Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1994, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1994, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 11. MARS 1994 33 Það er stutt siðan hætt var að sýna Mr. Jones í kvikmyndahúsi i Reykjavík en þar leikur Lena Olin á móti kvennagullinu Richard Gere. Lena Olin vakti verulega athygli fyrir leik sinn i myndinni The Un- berable Lightness of Being. Hér er það Juliette Binoche sem myndar Lenu óklædda í einu atriði myndarinnar. Lena Olin: Elskar myndavélina Sænska leikkonan Lena Olin seg- ist vera á vissan hátt ástfangin af myndavélinni. Þess vegna segir hún oft „hann“ myndavélin, eins og um karlmann væri að ræða, þó svo að orðið sjálft sé kvenkynsorð. Helstu kostir myndavélarinnar að hennar mati er að hún setur ekki þröng skilyrði og tekur manneskj- unni eins og hún er. Það er hægt að gera hvað sem er fyrir framan myndavélina án þess að hún geri athugasemdir eins og karlmaður- inn myndi gera. Lena segir það stærsta gallann við ástarsambönd að henni finnist hún yfirleitt á ein- hvern hátt heft í sambandi en fyrir framan myndavélina getur hún verið frjáls. Lena segist hafa tekið allar mikil- vægustu ákvarðanir lífs síns snöggt og án þess að hugsa sig um. Að hennar mati eyðileggjum við svo margt fyrir sjálfum okkur með því að hugsa um hlutina, þó óneit- anlega sé það stundum gagnlegt. Eitt af því sem hún segist ekki vilja hugsa um eru kvikmyndirnar sem hún hefur sjálf leikið í. Þess vegna forðast hún það í lengstu lög að horfa á sjálfa sig á hvíta tjaldinu hún líkir áfallinu við að horfa á eigin myndir við það að skrifa ást- arbréf ætlað einum manni en sjá það síðan á forsíðu dagblaðs daginn eftir. Lena stefndi ekki á frægð og frama í Hollywood en ákvað að taka tilboðinu um að leika í The Unberable Lightness of Being þar sem hana langaði til að breyta til eftir að hafa leikið í leikhúsum í Stokkhólmi um árbO. Fyrir frammistöðu sína í myndinni var hún tilnefnd til óskarsverðlauna fyrir bestan leik í aukahlutverki og eftir það kepptust umboðsmenn- irnir um að fá hana á samning. Þær eru orðnar nokkuð margar Hollywood-myndirnar sem hún hefur leikið í síðan þá en þrátt fyr- ir það heldur hún fast í heimili sitt í Svíþjóð. Eitt af því sem hún á erf- itt með að sætta sig við í Holly wood er hve leikstjórinn kemur seint inn í myndina. „Þú færð handritið og nöfnin á meðleikurunum löngu áður en búið er að ráða leikstjór- ann en í mínum huga skiptir mestu máh hver kemur til með að stýra mér,“ segir Lena. Henni finnst áherslan á „stjörn- urnar“ líka vera farin að skyggja á myndirnar og gæði þeirra. Oft á tíðum sé eins og það sé mikilvæg- ara hver leikur aðalhlutverkið og hvernig hann lítur út heldur en hvernig sagan er. Að hennar mati er það ekki höfuðatriði hversu dýr eða flott kvikmyndin er heldur hvort hún snerti eitthvað innra með henni. Það að velja hlutverk finnst Lenu oft erfitt. Það er ekki hægt að fylgja ákveðinni formúlu í þeim málum. í hvert skipti sem hún fær nýtt handrit í hendurnar segist hún reyna að meta það hvað hún geti gert úr hlutverkinu. Á vissan hátt þurfi hún að sjá fyrir sér liti, finna lykt og geta ímyndað sér allt í kringum persónuna. Þaö sé einna helst hægt að líkja því við að verða ástfangin. Stundum segist hún ekki hafa farið eftir þessari eðlisávísun sinni og í þau skipti hafi hún held- ur ekki verið ánægð með árangur- inn. py____________________Afrnæli Kristján Pálsson Kristján Pálsson, fyrrverandi bif- reiðarstjóri, til heimilis að Kross- eyri í Bíldudalshreppi en dvelur nú í Lönguhlíð 21-23 á Bíldudal, verður sjötugur á sunnudaginn. Starfsferill Kristján bjó í Sperðlahlíö í Suður- fjarðahreppi til 15 ára aldurs og svo á Krosseyri næstu sjö árin. Hann var síðan í Reykjavík í áratug, á Álftanesi í 1 ár, í Skagafirði í 3 ár, þá nokkur ár í Keflavík og svo aftur í Reykjavík og í Skagafirði. Kristján bjó í Kópavogi í 1 ár og 17 ár á Eyrar- bakka en er nú búsettur á Bíldudal. Kristján var atvinnubílstjóri í fjóra áratugi og var fyrst hjá Þrótti og síðarhjáMjölni. Fjölskylda Fyrri kona Kristjáns var Marta Maríasdóttir, látin, hún var úr Reykjavík. Seinni kona Kristjáns var Aðalheiður Guðmundsdóttir, látin, hún var frá Flekkuvík í Vatns leysustrandarhreppi. Kjördóttir Kristjáns er Sigrún Ell- en Einarsdóttir, búsett í Reykjavík. Bróðir Kristjáns: Björn Ólafur Pálsson, látinn, kennari og skóla- stjóri. Foreldrar Kristjáns: Páll Krist- jánsson frá Skátadal í Patreksfirði og Málfríður Ólafsdóttir frá Trost- ansfirði í Arnarfirði. Svidsljós Tilkyimingar Laugardagsganga Hana nú Vikuleg laugardagsganga Hana nú verð- ur á morgun. Lagt af staö frá Gjábakka, Fannborg 8, kl. 10. Nýlagað molakaffi. kjallaragrein Þau mistök urðu í handriti að grein Ólafs Halldórssonar, „Veiðar og stærð fiskstofna", sem birtist í DV 9. mars sl., að sagt var að á undan- förnum 10 árum hefði þorskafli farið 100 þús. tonn fram úr því sem Haf- rannsóknastofnun hefði lagt til. - Hið rétta er að aflinn hefur farið 700 þús. tonn fram úr tillögunum. Úkraínsk kvikmynd í bíósal MÍR „Hvítur fugl með svartan díl“ nefnist kvikmyndin sem sýnd verður í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, nk. laugardag 13. mars kl. 16. Myndin var gerð í Úkraínu 1971 og hlaut gullverðlaun á sjöundu alþjóð- legu kvikmyndahátíðinni í Moskvu árið eftir. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Norsk bókakynning í Norræna húsinu Laugardaginn 12. mars kl. 16 verður norsk bókakynning í Norræna húsinu. Jan Erik Vold, sem er einn af þekktustu núlifandi ljóðskáldum Norðmanna, verð- ur kynntur á síðustu bókakynningu vetr- arins. Allir velkomnir og áðgangur ókeypis. Félag eldri borgara j Reykjavik og nágr. í dag kl. 14 er spiluð félagsvist í Risinu. Göngu-Hrólfar fara frá Risinu, Hverfis- götu 105, kl. 10 á laugardagsmorgun. Fjölskylduhátíð í Hafnarfirði Fjölskyldu- og tívolíhátíðin Marsbúinn verður haldinn í íþróttahúsinu við Strandgötu dagana 12. og 13. mars. í um 50 básum verða alls kyns leiktæki fyrir unga íslendinga á öllum aldri. Skemmti- atriði af ýmsu tagi verða á palli ásamt hljómsveit og veitingar verða í boði. Há- tíöin hefst kl. 13 á laugardag og verður opið til kl. 18. Á sunnudag er opiö kl. 13-17. Aðgangur er ókeypis. Safnaðarstarf Grensáskirkja: Starf fyrir 10-12 ára í dag kl. 17.30. Hallgrímskirkja: Kvöldbænir með lestri Passíusálma kl. 18.00. Langholtskirkja: Aftansöngur kl. 18.00. Laugarneskirkja: Mæðra- ogfeðramorg- unn kl. 10-12. Seljakirkja: Fyrirbænastund í kirkjunni í dag kl. 18. Fyrirbænaefnum veitt mót- taka á skrifstofu safnaðarins. Leikhús LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR GLEÐIGJAFARNIR eftirNeil Simon með Árna Tryggva og Bessa Bjarna. 4. sýn. sun. 13. mars, blá kort gilda, upp- selt, 5. sýn. mið. 16. mars, gul kort gilda, uppselt, 6. sýn. fös. 18. mars, græn kort gilda, uppselt, 7. sýn. sun. 20. mars, hvit kort gilda, uppselt, 8. sýn. mið. 23. mars, brun kortgilda, uppselt, lau. 26. mars, uppselt, mið. 6. april, fáein sæti laus, fös. 8. april,fim. 14. april. Stóra sviðið kl. 20. EVA LUNA . Leikrit eftir Kjartan Ragnarsson og Oskar Jónasson. Unnið upp úr bók Isa- belAllende í kvöld, uppselt, á morgun, uppselt, fim. 17. mars, örfá sæti laus, laud. 19. mars, uppselt, fimd. 24. mars, fösd. 25. mars, uppselt, sun. 27. mars., fim. 7. apríl, lau., 9. april, uppselt, sun. 10. april. Geisladiskur með lögunum úr Evu Lunu til sölu í miðasölu. Ath.: 2 miðar og geisla- diskur aðeins kr. 5.000. Miðasala er opin kl. 13.00-20.00 alla daga nema mánudaga. Tekið á móti miðapöntunum í síma 680680 kl. 10-12 alla virka daga. Bréfasími 680383. Greiðslukortaþjónusta. Munið gjafakortin okkar. Tilvalin tækifærisgjöf. Leikfélag Reykjavikur- Borgarleikhus. ÞJÓDLEIKHÚSIÐ Sími 11200 Stóra sviðið kl. 20.00 GAURAGANGUR eftir Ólaf Hauk Simonarson Á morgun, uppselt, sud. 13/3, uppselt, fid. 17/3, uppselt, föd. 18/3, uppselt, fim. 24/3, uppselt, lau. 26/3, uppselt, fid. 7/4, uppselt, föd. 8/4, uppselt, sud. 10/4, upp- selt, sud. 17/4, mvd. 20/4, fid. 21/4. MENNINGARVERÐLAUN DV1994 MÁVURINN eftir Anton Tsjekhov Aukasýning þri. 15. mars, uppselt. ALLIR SYNIR MÍNIR eftir Arthur Miller í kvöld, lau. 19/3, fös. 25/3. Fáarsýningareftir. SKILABOÐASKJÓÐAN eftir Þorvald Þorsteinsson Ævintýri með söngvum Á morgun kl. 14, uppselt, sun. 13. mars kl. 14, örfá sæti laus, mvd. 16. mars kl. 17.00, uppselt, sud. 20. mars kl. 14.00, nokkur sæti laus, sud. 27. mars kl. 14.00. ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN Sud. 20/3 kl. 20.00, lau. 26/3 kl. 20.00. Ath. Fáar sýningar eftir. Bæjarleikhúsið Mosfellsbæ LEIKFÉLAG MOSFELLSSVEITAR SÝTUR GAMAHLEIKirin Smíðaverkstæðið kl. 20.30. BLÓÐBRULLAUP eftir Federico Garcia Lorca í kvöld, uppselt, laud. 19. mars, fáein sæti laus, sud. 20. mars, föd. 25. mars. Sýningin er ekki við hæfi barna. Ekki er unnt að hleypa gestum i salinn eftir að sýning er hafin. i Bæjarleikhusinu, Mosfellsbæ Kjötfarsi með einum sáimí eftir Jón St. Krlstjánsson. í kvöld. Siðasta sýn. Ath.! Ekki er unnt að hleypa gestum i salinn eftir að sýning er haf in. Mlðapantanir kl. 18-20 alla daga isima 667788 og á öðrum tímum i 6877B8, simsvara. Litla sviðið kl. 20.00. SEIÐUR SKUGGANNA eftir Lars Norén Á morgun, næstsiðasta sýning, föd. 18. mars, siðasta sýning. Ekki er unnt að hleypa gestum i salinn eftir að sýning er hafin. Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla daga nema mánudaga frá 13.00-18.00 og fram að sýningu sýningardaga. Tekiö á móti simapöntunum virka daga frá ki. 10. Græna línan 99 61 60. I R l I M I I. I A ■ L E I K H Ú Sl I Leikhúsi frú Emilíu Héðinshúsinu, Seljavegi 2 DÓNALEGA DÚKKAN SKJALLBANDALAGIÐ sýnir Dóna- legu dúkkuna eftir Dario Fo og Fröncu Rame i leik- stjórn Mariu Reyndal. Öll hlutverk: Jóhanna Jónas. 2. sýn. i kvöld kl. 20.30, örfá sæti laus, 3. sýn. á morgun, lau., kl. 20.30,4. sýn. sun. 13. mars kl. 20.30. Sýnt í Héðinshúsinu, Leikhúsi frú Emilíu. Miðapantanir i sima 12233 og 11742 allan sólarhringinn. í S L E N S K A LEIKHÚSI0 Hinu húsinu, Brautarholti 20 Sími624320 VÖRULYFTAN eftir Harold Pinter í leikstjórn Péturs Einarssonar Á morgun kl. 20, sun. 13. mars kl. 20, þri. 15. marskl. 17, mið. 16. marskl. 17. Miðapantanir i Hinu húsinu, simi 624320. Ný íslensk stuttmynd BYRON Sýnd í Tjarnarbíói i kvöld kl. 21 og 22, síðustu sýningar Leikfélag Akureyrar fiarPar eftir Jim Cartwright SÝNT í ÞORPINU, HÚFÐAHLÍÐ1 í kvöld kl. 20.30, uppselt. Laugardag 12. mars kl. 20.30, uppselt. Sunnudag 13. mars kl. 20.30. Föstudag 18. mars kl. 20.30. Laugardag 19. mars kl. 20.30. Sunnudag 20. mars kl. 20.30. Ath.: Ekki er unnt að hleypa gestum i salinn eftir að sýning er hafin. eftir Ken Hill i Samkomuhúsinu Frumsýnlng fös. 25. mars, kl. 20.30. 2. sýning laud. 26. mars, kl. 20.30. Aðalmiðasalan i Samkomuhusinu er opin alla virka daga nema mánudaga kl. 14-18 og sýningardaga fram að sýningu. Simi 24073. Simsvari tekur við miðapöntunum ut- an afgreiðslutima. Ósóttar pantanir að BarPari seldar í miðasölunni í Þorpinu frá kl. 19 sýn- ingardaga. Simi 21400. Greiðslukortaþjónusta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.