Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1994, Side 7
ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1994
7
i
Syni Islandsvmarins og auökýfíngsins Hassos von Schutzendorfs rænt:
Telur hugsanlegt að
Alberto sé á íslandi
- mannræningjamir kreflast jafnvirði 170 miUjóna króna í lausnargjald
Fyrrverandi eiginkona Hassos og móðir Albertos, Maria del Carmen, er
grunuð um að hafa átt þátt i að nema Alberto á brott frá heimili hans á
Mallorka fyrir rúmri viku. Hér sést Maria ásamt þáverandi eiginmanni sin-
um Hasso von Schutzendorf en þau skildu fyrir nokkrum árum. Alberto er
á milli þeirra á innfelldu myndinni.
Hugsanlegt er talið að Alberto, tíu
ára sonur þýska auðmannsins og ís-
landsvinarins Hassos von Schutz-
endorfs, sé kominn til íslands en
honum var rænt frá heimili hans á
Mallorka fyrir rúmri viku. Ræningj-
amir hafa krafist 170 milljóna króna
lausnargjalds.
Hasso telur hugsanlegt að Maria
del Carmen, fyrrverandi eiginkona
hans og móðir drengsins, hafi rænt
honum og farið með hann til íslands.
Mikil leit hefur verið gerð í Þýska-
landi og á Spáni þar sem Hasso rekur
bílaleigu, hótel og fleira en án árang-
urs.
„Stjúpsyni Hassos var rænt og það
sást til konu og þriggja manna keyra
burt með hann á ofsahraða. Þau voru
á svörtum Seat sem fannst svo mann-
laus við flugvöllinn á Mallorka.
Meira er ekki vitað en ekkert hefur
spurst til fyrrverandi eiginkonu
hans. Hún virðist hafa horfið jafn-
sporlaust og bamið þannig að talið
er að hún eigi þátt í þessu. Hasso er
ekki í minnsta vafa um að hún hljóti
að vera aðili að málinu meðan hún
gefur sig ekki fram,“ segir Sigurður
S. Bjamason, vinur auðkýfingsins
og fyrrum starfsmaður hans.
Maria del Carmen var fjóröa eigin-
kona Hassos von Schutzendorfs og
áttí hún drenginn frá fyrra hjóna-
bandi. Við skilnaöinn fyrir nokkrum
árum ættleiddi Hasso drenginn og
hefur hann verið hjá honum síðan.
Maria hefur alltaf haft mikinn áhuga
á íslandi og er því talið hugsanlegt
að hún hafi komið með hann hingað.
Brúðkaup ársins í Las Vegas
íslandsvinurinn Hasso von Schutz-
endorf er lesendum DV að nokkru
kunnur því að DV greindi frá brúð-
kaupi ársins í haust en þá var Sig-
urði S. Bjamasyni og eiginkonu hans
boðið að vera viðstödd brúðkaup
Hassos í Las Vegas.
Eftir að grunur kom upp um að
Maria hefði farið til íslands hafði
Hasso samband við Sigurð til að
koma fregninni á framfæri og biðja
íslendinga að hafa augun hjá sér.
„Þetta hefur ekki verið tilkynnt hér
og ég hef ekki heyrt þetta fyrr en
núna. Tæknilega séð er mögulegt að
konan hafi komið með drenginn
hingað en ef hann er í vegabréfi
móður er ekki litíð á það sem bams-
rán. Ferðamenn frá Spáni geta verið
hér allt að þremur mánuðum án þess
að þurfa dvalarleyfi," sagði Gísli
Garðarsson hjá Utlendingaeftirlit-
inu. -GHS
Fréttir
Borgarspítalinn:
„Vissar vísbendingar eru tun
að verkfallið sé aö harðna og þá
erum við komin út á mjög hálan
ís. Upp á sfðkastið hefur verið
erfiðara að fá í gegn undanþágu-
beiðnir og með því hafa meina-
tæknar gefið í skyn að tökin verði
hert, enda liggur það t hlutarins
eðli eftir því sem svona verkfall
dregst á langinn,“ segir Jóhannes
M. Gunnarsson, lækningafor-
stjóri á Borgarspítalanum.
Á miönætti 1 nótt voru þrjár
vikur frá því verkfall meina-
tækna hófst og hefur lítið sem
ekkert þokast í samkomulagsátt
Ástandið á spítulunum smá-
versnar, biðlistar lengjast og
óunnar rannsóknir hlaðast upp.
Allt aö helmingur rúma á
Landspítalanum stendur tómur
en á Borgarspítalanum er tíminn
notaður tíl að stytta biðlista í
smáaögerðir af ýmsu tagi. Verk-
fali meinatækna hefur einkum
komið niður á skurðstofustarf-
semi og starfsemi lyflæknis- og
hjartadeilda.
„Ástandiö smáversnar með
hveijum deginum og ákveðinn
hluti af eftirliti og rannsóknum
utan sjúkrahúsanna hefur stöðv-
ast. Við vitum ekki hvað er að
gerast i þeim hópi. Þama eru
sjuklingar sem undir eðlilegum
kringumstæðum væru í rann-
sóknum og það getur enginn séð
það fyrir að við séum aö missa
af einhveiju sem ella hefði verið
uppgötvað í tíma,“ segir Jóhann-
es. -GHS
0 pottamir hafa gengið
út í Háspennu
Laugavegi ÍÍ8
Hafnarstrœti 3