Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1994, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1994, Page 28
36 LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1994 Stuðningskona Grindvíkinga í körfubolta: Sumir halda að ég sé skrítin - segir Sigríður Guðlaugsdóttir húsmóðir sem fylgir liðinu hvert á land sem er stuðningsmenn meðan á leiknum stendur enda fylgist hún með hveiju andartaki leiksins. Hún hef- ur þó tekið eftir að ólíklegasta fólk er farið að mæta á leikina enda hefur hðið fengið mikla auglýsingu í vetur. „Alls kyns fólk er farið að ganga að mér og spyija mig hvort ég sé ekki stuðningskonan. Ég fór til Reykjavíkur um daginn og þar voru margir sem spurðu hvort ég væri ekki stuðningskonan í Grindavík. Þannig að eftir mér hef- ur verið tekið í vetur enda hafa sjónvarpsvélarnar oft beinst að mér,“ segir Sigríður. „Ég hafði ekk- ert áttað mig á hversu mikla at- hygli ég hafði vakið. Hins vegar veit ég að fólk hér hefur verið spurt að þvi hvort ég sé skrítin." Sigríöur er fædd og uppalin í Grindavík. Hún rekur eigið fyrir- tæki ásamt manni sínum, Birgi Egilssyni, og eiga þau tvö börn, 10 ára dóttur og 3ja ára son. Dóttirin hefur ekki áhuga á körfubolta en Sigríður vonar að sonurinn sé upp- rennandi körfuboltasnillingur og hún hefur sett körfu upp á stofu- vegginn hjá sér til að æfa strákinn. Sigríður starfar í fyrirtæki þeirra en auk þess sker hún utan af net- um. Persónulegir vinir Sigríður segir að strákamir í Mðinu séu margir hveijir orðnir persónulegir vinir sínir. „Ég hef þekkt þessa stráka svo lengi,“ segir hún. „Stundum borða ég með þeim í hádeginu." Móðir Sigríðar á fjórtán systkini og fimm þeirra fylgja körfuboltahð- inu á leiki, þar á meðal foreldrar Leikmenn körfuboltaliðsins í Grindavik veittu Sigriði, stuðnings- manni sínum, áletraðan viður- kenningarskjöld sem þakklætis- vott fyrir stuðninginn í vetur. Birgir, eiginmaður Sigriðar, styður hana heils hugar í áhugamálinu. DV-myndir Brynjar Gauti Börn Sigríðar stuðningskonu eru Guðbjörg og Egill. Hann er tilvonandi körfuboltamaður í Grindavík ef að líkum lætur. hennar enda eru tvö systkinaböm móður Sigríðar í liðinu. „Það er aldrei talað um neitt annað en körfubolta í þessari fjölskyldu. í öllum veislum er körfuboltinn númer eitt. Það er líka mjög mikill körfuboltaáhugi í bænum. Verst er að við skulum ekki enn vera farin að fagna tith. Njarðvíkingar voru að fá titihnn í áttunda sinn og þaö var mikh samúð með okkur aö fá hann ekki. Það er í raun mikil sam- staða með stuðningsmönnum þess- ara tveggja hða. Mér hefur verið boðið í stuðningsmannahóf í Njarð- vík og líka í Keflavík," segir Sigríð- ur. „Ég hef lagt mig aha fram um að vera strákunum til fyrirmyndar. Ég er aldrei með neinn dónaskap. Mér finnst að fólk megi taka sig á og vera kurteist. Ég varð fyrir miklu aðkasti fyrstu árin, t.d. var skvett yfir mig vatni á leikjum en í dag fæ ég sem betur fer ekkert að heyra. Ætli ég hafi ekki öðlast einhvers konar virðingu," segir hún. Torfæran tekur við - Nú er körfuboltatímabihð búið. Ertu þá komin í hvíld? „Nei, síður en svo. Nú hefst tor- færan. Maðurinn minn er mikill áhugamaður í torfærunni og hefur drifið mig með sér eins og ég tek hann í körfuboltann. Þannig tökum við þátt hvort í annars áhugamál- um. Grindvíkingar eru með tvo bíla í ár í torfærunni sem við styðjum náttúrlega." Sigríður hefur ekki tekið þátt í íþróttum sjálf en viðurkennir aö hún hafi einu sinni tekið þátt í körfuboltaleik á móti KR. „Eg hef aldrei leikið fyrr né síðar. Hér er karfan aöahþróttagreinin enda er karfa fyrir utan hvert hús í bæn- um,“ segir hún. „Ég mun halda áfram að vera stuðningsmanneskja hðsins og vonast th að sonur minn fari í körf- una. Að fara á leik er það sama fyrir mig og fara á bah hjá öðrum. Á tímabih klæddi ég mig upp í mín bestu fót áður en ég fór á leikina. Körfuboltatímabilið hefur verið sérstaklega erfitt núna af því að við náðum svo langt. Þetta hefur verið mikið álag.“ Kjarni stuðningsmannahóps Grindavíkurhðsins samanstendur af tuttugu manns sem mæta á aha leiki. Sigríöur stjórnar hópnum enda dyggasti og elsti stuðnings- maðurinn. Hópurinn syngur stuðningslag þeirra Grindvíkinga á leikjunum og lætur heyrast vel í sér. „Lagið okkar hefur gert mikla lukku og það er oft spilaö," segir Sigríður og sýnir kassettu með lag- inu en það var gefið út fyrir þrem- ur árum. „Það var í fyrsta skipti í vetur sem ég öskraði mig hása og lét at- huga í mér hálsinn en það var bara smávegis flensa. Ég get alveg öskrað úr mér líftóruna án þess að flnna fyrir því,“ segir Sigríður. Stendurmeð eiginkonunni Birgir stendur fullkomlega með Sigríði í baráttu hennar með körfu- boltahöinu enda segist hún mundu hætta strax ef honum mislíkaði þetta. Sigríður var á tímabih hrædd um að dóttir hennar skammaðist sín fyrir hana og ræddi það en í ljós kom að svo var ekki. „Það var spjah við mig í sjónvarpinu um daginn og eftir það spurði ég dóttur mín að því hvort henni þætti þetta leiðinlegt. Hún svaraði: Ég hlakka til að fara í skólann á morgun. Ég var mjög stolt af þessu svari og hef ekki haft neinar áhyggjur síðan.“ „Ég á bróður í hðinu sem hefur spilað körfubolta frá því hann var smástrákur og ég hef aha tíð fylgst með honum. Óll fjölskyldan hefur fylgst með honum í gegnum tíðina. Allt frá því að við fórum í meistara- flokk hef ég verið einn aðalstuðn- ingsmaður liðsins," segir Sigríður Guðlaugsdóttir, 33ja ára, stuðn- ingskona Grindvíkinga í körfu- bolta en hún hefur vakið mikla at- hygli að undanfómu vegna hins mikla áhuga á íþróttinni. Áhorf- endur sjónvarps hafa séð Sigríði jafnt hlæja sem gráta þegar sýnd hafa verið brot úr leikjum. „Ég tek þetta mjög inn á mig og lifi mig gjörsamlega inn í það sem fram fer,“ segir hún. „Annars hef ég ró- ast með aldrinum. Ég var miklu verri. Hér áður fyrr klappaði ég svo mikið að það blæddi úr höndunum á mér.“ Strákamir í liðinu kunna hka vel að meta stuðning hennar því þeir afhentu henni áletraðan silfur- skjöld sem þakklætisvott á balli eftir úrslitaleikinn. Sigríður er þó ekki hress með aö strákamir henn- ar skyldu tapa leiknum gegn Njarð- víkingum. „Við vorum svo ótrúlega nærri þvi að vinna leikinn," segir hún. „Þetta var rosalegt áfall. Það var eins og fótunum væri kippt undan mér. Ég hélt að við myndum hafa þetta þegar við vomm komin tíu stig yfir.' Ég fór heim og há- skældi eftir leikinn og síðan lagði ég mig. Reyndar hafði ég ekki sofið í tvo sólarhinga vegna spennu," segir Sigríöur. Orðin vel þekkt Sigríður segist ekkert spá í aðra „Áfram Grindavik," syngur Sigríður Guðlaugsdóttir, húsmóðir í Grindavik, og lætur sér fátt um finnast hvaö aðrir hugsa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.