Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1994, Side 18
18
LAUGARDAGUR 5. MARS 1994
Dagur í lífl Salvarar Nordal, framkvæmdastjóra íslenska dansflokksins:
Frumsýning undirbúin
Mánudagur. Það er erfitt að
vakna og ég dreg það eins lengi og
ég get. Ekki ætlar þaö að eldast af
mér að eiga erfitt með að vakna á
morgnana og vera lengi að komast
í gang. En ég læt mig að lokum
hafa það og drattast á fætur þegar
klukkan er farin að halla ískyggi-
lega í níu. Ég var búin að missa að
mestu leyti af uppáhaldsútvarps-
þætti mínum sem er morgunút-
varpið á rás 1. Þar fara saman ffétt-
ir og menningarefni í bland við ein-
söngslög og kórlög. Yndisleg músík
til aö vakna við. En ég var að verða
of sein og sleppti því helmingnum
af morgunverkunum, þar á meðal
að fara í heitt og gott bað.
Ég gríp með mér morgunmatinn,
sem eru ávextir, appelsína og ban-
ani í þetta skiptið, en þessi morgun-
matur eru leifarnar af þátttöku
minni í Fit for Life kúmum. Ég fer
að einhverju leyti eftir honum yfir
daginn en ávextir á morgnana er
það eina sem ég sleppi örugglega
ekki. Svo tek ég með mér nýtt
heimabakað brauð í nesti yfir dag-
inn. Á leiðinni í vinnuna kom ég
við í Prentsmiðju Áma Vald., sem
er að vinna prógrammið fyrir dans-
flokkinn, en vinnan er langt komin.
Það er alltaf notalegt að koma inn
í prentsmiðju og heyra í vélunum
og finna prentsvertuilminn.
Ég var komin inn á skrifstofu í
Engjateigi rétt fyrir hálftíu og brátt
er dagurinn kominn í sinn venju-
lega farveg. Sími, skriftir og skipu-
lag er það sem einkennir næstu
klukkustundur. Flokkurinn er á
æfingum í Þjóðleikhúsinu svo aö
umhverfið er óvenjurólegt þó sím-
inn stoppi varla. Þegar komið var
fram að hádegi gekk ég frá póstin-
um og dreif mig svo niður í leikhús.
Fyrsti Vörðufélaginn
Á leiðinni niður í bæ kom ég við
á nokkmm stöðum. Þar á meðal í
Salvör Nordal framkvæmdastjóri fylgist með æfingu hjá íslenska dansflokknum. DV-mynd
Landsbankanum til að hitta þjón-
ustufulltrúann minn. Ég er nefni-
lega svo langt komin í bankaheim-
inum að vera komin með þjónustu-
fulltrúa í aðalbankanum. Ég fékk
bréf frá bankanum mínum um dag-
inn þar sem mér var boðið að ganga
í Vörðuna sem á að koma skikki á
mín fjármál. Ég sá mína sæng upp-
reidda og dreif mig í bankann enda
fjármálin komin í steik. Þegar ég
sagði foður mínum frá þessum nýja
súperkosti var hann ekki eins
sannfærður og sagðist ekki vera
hlynntur aðferðum sem auðveld-
uðu fólki að eyða. Ég brosti hins
vegar mínu blíðasta og sagði að
þetta ætti að auðvelda mér að borga
skuldimar mínar. Þrátt fyrir sann-
færingarkraft minn var ég ekki
viss um að honum þætti uppátækið
með öllu til fyrirmyndar. En sem
sagt. Ég var sú fyrsta sem gekk í
Vörðuna. Og ég geng stolt út úr
bankanum - Vöröufélagi númer
eitt.
Fylgst meó æfíngu
Og leiöin lá upp í leikhús. Æfing-
in hjá flokknum var hafin. Eg
sinnti ýmsum erindum og horfði
svo á æfingu á tveimur verkum
eftir þær Auði og Maríu. Sýningin
er öll að taka á sig endanlega mynd.
Hún er fjölbreytt og skemmtileg,
verður falleg fyrir augað á sviði.
Ég held að við getum öll verið
ánægð með útkomuna. En ég varð
að halda ferö minni áfram. Ég kom
aftur við inni í prentsmiðju á leið
upp á skrifstofu en þangað var ég
komin um hálfþijú. Ég sinnti skila-
boðum og ýmsum erindum. Fyrr
en varði var klukkan orðin sex og
ég fór að spá í hvort ég ætti aö drífa
mig í sund þar sem ég hafði tekið
sunddótið með. En veðrið hafði
versnaö og; æ - verð ég ekki bara
að fara á morgun? Nú, en eitthvað
varö ég að borða, ekkert til heima
nema pasta svo ég ákvaö að fara á
hótel mömmu á leiðinni heim.
ímattil mömmu
Þangað var ég komin um hálfsjö.
Foreldrar mínir voru á leið út en
ég reif í mig kalda afganga beint
úr ísskápnum. Sem betur fer horfði
énginn á mig slafra þessu í mig.
Ég hafði það þó af að ná í gaffal og
hámaði í mig beint úr skáhnni.
Alltaf góður matur hjá mömmu.
Ég hugsa oft til foreldranna þegar
ég kem í mýflugumynd svona í
kringum kvöldmatarleytið - aUt
með ráðum gert - ríf í mig mat,
rífst og skammast og er svo rokin.
Að vísu er ég ósköp róleg í þetta
skipti enda með lítinn frænda minn
á öxlinni og reyni að róa hann á
meðan ég stoppa. Svo fæ ég nokkr-
ar ómetanlegar ráðleggingar hjá
móður minni og systur vegna
frumsýningarveislu sem ég ætla að
halda um helgina. En mér var ekki
til setunnar boðið, kóræfing klukk-
an átta. Ég kom við heima, reif upp
póstinn og fór svo af stað aftur á
kóræfingu hjá Fílharmóníu. Þar
erum við að æfa Requiem eftir
Mozart og æfingin er til hálfellefu.
Langur dagur var að kvöldi kom-
inn. Ég þurfti að skipuleggja dálítið
morgundaginn. Síðan kláraöi ég
Mávinn eftir Tjekof áður en ég fór
að sofa en leikritiö heillaði mig
mikið.
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur er
að gáð kemur í ljós aö á mynd-
inni til hægri hefur fimm atriðum
verið breytt. Finnir þú þessi fimm
atriði skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að tveimur
vikum liðnum birtum við nöfn
sigurvegaranna.
1. verðlaun: Rummikub-spihð,
eitt vinsælasta fjölskylduspil í
heimi. Það er þroskandi, skerpir
athyghsgáfu og þjálfar huga-
reikning.
2. verðlaun: Fimm Úrvalsbækur.
Bækumar, sem eru í verðlaun,
heita: Mömmudrengur, Þrumu-
hjarta, Blóðrúnir, Hetja og Banvæn
þrá. Bækumar em gefnar út af
Fijálsri fjölmiölun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 246
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavik
Vinningshafar fyrir tvö hundr-
uð fertugustu og fimmtu get-
raun reyndust vera:
1. Olgeir Jón Jónsson,
Þverholti 1, 230 Keflavík.
2. Kristín Þórðardóttir,
Iðjumörk 1, 810 Hveragerði.
Vinningarnir verða sendir
heim.