Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1994, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1994, Blaðsíða 6
FÖSTUDAGL'R 11. MARS 1994 Viðskipti Avöxtun húsbréfa Fö Má Þr Mí Fi Bensín 98 okt. tónn Mi Fi Fö Má Þr Mi Franski frankinn Kauph. í París CAC- 40 Fi Fö Ávöxtun hús- bréfa lækkar Undanfama daga hefur ufsi á fiskmörkuðum selst að meðaltali á 29 til 36 krónur kílóiö. Framboð af ufsa hefur verið nokkurt. Ávöxtun í nýjustu flokkum húsbréfa hefur lækkað lítillega að undanfómu. Á einni viku hafa vextir í flokki 94/1 lækkað úr 5,23 í 5,20%. 98 oktana bensín í Rotterdam lækkaði nokkuð ört frá miðviku- degi í síðustu viku þar til sl. mið- vikudag að verðið fór aöeins upp, eða í 142 dollara tonnið. Frá mánudegi hefur franski frankinn hækkaö í verði. Sölu- gengi frankans var 12,524 krónur í gærmorgun. Hlutabréfavísitalan CAC-40 í kauphöllinni í París hækkaði ht- illega í gær þar sem seðlabankinn tilkynntióbreyttavexti. -bjb Aöalfundur Eimskips fyrir 1993: Veruleg umskipti í rekstri frá ’92 - 368 millj óna króna hagnaður Aðalfundur Eimskips fyrir árið 1993 fór fram í Súlnasal Hótels Sögu í gær. Þar kom fram í ræðu Indriða Pálssonar stjórnarformanns að hagnaður af rekstri síðasta árs nam 368 milljónum króna. Þetta eru tölu- verð umskipti frá árinu 1992 þegar tap varð af rekstri Eimskips upp á 41 milljón króna. Umskiptin sjást enn betur á niðurstöðu fyrir skatta. Þá varð 214 milljóna króna tap árið 1992 en á síðasta ári nam hagnaður fyrir skatta 527 milljónum króna. Ákveðið var á aðalfundinum að greiða 10% arð til hluthafa. Rekstrartekjur Eimskips námu 8,6 milljörðum króna á síðasta ári en árið áður voru tekjurnar upp á 7,2 milljarða. Rekstrargjöld síðasta árs voru 7,9 milljarðar og en voru 7,1 milljarður árið 1992. Heildareignir Eimskips í árslok námu 9,8 milljörð- um króna en heildarskuldir 5,2 millj- örðum. Eigið fé var því um 4,6 millj- arðar króna og jókst um 9% á árinu. Eiginfjárhlutfallið er 47%. I máli Indriða kom fram að flutn- ingar með skipum Eimskips á síðasta ári jukust um 8,4% frá 1992, fóru úr 913 þúsundum í 990 þúsund tonn. Að Þessir forráðamenn Eimskips höfðu ástæðu til að brosa á aðalfundinum í gær. Frá vinstri: Baldur Guðlaugsson stjórnarmaður, Hörður Sigurgestsson forstjóri og stjórnarmennirnir Hjalti Geir Kristjánsson og Benedikt Sveins- son. DV-mynd GVA auki fluttu strandferðaskip Eimskips 150 þúsund tonn af inn- og útflutn- ingsvöru sem umskipað var í Reykja- vík. „Það er fjölmargt sem þarf að fara saman svo árangur verði viðunandi. Ekki nægir að búa við sterka fjár- hagsstöðu og nútimalegri tækni á öllum sviðum. Árangurinn væri ekki slíkur sem raun ber vitni ef félagið hefði ekki farið nýjar leiðir við lækk- un kostnaðar. Sífellt betur er að koma í ljós sá góöi árangur sem náðst hefur með markmiðsáætlanagerð og aöferðum gæðastjórnunar," sagði Indriði m.a. í ræðu sinni. Launagreiðslur Eimskips á síðasta ári voru upp á 1,6 milljarða króna og launatengd gjöld voru 220 milljón- ir. Að meðaltali störfuðu 746 starfs- menn hjá Eimskip og dótturfyrir- tækjum, þar af um 137 erlendis. Þess má geta að árið 1984 var aðeins 1 starfsmaðurerlendis. -bjb 188 mllljóna tap Flugleiða 1993: Enginn arður greiddur út Árið 1993 var 188 milljóna króna tap af starfsemi Flugleiða. Það er um 1,4% af veltu félagsins á árinu. Árið 1992 var 134 milljóna króna tap sem var 1,1% af veltu. Með hliðsjón af þessari afkomu hefur stjórn Flug- leiða ákveðið að koma með tillögu á aðalfundi 17. mars nk. um aö greiða ekki arð af hlutafé á þessu ári. Hagnaður af rekstri, að fjármagns- kostnaði undanskildum, var 703 milljónir króna á síðasta ári saman- borið við 687 milljóna króna rekstr- arhagnað árið 1992. Rekstrartekjur voru ríflega 13,3 milljarðar 1993 en voru 12,4 milljarðar árið áður. Hér er um 7,3% hækkun að ræða milli ára. Hins vegar hækkuðu rekstrar- gjöldin um 7,6% milh ára. Á síöasta ári voru gjöldin 12,6 milljarðar en voru 11,7 milljarðar 1992. Kostnaður í tilteknum þáttum rekstrarins lækk- aði þó um 400 milljónir milli ára. Farþegum með Flugleiðum fjölgaði um 3% á árinu og voru ríflega 830 þúsund. Fraktflutningar jukust um 7% og námu rúmlega 13 þúsund tonnum. Vegna aukinna vaxtagjalda og áhrifa af gengisfellingu sl. júní var tap fyrir skatta meira á árinu, eða 372 mihjónir á móti 298 milljónum króna áriö 1992. Rúmlega 3,5 milljóna hagnaður varð af rekstri dótturfé- laga Flugleiða á síðasta ári en árið áður var hagnaðurinn upp á 26 mhlj- ónir króna. Aðalfundur Flugleiða er eins og áöur sagöi 17. mars nk. og verður haldinn á Hótel Loftleiðum. -bjb Gengi gjaldmiðla undanfarna viku: Jenið lækkar um 2 prósent Helstu breytingar á gengi gjald- miðla gagnvart íslensku krónunni undanfarna viku er að japanska jen- iö lækkaði í gærmorgun niöur í 0,6835 krónur. Á einni viku hefur jen- ið lækkað í verði um 2%. Frá því á mánudag hefur dollarinn sömuleiðis verið að lækka. Sölugengi dohars var tæpar 73 krónur sl. mánudag en í gærmorgun seldist hann á 72,30 krónur. Lækkunin nem- ur tæpu prósenti. Sterhngspundið hefur ekki tekiö jafn miklum breyt- ingum að undanfömu. Af öðrum gjaldmiðlum á meðfylgj- andi grafi er það að segja að gengi þeirra hefur sveiflast til undanfarna viku. Þá er danska krónan undan- skhin en hún hefur hækkað lítillega á einni viku. -bjb Gengi gjaldmiðla ■U 6 Kr. D J Sænsk króna IlFranskur franki 0,04 0,04 0,04 0,04' Kr. D J F M _ Góðafkomals- landsflugs Veruleg aukning varð á allri starfsemi íslandsflugs á síðasta ári. Rekstrartekjur voru 286 mihjónir sem er 27% meira en árið 1992. Alls flutti félagiö um 42 þúsund farþega í áætlunar- og leiguflugi en þaö er 10% aukning frá fyrra ári. MiBljón Visa- færslurámán- uðiárið 1993 í thkynningu frá Visa-ísland um afkomu fyrirtækisins árið 1993 kemur fram að fjöldi við- skiptafærslna með Visa-kort var 12,2 mhljónir á árinu. Það sam- svarar rfflega 1 mhljón færslna á mánuði. Af einstökum atvinnugreínum jukust bensínviðskipti með kort mest á árinu, eða um 114%. Hagnaður hjá Handsali Aðalfundur verðbréfafyrirtæk- isins Handsals fór fram sl. þriðju- dag. Þar kom fram að rekstur félagsins skhaði 20 mhljóna króna hagnaöi á árinu fyrir skatta en 14,4 milljónum eftir skatta. Heildartekjur námu 93,8 milljónum. Heildarvelta Handsals í verö- bréfum var 22 mihjarðar sl. ár samanboriö við 15 míhjaröa árið 1992. Vísbending með ritgerðasam- keppni Tímaritið Vísbending hefur hleypt af stokkunum ritgerða- samkeppni meðal viðskipta- og hagfræðinema í Háskólanum. Þrenn verðlaun verða veitt: 50 þúsund krónur í 1. verðlaun, 25 þúsund í 2. verðlaun og 10 þúsund í 3. verðlaun. Skilafrestur er til 7. apríl. Úrslit verða kynnt 1. maí nk. og mun Vísbending birta athyglisverð- ustu ritgerðimar. Seðlabankinn iækkarvexti Seðlabankinn hefur lækkað vexti innstæðubréfa banka um 0,25 prósentustig. Ávöxtun í end- urhverfum verðbréfakaupum lækkar um 0,1-0,25 prósentustig frá og með deginum í dag. Eftir breytingamar verða vext- ir innstæðubréfa 4,25% og ávöxt- un í endurhverfum kaupum rík- isvixla 5,4%. OlísogSkelj- ungurvíxluðust í grafi um hlutabréfagengi sl. miðvikudag víxluðust nöfn Olís og Skeljungs þannig að Olís fékk gengisþróun Skeljungsbréfanna og öfugt, Beðist er velvirðingar á þessu. -bjb Söluátakáís- lenskafánanum ÞórhaJlur ÁsrmmdsE., DV, Sauðárkróki: Hafið er söluátak á islenska fánanura hjá Saumastofunni á Hofsósi. Að átakinu standa mark- aðsfyrirtæki í Reykjavik og Iðn- þróunarfélag Norðurlands vestra, INVEST. Framleiðslan á Hofsósi hefur aha tíð átt í sam- keppni viö innflutta fána. „Okkur list náttúrulega vel á þetta átak og vonumst til að eitt- hvaö komi út úr því,“ sagði Svan- hhdur Guðjónsdóttir hjá Sauma- stofunni á Hofsósi við DV.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.