Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1994, Side 25
ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1994
25
Sviðsljós
Mæðgurnar Whoopi Goldberg og Alexandra eru hér á óskarsverðlaunahátíðinni 1991. Dóttirin er nú þegar
byrjuð að feta í fótspor móðurinnar og aldrei að vita nema hún eigi sjálf eftir að eignast einn óskar.
Mæðgur saman
í kvikmynd
Þeir sem hafa lagt leið sína í
kvikmyndahús nýverið til að sjá
myndina Sister Act II, hafa kannski
tekið eftir ungri stúlku sem hefur
svipað bros og aðalleikkonan Who-
opi Goldberg en ekkert hugsað
meira út í það. Ef einhver hefur
tekið eftir svipnum þá var hann
enginn tilviljun því þarna var á
ferð dóttir hennar, Alexandra.
Whoopi var afskaplega ánægð
með það hvemig Alexandra krækti
sér í hlutverkið. Það var auglýst
eftir leikurum í prufu og sótti hún
um eins og fjölmargar aðrar án
þess aö segja móður sinni frá því.
Hún kom svo einn daginn heim
með þær fréttir að hún væri búin
að fá kvikmyndahlutverk og þaö
ekki í einhverri kvikmynd, heldur
við hhð móður sinnar.
Þær mæðgurnar eru mjög sam-
rýndar og minna að vissu leyti
meira á systur heldur en mæðgur
enda ekki nema 18 ára aldursmun-
ur á þeim. Það hvað Whoopi var
sjálf ung þegar hún átti Alexöndru
hefur sjálfsagt hjálpað henni að
bregðast við fréttunum þegar Alex-
andra varð ófrísk aðeins 15 ára
gömul. Slúðurblöðin veltu sér upp
úr fréttunum og margir hneyksluö-
ust mikið á þessu en Whoopi stóð
alltaf við hhð dóttur sinnar.
Hún á ekki heldur langt að sækja
fyrirmyndina að því hlutverki því
móðir hennar var sú sem hvatti
hana áfram til að verða leikkona
og studdi hana með ráðum og dáð-
um, þó svo hún hafi ékki haft mikla
peninga á milli handanna.
Þegar Alexandra fæddist var
Whoopi nýbúin í meðferð við eitur-
lyfjavanda og var að reyna fyrir sér
sem leikkona. Hjónaband hennar
og föður Alexöndru entist stutt og
þær mæðgumar fluttu til San Di-
ego og þaðan tíl San Francisco. Til
að eiga fyrir mat og klæðum fyrir
bamið þurfti Whoopi að þiggja
styrk frá hinu opinbera og segist
hún hafa notið þeirra stundar best
þegar hún gat farið og afþakkað
shka ávísun eftir að hún byijaði
að fá störf sem leikkona.
Peningar eru ekki vandamál hjá
Whoopi og Alexöndru í dag. Alex-
andra vill feta í fótspor móður sinn-
ar og því var það stór stund fyrir
hana þegar hún fékk hlutverkið í
Sister Act án aðstoöar hennar.
Hvort hún eigi svo eftir að ná jafn
langt og Whoopi verður tíminn
einn að skera úr um.
Tilkynningar
G. Davíðsson
í nýtt húsnæði
G. Daviðsson h/f flutti starfsemi sína
nýveriö í nýtt og betra húsnæði að Síðu-
múla 32. Fyrirtækið hefur starfað frá
árinu 1989, frá þeim tíma hefur verið
boðið upp á hillukerfi og innréttingar
fyrir verslanir og fyrirtæki, einnig eru
til sölu útstilhngargínur, fataskápar,
bæklingastandar og herðatré. Einnig ný-
smiöi úr álprófílum.
Félag eldri borgara
í Reykjavík og nágr.
Þriðjudagshópurinn kemur saman í Ris-
inu kl. 20 í kvöld. Sigvaldi leiðbeinir og
velur lög. Allir velkomnir.
Saltfiskdagar í Skrúði
Hinir árlegu saltfiskdagar hefjast í
Skrúði í dag og standa til 30. apríl. Á
boðstólum verða heitir og kaldir réttir
af hlaðborði. Meðan gestir gæða sér á
saltfiskréttum munu þeir njóta ljúfrar
suðrænnar gítartónlistar Einars Kristj-
áns Einarssonar gítarleikara.
Silfurlínan
Sími 616262. Síma- og viðvikaþjónusta
fyrir eldri borgara alla virka daga kl.
16-18.
Vasabækur Náms-
gagnastofnunar
Arið 1992 efndi Námsgagnastofnun í sam-
vinnu við Samtök móðurmálskennara til
samkeppni um stuttar sögur handa ungl-
ingum. Nú eru komin út þrjú hefti með
sögum úr samkeppninni. Sál bróðurins-
fjórar smásögur eftir Guörúnu Kristínu
Magnúsdóttur. Og enginn sagði neitt
- tvær smásögur eftir Þórð Helgason og
Bara okkar á milli - saga eftir Andrés
Indriðason.
Söngflokkur M.F.A.
Sl. haust var stofnaður söngflokkur
M.F.A. (sem er á vegum Menningar- og
fræðslusambands Alþýöu.) Markmið
hópsins er að flytja alþýðu- og verkalýðs-
söngva frá ýmsum löndum. Vetrarstarf-
inu lýkur með því aö kórinn kemur fram
á söngskemmhm á Elliheimilinu Grund
og á tónleikum á vegum Rangæingakórs-
ins þann 30. apríl í Fella- og Hólakirkju.
Leikhús
LEIKPÉLAG
REYKJAVÍKUR
GLEÐIGJAFARNIR
eftir Neil Simon
með Árna Tryggva og Bessa Bjarna.
Þýðing og staðfærsla Gisli Rúnar
Jónsson.
&W)í
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
. Sími 11200
Stóra sviðið kl. 20.00
Fim. 28. apríl, fáein sæti laus, Id. 30. apríl,
örfá sæti laus, (im. 5. mai, lau. 7. maí, tá-
elnsæti laus.fös. 13/5.
GAUKSHREIÐRIÐ
eftir Dale Wasserman
Stóra sviðið kl. 20.
5. sýn. föd. 29/4, nokkur sæti laus, 6. sýn.
sud. 1/5, örfá sæti laus, 7. sýn. föd. 6/5,
örfá sæti laus, 8. sýn. föd. 13/5.
EVALUNA
. Leikrit eftir Kjartan Ragnarsson og
Óskar Jónasson. Unnið upp úr bók Isa-
bel Allende. Lög og textar eftir Egil
Ólafsson.
Fös. 29. april, fáein sæti laus, föstud. 6.
mai, sunnud. 8. mai, fimmtud. 12. mai,
laugard. 14. mai, fáein sæti laus, næstsiö-
asta sýning, föstud. 20. mai siðasta sýning.
Geisladiskur meö lögunum úr Evu Lunu til
sölu i miðasölu. Ath.: 2 miðar og geisla-
diskur aðeins kr. 5.000.
Miðasala er opin kl. 13.00-20.00 alla
daga nema mánudaga. Tekið á móti
miðapöntunum i síma 680680 kl.
10-12 allavirka daga.
Bréfasimi 680383.
GAURAGANGUR
eftir Ólaf Hauk Simonarson
Mvd. 27/4, uppselt, fid. 28/4, uppselt, laud.
30/4, uppselt, þrd. 3/5, uppselt, fid. 5/5,
uppselt, laud. 7/5, uppselt, sud. 8/5, örfá
sæti laus, mvd. 11/5, uppselt, fimd. 12/5,
lad. 14/5, laud 28/5. Ósóttar pantanir seld-
ardaglega.
SKILABOÐASKJÓÐAN
eftir Þorvald Þorsteinsson
Ævintýri með söngvum
Ld. 30/4 kl. 14.00, örfá sæti laus, mvd.
4/5 kl. 17.00, örfá sæti laus, Id. 7/5 kl.
14.00, nokkur sæti laus, sud. 8/5. Ath.
sýningum ler fækkandi.
Smíðaverkstæðið kl. 20.30.
Greiðslukortaþjónusta.
Munið gjafakortin okkar.
Tilvalin tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavikur-
Borgarleikhús.
LEIKLfSTARSKÓLI ÍSLANDS
Nemenda
leikhúsið
SUMARGESTIR
eftir Maxim Gorki
i leikstjórn Kjartans Ragnarssonar.
Laugard. 30. april kl. 20.
Þriðjud.3. maikl.20.
Miðapantanir i sima 21971.
Budgetbílaleigan
flytur í Armúla
Budget bílaleigan eða Budget Rent a car
flutti starfsemi sína um sl. mánaðamót
úr Kópavogi aö Ármúla í Reykjavík. Eig-
endur Budget bílaleigunnar vonast til
þess að geta veitt viðskiptavinum fyrir-
tækisins bætta þjónustu í hinum nýju
húsakynnum að Ármúla 1.
Tónleikar
Grieg í Nor-
ræna húsinu
í kvöld, 26. apríl, kl. 20.30 verða tónleikar
í Norræna húsinu þar sem allar þrjár
fiðlusónötur norska tónskáldsins Ed-
vards Griegs verða fluttar af Guðnýju
Guðmundsdóttur fiðluleikara og Peter
Máté píanóleikara. Aðgangur seldur við
innganginn.
BLÓÐBRULLAUP
eftir Federico Garcia Lorca
Aukasýning i kvöld, uppselt. Allra sið-
asta sýning. Sýningin er ekki við hæfi
barna.
Ekki er unnt að hleypa gestum í salinn
eftir aö sýning er hafin.
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla
daga nema mánudaga frá 13.00-18.00
og fram að sýnlngu sýningardaga. Tekið
á móti simapöntunum virka daga
frákl. 10.
Græna Iinan9961 60.
Greiðslukortaþjónusta
Leikfélag Akureyrar
ÓPKRIJ
URAUGURINN
a <-
(*
eftirKen Hill
í Samkomuhúsinu kl. 20.30.
Föstudag 29. april, nokkur sæti laus,
laugardag 30. apríl, laugardag 7. mai,
nokkur sætl laus. Ath. Sýningum lýkur i
mái!
BarPar
eftir Jim Cartwright
SÝNTI ÞORPINU, HÖFÐAHLÍÐ1
Sýningar hefjast kl. 20.30.
35. sýning, fimmtudag 28. apr íl, fáein
sætl laus, sunnudag 1. mai, föstudag 6.
maí. Alh. Fáar sýningar eftir.
Ath.: Ekki er unnt að hleypa gesfum í
saiinn eftfr að sýnlng er hafln.
ÆVINTÝRITRÍTILS
-barnaleikrit
Frú Emilía sýnir í samvinnu við LA
íSamkomuhúsinu.
Laugardag 30. april, kl. 11, aðeins þessi
eina sýning. Verö miða kr. 400.
Aðalmiðasalan i Samkomuhusinu er
opin alla virka daga nema mánudaga
kl. 14-18 og sýningardaga fram að
sýningu. Simi 24073.
Símsvari tekur við miðapöntunum ut-
an afgreiðslutima.
Ósóttar pantanir að BarPari seldar i
miðasölunni i Þorpinu frá kl. 19 sýn-
ingardaga. Simi 21400.
Greiðslukortaþjónusta.
t
Annabella Harðardóttir,
Borgarhrauni 10, Grindavik,
lést í London að kvöldi 19. apríl.
Jarðarförin fer fram frá Grindavikurkirkju
miðvikudaginn 27. apríl kl. 14.