Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1994, Side 42
50
LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1994
Afmæli
Jón Magnús Guöbrandsson ísberg,
sýslumaður á Blönduósi, til heimilis
að Garðabyggð 1, Blönduósi, verður
sjötugurámorgun.
Starfsferill
Jón fæddist á Möðruvöllum í Eyja-
firði. Hann lauk stúdentsprófi frá
MA1946, embættisprófi í lögfræði
við HÍ1950 og stundaði nám í al-
þjóðarétti við Lundúnaháskóla
1950-51.
Jón var fulltrúi sýslumanns
Húnavatnssýslu 1951, sýslumaður
Húnavatnssýslu 1960-92 og sýslu-
maður á Blönduósi frá 1992. Hann
hefur samhliða embættisrekstri
stundað búskap, einkum hrossabú-
skap í Laxholti nú síðari árin.
Jón sat í stjórn Vöku 1947-49, í
stúdentaráði HÍ 1947^8, formaður
Orators 1948-49, meðal stofnenda
skátafélagsins Bjarna á Blönduósi
1938, flokks- og ylfingaforingi til 1943
og félagsforingi Skátafélags Blöndu-
óss1958-74.
Jón hefur sem oddviti sýslunnar
verið formaður jarðhitanefndar V-
Húnavatnssýslu, formaður stjórnar
Héraðssambands A-Húnavatns-
sýslu, formaður náttúruverndar-
nefndar, formaður stjórnar Héraðs-
skjalasafns A-Húnavatnssýslu,
formaður byggingarnefnda um bók-
hlöðu á Blönduósi, félagsheimili þar
og heilbrigðisstofnanir á Blönduósi
og Skagaströnd, í undirbúnings-
nefnd fyrir byggingu Húnavalla-
skóla, sat í hreppsnefnd Blönduós-
hrepps 1958-82, oddviti Blönduós-
hrepps 1965-66 og 1970-78 og for-
maöur skólanefndar, hafnamefnd-
ar, bygginganefndar hitaveitu
Blönduóss, í stjórn Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga 1977-78 og hef-
ur átt sæti í stjórn Fjórðungssam-
bands Norðlendinga og formaður
þess 1977-78, safnaöarfulltrúi
Blönduóssóknar 1965, í stjórn Skóg-
ræktarfélags A-Húnvetninga
1960-71 og formaður 1965-71, stofn-
andi Lionsklúbbs Blönduóss 1959 og
fjölumdæmisstjóri 1983-84, formað-
ur stjórnar Sýslumannafélags ís-
lands, formaður Jörundar, félags
ungra sjálfstæðismanna í A-Húna-
vatnssýslu 1952-56, í stjórn Varðar,
félags sjálfstæðismanna í A-Húna-
vatnssýslu 1960-67, varamaður á
alþingi 1967, í iðnþróunarnefnd fyrir
Norðurland vestra 1977-78, í ráð-
gjafanefnd um almenningsbókasöfn
1978 og hefur verið stjórnarformað-
ur m.a. fyrirtækjanna Pólarprjóns
hf., Treíjaplasts hf., Verslunarfélags
A-Húnavatnssýslu hf. og stjórnar-
formaður Veiðifélags Laxár í Ásum
frá 1972.
Fjölskylda
Eiginkona Jóns er Þórhildur Guð-
jónsdóttir, f.1.12.1925, héraðsskjala-
vörður. Hún er dóttir Guðjóns Hall-
grímssonar bónda og Rósu ívars-
dótturhúsmóður.
Börn Jóns og Þórhildar eru Arn-
grímur, f. 10.5.1952, héraðsdómari;
Eggert Þór, f. 18.6.1953, fram-
kvæmdastjóri; Guðbrandur Magn-
ús, f. 10.5.1955, prentari; Guðjón, f.
14.2.1957, hagfræðingur; Jón Ólafur,
f. 20.2.1958, sagnfræðingur; Nína
Rós, f. 17.2.1964, mannfræðingur.
Systkin Jóns: Gerður Ólöf, f. 20.3.
Jón ísberg.
1921, húsmóðir; Guðrún Lilja, f. 28.9.
1922, hárgreiðsíumeistari; Ari Guð-
brandur, f. 16.9.1925, lögfræðingur;
Ásta Ingifríður, f. 6.3.1927, hár-
greiðslumeistari; Nína Sigurhna, f.
22.11.1929, ritari; Ævar Hrafn, f.
30.4.1931, vararíkisskattstjóri; Arn-
grímur Óttar, f. 31.5.1937, kennari.
Foreldrar Jóns voru Guðbrandur
Magnússon ísberg, f. 28.5.1893, d.
13.1.1984, sýslumaður, pgÁmína
Hólmfríður Jónsdóttir ísberg, f. 27.1.
1898, d. 3.10.1941, húsmóðir.
Frá húsnæðisnef nd Reykjavíkur
Almennar kaupleiguíbúðir
Höfum til ráðstöfunar nokkrar almennar kaupleigu-
íbúðir á eftirtöldum stöðum:
Veghús31 Tveggja, þriggja og þriggja til
fjögurra herbergja íbúðir
Ásholt 38-42 Tveggja herbergja íbúðir
Klapparstígur 1A Tveggja herbergja íbúðir
Vakin er athygli á nýsamþykktum lögum um rýmkuð
lánskjör við kaup á almennum kaupleiguíbúðum.
Nánari upplýsingar á skrifstofu húsnæðisnefndar að
' Suðurlandsbraut 30, sími 681240
Hafnarfjarðarbær
- lóðaúthlutun
Hafnarfjarðarbær hefur til úthlutunar lóðir í Mosahlíð
fyrir íbúðarhús. Um er að ræða:
Um 40 lóðir fyrir 2ja hæða einbýlishús,
9 lóðir fyrir 2ja hæða raðhús,
8 lóðir fyrir 2ja hæða parhús.
Ennfremur 27 lóðir fyrir 2ja hæða einbýlishús á Hval-
eyrarholti og 5 lóðir fyrir 2ja hæða einbýlishús í
Setbergslandi.
Lóðirnar verða til afhendingar í sumar.
Umsóknarfrestur er til 15. maí nk. Eldri umsóknir
þarf að endurnýja eða staðfesta.
Nánari upplýsingar verða gefnar á skrifstofu bæjar-
verkfræðings, Strandgötu 6.
Bæjarverkfræðingurinn í Hafnarfirði
UTAVER - UTAVER - UTAVER - LITAVER
s
§
málning'f
sjofn]
Játakk!
ESL*ÆESÍtt 20% afsláttur
Þarftu að bæta? af allri málnlngu
Grensárvegi 18
simi 81*Z4'44
§
S
UTAVER - UTAVER - UTAVER - UTAVER
Þorgrímur Jónsson
Þorgrímur Jónsson, Rauðalæk 19,
Reykjavík, verður sjötugur á mánu-
daginn kemur.
Starfsferill
Þorgrímur fæddist í Vík í Mýrdal
en flutti með foreldrum sínum til
Reykjavíkur vorið 1938. Hann lauk
burtfararprófi frá Iðnskólanum í
Reykjavík 1945 og jafnframt sveins-
prófi í málmsteypu þá um sumarið
en hann hefur áunnið sér meistara-
réttindi í greininni.
Þorgrímur dvaldi við nám hjá
Stockholms Teckniska Institut 1946
og starfaði síðan um skeiö hjá Söer-
hamns Mekaniska Verksteder AB.
Hann hefur starfrækt málmsteypu
um árabil, nú síðari ár ásamt sonum
sínum, Sigurði Trausta og Jóni Þór.
Fjölskylda
Þorgrímur kvæntist 3.6.1950
Guðnýju Margréti Árnadóttur, f. að
Hellnafelh í Grundarfirði 26.4.1928,
húsmóður og verslunarmanni. Hún
er dóttir Áma Sveinbjömssonar, f.
3.12.1891, d. 11.10.1963, b. og vél-
stjóra, og Herdísar S. Gísladóttur,
f. 24.2.1899, húsmóður. Systkini
Guðnýjar vom ellefu en níu þeirra
eruálífi.
Böm Þorgríms og Guðnýjar eru
Bára, f. 2.10.1950, hjúkranarfræð-
ingur, gift Ólafi Jónssyni yfirlækni
og em synir þeirra Jón Ámi, Bragi
Þorgrímur og Eiríkur Orri; Sigurð-
ur Trausti, f. 6.8.1952, vélfræðingur
en fyrrv. kona hans er Elsa Brynj-
ólfsdóttir og eru synir þeirra Sigurð-
ur Þór, Guðni Már og Ándri Freyr;
Jón Þór, f. 30.4.1958, verkfræðingur,
kvæntur Aldísi Yngvadóttur af-
brotafræðingi og em dætur þeirra
Hugrún og Gígja; Herdís, f. 29.6.
1961, kennari, en sambýlismaður
hennar er Áki Áskelsson, vél- og
iðnrekstrarfræðingur.
Systkini Þorgríms eru Sigrún, f.
19.8.1921, kennari og kirkjuleg Usta-
kona í Stokkhólmi, var gift Sigur-
jóni Sigurðssyni, fyrrv. kaupmanni,
og eiga þau þrjú böm, síðan gift
Ragnari EmUssyni arkitek og eign-
uðust þau tvö börn en er nú gift
Thorsten Folin, fyrrv. ofursta í
sænska hemum; Hafsteinn, f. 23.3.
1931, lengi starfsmaður hjá Ofna-
smiðjunni og síðar hjá Kassagerð
Reykjavíkur; Guðríður Bryndís, f.
27.12.1936, húsmóðir og starfsmaö-
ur á Alþingi, gift Jóni Björnssyni,
starfsmanni Pósts og síma, og eiga
þauíjögurböm.
Foreldrar Þorgríms voru Jón
Jónsson, f. 6.8.1889, d. 6.5.1957, silf-
ursmiður og hagleikssmiður, og
Þorgerður ÞorgUsdóttir, f. 30.4.1900,
húsmóðir.
Ætt
Jón var sonur Jóns, kaupmanns í
Vík í Mýrdal, Þorsteinssonar, b. í
KerUngadal, Einarssonar, b. þar,
bróður Bjama Thorsteinson amt-
manns, foður Steingríms skálds.
Einar var sonur Þorsteins, b. í Kerl-
ingadal, Steingrímssonar, bróður
Jóns eldprests.
Móðir Jóns Jónssonar var Guðríð-
ur Brynjólfsdóttir, b. á Litlu-Heiði,
Guðmundssonar, b. á Norður-Göt-
um, Guðmundssonar. Móðir Brynj-
ólfs var Guðrún Hallgrímsdóttir, b.
á Neðra-VelU Brynjólfssonar. Hall-
grímur var langari Þorsteins Erl-
ingssonar skálds. Móðir Guðrúnar
var Guðríður Ögmundsdóttir,
prests á Krossi í Landeyju, afa Tóm-
asar Sæmundssonar Fjölnismanns.
Ögmundur var sonur Högna,
prestaföður Sigurðssonar.
Þorgrímur Jónsson.
Þorgerður var dóttir ÞorgUs, b. á
SvínafeUi, Guðmundssonar, b. á
Fossi á Síðu, Guðmundsonar, b. þar,
Hálfdánarsonar. Móðir ÞorgUs var
Guðný Pálsdóttir, prófasts í Hörg-
dal. Móðir Þorgerðar var Guðrún
eldri Sigurðardóttir, b. á SvínafeUi,
Jónssonar. Móðir Sigurðar Þor-
steinssonar var Gurún Vigfúsdóttir,
frá SkálafelU í Suðursveit, systir
Þorsteins á FeUi sem allílestir Öræf-
ingar eru frá komnir. Þorsteinn var
afi Þorsteins á Felli, langafa Lúðvíks
Jósepssonar, og afi Auðbjargar á
Bmnnum, langömmu Þórbergs
Þórðarsonar, Gunnars Benedikts-
-sonár en langalangömmu Einars
Braga, Svavars Guðnasonar og Stef-
áns Benediktssonar. Móðir Guðrún-
ar eldri var Sigríður Runólfsdóttir,
b. á Maríubakka, Sverrissonar,
bróður Þorsteins, afa Kjarvals, og
bróður Eiríks sýslumanns, langafa
Sigurðar Líndal, Gunnars Thor-
oddsen og Einars, föður Sigurbjörns
biskups.
Þorgrímur og Guðný taka á móti
gestum í Veislurisinu, Hverfisgötu
105, laugardaginn 23.4. frá kl. 20.00.
Sviðsljós
Þessir þrir voru meðal viðstaddra við opnun Hákonar
digra. Frá vinstri: Atli Eðvaldsson, þjálfari meistara-
flokks HK i knattspyrnu, Bragi Michaelsson, forseti
bæjarstjórnar Kópavogs, og Ragnar Bogi Petersen,
reyndasti knattspy rnumaður HK. DV-myndir EJ
Hákon digri, ný félagsmiðstöð HK í íþróttahúsinu Digra-
nesi í Kópavogi, var formlega opnuð á föstudagskvöld.
Þar skrifuðu Sigurður Geirdal, bæjarstjóri Kópavogs,
og Þorsteinn Einarsson, formaður HK, undir samstarfs-
samning um rekstur miðstöðvarinnar sem gagnast jafnt
ungu kynslóðinni í Kópavogi og félagsmönnum í HK.