Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1994, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1994, Page 30
42 LAUGARDAGUR 5. MARS 1994 Iþróttir „Aðstoðuleysi stendur - segir Ragnheiður Runólfsdóttir sem hefur sínar skoðanir á lægðinni sem ríkir í sundinu Ragnheiður Runólfsdóttir með hóp barna á æfingu í vikunni sem leið í Varmárlaug í Mosfellsbæ. DV-mynd Brynjar Gauti Ragnheiður Runólfsdóttir er tví- mælalaust í hópi fremstu íþrótta- manna sem fram hafa komið á ís- landi. Frábær árangur hennar í sundíþróttinni var undirstrikaður þegar hún var kjörin íþróttamaður ársins 1991. í dag hefur blaðinu verið snúið við, Ragnheiður er hætt keppni en þess í stað miðlar hún þekkingu sinni og reynslu til ungra sund- manna í Mosfellsbænum. Þangað er hún flutt búferlum og er orðin Mos- fellsbæingur eins og hún kemst sjálf að orði í samtalinu við DV. Hún læt- ur mjög vel af því að búa í Mos- fellsbæ. Jafnframt sundþjálfuninni er Ragnheiður forstjóri félagsmið- stöðvarinnar í bænum. Ragnheiöur hefur sínar skoðanir á stöðu sundsins í dag en millibils- ástand er nú í sundinu og sjá margir að mörg ár muni líða áður en góðir sundmenn á borð við þá sem voru fyrir 3-4 árum komi fram á sjónar- sviðið. „Áhuginn á sundi hefur aukist til muna í Mosfellsbænum og um 50 krakkar sækja æfingar að staðaldri en í haust voru þeir 27 svo þeim hef- ur fjölgað um nærri helming. Að- stæður standa þó sundinu fyrir þrif- um hér eins og annars staðar á land- inu. Laugin er úr sér gengin, allt of lítil og fullnægir hvorki þörfum bæj- arbúa né til þjálfunar," sagði Ragn- heiður. - Eru einhverjar úrbætur í þessum efnum í vændum? „Ég ætla bara rétt að vona það. Þeir segja það alla vega en það er bara spurning um hvað það tekur langan tíma. Innilaug er það sem koma skal ef eitthvert vit á vera í þessum hlutum." Á sl. hausti var Ragnheiður ráðin til tveggja ára hjá sunddeildinni í Mosfellsbæ en hún lítur á starfiö við félagsmiðstöðina með lengri tíma í huga. Ragnheiður segir að námiö, sem hún lagði stund á í Bandaríkjunum, nýtist sér vel í starfinu við sunddeild- ina. Einnig sé hún mjög dugleg að sækja námskeið hér innanlands og erlendis. - Hver er í raun staða sundsins á ís- landi í dag? „Það er millibilsástand og segja verður eins og er að sundið er í mik- illi lægð. Ástæður fyrir því eru marg- ar og má ef til finna þær einhverjar innan félaganna. Ekki hefur tekist að brúa aldursbilið sem skapast hef- ur einmitt um þessar mundir. Að mínu mati hefur starfið hjá Sund- sambandi íslands ekki verið nógu markvisst. Það hefur verið ansi lélegt því miöur. Fólk á aö taka saman höndum, koma sér úr þessari lægð og vinna saman en það held ég að sé besta lausnin. Félögin og Sund- sambandið verða aö taka höndum saman og búa til heildarstefnu. Hún er ekki til aö mínu viti. Við þjálfar- arnir á höfuðborgarsvæðinu reynum aö ræöa mikið saman og erum meö alls kyns plön í gangi. Það verður að viðurkenna að við fengum um síö- ustu helgi pakka frá Sundsamband- inu og maður verður að vona að eitt- hvað sé að gerast þar. Ég held að tími sé kominn að skipta út liöi og fá í staðinn ungt spútniklið til starfa hjá Sundsambandinu. Það er bara eng- inn tilbúinn að taka við af formann- inum. Hann er búinn að vera það lengi í þessu. Að því leyti er erfitt að taka við af svoleiðis manni. Það er engin spurning aö það þarf að rifa þessi mál upp,“ sagði Raghheiður. - Hvaða ástæður standa sundinu fyr- ir þrifum á Islandi að þínu mati? „Aöstæður, plássleysi í laugum, en við stöndum eilíft í deilum við al- menning um pláss til æfmga. Við fáum til dæmis engar æfingar á morgnana í Mosfellsbænum, fasta- gestir laugarinnar eiga þennan tíma og ekki er hægt að breyta því. Þaö hefur ekkert gerst í aöstöðumálum sundmanna frá því að ég byrjaði í sundinu sjö ára gömul. Það er bráð- fyndið að heyra íþróttafulltrúa Reykjavíkurborgar koma á íslands- meistaramótið og segja að núna sé búið að plana 50 metra innilaug. Þetta er búið að segja í mörg ár en þegar þetta var sagt síðast gat ég ekki annað en klappað fyrir honum. Núna bíður maður eftir því að ein- hver annar segi þetta á innanhúss- mótinu í Eyjum.“ Ragnheiður segir ennfremur að fmna megi ástæöur víðar fyrir lægð- inni. „Metnaðarleysi unglinga í dag er geipilega mikið. Við þetta vandamál erum við að kljást. Þetta á ekki ein- göngu við um íþróttir heldur á fleiri stööum einnig. Það er einhver nei- kvæður andi yfir öllu saman og má rekja það til þjóðfélagsaöstæðna sem við búum við í dag. Það er margþætt vandamál sem við stríðum við. Ég æföi í 12,5 metra laug þangað til að ég var 16 ára þannig að endalaust er ekki hægt að hengja sig í að stærri laugar séu ekki til. Þetta verður allt- af spurning um metnað og hungrið í að verða bestur. Þetta er mitt per- sónulega mat örugglega. Við þurfum bara að bjóða upp á fjölbreytilegra og betra starf til að tæla og lokka unglingana til okkar. Sundið er erfið íþrótt og krakkar nenna ekki neinu sem er erfitt og spilar þar sjálfsagi inn í. Krakkar fara frekar í hóp- íþróttirnar, fá þar félagsskap og er sama hvort þeir komast í hð eða ekki. Það þarf að byggja upp markvissa heildarstefnu, tími er runninn upp til að fara gera eitthvað," sagði Ragn- heiðurRunólfsdóttir. -JKS PLUS Plús vikunnar fær HM ’95 nefndin sem sýndi það og sannaði að frábær heima- vinna skilaði sér fullkomlega þegar Alþjóða handknatt- leikssambandiö ákvaö á fimmtudaginn að heims- meistarakeppnin í hand- knattleik færi fram á íslandi. MINUS Mínus fá þær eijur sem hafa verið á milli ÍBV og móta- nefndar HSÍ í kjölfar ákvörð- unar þeirra síðarnefndu að leikur ÍBV og KR yrði leikinn fyrir luktum dyrum. Menn eiga nú að kasta deilumálum fyrir róða og vinna saman. Nóg er komið í bih. íþróttamaður vikunnar Magnús Scheving - sem varð Evrópumeistari í þolfimi í Búdapest Magnús Scheving, Evrópumeistari i þolfimi. Magnús Scheving sýndi það og sannaði á Evrópumeistaramótinu í þolfimi um síðustu helgi að hann er kominn í hóp þeirra fremstu í þolfimi í heiminum í dag. Þrot- lausar æfingar og keppni undan- farinna ár er farið að skila sér með þessum frábæra árangri. Evrópu- meistaratitilhnn er aðeins viðbót við öll þau verðlaun sem Magnús hefur unnið á síðustu árum. Nægir þar að nefna margfalda íslands- meistaratitla og Norðurlanda- meistaratith. Áður en Magnús hélt utan til keppni í Búdapest hafði hann á orði að hann stefndi á verðlauna- sæti. Þar var Magnús ekki að lofa upp í ermina á sér því hann sigraði með glæsibrag. Magnús hlaut 8,22 í einkunn af tíu mögulegum sem verður að teljast mjög góður árang- ur. Hann hafði umtalsverða yfir- burði á næsta mann sem hlaut 7,56. Nú bíða eflaust margir eftir því hvað þessi 29 ára Reykvíkingur geri næst. Fyrirhuguð er þátttaka á heimsmeistaramótinu í Tokyo í Japan sem verður haldið í apríl. Á síðasta heimsmeistaramóti lenti Magnús í þriðja sæti og í Viðtali við DV við heimkomuna frá Búdapest um síðustu helgi sagðist Magnús hafa sett stefnuna á eitt af efstu sætunum á HM í Tokyo. Þar sagöist Magnús eiga eftir að slípa æfingar sínar eitthvað fyrir heimsmeistaramótið og bæta eflaust einhveiju nýju inn í. Það verður gaman að fylgjast með Magnúsi í keppninni í Japan en hann hefur þegar glatt hjörtu ís- lendinga með frábærri frammi- stöðu sinni. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.