Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1994, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1994, Page 5
LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1994 5 Fréttir Smygl á 356 lítrum af vodka: Þremur boðin milljón í sekt - tveir samþykktu, stóri aðilinn hugsar málið Mál fjögurra skipverja á Hof- sjökli, sem kom til landsins 25. sept- ember 1992, voru tekin fyrir í Hér- aösdómi Reykjavikur í vikunni. Þrír skipveijanna mættu við þingfestingu málanna og voru þeir ákærðir fyrir að hafa smyglað til landsins 356 lítrum af vodka í um- ræddri ferð skipsins. Einn þeirra, 39 ára Reykvíkingur, viðurkenndi smygl á 252 lítrum áfengisins og var boðið að greiða 785 þúsund króna sekt ella sæta varðhaldi í 80 daga. Tók hann sér viku frest til að taka afstöðu til boðsins. Hinum tveimur, 44 ára og 39 ára Reykvíkingum, var boðið að greiða 315 þúsund krónur í sekt fyrir inn- flutning á 104 lítrum áfengis ella sæta varðhaldi í 30 daga hvor. Þeir féllust á tilboðið. Þeir játuðu allir innflutning á áfenginu og voru ákærðir fyrir tollalagabrot, brot á áfengislögum og brot á lögum um verslun ríkis- ins með áfengi, tóbak og lyf. -PP Suðurnes skal þaðheita Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum; „Það er ákveðið að hið nýja sveitar- félag mun heita Suðurnes. Nafnið verður sent til félagsmálaráðuneytis- ins og það bætir sennilega bær aftan við. Málinu er lokið og það þýðir ekki fyrir neinn að kæra niðurstöð- una. Menn eru ánægðir og segja má að komið sé logn á eftir stormin- um,“ sagði Ingólfur Bárðarson, for- seti bæjarstjórnar Njarðvíkur, í sam- talið við DV. Ingólfur er formaður 6-manna nefndar, sem hafði yfirumsjón á nafnavali á hinu sameinaða sveitar- félagi Keflavik, Njarðvík, Hafna- hreppur og eftir fund nefndarinnar á miðvikudagskvöld var ákveðið að nafnið Suðurnes skyldi standa. Þar var mættur 21 sveitarstjómarmaður úr sveitarfélögunum þremur og sam- þykktu allir nafnið nema einn - Garðar Oddgeirsson, bæjarstjórnar- maður í Keflavík. Sameining samþykkt í Skarðshreppi Búast má við að sex sveitarfélög af sjö í Dalasýslu sameinist í sumar þar sem atkvæðagreiðsla um sam- einingu sveitarfélaganna í sýslunni var samþykkt í Skarðshreppi með 19 atkvæðum gegn 14. Sameiningin var felld í Saurbæjarhreppi með 41 at- kvæði gegn 32 þannig aö i framtíð- inni má búast við að tvö sveitarfélög verði í Dalasýslu; sameinað sveitar- félag sex hreppa og Saurbæjarhrepp- ur. -GHS Raufarhöfn: Sigurbjörg efst hjá Framsókn Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Sigurbjörg Jónsdóttir skipar efsta sætið á lista Framsóknarflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar á Raufarhöfn en efstu sæti listans eru annars þannig skipuð: 1. Sigurbjörg Jónsdóttir skrifstofu- maöur. 2. Haraldur Jónsson útgerð- arstjóri. 3. Lilja Valgerður Björns- dóttir afgreiðslustjóri. 4. Guðrún Þóranna Jónsdóttir kennari. 5. Gunnar Baldursson vigtarmaður. Sauðárkrókur: Óháðir með K-lista Óháðir borgarar á Sauðárkróki hafa komið sér saman um framboðs- hsta fyrir bæjarstjórnarkosningarn- ar 28. maí. Efstu sæti listans eru þannig skipuð: 1. Hilmir Jóhannes- son mjólkurfræðingur, 2. Gunnlaug K. Ingvadóttir forstöðumaður, 3. Brynjar Pálsson kaupmaður og 4. Freyja Jónsdóttir kaupmaður. Óháðir borgarar eða K-listinn hafa átt einn fulltrúa í bæjarstjóminni á Sauðárkróki á þessu kjörtímabili og verið í meirihlutasamstarfi með Al- þýðuflokki og Sjálfstæðisflokki. -GHS MAZDA 323 fjögurra dyra Verö frá 1.098.000 kr. Taktu þátt í LJÓ5MYNPA6AMKEPPNIMAZPA 1995. Glæeileg verðlaun: 1. verðlaun: Nýr Mazda 323 fólksbíll og 3.000 dollarar. 14 gullverðlaun að upphæð 3000 dollara hver og birting myndar í dagatali Mazda 1995. 45 silfurverðlaun að upphæð 500 dollara hver. Auk þess hlýtur einn þátttakandi frá hverju landi viðurkenningarskjal með innsendri mynd hafi gull eða silfurverðlaun ekki komið í hlut þátttakanda frá landinu. Skílafrestur er til 30. júní 1994 og skulu myndirnar þá hafa borist Mazda í Japan eða Ræsi hf. í Reykjavík. Nánari upplýsingar og eyðublöð fást hjá Ræsi hf. og umboðsmönnum um land allt. Myndirnar skulu teknar ú litskyggnur (slides) í liggjandi formati. Eínkunnarorð keppninnar eru: Njóttu lífeine á Mazda fólkebíl eða eendimi. Öllum er heimil þátttaka. Magnús Hjörleifsson Ijósmyndari tók þátt í samkeppninní 1985 og 1990 og vann til verðlauna í bæði skiptin. Ræsir hf. Skúlagötu 59 105 Reykjavík Sími 91-619550 Mazda Photo Contest P.O. Box 93, Kyobashi Post Office Tokyo, Japan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.