Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1994, Blaðsíða 17
16
FÖSTUDAGUR 11. MARS 1994
FÖSTUDAGUR 11. MARS 1994
25
Iþróttir
Iþróttir
Lokaðáleik-
mennutan ESB?
Eyþór Edvarösson, DV, HoHandi:
HoUensk knattspyrnufélög eru
mjög óánægð með tillögu sem
liggur fy rir Evrópuráðinu en hún
myndi nánast útiloka að þau
gætu fengið til sín leikmenn frá
löndum utan Evrópusambands-
ins eins og til dæmis frá íslandi.
Samkvæmt tillögunum, sem
settar eru fram til að vernda leik-
menn innan Evrópusambands-
ríkjanna, má ekki kaupa leik-
menn utan sambandsins nema
þeir séu afburða góðir, fái laun á
við fimm launahæstu leikmenn
landsins og hafi leikið minnst
helming A-landsleikja sinnar
þjóðar síöustu tvö árin.
Þetta myndi þýða að félögin
gætu ekki fengiö til sín unga og
efnilega leikmenn frá hinum
ýmsu löndum og það eru þau afar
óhress með. Félag hoUenskra at-
vinnuknattspyrnumanna hefur
mótmælt tUlögunni og búist er
við aö Jttest félögin muni gera sUkt
hiö sama.
Sigurjón 14.
íOrlando
Sigurjón Arnarsson náði best-
um árangri áhugamanna og varð
í 14. sæti af 157 keppendum á goh-
móti atvinnumanna sem fram fór
á Cypress Creek golfveliinum í
Orlando í Flórída á þriðjudag og
miðvikudag. Sigurjón lék á 72 og
71 höggi, eða alls á 143 höggum
sem er eitt högg undir pari vaUar-
ins en mótið vannst á 135 högg-
um. Þetta er þriöja mótið í röö
þar sem Sigurjón leikur undir
parí. -VS
GuðrúnogFríða
áháskólamótinu
Guörún Arnardóttir ur Ár-
manni og Fríða Rún Þóröardóttir
úr Aftureldingu keppa báðar á
bandaríska háskólameistaramót-
inu í ftjálsum íþróttum innan-
húss sem fram fer í IndianapoUs
um helgina. Guðrún keppir í 55
metra grindahlaupi en Fríða Rún
í 3.000 metra hlaupi; -VS
Úrslitráðast
ííshokkíinu
Úrslitin á íslandsmótinu í ís-
hokkíi ráöast á Akureyri um
helgina þegar Skautafélag Akur-
eyrar og Skautafélag Reykjavík-
ur eigast þar við. SR vann sinn
heimaleik á dögunum, 8-7, og
getur tryggt sér titiUnn þegar liö-
in mætast á Akureyri klukkan
17 á morgun, laugardag. Vinni SA
leikinn mætast liöin i þriðja sinn
og þá verður sá leikur á Akur-
eyri klukkan 12 á sunnudag.
-VS
Wilkinson
íhugarað
kæra Cantona
Howard Wilkinson, fram-
kvæmdastjóri enska knatt-
spyrnuUðsins Leeds, ihugar að
fara 1 mál við Eric Cantona,
franska leíkmanninn hjá Manc-
hester. Eins og sagt var frá í DV
í gær kom út bók eftir Cantona í
gærþarsem BVakkinn segirmeð-
al annars aö Wilkinson haO viijaö
losna viö sig þar sem hann hafi
ekki þolaö hve Cantona hafi verið
orðinn vinsæU hjá stuðnings-
mönnumLeeds. -VS
helgarinnar
eruábls.23
Stuðningsmenn knattspyrnuliösíns Feyenoord eru ekki sammála þjálf-
urum liösins sem láta tvíburana frá Akranesi, Arnar og Bjarka Gunn-
iaugssyni, eingöngu leika með varaliði félagsins, ef marka má grein i
nýjasta Feyenoord-blaðinu.
Þar skrifár einn af stuöningsmönnum liðsins, sem fylgist grannt með
öllum málum, og kveðst vera mjög óánægöur með aö Arnar og Bjarki fái
ekki tækifæri meö aðalliðinu. „Varaliðið er einfaldlega ekki nógu gott
fyrir svona efnilega leikmenn," segir hann meðal annars í grein sinni.
Enn spenna í 1. deild
Eftir að Haukar tryggðu sér deildarmeistaratitil 1. deildarinnar í handknattleik
karla í fyrrakvöld snýst baráttan í tveimur síðustu umferðunum fyrst og fremst
um hvort Afturelding eða ÍR nær 8. sætinu og sleppur inn í úrslitakeppnina og
hvort þaö verður KR eða ÍBV sem fellur í 2. deild.
Aðeins eitt stig skilur að Aftureldingu og ÍR. Afturelding er meö 19 stig en ÍR 18,
en markatala ÍR-inga er hagstæðari. Bæði Uö eiga eftir mjög erfiða leiki, Aftureld-
ing gegn Haukum á útivelli og Víkingi á heimavelli en ÍR á eftir að leika við Stjörn-
una á heimavelli og FH á útivelli.
Staða ÍBV er afar veik og hðið þarf að vinna báða leikina sem það á eftir og KR
að tapa sínum báðum. Ef svo fer þurfa KR og ÍBV að leika aukaleik um sæti í 1.
deild því markatala sker ekki úr um fall í 2. deild.
KR á eftir að leika við Selfoss á útivelli og Hauka á heimavelli en ÍBV á eftir að
mæta FH á heimavelli og Val á útivelli. Mjög erfið dagskrá hjá báöum liðum.
Pétur og Einar Þór
keppa í París í dag
Pétur Guðmundsson og Einar Þór Einarsson keppa í dag á Evrópumeist-
aramótinu í frjálsum iþróttum innanliúss sem hófst í París i morgun.
Pétur keppir í kúluvarpinu og þar hófst undankeppnin á tíunda tíman-
um í morgun. Hafi hann komist í gegnum hana keppir hann í úrslitum
síðdegis í dag. Pétur sigraði á alþjóðlegu móti í Stokkhólmi á þriöjudag-
inn, kastaði 20,07 metra, og átti mjög góða kastseríu.
Einar Þór Einarsson keppir í 60 metra hlaupi, undanrásir þar hefiast
núna um hádegisbilið en undanúrslit og úrslit eru síðar í dag. Þriðji íslend-
ingurinn á mótinu er Geirlaug Geirlaugsdóttir en hún keppir í 60 metra
hiaupi á morgun. - -VS
Houston vann Seattle
Houston endurheimti í nótt efsta
sætið í miðvesturriðli NBA-deild-
arinnar í körfuknattleik úr hönd-
um San Antonio með góðum sigri
á topphði deildarinnar, Seattle,
87-82. Hakeem Olajuwon gerði
gæfumuninn fyrir Houston á loka-
kaflanum, sem og á öðrum mikil-
vægum augnablikum, en Robert
Horry skoraði þó mest fyrir hðið,
16 stig. Gary Payton skoraði 19 stig
fyrir Seattle og Vincent Askew 15.
Úrshtin í NBA-deildinni í nótt:
Houston - Seattle......... 87-82
Golden State - Portland...100-97
LA Lakers - Dallas........106-101
Vlade Divac skoraði 22 stig, tók
17 fráköst og átti 12 stoðsendingar
í sigri Lakers á Dallas en Jim Jack-
son skoraði 21 stig fyrir Dallas.
Golden State hefndi sín á Port-
land eftir skell í leik liðanna fyrr í
vikunni. Latrell Sprewell skoraði
22 stig fyrir Golden State og Bihy
Owens 19 en Rod Strickland skor-
aði 18 stig fyrir Portland og Clyde
Drexler 17.
-VS
Sigurður Einarsson spjótkastari heldur hér á skutlunni sem um er rætt hér að neðan.
DV-mynd Brynjar Gauti
„Hef ur valdið byltingu"
- segir Stefán Jóhannsson frjálsíþróttaþjálfari um „skutluna“
„Þessi skutla hefur valdið byltingu
í þjálfun í spjótkasti því nú getum
við í fyrsta skipti kennt krökkum að
kasta innanhúss allan veturinn í stað
þess að hafa bara þrjá mánuði á
sumrin til æfinga," sagði Stefán Jó-
hannsson frjálsíþróttaþjálfari í sam-
tah við DV í gær.
Umræddar skutlur eru úr frauð-
plasti og hafa þá eiginleika að þær
svífa ekki nema þeim sé kastað ná-
kvæmiega eins og kasta á alvöru
spjóti. Landsbanki íslands hefur gef-
ið slíkar skutlur í alla skóla landsins
þannig að notkun þeirra er orðin
útbreidd.
„Fullorðnir eru líka byijaðir að
nota skutlurnar sem æfingatæki og
Siguröur Einarsson mun til dæmis
nýta sér þær í undirbúningi sínum
fyrir sumarið," sagði Stefán Jó-
hannsson.
Fyrsta keppnin í spjótkasti innan-
húss á íslandi verður í Laugardals-
höhinni á sunnudaginn klukkan 16.
Meistaramót í frjálsum íþróttum fyr-
ir 14 ára og yngri stendur yfir í Höll-
inni og Baldurshaga um helgina og
keppendum þar gefst kostur á að
keppa í spjótkasti með skutlunni.
Sigurður Einarsson verður á staðn-
um og leiðbeinir krökkunum.
-VS
Markmiðið að
auka áhuga,
kynningu og
umfjöllunina
■ ÍWB'IIJ
Á dögunum var undirritaður samningur á mhli Samtaka 1. deildar félag-
anna i knattspymu og Sólar hf. þess efnis að Sól hf. verður aðalstyrktaraðili
1. dehdarinnar næstu þrjú árin og mun deildin nefnast Trópí-dehdin.
Meginmarkmið samstarfs 1. dehdar félaganna og Sólar hf. er að auka
áhuga, kynningu, umíjöllun og þar með aðsókn að leikjum 1. dehdar íslands-
mótins. I lok keppnistímabhsins mun Sól hf. greiða félögum 1. dehdar 5 mihj-
ónir sem skiptist á milli félaganna tíu eftir árangri þeirra í Trópí-deildinni.
Liöið sem verður meistari fær 700 þúsund krónur. 2. sætið gefur 570 þúsund,
3. sætið 510 þúsund, 4. sætið 485 þúsund, 5. sætið 470 þúsund, 6. sætiö 465
þúsund, 7. sætið 455 þúsund, 8. sætið 455 þúsund, 9. sætið 445 þúsund og það
lið sem endar í 10. sætinu fær í sinn hlut 445 þúsund krónur.
Þórir Jónsson, formaður Samtaka 1. dehdar félaganna, var að vonum
ánægður með samninginn og sagði hann skipta gríðarlega miklu máli fyrir
félögin. Hann sagði að forráðamenn Sólar hf. hefðu átt frumkvæði að því
að ganga th samstarfsins og gróflega metið þá áætlaði hann verðmæti samn-
ingsins vera nálægt 10 mhljónum króna. -GH
Staðan
Deildarkeppninni í 1. deild
kvenna lauk í gær og varð loka-
staðan þessi:
Stjarnan..
Víkingur.
Fram.....
JBV......
KR.......
Valur....
Grótta...
Haukar...
.20 18
.20 17
.20 15
.20 13
.20 10
.20 8
.20 7
.20 6
2 442-328 36
3 454-350 34
5 417-364 30
5 476-387 28
8 345-371 22
10 389-403 18
11 381-382 16
0 14 369-439 12
Ármann.... 20 4 1 15 386-443 9
FH........20 3 3 14 375-441 9
Fylkir....20 3 0 17 364^90 6
Úrslitakeppnin hefst
á þriðjudaginn
Átta efstu liðin heygja nú úrshta-
keppnina um íslandsmeistaratit-
ihnn og hefst keppnin á þriðju-
daginn kemur. Þá leiða saman
hesta sína Stjarnan - Haukar,
Víkingur - Grótta, Fram-Valur
og ÍBV-KR. Það hð sem fyrr
vinnur tvo leiki kemst í undanúr-
sht. -GH
Körfuboltamaður meiddist á höfði þegar stæði sem heldur körfuboltaspjaldi uppi gaf sig:
Körf ur teknar úr umferð
- á meðan Vinnueftirlit ríkisins er að rannsaka orsök slyssins á Seltjamarnesi
Það slys varð í íþróttahúsinu á
Seltjarnarnesi í vikunni þegar Frið-
rik Stefánsson, unglingalandshös-
maður úr KR, var að troða knettin-
um ofan í körfuna að aðalstæðið sem
heldur körfuspjaldinu uppi gaf sig.
Körfuspjaldið rakst í höfuð Friðriks
með þeim afleiðmgum að hann vank-
aðist og fékk skurð á höfuðiö. Hann
var þegar fluttur á slysadeild Borgar-
spítalans og þar voru saumuð 12 spor
th að loka skurðinum. Friðrik er með
ljótan skurð en er eftir atvikum hress
og á góðum batavegi.
í kjölfar slyssins var Vinnueftirht
ríkisins kallað á vettvang og er nú
verið að rannsaka orsakir óhappsins
og skoða körfurnar en mesta mildi
er að ekki fór verr eftir því sem vitni
segja. Á meðan rannsókn stendur
yfir hefur Vinnueftirlitið bannað
notkun á þessum körfum sem eru á
nokkrum stöðum á landinu en þær
eru framleiddar í Danmörku.
„Það er ekki spurning að þama
hefði getað átt sér stað mikið slys en
sem betur fór fór þetta nokkuð vel.
Þetta eru keppniskörfur og eru staðl-
aöar sem slíkar en á meðan rannsókn
stendur er ekkert að segja th um
hvað fór úrskeiðis. Það er ljóst að það
verður enginn körfubolti sphaður
hjá mér í bráð en stefnan er að fá
körfur sem hægt er að setja í loftið,"
sagði Magnús Georgson, forstöðu-
maður íþróttahússins á Seltjarnar-
nesi, við DV í gærkvöldi.
KR verður að leita á önnur mið
Að sögn Sófusar Guðjónssonar, for-
manns körfuknattsdeildar KR, er
ljóst að KR-ingar verða að leika sinn
síðasta heimaleik í Visadeildinni á
öðrum stað en á Seltjarnarnesi en
ekki hefur enn verið ákveðið hvar
sá leikur verður. „Ég varð vitni að
þessu atviki og auðvitað varð manni
mjög brugðið þegar þetta gerðist. Ég
bjóst við að drengurinn væri stórsl-
asaður en það sem kom í veg fyrir
að svo var ekki er hversu hávaxinn
hann er því fallið á spjaldinu varð
fyrir vikið minna," sagði Sófus.
Gæti verið um hönn-
unargalla að ræða
„í samvinnu við Iðntæknistofnun
erum við að láta rannsaka þessar
körfur. Við látum gera prófun á suð-
unni og efninu sem brotnaði. Það
gæti verið um hönnunargalla að
ræða, að þetta séu ekki nógu sterkar
körfur með tilliti til þeirra átaka sem
gætu hugsanlega verið á þeim. Þá
þarf að svara spurningunni hvort
efnisgalli sé líka til staðar. Þetta er á
rannsóknarstigi og við verðum bara
að bíða eftir niðurstöðum rannsókn-
anna áður en framhald verður
ákveðið," sagði Guðmundur Eiríks-
son, umdæmisstjóri hjá Vinnueftir-
hti ríkisins, viö DV í gær.
Gerum kröfu á innflytjanda
„Ég er feginn að þetta fór ekki verr
en körfunar verða teknar úr sam-
bandi þangað th það fæst úr því skor-
ið hvort hægt er að gæra þær þannig
úr garði að þær séu hættulausar ef
hægt er að tala um hættulaust tæki.
Við gerum kröfu á innflytjanda sem
selur okkur þetta sem góða og gilda
vöru og vitanlega verður að bregðast
við þessu," sagði Sigurgeir Sigurðs-
son, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, í
samtali við DV.
„Ég reikna með að það verði keypt-
ar nýjar körfur en hvenær er ekki
gott að segja. Það þarf sinn aðdrag-
anda og mér skilst að svona körfur
eins og menn eru sammála um að séu
betri núna, þessar niðurhengdu körf-
ur, gætu kostað einhvers staðar ná-
lægt tveimur milljónum króna,"
sagði Sigurgeir.
Agúst Óskarsson í heildverslunni
Á. Oskarsson, sem flytur umræddar
körfur inn, vhdi ekkert tjá sig um
þettamálaðsvostöddu. GH
FH komið í úrslrt
- en KA vantar eitt stig eftir jafntefli í Krikanum
„Það var spennufall hjá báðum lið-
um en ég held að þessi úrslit hafi
verið sanngjörn. Við vorum lengi
með forystuna en vorum kannski
dáhtið heppnir í lokin,“ sagði Valdi-
mar Grímsson, leikmaður KA, eftir
að Akureyrarliðið hafði gert jafntefli
við FH, 24-24, í 1. deildinni í hand-
bolta í Kaplakrika í gærkvöldi. Valdi-
mar var hetja sinna manna en hann
skoraði jöfnunarmark KA úr vítak-
asti þegar leiktíma var lokiö.
Liðin mættust í gærkvöldi í annað
skipti á 5 dögum en þau léku sem
kunnugt er th úrshta í bikarkeppn-
inni sl. laugardag og þá unnu FH-
ingar stórsigur.
KA-menn komu ákveðnir th leiks
og ætluðu greinilega ekki að láta
sama leikinn endurtaka sig. Þeir
höfðu undirtökin lengst af fyrri hálf-
Stjörnustúlkur kampakátar með bikarinn eftir sigurinn á Gróttu sem tryggði liðinu deildameistaratitilinn.
DV-mynd Brynjar Gauti
Stjarnan meistari
„Að sigra í deildinni finnst mér vera
besti mæhkvarðinn á getu liðanna.
Þau er búin að leika 20 leiki frá því í
september og besta hðið hlýtur að
verða í fyrsta sæti. Úrshtakeppnin er,
hkt og bikarkeppni, spuming um get-
una þá stundina og meiðsl og veikindi
geta sett strik í reikninginn,“ sagði
Magnús Teitsson, þjálfari Stjörnunn-
ar, við DV eftir sigur á Gróttu, 20-17,
og með sigrinum tryggði Stjarnan sér
deildarmeistaratithinn.
Fyrri hálfleikurinn var jafn og stað-
an 8-8 í háhleik en Stjaman skipti um
gír í upphafi síðari hálfleiks og aöeins
góð markvarsla Fanneyjar Rúnars-
dóttur kom í veg fyrir stórsigur Stjörn-
unnar.
Una Steinsdóttir og Guðný Gunn-
steinsdóttir áttu góða kafla í liði
Stjömunnar sem annars var mjög
jafnt en auk Fanneyjar átti Vala Páls-
dóttir góðan leik fyrir Gróttu.
Mörk Stjörnunnar: Una 6, Guðný 5,
Margrét 2, Herdís 2, Þuríður 1, Ragn-
heiður 1, Sigrún 1, Ásta 1 og Inga Fríða
1.
Mörk Gróttu: Vala 7, Laufey 3, Elísa-
bet 3, Sigríður 2, Soffía 2.
í Hölhnni vann Víkingur sigur á
Ármanni, 20-28, eftir að staðan í leik-
hléi var 9-13.
Mörk Ármanns: Svanhildur 6, Her-
borg 6, María 4, Kristín 2, Elísabet 1,
Ásta 1.
Mörk Víkings: Inga Lára 7, Haha 7,
Svava Sig. 4, Hulda 4, Heiða 3, Hanna
1, Heiðrún 1, Oddný 1.
• í fyrrakvöld sigraði ÍBV lið Hauka
í Eyjum, 27-11.
-BL
FH
KA
(12) 24
(12) 24
3-1, 3-4, 5-6, 6-9, 9-9, 11-10,
(12-12), 14-14, 16-16, 17-19, 21-19,
21-22, 22-23, 24-23, 24-24.
Mörk FH: Hans Guðmunds 8/3,
Hálfdán Þórðarson 4, Sigurður
Sveins 3, Guðjón Árnason 3, Pétur
Petersen 2, Knútur Sigurðsson 2,
Atli Hilmars 1, Arnar Geirsson 1.
Varin skot: Bergsveinn 16.
Mörk KA: Valdimar Grímsson
10/6, Leó Öm Þorleifsson 3, Alfreð
Gíslason 3, Helgi Arason 2, Valur
Ármannsson 2, Erlingur Kristj-
ánsson 2, Jóhann Jóhannsson 2.
Varin skot: Björn Bjömsson 9,
Sigmar Þröstur Óskarsson 6.
Brottvísanir: FH 4 mín. (Atli
Hilmarsson rautt spjald), KA 4.
Dómarar: Einar Sveinsson og
Þorlákur Kjartansson, dæmdu
mjög vel lengst af en sumir dómar
þeirra undir lokin voru vafasamir.
Áhorfendur: Um 300.
Maður leiksins: Valdimar
Grímsson, KA.
leiks en FH-ingar náöu að jafna fyrir
hlé. Baráttan var mikh í síðari hálf-
leik enda mikhvæg stig í húfi fyrir
bæði lið. Liðin skiptust á að hafa for-
ystuna og undir lokin var spennan
mikh. FH-ingar náðu forystunni,
24-23, þegar 50 sekúndur voru eftir
en KA-menn fiskuðu vítakast á síð-
ustu sekúndu leiksins og Valdimar
tryggði þeim annað stigið eins og
áður sagði.
Valdimarfrábær
Valdimar átti frábæran leik og var
bestur í liði KA þrátt fyrir að leika
meiddur. „Mér fannst ég vera betri
í öxlinni fyrir leikinn en ég fann fyr-
ir henni þegar í leikinn kom og ég
gat ekki beitt mér sem skyldi,“ sagði
Valdimar. KA menn eru ekki öruggir
í úrslitakeppnina og þurfa eitt stig í
síðustu tveimur leikjunum til að
tryggja sig.
Hjá FH-ingum var Hans Guð-
mundsson í aðalhlutverkinu og
Bergsveinn Bersveinsson varði mjög
vel í markinu. „Við getum verið sátt-
ir um að nú erum við búnir að
tryggja okkur í úrshtin. Ég var mjög
smeykur fyrir þennan leik og vissi
að þeir kæmu sterkir til leiks. Nú
reynum við að vinna tvo síðustu leik-
ina og komast í 3. sætið í dehdinni,“
sagði Kristján Arason, þjálfari FH,
eftir leikinn. -RR
Sigurnúmer50
Vreni Schneider frá Sviss vann
í nótt sinn 50. sigur í heimsbikar-
keppnmni á skíðum þegar hún
sigraði í svigi í Mammoth Lakes
í Kalifomíu. Katja Koren frá Sló-
veníu varð önnur og Martina
Ertl frá Þýskalandi þriöja.
Nancy Kerrigan tilkynnti í nótt
aö hún væri hætt við að taka
þátt í heimsmeistaramótinu í list-
hlaupi kvenna á skautura sem
hefst í Japan um aðra helgi.
Franski knattspyrnumaðurinn
Jean-Pierre Papin neitaði í gær
fréttum um að hann væri á leið-
inni til Marseille á ný, frá AC
Milan, í vor. Hann segir að slíkt
hafi ekki verið rætt en hann hafi
liins vegar áhuga á aö enda feril-
inn með Marseille.
Afturílandsliðið?
Papin, sem liafði ákveðið að
hætta með franska landsliðinu,
hefur gefið kost á sér á ný í vin-
áttulandsleik gegn Chile 22. mars.
Frestað hjá í A
Ekkert varð af leik Skaga-
manna gegn Hacken á aþjóölega
knattspyrnumótinu á Kýpur í
gær. Astæðan var að úrhelhs-
rígningu gerði á Kýpur og vellim-
ir vom á kafi í vatni. Leikurinn
fer því fram í dag og FH-ingar
leika gegn Degerfors frá Svíþjóð.
Kínverjarkoma
„Það er mjög spennandi að tak-
ast á við Kínverjana en það er
nauðsynlegt fyrir okkm- að spha
við sterka erlenda mótlierja, og
ekki verra að fá þá hingað" sagöi
Broddi Kristjánsson badminton-
maður við DV í gær en fjórir Kín-
verjar, tveir karlar og tvær kon-
ur, verða meðal keppenda á
meistaramóti Reykjavíkur sem
fram fer í TBR-húsunum um
helgina. Mótið hefst klukkan 13 á
morgun en undanúrslitin hefjast
klukkan 10 á sunnudagsmorgun-
inn og úrshtin eftir hádegiö.
HKtekurforystu
HK tók í gærkvöldi forystuna í
úrslitakeppni 2. deildar karla í
handknattleik á ný með því að
sigra Fjölni, 24-20, i Digranesi.
Staöan var jöfn í hálfleik, 11-11,
en HK náði undirtökunum í byrj-
un seinni hálfleiks.
Óskar Elvar Öskarsson og
Zvisdan Sovisic skoruðu 6 mörk
hvor fyrir HK og Asmundur Guð-
mundsson og Róbert Haraldsson
3 hvor. Ánú Stefánsson skoraöi
6 mörk fyrir Fjölni og Stefán
Steinsen 3.
FyrstatapGróttu
Gróttumenn töpuðu sínum
fyrsta leik í úrslitakeppninni þeg-
ar þéir lágu fyrir Fram í Höll-
inni, 21-17, en staðan í hálfleik
var, 12-7. Um miðjan síðari hálf-
leik komst Grótta yfir, 14-16, en
Framarar voru sterkari á enda-
sprettinum. Daði Hafþórsson
skoraði 5 mörk fyrír Fram, Leó
Hauksson 4, Sigurður Guðjóns-
son 3 og Karl Karlsson 3. Hjá
Gróttu var Ólafur Sveinsson með
6 rnörk, Gunnar Gíslason 3, Jón
Örvar Kristinsson 2 og Jens
Gunnarsson2.
Knattspyrnufélagið Ægir
óskar eftir þjálfara fyrir yngri flokka félagsins.
Reynsla eða menntun nauðsynleg.
Nánari upplýsingar í síma 91-610253. Grétar.