Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1994, Page 30
38
LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1994
íþróttir
DV
Lokahóf körfuknattleiksmanna á Hótel íslandi:
Guðmundur sá besti
- kjörinn besti leikmaður og þjálfari Visadeildarinnar - Olga best í kvennaflokki
Þaö var mikiö húllum hæ á Hótel
íslandi síðasta vetrardag en þá héldu
körfuknattleiksmenn lokahóf sitt eft-
ir vel heppnað keppnistímabil.
Senuþjófurinn í lokahófinu var
Guðmundur Bragason, þjálfari og
leikmaður Grindvíkinga, en hann
var valinn af leikmönnum Visadeild-
arinnar besti leikmaðurinn og besti
þjálfarinn og var að auki valinn í
Nike-liöið en í það er einnig vahð af
leikmönnum deiidarinnar.
Undir stjórn Guðmundar náðu
Grindvíkingar frábærum árangri í
vetur. Þeir urðu deildarmeistarar og
töpuðu naumlega fyrir Njarðvíking-
um með minnsta mun í úrslitaleikj-
unum um íslandsmeistaratitilinn.
Þetta er besti árangur Grindvíkinga
frá upphafi en þeir hafa lengi staðið
í skugganum af hinum Suöurnesja-
risunum, Njarðvík og Keflavík. Guð-
mundur, sem hélt upp á 27 ára af-
mæli sitt á sumardaginn fyrsta, til-
- kynnti eftir íslandsmótið að hann
ætlaði að hætta þjálfun Grindavík-
urliðsins en einbeita sér þess í stað
enn frekar að því að leika meö liðinu.
Mjög stór
stund fyrir mig
„Ég tel áð ég eigi þetta 3-4 góð körfu-
boltaár eftir og að ég geti gert liðinu
meira gagn með því að leika ein-
göngu með því. Við ætlum okkur að
í ná í titil á komandi árum. Við vorum
nærri því í vetur en eigum við ekki
bara að segja aö þetta takist að ári,“
sagði Guðmundur í samtali við DV.
- Attir þú von á að verða fyrir valinu
sem besti leikmaður deildarinnar?
„Alls ekki. Ég er búinn að vera val-
inn í Nike-liðið fimm sinnum áður.
Oft hefur maður kannski vonað í
þessi skipti að fá þennan titil en það
hefur" örugglega hjálpað til núna
hversu okkur gekk vel í vetur og hve
mikla athygli Grindavíkurhöið hefur
fengið. Ég veit ekki hvort ég hef spil-
að betur nú en undanfarin ár en ég
neita því ekki að fyrir mig sem leik-
mann var þessi viðurkenning mjög
stór stund. Með titihnn besti þjálfar-
inn vissi ég að möguleikarnir voru
fyrir hendi hjá mér eins og hjá ívari
Asgrímssyni, þjálfara ÍA, enda voru
þetta hðin sem gekk betur en reiknað
var með.“
- Hverju þakkar þú þennan góða ár-
angur ykkar í vetur?
„Það er fyrst og fremst frábær liðs-
heild og samheldni strákanna í lið-
inu, Ég tók við mjög ungu liði og vissi
að hverju ég gekk enda hef ég þjálfað
flesta þessara stráka áður. Leik--
mennimir höfðu mjög gaman að því
sem þeir voru að gera. og alhr lögðu
sig 100% fram í því sem þeir voru
að gera. Þetta er 10. árið sem ég leik
með meistaraflokki og það hefur
aldrei verið eins gaman og í vetur.
>1 Ég hlakka því mjög til að leika með
strákunum áfram á næsta tímabili.
- Þið hafið staðið i skugganum af
Keflavík og Njarðvík. Mun það ekki
heyra sögunni til núna?
„Það sem við höfum ekki unnið titil
erum við kannski ekki jafnghdir en
allavega þegar maður labbar um í
Reykjavík og á landsbyggðinni er
ekíd lengur talað um risana tvo á
Suðurnesjum, Keflavík og Njarðvík.
Að mörgu leyti er bjartari framtíð
hjá okkur en hjá Keflavík og Njarð-
vík.
- Hvað með körfuboltann á íslandi.
Sérð þú miklar framfarir?
Það eru stöðugar framfarir og það
vantar bara herslumuninn að lands-
liðið fylgi því eftir. Þessi íþrótt nýtur
kom mér mjög mikið á óvart. Stelp-
urnar í Keflavíkurhðinu voru búnar
að segja við mig að ég myndi örugg-
lega fá þennan títil en ég geröi mig
bara sátta við að vera vahn í Nike-
liðið. Við er búnar að verða íslands-
og bikarmeistarar síðustu árin en við
höfum ekki fengið þennan títil. Þetta
er mesta viðurkenning sem ég hef
hlotið á íþróttaferh mínum,“ sagði
Olga Færseth í samtali viö DV.
„Kvennakörfuboltínn er alltaf á
uppleið og breiddin er að aukast. KR-
liðiö er mjög gott og Tindastólshðið
er mjög efnilegt. Þegar ég byijaði að
æfa og spila körfubolta fyrir alvöru
fyrir þremur árum var htil sem eng-
enda styttíst í að Islandsmótið heí]-
ist. Ég fæ mikla snerpu út úr fótbolt-
anum sem nýtist mér vel í körfunni."
- Verða breytingar á hði Keflvíkinga
næsta vetur?
„Já það verða miklar breytingar.
Ég sjálf efast um að leika áfram með
hðinu og það getur farið svo að ég
og Hanna Kjartansdóttir breytum til
og leikum með Tindastóh. Okkur
langar að breyta til og þá hst okkur
best á Tindastólshðið," sagði Olga.
-GH
Þessirhlutu
viðurkenningar
Bestu leikmenn:
Guðmundur Bragason.Grindavík
OlgaFærseth...............ÍBK
Efiúlegustu leikmenn:
Sverrir Þ.'Sverrisson.Snæfehi
Gréta M. Grétarsdóttir.....ÍR
Besti þjálfari Visadeildarinnar:
Guðmundur Bragason.Grindavík
Besti þjálfari i 1. deild kvenna:
Sigurður Ingimundarson...ÍBK
Stefán Arnarsson...........KR
Besti erlendi leikmaðurinn:
RondayRobinson.......Njarðvík
Besta vítanýting:
Guðjón Skúlason......Keflavík
Anna María Sveinsdóttir Keflavik
Stigahæstir:
Ronday Robinson......Njarövik
Hanna Kjartansdóttir.Keflavík
Flest fráköst:
John Rhodes............Haukum
Anna María SveinsdóttirKeflavik
3ja stiga nýting:
Lárus Dagur Pálsson....Tindastóli
IngaD. Magnúsdóttir...Tindastóh
Flestir stolnir boltar:
SverrirÞ. Sverrisson..Snæfelli
Linda Stefánsdóttir.......Val
Flestar stoðsendingar:
Jón Kr. Gíslason.....Keflavík
Linda Stefansdóttir.......Val
Besti dómarinn:
Kristinn Óskarsson...Keflavík
Mestu framfarir dómara:
Þorgeir Jón Júlíusson
Nike-lið karla
JónKr. Gíslason......Keflavík
HjörturHarðarson....Grindavík
TeiturÖrlygsson......Njarðvik
Guðmundur Bragason.Grindavík
Davíð Grissom...............KR
Nike-lið kvenna:
Linda Stefánsdóttir........Val
OlgaFærseth...........Keflavík
Helga Þorvaldsdóttir........KR
Guðbjörg Norðfj örð.........KR
Anna Dís SveinbjörnsdGrindavík
Stuðingsmaður ársins:
Sigríður Guðlaugsd..Grindavík
Þau bestu. Guðmundur Bragason, þjálfari og leikmaður ársins, og Olga Færseth eru hér glöð í bragði með
verðlaun sín en þau voru einnig valin í Nike-lið karla og kvenna. DV-myndir Brynjar Gauti
vaxandi vinsælda hér sem annars
staðar en það sem háir okkur helst
er hversu lágvaxna menn við höfum
í landsliðinu. Ég tel að við þurfum
ekki að bera virðingu fyrir neinni
þjóð og eigum að koma í landsleiki
alveg 100% sigurvissir. Við eigum að
geta unnið hvaða þjóð sem er á góð-
um degi og við eigum að stefna hátt,“
sagði Guðmundur.
Olga og Hanna
til Tindastóls
Olga Færseth úr Keflavík var kjörin
besti leikmaðurinn í kvennaflokki en
þessi snaggaralega stelpa sýndi frá-
bær thþrif í vetur í hinu geysiöfluga
Keflavíkurliði sem vann tvöfalt í vet-
ur.
„Ég verð nú að segja að þetta val
in tækni hjá leikmönnum heldur
fóru stelpurnar þetta áfram á kraft-
inum og baráttunni. í dag er allt ann-
að uppi á teningnum. Tækni og
snerpa leikmanna er orðin miklu
meiri og framtíðin er mjög björt.“
Olga kann ýmislegt fleira fyrir sér
en hún einn af lykilmönnum hins
sterka Breiðablikshðs í knattspyrnu.
Olga segist taka körfuboltann fram
yfir knattspyrnuna en hún ætlar þó
aö vera á fullu með Blikunum í sum-
ar.
„í körfuboltanum er maður meira
númer. Boltinn er meira hjá manni
heldur en í fótboltanum og maður
fær að njóta sín mun betur. Ég vh
vera áberandi og hafa áhrif á leikinn.
Það er auðvitað erfitt að sameina
þessar greinar. Núna þegar körfu-
boltinn er búinn er ég þreytt en þá
taka við æfingar á fullu í fótboltanum
Bestu nýliðarnir í karla- og kvennaflokki. Sverrir Þór Sverrisson, Snæfelli,
og Gréta M. Grétarsdóttir, ÍR.
Stefnir í að
það verði
erlendur þjálfari
Núna verö ég aftur einn af hópnum
og fæ kannski fyrirliðastöðuna aftur
en næsta verkefni fer í að finna mjög
góðan þjálfara. Þaö stefnir allt í það
núna að það verði erlendur þjálfari
enda ekki um marga að velja á ís-
landi. Ef við fáum góðan þjálfara og
höldum sama hóp, sem við gerum
mjög líklega, þá kvíði ég engu. Meðal-
aldur liðsins í vetur var 6 árum lægri
en hjá Njarðvíkingum. Ungu strák-
amir í liðinu hafa alhr unnið titla
en ekki við „gömlu mennirnir" ég
og Wayne Casey, og næsta ár verður
* aht reynt th að bæta úr því.“
Bestu dómararnir. Kristinn Oskarsson til hægri, besti domari visadeildarinn-
ar, og Þorgeir J. Júlíusson sem þótti sýna mestu framfarir.
Hér á myndinni eru samankomnir allir verölaunahafar á lokahófi körfuknatt-
leiksmanna sem fram fór á Hótel íslandi síðasta vetrardag.