Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1994, Blaðsíða 32
44
LAUGARDAGUR 5. MARS 1994
Sviðsljós
Anjelica Huston í hlutverki sínu sem Morticia Addams i kvikmyndinni The Addams Family og Christopher Lloyd sem Fester.
Anjelica Huston sem sló í gegn í Addams Family:
Gaman að eiga
unga aðdáendur
- segir leikkonan sem var lengi að ná sér eftir skilnað við Jack Nicholson
Það er glæsileiki yfir leikkonunni
Anjelica Huston. Hún hefur þetta
leyndardómsfulla yílrbragð, eins
og væri hún af konungsættum.
Hún hefur þó engan áhuga á að
tala um aldur sinn og verður frekar
skrítin þegar hann berst í tal. Þess-
ari 42ja ára leikkonu líkaði alls
ekki að verða fertug.
„Það var hræðilegur dagur,“ seg-
ir hún. „Mér leið hrikalega illa í tvo
daga og vorkenndi sjálfri mér heil
ósköp. Sennilega hefur það ekki
síst stafað af því að móðir mín lést
þegar hún var 39 ára. Þegar ég var
lítil fannst mér mamma vera tals-
vert fullorðin en nú er ég orðin
eldri en hún var nokkurn tíma.“
Þrátt fyrir að Anjelica hafl unnið
óskarsverðlaun fyrir leik sinn í
Prizzi Honour og var tilnefnd fyrir
leik sinn í The Grifters og Enemi-
es, A Love Story er það fyrst og
fremst The Addams Family sem
hefur gert hana heimsfræga, að
minnsta kosti meðal yngri bíó-
gesta.
„Það er skemmtilegt að eiga unga
aðdáendur," segir hún.
Þrátt fyrir það þurfti Anjelika
langan umhugsunartíma um hvort
hún ætti að vera með í The Addams
Family númer tvö. Þar sem hún
leikur hina kynþokkafullu Mortic-
iaAddams.
Pabbinn var
aldrei heima
Anjelica Huston ólst upp í
Galway á írlandi. Fjölskylda henn-
ar líktist að sumu leyti Addams
fjölskyldunni. „Við bjuggum á
eyðistað langt frá öllum öðrum,“
segir hún. „Alveg eins og Addams
fjölskyldan. Það var oft rok og rign-
ing og húsið var fullt af draugum.
Við höfðum ekki sjónvarp á heimil-
inu, né leikfangaverslanir í ná-
lægðinni þannig að ég og bróðir
minn, Tom, höfðum nægan tíma til
að hræða hvort annað."
Faðir Apjelicu, kvikmyndaleik-
Anjelica ásamt eiginmanni sínum
Robert Graham myndhöggvara.
stjórinn og framleiðandinn John
Huston, var ekki mikið heima og
börnin sáu hann því sjaldan.
„Hann kom heim einu sinni á ári
er hann tók sér frí frá upptökunum.
Viðhöfðum hann heima á jólunum
og það var frábært. Þegar hann
ætlaði að fara aftur lögðumst við
Tom á fætur hans svo hann kæm-
ist ekkiburt."
Ömurleg leikkona
Þegar Anjelica var sextán ára
skildu foreldrar hennar og hún
flutti með móður sinni til London.
Það var þá sem hún lék í kvikmynd
í fyrsta sinn. Faðir hennar bauð
henni aðalhlutverk í kvikmyndinni
A Walk With Love and Death,
mynd sem lítill áhuga var fyrir. „Ég
var ömurleg í myndinni," viður-
kennir leikkonan. „Ég tók hlut-
verkið eingöngu vegna þess að mig
langaöi að vera meira með föður
mínum. Gagnrýnendurvorulítt
hrifnir af myndinni og ég tók það
mjög persónulega. Mér fannst eins
og ég hefði eyðilagt bíómynd fóður
míns. Seinna unnum við fleiri bíó-
myndir saman og það var mjög
skemmtileg upplifun fyrir okkur
Anjelica með mönnunum tveimur
sem hafa haft mestu áhrif á hana í
lífinu, faðirinn John Huston og Jack
Nicholson.
bæði.
Stærsta ólukkan í lífl Anjelicu
varð þegar hún missti móður sína,
þá aðeins átján ára. Móðirin lenti
í bílslysi í Frakklandi. „Ég var í
öngum mínum og gat ekki einu
sinni búið lengur í London. Ég varð
að fara í burtu frá öllu sem minnti
á móður mína. Ég flutti til New
York og hóf störf sem fyrirsæta."
Árið 1973 flutti Anjelica til Holly-
wood þar sem hún kynntist stór-
stjörnunni Jack Nicholson. Þau
voru saman í sautján ár. í stað þess
að fá rólegan og jarðbundinn eigin-
mann eins og hún þurfti fékk hún
flautaþyrilinn Nicholson. Samband
þeirra var mjög sérstakt og þegar
hann náði sér í viðhald gerði hún
það sama. Eftir fimm ára sambúð
sleit hún sambandinu og byijaði
að vera með Ryan O’Neal. Eftir eitt
ár var hún þó komin í fangið á
Jack Nicholson aftur.
Dáði karlmennina
„Við bjuggum þó ekki lengur
saman. Næstu tólf ár heimsóttum
við hvort annað. Hún reynir að
útskýra hvemig þetta gat gengiö
svo lengi. „Það er hægt að elska
manneskju á margan hátt. Ég dáði
foður minn þrátt fyrir að hann
væri móður minni ekki góður. Á
sama hátt dáði ég Jack. Eg býst við
að konur eigi það til að falla fyrir
mönnum sem minna þær á fóður
þeirra. Ég vissi það ekki þá en sé
það núna. Ég er sterk kona en verð
þó að viðurkenna að bæði Jack og
faðir minn voru allsráðandi á
heimilum sínum. Eftir að þeir eru
báðir horfnir úr hfi mínu finnst
mér ég vera sjálfstæðari."
Árið 1989 fékk Anjelica að vita
að Jack ætti von á barni með 25
árum yngri leikkonu, Rebeccu Bro-
ussard. „Mér fannst ég vera niður-
lægð fyrir allra augum og leið
hræðilega illa. En tíminn læknar
öll sár. Við erum ágætis vinir í dag
og höfum ákveöið að leika saman
í nýrri kvikmynd, The Crossing
Guard, þar sem ég leik fyrrverandi
eiginkonu.
Einmana sál
Eftir að faðir hennar lést og hún
skildi við Jack fann Anjelica
hversu einmana hún var. „Ég hef
aldrei verið jafn einmana," útskýr-
ir hún. „í annan stað var þetta
mjög gott fyrir mig. Alla tíð hafði
ég verið dóttir Johns Hustons eða
vinkona Jacks Nicholsons. Þarna
gat ég orðið ég sjálf og staðið á eig-
in fótum. Ég byrjaði að leika aftur
qg fann hamingjuna á nýjan leik.“
í dag er hún gift Robert Graham
myndhöggvara. „Þegar ég kynntist
honum fannst mér strax eitthvert
sérstakt samband á milli okkar.
Við áttum bæði erfið sambönd áð
baki og gátum stutt hvort annað í
því að yfirstíga erfiðleika skilnað-
arins. Við gátum gefið hvort öðru
svo mikið," segir hún. „Roberthef-
ur kennt mér að njóta lífsins." Hún
á þó eina ósk óuppfyllta, að eignast
barn. „Ég er mjög hrifm af börnum
og er virkilega afbrýðisöm út í vini
mína sem eru með börn. En maður
getur víst ekki fengið allt í lífinu,"
segirleikkonan.
Ólyginn
sagði...
.. ,að prinsessan af Wales hefði
þurft að að hafna boði í brúð-
kaupsveislu í Brasilíu vegna
þess að foreldrar brúðgumans,
brasilísku sendiherrahjónin,
treystu sér ekki til að hafa nægi-
legan öryggisbúnað fyrir prins-
essuna.
.. .að Stefania prinsessa ætti von
á tvíburum. Það má búast við
að hún þurfi að gangast undir
keisaraskurð eins og i fyrra
skiptið. Stefanía á rúmlega árs-
gamalt barn fyrir.
.. .að Burt Reynolds hefði nóg
að gera þessa dagana. Hann
hefur nefnilega lofað kærustu
sinni, Pamelu Seals, að gera
hana ófríska. Burt hefur lofað
sjálfum sér að verða orðinn
pabbi sextugur. Hann er nú 58
ára þannig að tíminn styttist.
.. ,að allir væru mjög glaðir með
þá ákvörðun að láta leikkonuna
Whoopi Goldberg kynna óskars-
verðlaunaafhendinguna. Whoopi
er ein hæst launaða leikkona í
Hollywood með um 500 milljónir
króna fyrir hverja mynd.
.. .að Birgitte Nielsen hefði höfð-
að mál á hendur fyrrum eigin-
manni sinum, Sylvester Stallone.
Hún krefur hann um litlar 250
milljónir króna fyrir að gera litið
úr henni i blaðaviðtali. Vöðva-
búntið er þó ekki á því að láta
hana hafa nokkra peninga. „Hún
mergsaug mig þegar við skildum
og fékk 400 milljónir þá,“ segir
hann og bætir við að hún hafi
svert hann miklu meira með því
að segja hann lélegan bólfélaga.