Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1994, Síða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1994
Neytendur
Verðkönnun DV á ís:
Allt að 240%
munur á verði
- dýrasti bamaísinn kostar 170 krónur
Vegna fjölda ábendinga um ótru-
legan verömun á ís milli verslana fór
DV á stúfana og kannaði verð þessa
svalandi ljúfmetis í 10 verslunum á
höfuðborgarsvæðinu og 6 verslunum
á landsbyggðinni. í ljós kom að allt
að 240% munur er á hæsta og lægsta
verði á minnsta ís verslananna án
dýfu. Munurinn á stærsta ísnum var
ekki eins mikill en mikill engu að
síður, eða 150%.
Könnunin var gerð með þeim hætti
að hringt var í verslanimar fyrir
helgina og spurt um verð á barna;
og fullorðinsís með og án dýfu. í
nokkrum tilvikum var um það að
ræða að verslanirnar buðu upp á lít-
inn ís, millistærð og stóran eða lít-
inn, stóran og risa, en aðeins var tek-
inn minnsti og stærsti ís hverrar
búðar. Hér er að sjálfsögðu aðeins
veriö að kanna verð, hvorki stærð
né bragðgæði.
Dýrari á landsbyggðinni
Samkeppnin er augljóslega mun
meiri á höfuðborgarsvæðinu því þar
er verðið hagstæðast í flestum tilfell-
um. Þrjár verslanir, ísbjöminn, Sæl-
gætis- og vídeóhöllin og íssel, bjóða
upp á á barnaís á 50/60 krónur og
fullorðinsís á 90/100 krónur. Ódýrasti
fullorðinsísinn án dýfu fékkst hjá
Svarta svaninum, á 80 krónur.
Blómaskálinn Vín við Akureyri
sker sig úr með hæsta verðið fyrir
lítinn ís meö og án dýfu, 170/180 kr.
í versluninni Brynju á Akureyri og
í Vín kostar stór ís án dýfu 200 kr.
Dýrasti ísinn í könnuninni var svo-
kallaður risi hjá ísbúðinni á Akur-
eyri á 220 krónur með dýfu. Þar var
boðið upp á þrjár stærðir, sem og í
Kringlunni, á Egilsstöðum og í ísbúð-
inni, Álfheimum.
Minnsti og stærsti ís í brauði án/með dýfu:
ísbjöminn, Eddufelli 6 50/60 kr. 90/100 kr.
íssel, Rangárseli 2 50/60 kr. 90/100 kr.
Sælgætis- og vldeóhöllin, Garðabæ 50/60 kr. 90/100 kr
ísbúðin, Kringlunni 50/65 kr. 150/170 kr.
ísbúðin, Álfheimum 2, Rvík 55/65 kr. 120/145 kr.
Svarti svanurinn, Rauðarárst. 60/75 kr. 80/100 kr.
Perlan, kaffitería 145/160 kr. 175/200 kr.
Bónusís, Ármúla 59/69 kr. 99/109 kr.
ísbúðin, Aðalstr. 4 80/90 kr. 110/120
Skalli, Rvíkurv., Hafnarf. 60/75 kr. 90/110
Frábærsf., Isafirði 140/160 kr. 160/180 kr.
Blómaskálinn Vín v/Akureyri 175/180 kr. 200/21 Okr.
ísbúðin, Akureyri 120/130 kr. 195/220 kr.
Brynja, Akureyri 150/170 kr. 200/- kr.
Fossnesti, Selfossi 130/145 kr. 170/190 kr.
Söluskáli v/Fagradalsbr., Egilsst. 80/90 kr. 150/170
Verðkönnun á ís
Minnsti án Stærsti án
dýfu dýfu
Lægst Hæst Lægst Hæst
Úrgangur að gróður-
mold á 3 mánuðum
1 könnun sem Iðntæknistofnun lét
gera í fyrra kom í ljós að hægt væri
að minnka sorphirðukostnað vem-
lega hjá litlum hæjarfélögum þar
sem íbúarnir flokkuðu sorpið og
stunduðu heimajarðgerð.
Nú er að hefjast annað tilrauna-
verkefni í heimajarðgerð á Islandi,
Grænlandi og í Færeyjum sem felst
í því að nokkrar íjölskyldur í hverju
landanna munu taka þátt í að endur-
vinna lífrænt sorp sem fellur til á
heimilunum.
Tuttugu fjölskyldur á Kjalamesi
munu taka þátt í verkefninu hér á
landi og setja úrganginn í sérhönnuð
plastílát sem standa við hús þeirra.
Gert er ráð fyrir aö matarleifar, garð-
úrgangur og annað lífrænt efni
brotni niður og verði aö gróðurmold
á aðeins þremur mánuðum með því
að nota umrædd ílát.
Verkefnið ætti aö gefa vísbending-
ar um hvemig best væri að standa
að því að fá almenning til þess að
flokka heimilissorpið og gera heima-
jarðgerð almennari en nú er.
igJljll
Dýrasti barnaisinn kostar 170 krónur.
Fólk ósátt við of háan símareikning:
Sundurliöun
eina leiöin
- segir Þórunn Tómasdóttir hjá innheimtu Pósts og síma
„Þetta er auðvitað mjög svekkj-
andi. Ég er aö fá reikning upp á 12
þúsund krónur og önnur kona hér í
bænum fékk reikning upp á á 22
þúsund krónur. í báðum tilfellum
eru þetta u.þ.b. helmingi hærri upp-
hæðir en við emm venjulega að
greiða. Ég veit um fleiri hér í bænum
sem hafa fengið óvenju háa reikn-
inga. Þetta er ergilegt því að manni
er sagt að ekkert sé hægt að gera en
síðan heyrir maður af dæmum eins
og í Reykjavík á dögunum þar sem
Póstur og sími viðurkenndi mistök
sín og endurgreiddi fólki hluta reikn-
inga,“ sagði kona á Djúpavogi í sam-
tali við neytendasíðu DV fyrir helg-
ina.
Töluvert mun vera um það að fólk
leiti til Pósts og síma vegna þess að
því finnst þaö vera að fá óvenju háa
reikninga. Eina leiðin til þess að vera
með allt sitt á þurru er að fá sundur-
liðun reiknings. Þar fást upplýsingar
um öfl símtöl nema þegar hringt er
í innanbæjar
„í þeim tilvikum þegar upp koma
mál sem vafl þykir leika á um að
allt sé með felldu er fólki boðið upp
á að fylgst verði með símanum í
ákveðinn síma. Oftast sættist fólk
svo á að það hafi bara ekki gert sér
grein fyrir því aö það hringdi þetta
mikið. Við getum ekki skoðað reikn-
inga aftur í tímann svo við mælum
með því viö fólk að það nýti sér sund-
urliðun símareikninga. Kostnaður-
inn við það er ekki svo mikifl," segir
Þórunn Tómasdóttir hjá innheimtu
Pósts og síma.
Varðandi það aö sumir séu að fá
endurgreidda reikninga segir Þór-
unn þaö vera í þeim tflvikum þegar
hægt er að merkja ákveðið ferli hjá
fjölda einstaklinga. Enginn vafi leiki
á því þegar svo er.
DV
íslenskar
kartöflur
Vegna góðrar tíðar upp á síð-
kastið er búist við að innlendar
kartöflur komi á markað eftir
u.þ.b, tíu daga og muni fijótlega
upp úr því fara að anna eftir-
spurn. Ekki verður heimilaður
frekari innflutningur á kartöflum
nema gegn sérstökum leyfum
sem veitt verða fyrirfram. Tölu-
vert er til af innfluttum kartöfl-
um í landinu og meira væntan-
legt á næstu dögum. Sl. haust
voru innfluttar kartöflur boðnar
til sölu löngu eftir að innflutningi
lauk en samkvæmt búvörulögum
á innlend framleiðsla að hafa for-
gang á markaði þegar hún er til.
Óréttmætir
skilmálar
Neytendasamtökin hafa óskað
eftir því við samkeppnisráð að
það leggi bann við ákvæðum í
skilmálum um greiðslukort, jafnt
debet- sem kreditkort. Einkum er
gerð aðthugasemd við skilmála
um ábyrgð aðila þar sem korthafi
ber mjög víðtæka ábyrgð á út-
tektum á kort en kortaútgefendur
geta firrt sig ábyrgð hafi þeir sýnt
„eðlilega aðgæslu".
„Þeir samningsskilmálar sem
hér hafa verið nefndir teljast
óréttmætir þvi samkvæmt þeim
er um að ræða ójafnvægi millli
réttinda og skyldna annars vegar
kortaútgefenda og hins vegar
korthafa. Skilmálar þessir eru
mjög einhliða þar sem verulega
hallar á neytandann, þ.e. korthaf-
ann,“ segir í bréfi Neytendasam-
takanna. Skilmálamir eru settir
einhliða af kortaútgefendum og
korthafar geta ekki haft áhrif á
efni þeirra. Jafhframt áskilja
kortaútgefendur sér rétt tii þess
aö breyta skilmálunum einhliða.
Neytendasamtökin benda á að
hér á landi skorti löggjöf um
greiðslukortastarfsemi eða um
aðra sambærilega greíöslumiöl-
un likt og þekkist annars staðar
á Norðurlöndum. Notendur deb-
et- og kreditkorta njóti því tak-
markaðrar lagaverndar.
Grilluppskriftir:
Skilafrestur
til 14. júlí
Uppskriftir eru nú farnar að
streyma að í grilluppskriftasam-
keppni Nýrra eftirlætisrétta, SS,
Bylgjunnar, DV, Bílaleigu Akur-
eyrar, Ferðaþjónsutu bænda og
Shell. í verðlaun eru 10 glæsilegir
vinningar til ferðalagsins. ítreka
skal að skilafrestur rennur út nú
á fimmtudaginn, 14. júlí, og síðan
verða úrslit kynnt föstudaginn
22. júlí.
Agúrkur
(Kr/kg)
H Hæsta J^Næst {Jíægsta
lægsta
Verslanlr í könnuninni
Hagkaup (249)
Fjaröarkaup (189)
Kjöt & fiskur (279)
Nóatún (268)
Bónus(177)
Garöakaup (289)
10-11 (248)
..........