Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1994, Blaðsíða 17
Chili Con Came
Úlfar Finnbjörnsson, matreiðslu-
meistari Sjónvarpsins, ætlar að
kynna mexikóska matargerö fyrir
sj ón varpsáhor fendum og bj óða upp
á Chili Con Carne í þætti sínum á
miövikudag. Mexíkó hefur verið
talsvert í sviðsljósinu að undanf-
ömu og sérstakir dagar með mexí-
kóskri matargerð. Allt er þetta í
að hætti Mexíkana
kjölfar myndarinnar Kryddlegin
hjörtu sem margir íslendingar hafa
séð. En uppskrift Úlfars lítur þann-
ig út og svo er bara að horfa á hand-
bragðið á miðvikudag.
800 g nautahakk
1 msk. olía
1 tsk. kúmen
1-2 lárviðarlauf
1 tsk. oregano
1- 3 msk. chili
2- 3 dl niðursoðnir tómatar
2-3 hvítlauksgeirar
Cayennepipar eftir smekk
2-3 dl nýmabaunir
salt og pipar
LAUGARDAGUR 5. MARS 1994
Djasskvartett Reykjavíkur:
Á stjömuslóð
í London
Nokkrum dögum áður en Björk
Guðmundsdóttir sópaði til sín
tvennum Brit-verðlaunum hljóm-
uðu íslenskir tónar í hjarta Soho í
London. Þar var Djasskvartett
Reykjavíkur á ferð og lék í fræg-
asta djassklúbbi Evrópu, Ronnie
Scott’s Jazz House.
Kvartettinn er skipaður þeim
Eyþóri Gunnarssyni píanóleikara,
Sigurði Flosasyni saxófónleikara,
Tómasi R. Einarssyni bassaleikara
og Einari Scheving trommuleikara.
Gestaleikari með kvartettinum var
Guy Barker sem lék á trompett.
Djassklúbbur Ronnie Scott’s hef-
ur verið starfræktur í þrjátiu og
flmm ár. Eigandinn, Ronnie Scott,
er enn í fullu fjöri og sér sjálfur
um kynningar á listamönnum.
Hann er þekktur fyrir íjöruga
framkomu og fas hans, spaugsyrði
og brandarar jafnfrægir og klúbb-
urinn sjálfur. Ronnie hefur komið
til íslands og þekkir til íslenskra
djassmanna sem margir hverjir
láta ekki undir höfuð leggjast að
heimsækja djassklúbbinn séu þeir
í London.
Scala djassheimsins
Allar helstu stórstjörnur djass-
heimsins hafa spilað hjá Ronnie
Scott. Þar eru veggir þaktir ljós-
myndum af stjömunum, og á sín-
um stað er mynd af Eyþóri Gunn-
arssyni, tekin þegar hann spilaði
þar á Mezzoforte-dögum sínum.
Það þykir mikill heiður að fá að
troða upp hjá Ronnie Scott, ámóta
kannski og fyrir óperusöngvara að
syngja á fjölum Scala í Mílanó.
Djasskvartett Reykjavíkur hefur
ekki starfað saman í meira en tvö
ár en leiðir þeirra Sigurðar, Tóm-
asar og Eyþórs hafa oft legið saman
í gegnum tíðina. Þeir segjast vera
lítt þekktir sem grúppa heima á
íslandi enda hafi þeir troðið helm-
ingi oftar upp erlendis. Þeir
þræddu t.d. djassklúbbana á Norð-
urlöndum og spiluöu á útihátíð í
Þýskalandi í fyrra. Þeir flytja helst
fmmsamin lög þeirra Sigurðar og
Tómasar og það er ekki laust við
að um mann hríslist þjóðrembu-
hrollur þegar svahr tónar drengj-
anna kljúfa reykmettað loftið í
frægustu djassbúllu Evrópu.
„ ... hóflega væld"
í þessari Mekka djassins sitja
gestir við lítil borð með köflóttum
dúkum og á hverju borði er rauður
lampi með dempuðu ljósi. Á hverju
borði er líka lítill miði og á honum
stendur með kurteislegu orðalagi
að gestir séu beönir um að hafa
þögn meðan listamennirnir leika
og að blaðurskjóðum verði vísað á
dyr. Engum dettur í hug að láta
reyna á agann því að menn eru
hvort eð er komnir á Ronnie Scott’s
til að hlusta.
Klæðaburður á staðnum er frjáls-
legur og þar með einstaklingsbund-
inn en okkar menn vitnuði í aðra
hljómsveit (Stuðmenn) og sögðust
hafa „snyrtimennskuna í fyrirrúmi
en vera þó hæfilega væld“.
Guy Barker hefur spilað með
kvartettinum nokkrum sinnum
áður. Hann er einn þekktasti og
besti trompettleikari Breta af yngri
kynslóðinni og má til dæmis nefna
að hann blæs í lúður á nýjustu
plötu Sting.
Uppselt á íslendinga
Djasskvartett Reykjavíkur spil-
aði á Ronnie Scott’s á hverju kvöldi
í viku og seinni hluta vikunnar
seldust öll sæti upp og einungis var
hægt að fá stæði ef maður lagði á
sig að bíða í röðinni utan dyra.
Piltarnir dásömuðu mjög alla að-
stöðu í klúbbnum, töldu hana vera
þá bestu sem þeir hefðu kynnst.
Þeir vildu líka koma á framfæri
þakklæti til menningarfulltrúa ís-
lands við sendiráðið í London, Jak-
obs Magnússonar, sem greiddi götu
Eyþór Gunnarsson, Sigurður Flosason, Tómas R. Einarsson og Guy Barker, gestaleikari Djasskvartetts
Reykjavikur. Einar Scheving, hinn kornungi en bráöefnilegi trommuleikari, sést þvi miður ekki á myndinni.
Það stafar m.a. af þvi að aðstaða til myndatöku var afleit og það var með naumindum að Ijósmyndaranum
tókst að smella af nokkrum myndum milli þess sem hann nánast slóst við yfirþjóninn sem harðbannaði
honum að nota glampaljós, hvað þá að trufla áheyrendur með þvi að skyggja á listamennina.
þeirra í heimsborginni og kom
þeim í samband við rétta aðila með
orötaki sínu: „Nei er ekkert svar!“
Texti og myndir: Dagur Gunnarsson
Hverfiskráin þín
Frábærar pitsur
12", 4 áleggsteg.,
kr. 890,-
16", 4 áleggsteg.,
kr. 1.110,-
0,5 lítrar,
kr. 350,-
Höfum fullt leyfi
ur
HRAUNBERGI4, BREIÐHOLTI
Þessir vinsælu inniskór eru loksins komnir
aftur. Aldrei kalt á fótunum. Mjúkir, vel
fóðraðir skór úr villi-rúskinni, mjög léttir.
St. 37-44, kr. 1790.
Pós íre rs Itftiin
Prima
PÖNTUNARSÍMI
91-628558