Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1994, Síða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1994
Viðskipti
Þingvísit. hlutabr.
Kauph. í New York
Dollar lækkar
Þorskur á flskmörkuðum hefur
að meðaltali selst undir 100 krón-
um kílóið síöustu daga. Meðal-
verðið í gær var tæpar 90 krónur.
Þingvísitala hlutabréfa lækkaði
lítillega á föstudag þegar hún fór
í 814,7 stig, einkum vegna lækk-
unar á bréfum Sjóvár-Almennra
og Eimskips. Talan í gær barst
ekki í tæka tíð.
í sumarbyijun hefur álverð er-
lendis örlítið hækkað. Stað-
greiðsluverðið var 1266 dollarar
tonnið í gærmorgun.
Dollarinn hefur á einni viku
lækkað í verði um 1,3%. Sölu-
gengi doUars í gær var 71,61
króna.
Dow Jones hlutabréfavísitalan
í New York hefur stigiö upp á við
að undanfömu. Um miðjan dag í
gær stóð talan í 3658 stigum, um
2% hærri en síöasta vetrardag.
-bjb
Tölvunotendur geta andað léttar:
„Tyrkjaráni“ aflýst
- ogfriðarviðræðurteknarupp
Á fundi alþjóðlegrar staðlanefndar
í Tyrklandi um helgina tókst að
koma í veg fyrir tUraun tU „Tyrkja-
ráns“, í annað sinn á tveimur árum.
Tyrkir hafa árangurslaust reynt að
ýta tU hUðar íslenskum stöfum í al-
heimstöflur fyrir tölvur. Grunntafla
fyrir Vestur-Evrópu, svokölluð Lat-
in-1 stafatafla, er núna í fyrstu röð
alheimstöflunnar og settu Tyrkir
fram tiUögu um helgina um breyting-
ar á Latin-1 töflunni þess efnis að
skipta íslensku stöfunum Æ, Þ og Ð
út fyrir stafi múhameðstrúarríkja.
Aö sögn Þorvarðs Kára Ólafssonar,
starfsmanns Fagráðs í upplýsinga-
tækni, tókst að fá fulltrúa Tyrklands
í umræddri nefnd ofan af tíllögu
sinni.
„Málinu var eiginlega vísað frá og
fram undan em samningaviðræður
milU íslendinga og Tyrkja. Tyrkir
hafa lítinn áhuga á Evrópunefnd í
stafatækni og Uklega verður um
beint samstarf þessara tveggja þjóða
að ræða. Það er í rauninni farsæl
lausn á máh sem hefði getað endað
iUa,“ sagði Þorvarður.
Þorvarður sagði að gríðarlegir
hagsmunir væru í húfi fyrir íslenska
tölvunotendur. Ef „Tyrkjaránið"
hefði heppnast að þessu sinni heföi
það kallað á kostnaðarsamar breyt-
ingar á hug- og vélbúnaði sem notar
Latin-1 töfluna. Hún er grunntafla í
tölvusamskiptum á íslandi og víðar.
Þess má geta að íslendingar stýra
núna Evrópunefnd í stafatækni og
veröur fundur haldinn hér á landi í
sumar.
-bjb
Verðmæti innflutnings 1993:
Níutíu og einn milljarður
Fluttar voru inn vörur til íslands
fyrir rúman 91 miUjarð króna á síð-
asta ári. Þetta er um 6% minni inn-
flutningur en árið 1992 þegar verð-
mætið var tæpir 97 milljarðar. Þetta
kemur fram í Hagtíðindum Hagstof-
unnar fyrir febrúarmánuð 1994.
Fyrirtæki sem fluttu inn vörur fyr-
ir 5 milljónir eða meira voru aUs 1.422
að tölu á síðasta ári. Sem fyrr var
ÍSAL stærsti innflytjandi á árinu og
næst komu ohufélögin þijú. Af 10
stærstu innflytjendum á síðasta ári
hefur innflutningur mest dregist
saman hjá Flugleiöum og Pósti og
síma miðað við árið 1992. Hjá OHufé-
laginu, Heklu og P. Samúelssyni
jókst innflutningur miUi ára að verð-
mæti til.
-bjb
Islensk skinn 1 Kaupmannahöfn:
Sala fyrir 110 milljónir króna
- hækkun á ref en lækkun á mink
Skinnauppboði lauk í Kaup-
mannahöfn á föstudag. Alls seldust
ríflega 30 þúsund minkaskinn frá ís-
landi fyrir um 56 mUljónir króna og
ríflega 7 þúsund refaskinn fyrir um
54 miUjónir króna. Alls gerir þetta
um 110 miUjónir króna fyrir íslenska
loðdýrabændur en búin í landinu eru
aUs 72.
Miðað við uppboðið í febrúar sl.
hafa refaskinn hækkaö að meðaltali
um 20% en minkaskinn lækkað um
9% í verði. Forráðamenn uppboðs-
hússins í Kaupmannahöfn rekja
lækkunina á minkaskinnum einkum
tU þess að kaupendur þeirra séu ekki
eins loðnir um lófana en áður. Meðal-
verð fyrir refaskinn á uppboðinu var
rúmar 7 þúsund krónur en 1.850
krónur fyrir minkaskinn. Meðalverð
fyrir íslensku skinnin má sjá í dönsk-
um krónum á meðfylgjandi grafi.
Næsta uppboð í Kaupmannahöfn fer
fram um mánaðamótin maí-júní nk.
og þar verða um 50 þúsund skinn frá
íslandi til sölu.
Fiskur lækkar ytra
Veruleg verðlækkun varð á gáma-
fiski í Englandi í síðustu viku miðað
við vikuna á undan. Alls seldust 510
tonn fyrir 67 milljónir króna. Karf-
inn lækkaði mest í verði milli vikna,
eða um 45%. Þorskur, ýsa og ufsi úr
gámum lækkuðu um 20-30%. Svipað
verð hélst á fiskmörkuðunum innan-
lands milU vikna.
Aðeins einn togari landaði afla sín-
um í Þýskalandi í síðustu viku. Ak-
urey RE seldi 188 tonn fyrir 16 millj-
ónir í Bremerhaven. Meðalverðið
var 87 krónur fyrir kílóið sem þykir
heldur dræm sala.
Þegar viðskipti hófust með ál á er-
lendum mörkuðum í gærmorgun var
staögreiðsluverðið aðeins hærra en
fyrir helgi. í síðustu viku fór álverð
lækkandi, einkum vegna tregðu
Rússa til að draga úr framleiðslu.
Álframleiðendur á Vesturlöndum
hafa tilkynnt 900 þúsund tonna
minni framleiðslu í ár en í fyrra.
Ekki er búist við verðhækkunum á
næstunni þegar sólargangur lengist
á norðurhveh jarðar.
-bjb
Breytingará
vísitölum
Hagstofan hefur reiknað út nýj-
ustu launavisitölu og byggingar-
visitölu. Launavisitala fyrir
aprílmánuð er 132,1 stig eða 0,1%
hærri en í síðasta mánuöi. Bygg-
ingarvisitalan, sem gildir fyrir
maímánuö, er 195,8 stig og hefur
lækkað um 0,1% frá mars sl.
Samsvarandi vísitala, miðuð viö
eldri grunn, er 626 stig.
Þá hefur Seðlabankinn reiknaö
út lánskjaravísitölu fyrir maí
1994 sem er 3347 stig. Vísitalan
er 0,03% hærri en fyrir aprílmán-
uð. Síöustu 12 mánuði hefur láns-
kjaravísitalan hækkað um 2,1%.
Hagnaðurhjá
íslenskri endur-
trygginguhf.
íslensk endurtrygging hf. skil-
aði 77 mUljóna króna hagnaði af
rekstri síðasta árs sem var það
fyrsta eftir að félagið var einka-
vætt. Stærstu hluthafar eru Vá-
tryggingafélag Islands, Sjóvá-
Almennar, Tryggingamiöstöðin
og Trygging.
Greiddur var 10% arður til
hluthafa sem voru 75 í árslok
1993. Eigið fé félagsins í árslok
nam tæpum 600 milljónum króna
að meðtöldu hiutafé að fjárhæð
337 milljónir.
Sighvaturá
ársf undi Evrópu-
bankans
Ársfundur Evrópubankans var
haldinn í St. Pétursborg í Rúss-
landi í síðustu viku. Þar flutti
Sighvatur Björgvinsson við-
skiptaráöherra ávarp. Sighvatur
brýndi fyrir bankanum að leggja
aukna áherslu á eiginfjárframlög
til fyrirtækja i stað lánveitinga
og að hann mótaði markvissari
stefnu í þessum efnum.
Sighvatur sagði að með slíkum
framlögum tækist bankanum
betur en eUa að styðja viö bakið
á smáum og meðalstónun fyrir-
tækjum sem væru helstu vaxtar-
broddarnir í starfsríkjum bank-
ans.
Óskirum við-
skiptasambönd
Verslunarráði íslands hafa bor-
ist fjölmargar fyrirspumir er-
lendis frá um viðskiptasambönd
við íslenska heildsala. Má þar
nefna fyrirtæki á Kýpur sem
framleiöir m.a. áfengi, ávaxta-
safa, hunang og rúsínur. Fatafyr-
irtæki í Hong Kong hefur haft
samband og sömuleiðis eitt fyrir-
tæki á Taívan sem sérhæfir sig í
framleiðslu verkfæra og vara-
hluta. -bjb
llmskðptihjá
Hraðfrystihúsi
Óiafsfjarðar
Helgi Jónsson, DV, ÓlafeBröi;
Aðalfundur Hraðfrystihúss Ól-
afsfjaröai' var haldinn sl. föstu-
dag. Þar kom fram að ánægjuleg
umskipti heföu orðið á rekstrin-
um en 13,9 milljóna króna hagn-
aður varð árið 1993. Þrjú undan-
farin ár hefur aftur á móti verið
mikið tap, 30 miUjónir áriö 1992.
HeUdarvelta HO var 415 miUj-
ónir og jókst um 26% frá árinu
áður. Jón Þorvaldsson stjórnar-
formaður segir að meginástæðan
fyrir þessum umskiptum sé aukið
hráefni sem barst frystihúsinu
frá togurum Sæbergs. Enn frem-
ur hafi samsetning aflans til
vinnslunnar veriö hagstæðari en
áður. Þá varð mikil aukning hjá
loðnubræðslunni.
Útflutningsafurðir íslendinga
120 100
i°° yf 60
rn 114,62 50 on 93’86 20
1 J F M A j r m a
| 700
1 500
1 400
:: 100 519
<í. kr.Sept '92 - Aor. '9<
DV