Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1994, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1994, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1994 Utlönd Játvarðurprins ogkærastaní brúðkaupi Játvarður prins, sonur Elisabfitar Englands- drottningar, leiddi kær- ustuna sína, hana Sophie Rhys-Jones, fram kirkjugólfið á laugardag en þvi miður íyrir æsifréttablöðin voru þau einungis gestir í brúð- kaupi frænda prinsins. Nærvera prinsins og unn- ustunnar varð til þess að kynda enn frekar undir orðróm um að þau mundu á næstunni greina opinberlega frá trúlofun sinni. Eitt blaðið gekk svo langt að kalla athöfhina lokaæfingu fyrir vænt- anlegt konunglegt brúökaup. Sagt er að Játvarður sé á því að brúðkaup hans verði látlaust og fabrotiö, gagnstætt því þegar bræður hans gengu í lúónaband á sínum tíma en hjónabönd þeirra fóru út um þúfur. Forseti Kamer- ún kominn í hnapphelduna Paul Biya, forseti Afríkurikis- ins Kamerún, gekk að eiga hina 24 ára gömlu Chantal Vigouroux um helgina og voru athafnirnar tvær, hjá dómara og í kirkju. Hjú- in höfðu áður látið gefa sig saman að hefðbundnum sið þarlendum. Mikil leynd hvíldi yfir athöfh- unurn þar til ríkisútvarp Kamer- ún skýröi frá þeim og blöð sem reyndu að segja frá þeim voru ritskoðuö. Biya forseti er 61 árs en fyrri eiginkona hans, Jeanne-Irene, lést úr krabbameini árið 1992. Nýja eiginkonan er dóttir fransks manns og kamerúnskrar konu. Hún ku hafa keypt brúðar- kjólinn í París. Fundu líkams- hlutaíalmenn- ingsgarði Lögreglan í Tokyo fann átján plastpoka með likamsleifum í al- menningsgarði um helgina, þar á meöal voru fingur sem fingrafór- in höfðu verið máö af. Rúmlega eitt hundrað lögreglu- þjónar fínkemdu almennings- garðinn, sem er i einu úthverfa Tokyo, eftir að verkamaður fann ökla i poka á laugardag. Lögregl- an telur að allir líkarashlutarnir tilheyri sama manninum, líklega karlmanni á fertugsaldri. Japanska lögreglan hefur fjög- ur óleyst mál á sinni könnu frá þvi í nóvember þar sem sundur- bútaðir líkamar eiga í hlut. Walesa Pól- landsforsetiog Litháarvingast Lech Walésa, forseti Pól- lands, kemur til Litháens í dag þar sem hann ætlar aö undirrita vin- áttusamning ríkjanna sem ætlað er að binda enda á margra ára deilur og tortryggni. Walesa veröur tvo daga í Lithá- en og er það í fyrsta sinn sem pólskur þjóðarleiðtogi kemur þangað í heimsókn eftir að kommúnistar misstu völdín í Pól- landí og eftir aö Litháar endur- heimtu sjálfstæöi sitt. Vonast er til aö samningurinn auki viðskipti miili landanna. Reuter Hvalveiðifréttin var eintómt plat - Norðmenn hefja vísindaveiðar í næstu viku Fréttir um að margar af öflugustu hvalverndunarþjóðunum og stóru umhverfisverndarhreyfingunum séu á góðri leið með að fallast á hval- veiðar í ábataskyni eru eintómt plat, segir Georg Blichfeldt, aðalritari norsku samtakanna Höge Nord AU- iansen (HNA). Hann telur að frétt þess efnis í breska blaðinu Observer á sunnudag sé runnin af rótum vemdarsamtakanna Enviromental Investigation Agency (ELA). „Samtökin hræða með hvalveiðum af því að þetta er besta leiðin til að safna peningum. Þetta er nokkúð sem gerist fyrir hvern einasta árs- fund Alþjóða hvalveiöiráðsins. Kom- ið er á kreik orðrómi um að hvalveið- iráðið æth nú að fallast á að gefnir verði út kvótar fyrir veiðar í ábata- skyni. Slík hótun er nauðsynlegur liður í að safna peningum til að berj- ast gegn hvalveiðum," segir BUch- feldt Norðmenn ætla að hefja hrefnu- veiðar í vísindaskyni í næstu viku, tveimur og hálfri viku síðar en í fyrra. í þetta sinn verða veidd 127 dýr á svæðinu frá Lófót til Bjamar- eyjar og austan viö Spitzbergen. Rússar hafa hafnað óskum Norð- manna um vísindaveiðar undan Kólaskaga. Fjórir bátar taka þátt í veiðunum. Þetta er þriðja og síðasta árið sem Norðmenn ætla að stunda hrefnu- veiðar í vísindaskyni og eins og í fyrra er tilgangurinn að komast að því hversu mikið dýrin eta, hvenær og hvers konar fisk. Bandaríkjamenn em um það bil að viðurkenna nýtt kerfi til að reikna út stærðir hvalastofna en það mun þó ekki tákna að hvalveiðiráðið muni heimila hrefnuveiöar fyrst um sinn. „Aukinn velvilji Bandaríkjamanna í garð vísindalegra útreikninga er þó greinilega Norðmönnum í hag,“ segja stjómarerindrekar sem ekki láta nafns síns getið við NTB. NTB Rússneski þjóðernisöfgamaðurinn Vladimir Zhírinovskí virðir fyrir sér hnattlíkan sem honum var fært aö gjöf á 48 ára afmæli hans i gær. Galina, eiginkona hans, fylgist spennt með. Simamynd Reuter Ný aðferð þar sem svín eru notuð sem endurvinnsluvélar Yfirvöld í Fíladelfíu í Bandaríkjun- um spömöu rúmlega 215 milljónir króna á síðasta ári og minnkuðu um leiö magn sitt af sorpi með nýrri að- ferð þar sem svín eru notuð sem eins- konar endurvinnsluvélar. Svínin, sem era í New Jersey, eru látin éta allar matarleifar sem hefur verið hent og þannig losna sorp- stöðvamar við að losa sig við sorpið og svínin fá „gómsætar máltíðir" en svín eru einmitt þekkt fyrir að éta hvað sem er. Svínabændur í New Jersey eru hæstánægðir með þetta fyrirkomu- lag en þeir koma tvisvar í viku til Fíladelfíu til að ná í sorp, sem kemur frá um tvö þúsund heimilum í Fíla- delfíu, til að gefa svínunum síniun. „Svínin halda ekki aðeins götunum hreinum með þessum hætti heldur spara þau okkur mikinn pening sem við myndum þurfa að borga fyrir sorptínslu,“ sagði börgarfulltrúinn Happy Femandez sem hefur verið einn af dyggustu stuðningsmönnum þessa nýja fyrirkomulags. „Borgin borgar svínabændum um 140 milljónir á ári fyrir að ná í sorp hjá fólki en það gerir um 5.600 krón- Svín eru þekkt fyrir að éta hvað sem er og yfirvöld í Filadelfíu hafa fundið aðferð til að notfæra sér það. ur fyrir tonnið. Það er mikill spam- aður því borgin myndi annars þurfa að borga um níu þúsund krónur fyr- ir endurvinnslu fyrir hvert tonn,“ sagði Femandez. Svínabændur tíndu alls um 24 tonn af sorpi á síöasta ári en sorpið er sett í sérstaka poka sem fólk lætur hjá ruslatunnunni. Síðan koma bændur Ognáíþað. Reuter Yeitnimataslát- inn úrlungna- krabbameini Eínahags- málaráðherra Grikkja, Ge- orge Yenni- matas, lést úr krabbameini á spítala í Gríkk- landi í gær 55 ára að aldri. Yennimatas, sem var einn af vin- sælustu stjórnmálamönnum Grikklands, greindist meö lungnakrabbamein i desember 1991 en hann var mikill reykinga- maður allt sitt líf. „Ég mun berjast þar til yfir lýk- ur vegna þess aö það er skylda stjórnmálamaima að berjast og gefa til landsins. Ég mun ekki láta sjúkdóminn stoppa mig í'að halda áfram," sagði Yennimatas þegar Ijóst var að hann væri með krabbamein. Ferðamaður Flórída 77 ára gamall feröamaður frá S-Ameríku fannst látinn á hótel- herbergi i Flórída en hann hafði verið stunginn margsinnis meö hníf. Lögreglan telur víst að um vopnað rán hafi verið að ræða en aðkoman í herbegi mannsins benti til að átök hefðu orðiö. Morð og árásir á feröamenn í Flórída liafa verið tíð sl. ár og hafa orðið þess valdandi aö ferða- straumur þangað hefur farið minnkandi. Yfirvöld á Flórída liafa miklar áhyggjur af auknum glæpum og hafa hert alla gæslu á ferðamannastöðum til muna. Lagummorð ungra stúlkna gagnrýnt Kanadísk hljómsveit, The Banned, hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að syngja lag um luottalegt morð sem framið var á tveimur ungum stúlkum í Kanada árið 1992. Hljómsveitin er sögð hafa ætlað sér að græða á morði stúlknanna ásamt því að vegsama morðiö. Lagið, sem nefnist „Karla and Paul“, var samið af söngkonu hljómsveitarinnar, Susie Cya- nide, en hún segist aldrei hafa ætlað sér að móðga neinn með laginu. Hún segir að söngurinn lofi ekki morð stúlknanna en gagnrýni þess í stað kanadíska réttarkerfið. Segirfóstureyð- ingarveraverk djöfulslns Jóhannes Páll páfi gagn- rýndi fóstur- eyðingar harö- lega á minning- arathöfn sem haldin var á ít- alíu fyrir skömmu en þá var verið að minnast ítalskrar konu sem lést árið 1962 eftir að hún neitaði að gangast undir fóst- ureyðingu sem hefði bjargað lífi hennar. Páfinn, sem talaði um mikil- vægi móöurhlutverksins, sagði m.a. að fóstureyðingar væru verk djöfulsins og aö þær ætti aö banna með öllu. Um tíu þúsund manns hlýddu á ræðu páfans á Péturstorgi og þar á meðal var dóttir konunnar sem lést árið 1962. Reut«r

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.