Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1994, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1994, Page 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1994 Merming Tökur á kvikmyndiiim Agnesi hefjast í haust: Stærsta innlenda kvikmyndin til þessa skáldverk sem lýtur lögmálum kvikmyndarinnar Undirbúningur á tökum Agnesar, kvikmyndar Snorra Þórissonar og Jóns Ásgeirs Hreinssonar, er á loka- stigi en afráöið er að tökur hefjist í september og ljúki í október. „Þetta verður ein stærsta kvik- mynd sem alfarið er tekin hér á landi. Áætlaður kostnaður við gerö hennar er 140 til 160 milljónir króna og er fjármagn fengið frá þýskum og norskum aðilum, Kvikmyndasjóði íslands og líklega fæst eitthvað til viðbótar frá Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðnum Euromage," segir Jón Ásgeir Hreinsson, annar aðstandandi myndarinnar. Hann segir að aiið hafi verið á þvi að Snorri hafi ekki tíma til að gera myndina vegna anna við framleiðslu á tveimur erlendum stórmyndum hér á landi í sumar. En Michael Chapman á hlut að annarri þeirra mynda. Hið rétta sé að hann muni nota starf sitt við þær myndir til að undirbúa tökur og framleiðslu á Ag- nesi. Ást, hatur og afbrýðisemi í handritinu er stuðst við atburði tengda síöustu aftöku á íslandi árið 1830. Þá voru Agnes Magnúsdóttir og Friðrik Sigurðsson tekin af lífi fyrir morð á Natan Ketilssyni. Jón Asgeir segir að kvikmyndin fjalli um ást, afbrýðisemi, hatur og ofríki yfir- stéttarinnar gagnvart almúganum. Hann leggur sérstaka áherslu á að ekki sé reynt að gera atburðunum sagnfræðileg skil. „Þetta er skáldverk sem lýtur lög- málum kvikmyndarinnar. Margt hefur verið skrifað um þessa at- burði. Þær frásagnir eiga það sam- merkt að segja sögu Natans. Kvik- níyndin Agnes segir sögu Agnesar Jón Ásgeir Hreinsson stendur hér við höggstokkinn þar sem Agnes missti höfuðið. Höggstokkurinn er varðveittur á Þjóðminjasafninu. DV-mynd GVA og hvemig hún kynnist Natan Ketils- syni og þeim örlagavef sem spinnst um hana þar til hún stendur eftir sem morðingi." Leikarar ráðnir Þessa dagana er verið að ganga frá ráðningu leikara í aöalhlutverk, end- urskrifa handrit sem fékk mjög góða dóma evrópska handritasjóðsins og ráða í um 60 önnur störf. Myndin verður að mestu tekin upp í nágrenni Reykjavíkur en þó verður ferðast víða um landið. Um 15 leikarar verða í stórum hlutverkum en í stærstu senum verða um 100 manns í auka- hlutverkum. Jón Ásgeir segir að verið sé að ganga frá ráðningu leikara í þrjú lyk- ilhlutverk í myndinni. Sex manns koma til greina og er um aö ræða Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur eða Eddu Amljótsdóttur í hlutverk Agn- esar, Baltasar Kormák eða Ingvar Sigurðarson í hlutverk Natans, Pálma Gestsson eða Egil Ólafsson í hlutverk Blöndals sýslumanns. Auk þess að framleiða myndina annast Snorri Þórisson, menningar- verðlaunahafi DV og handhafi nor- rænu Amanda verðlaimanna, kvik- myndatökuna, Þór Vigfússon sér um sviðsmyndina, Egill Eðvarðsson leik- stýrir. „Þetta er ekki formúlumynd. Hún er fyrst og fremst húmanískt drama. Það þarf samt að vera fyrir hendi ákveðinn rammi. Þó að maður eigi ekki að vera að upplýsa endann á myndinni þá endar hún illa líkt og margar góðar myndir í dag,“ segir JónÁsgeir. -pp Fimmta hver íslensk bók er prentuð í útlöndum - geturmunaöhelmingiáframleiðslukostnaði Prentun íslenskra - samkv. Islenskum bókatíðindum 1993 je' .o E .2 (B o Prentun í öörum löi 25 12 3 10 3 Heimild: íslenskur Iðnaður « x (0 JÉ m mmm ÍC £ ft 1 s f i '® O Ö v> a. x ■a . C'. (0 wm = DV Ein af hveijum fimm bókum, sem auglýstar voru í íslenskiun bókatíð- indum fyrir jólin, var prentuð í út- löndum, eða um 20 prósent en um 80 prósent bókanna voru prentuð hér heima. Þessar upplýsingar er að finna í nýjasta tölublaði íslensks iðn- aðar. „Á tímabilinu 1986-1992 lækkaði raunverð á bókum til neytenda mn 20-25 prósent. Útgefendur hefa orðið að grípa til allra mögulegra aðgerða og hagræðingar í rekstri til að halda bókaverði niðri. Það að prenta er- lendis er einungis einn liðurinn í þessari hagræðingu. Aðalástæðan er að það getur munað geysilega miklu í verði að fá bækur prentaðar í út- löndiun, sérstaklega sé um stórt upp- lag að ræða,“ sagði Jóhann Páll Valdimarsson, formaður Félags ís- lenskra bókaútgefenda, í samtali við DV. Þær bækur sem aðallega eru prent- aðar 1 útlöndum eru litprentaðar bamabækur og ýmsar handbækur. Þegar talað er um prentun er einnig átt við bókband. Tölunar hér að ofan eru í takt við sams konar tölur sem Hagfræði- stofnun Háskólans hefur tekið sam- an fýrir Félag íslenskra bókaútgef- enda. í könnun á prentkostnaði árið 1987 kom fram að um 14 prósent bóka voru prentaðar í útlöndum en 86 pró- sent hér heima. Fram til 1992 breytt- ist hlutfallið stöðugt útlendum prent- smiðjum í hag. 1992 voru um 28 pró- sent allra útgefinna bóka prentuð í útlöndum. Sams konar tölur liggja ekki fyrir fyrir árið 1993. Sé tekið mið af reikningsaðferðum Hagfræði- stofnunar efast Jóhann Páll stórlega um að hlutfall bóka prentaðra í út- löndum hafi lækkað. í könnun íslensks iðnaðar kemur fram að flestar bækur prentaðar ut- an landsteinanna voru prentaðar í Singapore, eða 25. 12 bækur voru prentaðar í Hong Kong, 10 á Ítalíu og 8 í Belgíu, 4 í Sviss og 3 í Taílandi og Danmörku. Önnur ástæða þess að íslenskar bækur eru prentaðar í útlöndum er að sfimdum eru útgefendur hér að prenta bækur í samvinnu við erlenda útgefendur. Þá er um svokallað sam- prent að ræða. Þá er prentað fyrir útgefendur víðs vegar úr heiminum á einum og sama stað, hjá prentaðila semerlenduraðiliákveður. -hlh ir til samkeppni um hönmm á þjóðhátíðarbúningi fyrir íslenska karimenn í tilefni af 50 ára af- mæli íslenska lýðveldisins. Sam- keppnin er haldin í samvinnu við Myndlista- og handiðaskóla ís- lands, Iönskólann í Reykjavík, Þjóðmipjasafn íslands, menning- armáladefid utanríkisráðuneyt- isins og Ríkisútvarpið. Þátttaka er öllum heimil. Iæitað er eftirstílhreinum ogþægilegum alklæðnaði sem gæti í senn verið viðhafnarbúningur, sambærileg- ur búningi íslenskra kvenna, en jafnframt leitist hönnuðir við að láta smekk samtimans kaliast á við fortíð og menningararfleifð. Hugmyndum skal skilaö í Iok- uöu umslagi meö dulnefni og því fylgi annað lokað umslag með upplýsingum um höfundinn. Skilafrestur er til kL 12 á hádegi 24. maí. Dómnefnd 7 manna mim velja tíu teikningar og eftir þeim verða gerðir búningar sem sýndir verða á sérstöku hátiðarkvöldi á Hótel Borg 5. júní. Þar muh áhorfend- um gefast kostur á að greiða at- kvæði um fallegasta klæðnaðinn; en atkvæöi þeirra gilda til hálfs á móti atkvæðum dómnefndar. Formaður dómnefndar er Sævar Karl Ólason klæðskerameistari. - sjá einnig bls. 15 íslendingará norrænnifar- andsýningu Listamennirnir Gústav Geir Bollason og Hlif Ásgrímsdóttir ent fulltrúar íslendinga á mikilli farandsýningu, Áróra - „Bienna- len for ung nordisk konst“ eða tvíæringur fyrir unga listamenn, sem sett verður upp í sjö lista- söfnum víða um Norðurlönd og í Litháen. Sýningin, sem haidin hefur verið á Noröurlöndum ann- að hvert ár, hefur þegar verið í Gautaborg en hún opnar í sumar i Norrænu listamiöstöðinni i Sveaborg. Leikrit um kynferðis- pólitik Sigrún Björgvinsd., DV, Eg2sstöðum: „Nýlenduþjóðir voru kúgaöar afherraþjóðum. Konur voru kúg- aðar af körlum. Þær em bældar eins og þjóðirnar sem lutu í lægra haldi. En hver hefur völdin? Svarið við spurningunni - Hver ríðiu- hverjum? •• vegur þungt i kvnferðispólitíkinni“ ; segir Margrét Guttormsdóttir meðal annars í leikskrá aö sýningu sem hún leikstýrði hjá Menntaskólan- um á Egilsstöðum á verki Caryl Churchill, í sjöunda himni, sem nemendur hafa verið að sýna. endur eru 10 en hiutverkin 16. Þama er margt prýðisvel gert Má tii dæmis nefna Garðar Val Valbjörnsson sem leikur stórt kvenhlutverk af býsna mikilli innlifun, Ester Jökulsdóttur, sem leikur eldri konu með miklum tilþrifúm, og ekki síst Ólaf Magn- úsSveinsson semleikurfimmára stelpu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.