Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1994, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1994, Page 20
20 LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1994 Kvikmyndir_____________ dv Hvað er eiginlega að gerast í Holly- wood? Svo virðist sem það sé komið í tísku meðal stórstirna Ameríku að taka að sér hlutverk sögufrægra per- sóna ættaðra úr sígildum hryllings- sögum eldri tíma. Á síðastliðnu ári var skýrt frá því að Tom Cruise hefði tekið að sér hlutverk blóösugu í myndinni Interview with a Vampire. Tökur eru hafnar á myndinni sem er byggð á bók sem Anne Rice skrif- aði fyrir um 17 árum. Leikstjóri myndarinnar er Neil Jordan sem er líklega þekktastur fyrir hina snilld- arlegu mynd The Crying Game. Hins vegar vita færri að hann gerði á sín- um tíma mynd sem fjallaði um vo- veiflega atburði í þorpi í Bretlandi þar sem úlfar komu mikið við sögu, enda hét myndin The Company of Wolves (1985). Frá Drakúla til Frankensteins Francis Ford Coppola kom fram á sjónarsviðið fyrir tveimur árum með myndina Bram Stoker’s Dracula. Þar lék Gary Oldman hinn eina sanna Drakúla greifa. Þetta viðfangsefni virðist hafa heillað Coppola því hann hefur nú hafið undirbúning að gerð myndar sem á að fjalla um Franken- stein. Til að kóróna allt saman er nýbúið að gera enn eina myndina sem fjallar um mann sem breytist í úlf. Þetta er kannski ekki svo fréttnæmt í sjálfu sér ef það væri ekki sjálfur Jack Nic- holson sem fer með hlutverk þessa aumingja manns, Michelle Pfeiffer með hlutverk ástkonu hans og sjálf- ur Mike Nichols er við stjómvölinn sem leikstjóri. Það má því með sanni segja að gömlu leikararnir Bela Lu- gosi, Boris Karloff, Christopher Lee, Peter Cushing, og Klaus Kinski hafi þarna fengið hörkusamkeppni frá rjóma Hollywood í dag. Úlfsbit The Wolf fjallar um Will Randall, ritstjóra bókaútgáfu sem verður fyrir því að úlfshvolpur bítur hann. Og viti menn, hann fer að breytast smátt og smátt í úlf. Hin nýja eðlishvöt og dýrslegur kraftur sem fylgir þessari umbreytingu hjálpar Randall til að leysa mörg vandamál í lífi sínu og þar á meðal þau er snúa að fjölskyld- unni. Samtímis tekst honum að ná aftur áttum og fótfestu í vinnunni eftir ófremdarástand ásamt því að uppgötva á nýjan leik ástríður og ást. Það mætti halda samkvæmt þessu að það að breytast í úlf hafi verið þaö besta sem gat komið fyrir auminga Randall, enda er hér um að ræða sambland af spennu- og gaman- mynd. Draumur Hugmyndin að The Wolf fæddist fyrir einum fjórum árum þegar rit- höfundurinn Jim Harrison og fram- leiðandinn Douglas Wick hittust í flugvél. Jim fór að segja vini sínum frá draumi sem hann dreymdi ný- lega. Það hafði verið keyrt á úlf, ekki langt frá þeim stað þar sem Jim bjó, sem var tiltölulegt afskekktur. Þegar Jim tók úlfmn upp renndi hann sér í gegnum munninn og beint inn í lík- amann. Eftir það breyttist Jim í úlf. Douglas Wick þótti sagan góð og samdi við Jim um að gera kvik- myndahandrit utan um þennan draum. Douglas þekkti Jack Nichol- son vel og því var honum boðið hlut- verkið sem hann öllum á óvart þáði. Það er nú kannski ekki svo skrýtið Umsjón Baldur Hjaltason því Nicholson þykir gaman að leika sérstæðar persónur og persónuleika samanber The Joker í Batman mynd- inni og svo djöfulinn sjálfan í The Witches of Eastwick. Merkilegur leikstjóri Fljótlega var Mike Nichols valinn leikstjóri. Hann fékk Wesley Strick til að endurskrifa handritið en Strick hafði meðal annars gert handritið að myndinni hans Scorsese Cape Fear. En þegar yflr lauk var Nichols aftur kominn með upphaflegu útgáfu Jim Harrison. Það er gaman og hvetjandi að sjá Mike Nichols leikstýra mynd á borð við The Wolf. Nichols er einn besti núlifandi leikstjóri meðal okk- ar. Hann er gyðingur og fæddist í Berlín 1931. Faðir hans, sem var læknir, haíði yflrgefið Rússland í byltingunni og flutt til Þýskaland. Þegar Hitler komst til valda flúði fjöl- skyldan aftur og í þetta sinn til Bandaríkjanna þar sem Nichols breytti sínu rétta nafni Nicholaiye- vitch yfir í Nichols. Margar stórmyndir Eftir að hafa stundað nám í háskól- anum í Chicago og leikið nokkuð, m.a. á Broadway undir stjórn Art-- hurs Penn, hóf Nichols leikstjórn. Frumraun hans var gamanfarsi eftir Neil Simon sem bar heitið Barefoot in the Park og var einnig sýnt á Bro- adway. Síðan lá leiðin út í kvikmynd- imar og hann byrjaði á ekki neinu smáverki eða Who’s afraid of Virgina Woolf?. Síðan gerði Nichols hverja stórmyndina á fætur annarri á þess- um tíma eins og The Graduate, sem gerði Dustin Hoffman að stjömu, Catch-22. sem Nichols hlaut verðlaun fyrir leikstjórn frá kvikmyndagagn- rýnendum New York borgar og einn- ig hans fyrstu óskarsverðlaun og svo Camival Knowledge. Hann hefur síðan gert fjölda mynda sem hafa ekki allar verið jafnvinsælar og hans fyrstu myndir. Má þar nefna Day of the Dolphin, Silkwood og svo Work- ing Girl sem var þó nokkuð vinsæl. Endurvakning Það má segja að þessi nýi áhugi Hollywood á gömlu hetjum hryll- ingsmyndanna ylji mörgum áhuga- mönnum um hryllingsmyndir um hjartarætur. Síðan Hafnarbíó hvarf af sjónarsviðinu hefur ekki verið í mörg hús að venda fyrir þetta fólk. Ástæðan fyrir þessum endurvakna áhuga er án efa margþætt en þó mætti ætla að einlægur kvikmyndaá- hugi þessara leikstjóra gerði það að verkum að þeim langar í dag til að spreyta sig á líkum verkefnum og þeir sáu sem unglingar á sínum tíma og mótaði kvikmyndaáhuga þeirra. Önnur skýring gæti legið í því að sú kynslóð kvikmyndahúsagesta sem er að vaxa úr grasi þekkir lítt til úlfa og blóðsugna og sé því álitlegur markhópur sem þurfi aö fara að venja við efnið. Hvað sem því líður verður gaman að fylgjast með þess- um nýju myndum, ekki sísta hinum eina sanna Jack Nicholson í hlut- verki úlfsins. Mynd umekkju Mao- Tse-Tung Þótt kínverski leikstjórinn Chen Kaige fengi ekki óskars- verðlaunín í ár fyrir Far vel frilla mín sem bestu erlendu kvik- myndina er hann að undirbúa sina næstu mynd af fúllum krafti. Eins og þeir sem hafa séð þessa ágætu kínversku mynd geta vitn- að um er Kaige óhræddur við að fjalla um efni sem er pólitískt við- kvæmt fyrir kinversk stjórnvöld. Sum atriðin í Far vel frilla min, sem fjölluðu um menningarbylt- inguna og hvernig þeir sem þurfti að snúa til réttrar trúar voru nið- urlægðir áður en þeir voru sendir til endurhæfingar út á land, stóöu auðsýnilega lengi í kínverskum yfirvöldum því myndin var lengi vel bönnuð í Kína. En eftir aö myndin hlaut gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes f fyrra og var tilnefnd til óskars- verðlauna voru sýningar heimil- aðar í Kina en ekki þó fyrr en búið var að klippa burtu sum atr- iöin. Erfitt viðfangsefni Það er líklegt að efni nýju myndar Chen Kaige eigi einnig eftir að fara fyrir brjóstið á yfir- völdum. Myndin heitir Madame Mo og er byggð á ævi ekkju Mao Tse-Tung. Hún mun sérstaklega fjalla um yngri ár Mo þegar hún vann sem leikkona, áður en hún giftist Mao Tse-Tung. Ætlunin er að nota sama gengið og gerði Far vel frilla mín. Lilian Lee er þegar byrjaður að skrifa handritið. Chen Kaige leggur mikla áherslu á að Gong Li, sem lék stórt hlut- verk i síðustu mynd, leiki sjálfa Mo. Hann telur Gong Li raunar vera einu leikkonuna sem geti leikið þetta hlutverk vegna þess að hún sé frá sama héraöi og Mo og skilji því vel persónuleika hennar og hvernig hún hugsaðl Ætlunin er aö hefjast handa fljót- lega ef það tekst að útvega nægj- anlegt fjármagn. Kinverska sljórnin breytti nýlega reglum um hvernig staðiö skuli aö verki ef myndir eru fjármagnaöar aö hluta til erlendis frá. Aö sögn Kaige fela þessar reglur í sér möguleika stjórnvalda til að rit- skoða efni rayndanna. Það er Jack Nicholson sem fer með aðalhluverkið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.