgun en þær Anjelica og Hilda eru ánægðar með hversu margir hafa komið og prófaö matinn þeirra. „Fólk hefur gaman af að smakka," segja þær. „Það er alltaf að aukast aö íslendingar þori að smakka framandi rétti. Okkur finnst mjög mikilvægt að geta gefið íslending- um eitthvað af menningu okkar og landi. Okkur langar líka til að gera meira að því að kynna Mexíkó fyr- ir íslendingum," segja senjórítum- artvær. -ELA Matbúið í eldhúsinu á Lofleiðum. Rosa, Hilda og Anjelica. Mexíkóborg þar sem búa tuttugu milljónir manna. En ég fór í sveit- ina og það var alveg yndislegur tími. Fjölskyldan var frábær og mér hefur aldrei liðið jafnvel og þar,“ segir Anjelica. Hún hafði kynnst tilvonandi mannsefninu á þeim stutta tíma sem hún bjó í Reykjavík þannig að eftir vetrar- dvöl á Vopnafirði fór hún aftur suður til að hitta hann. Áður en hún settist að á íslandi fór hún heim til Mexíkó og hugsaði málið. En þetta var stór ákvörðun. Þær Hilda og Anjelica telja báðar að mjög erfitt sé að læra íslensk- una. Þær hafa lagt mikið á sig til aö ná málinu en eru ekki ánægðar með árangurinn enn. „Hvaðan kemur þetta erfiða en fallega tungumál," spyrja þær. Hilda er ennþá í Háskólanum að læra, er á þriðja ári. Anjelica hætti námi til að fara að vinna en hún og eigin- maður hennar standa í húsbygg- ingu. Áður en hún kom hingað hafði hún stundað nám í arkitektúr í Bandaríkjunum og saknar þess að geta ekki haldið áfram á þeirri braut. „Ég hef miklu minni mögu- leika hér vegna þess að ég er út- lendingur,“ segir hún. „Sem út- lendingur á íslandi þarf maður að vera mjög sterkur, ákveðinn og bjartsýnn. Á hverjum einasta degi erum viö spurðar hvaðan við séum. Við viljum líta á okkur sem íslend- inga þar sem við búum hér. Það er auðvitaö ekki óeðlilegt aö stöðugt sé verið að spyija en fyrir okkur er þetta mjög leiðigjamt," segir Anjelica.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.