Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1994, Blaðsíða 23
FÖSTUDAGUR 11. MARS 1994
31
^_________________________Menrdng
Úr smiðju Darios Fo
Baur (Bá-er) sumarlistinn. Mikið úrval
af fallegum, vönduðum fatnaði á böm
og fullorðna. Afgrtími 10-14 dagar.
Verð kr. 600 án burðargj. S. 667333.
Spólar bíllinn? Verið örugg um að
komast áfram í vetrarumferðinni.
Snjómottur fást í Bílanausti, Stillingu
og bensínstöðvum Esso um allt land.
Volvo Amazon, árg. '68, gott eintak,
skoðaður ’94. Upplýsingar í síma
91-35551 og símboða 984-54671.
Gerið verðsamanburð. Ásetning á
staðnum. Allar gerðir af kerrum, allir
hlutir til kerrusmíða. Opið laugard.
Víkurvagnar, Síðumúla 19, s. 684911.
JCB vökvaaflstöð, vökvaborvél og
fleygur. 2 ára, lítið notað, mjög létt
og handhægt fyrir verktaka, bændur
eða bæjarfélög. Fæst á mjög góðu
verði. Uppl. í s. 91-668066 og 985-30583.
■ Dulspeki - heilun
Þú hefur lifað áður. Ég get hjálpað þér
að muna þín fyrri líf. Þú talar upp-
hátt um þau sjálf/ur. Tekur u.þ.b. 1 'A
klst. Símar 91-625321 og 17837. Villa.
Notað pallhús til sölu. Húsið er 10 feta,
fyrir ameríska pallbíla. I húsinu er
lúxusinnrétting með öllu tilheyrandi.
Aukalega er spennubreytir, 220-12 v.,
og frágengið rafkerfi með geymi.
Uppl. í símum 91-37730 og 91-32482.
■ Til sölu
■ Jeppar
Stærðir 44-58. Allt á útsölu.
Stóri listinn, Baldursgötu 32, s. 622335.
Einnig póstverslun.
■ Bílar til sölu
iTAFf
Til sölu Toyota 4Runner, árgerð '85,
ekinn 144 þús. km, nýupptekin vél,
flækjur, 36" negld dekk. Verð 1.290
þús. Skipti á ódýrari. Upplýsingar hjá
Bílasölunni Starti í sima 91-687848 og
eftir kl. 19 í síma 95-22902.
■ Vagnar - kerrur
Unimog, ekinn 56 þús.Einnig
Legacy, árg. '91, ekinn 48 þús.
Bílasalan, Borgartúni lb, s. 91-611010.
■ Velar - verkfeeri
Kjúklingurinn, torfærugrind, til sölu
með öllum fylgibúnaði, er í toppstandi
og tilbúinn í keppni. Skipti koma til
greina á japönskum fólksbíl +
skuldabréf. Uppl. í síma 92-13507.
Tréform hf. Veljum íslenskt.
Framleiðum E.P. stiga, Selko inni-
hurðir. Einnig eldhús- og baðinnrétt-
ingar og stigahandrið. Tréform hf.,
Smiðjuvegi 6, sími 91-44544.
vel fram undirliggjandi boðskap
textans.
í síöasta þættinum er aftur
brugðið á leik. „Við höfum öll sömu
sögu að segja“ er ísmeygilega vel
saminn leikþáttur þar sem hlut-
verk og örlög kvenna eru sett fram
á óvenjulega gegnumiýsandi hátt.
Þar fær Jóhanna aftur tækifæri til
að spila á hraða og skoplega strengi
og kreistir hvern dropa úr þeim
safaríka texta sem handritið færir
henni.
Hlutur Maríu Reyndal leikstjóra
Jóhanna Jónas í einu hlutverka sinna.
er greinlega stór í þessu samspili
og sýningin í heild hið ágætasta
framtak, aðstandendum öllum til
sóma.
Skjallbandalagiö sýnir í Héðinshúsinu:
Dónalegu dúkkuna
Höfundar: Dario Fo og Franka Rame
Þýðendur: Jón Karl Helgason og Jó-
hanna Jónas
Leikmynd: liiugi Eysteinsson
Ljósahönnun: Jóhann Bjarni Pálmason
Tónlist: Óli Jón Jónsson
Leikstjórn: María Reyndal
Smáauglýsingar - Sími 632700 Þverholti 11
Aðaldriffjaðrir Skjallbandalagsins
eru þær Jóhanna Jónas leikkona
og María Reyndal leikstjóri. Þegar
Jóhanna lék einleik í leikþætti eftir
Dario Fo á Óháðu listahátíðinni í
vor vakti framtakið töluverða at-
hygli og margir vildu fá meira að
heyra.
Nú hefur Skjallbandalagið sett
þáttinn upp á ný ásamt tveimur
öðrum eftir Dario Fo og konu hans
Frönku Rame í leikhúsi frú Emilíu
í Héðinshúsinu.
Sýningin í heild kemur vel út í
ágætri umgjörð Illuga Eysteinsson-
ar sem er höfundur leikmyndar.
Fyrsti þátturinn er leikinn á „efri
palli“ leikmyndarinnar eða nánar
tiltekið í svefnherbergi heimasætu
nokkurrar og á svölum út frá því.
í hinum þáttunum tveimur er
sviðsumhverfi einfaldara og þar er
ljósum markvisst beitt til að undir-
strika andblæ verkanna. Leikbrúð-
ur og skuggamyndir eru nettlega
notaðar á tveimur stöðum til að
fylla upp í myndina.
Þættirnir eru hver með sínu móti.
„Samtal fyrir eina rödd“ er hraður
og ýktur þáttur í mjög kómískum
stíl, um stúlkukorn sem tekur á
móti elskhuga sínum um nótt. Hún
spilar á manngreyið eftir kúnstar-
innar reglum og þó að hann sjáist
hvorki né heyrist má greina við-
brögð hans í gegnum einræðu og
atferli hinnar yfirgangssömu el-
skerinnu.
Jóhanna Jónas leikur af miklu
öryggi og hraða, jafnt í látbragði
sem framsögn. Hún spilar með öll-
um líkamanum, beitir höndunum
óspart til áherslu, og hreyfingar,
svipbrigði og látbragð eru stór í
Leiklist
Auður Eydal
sniðum. Kannski má kalla þetta
úthverfan leik þar sem túlkun text-
ans er ekki bara í orðum heldur
líka í atferli öllu.
Jóhanna byggir á hefðbundnum
aðferðum skopleikhússins en hefur
jafnframt þróað sinn eigin stíl sem
kemur vel fram í þessum fyrsta
þætti og eins í hinum síðasta, sem
nefnist „Við höfum öll sömu sögu
að segja“.
í miðþættinum mátti hins vegar
greina aðra og hæglátari túlkunar-
aðferð sem ekki var síður akkur í
að sjá. í þættinum sem ber nafniö
„Það gerist á morgun" er lýst inn
í sálardjúp stúlku sem hefur orðið
fyrir grimmilegustu pyntingum og
kynferðislegu ofbeldi. Þarna
reyndi á leikkonuna á allt annan
hátt, frásögnin mestan part
skýrslukennd og ópersónulég en
engu að síður greip hún áhorfend-
ur sterkt með túlkun sinni og náði
Húsaviðgerðir
Verslun
Alhliða húsaviðgerðir - smátt og stórt.
Vönduð og örugg vinna.
Fagleg ráðgjöf. Húsasmíðameistari.
Uppl. í síma 91-688790.
■ Ferðalög
Langar þig í ævintýraferð á seglskútu
við Kanaríeyjar og á Miðjarðarhafi?
Reyndur skipstjóri á 30 f. skútu.
Slepptu ekki tækif. S. 22385 e.kl. 20.
Kjarvalsstofa í París
Kjarvalsstofa í París er íbúð og vinnustofa sem ætluð
ertil dvalarfyrir íslenska listamenn. Reykjavíkurborg,
menntamálaráðuneytið og Seðlabanki íslands lögðu
fram fé til þess að koma upp slíkri starfsaðstöðu í
Parísarborg með samningi við stofnun sem nefnist
Cité Internationale des Arts og var samningurinn
gerður á árinu 1986. Kjarvalsstofa er í miðborg París-
ar, skammt frá Notre Dame dómkirkjunni.
Sérstök stjórnarnefnd fer með málefni Kjarvalsstofu
og gerir hún tillögu um úthlutun dvalartíma þar til
stjórnar Cité Internationale des Arts er tekur endan-
lega ákvörðun um málið. Dvalartími er skemmstur 2
mánuðir en lengst er heimilt að veita listamanni af-
not Kjarvalsstofu í 1 ár. Vegna fjölda umsókna und-
anfarin ár hefurdvalartími að jafnaði verið 2 mánuðir.
Þeir sem dvelja í Kjarvalsstofu greiða dvalargjöld sem
ákveðin eru af stjórn Cité Internationale des Arts og
miðast við kostnað af rekstri hennar og þess búnað-
ar sem þeir þarfnast. Þessi gjöld eru lægri en almenn
leiga í Parísarborg og er nú Fr. frankar 1400 á mán-
uði. Dvalargestir skuldbinda sig til þess að hlíta regl-
um Cité Internationale des Arts varðandi afnot af
húsnæði og vinnuaðstöðu.
Hér með er auglýst eftir umsóknum um afnot Kjar-
valsstofu en stjórnin mun á fundi sínum í mars fjalla
um afnot listamanna af stofunni tímabilið 1. ágúst
1994 til 31. júlí 1995. Skal stíla umsóknir til stjórnar-
nefndar Kjarvalsstofu. Tekið er á móti umsóknum til
stjórnarnefndarinnar í skjalasafni borgarskrifstofanna
í Ráðhúsinu en þar liggja einnig frammi umsóknar-
eyðublöð og afrit af þeim reglum sem gilda um af-
not af Kjarvalsstofu.
Fyrri umsóknir þarf að endurnýja, eigi þær að koma
til greina við þessa úthlutun. Umsóknum skal skila
í síðasta lagi 28. mars 1994.
Stjórnarnefnd Kjarvalsstofu