Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1994, Síða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1994
Stuttar fréttir
Sjö útiendingar drepnir
íslamskir heittruarmenn í Alsír
drápu sjö útlendinga í gœr og
hafa þá 49 útlendingar látiö lífiö
á 30 mánuðum.
Áframmeðsmjöríð
Norður-Kóreumenn hafa lagt til
að haldið verði áfram að und-
irbúa leiðtogafund kórésku ríkj-
anna.
Kravtsjúktapaði
Leonid
Kravtsjúk,
fráfarandi for-
seti, tapaði í
forsetakosn-
ingunum í
Úkraínu fyrir
Leonid
Kútsjma meö
sjö prósentustiga mun um helg-
ina. Nýi forsetinn hefur hvatt til
einingar landsmanna.
Uppreisnarmenn náigast
Uppreisnarraenn í Rúanda
sækja að síöasta stóra bænum
sem er milli þeirra og sfjómar-
hersins.
Lokaatiaga fyrír fríð
Frakkar og Bretar ætla aö gera
lokatilraun til að fá deiluaöila í
Bosníu til að fallast á frið.
Viðreísn í Aden
Ráðherrar í sfjóm Jemens
reyna að stöðva gripdeildir í
borginni Aden.
Gamiir skólaféiagar
Li Peng, forsætísráðherra Kína,
hitti Ion Iliescu, forseta Rúmeníu
og gamlan skólafélaga frá
Moskvudögunum.
Franskir og bandarískir vís-
indamenn skipta með sér ágóðan-
um af prófi til aö greina eyðni.
Falskt neyðarkall
Hvalveiði-
andstæðingur-
inn Paul Wat-
son hefur veriö
sakaður um að
senda út lalskt
neyðarkall cft-
irásiglingunaá
norska varð-
skipið í síðustu viku. Norska lög-
reglan rannsakar máliö.
Eldarkveiktir
Norður-írskir mótmælandatrú-
armenn kveiktu varöelda til aö
minnast gamallar orrustu.
Haítístjórn hótaó
Haítístjóm hefúr verið hótað
öllu illu vegna brottrekstrar eftir-
litsmanna með mannréttindum í
landinu.
Kaffi hækkarenn
Kaffi hækkaði enn í gær eftir
að frost skemmdi kaffitré í Brasil-
iu eina ferðina enn.
Clintonogblöðin
Clinton
Bandaríkjafor-
seti sem er í
heimsókn hjá
Helmut Kohl
segir aö Þýska-
land eigi að
taka aö sér
stærra hlut-
verk á alþjóðavettvangi en þýsku
blöðin segja rulluna kannski of
stóra.
ÖruggtíNoregi
Umferðaröryggi er meira í Nor-
egi en öömm löndum Evrópu,
segir í danskri könnun.
Skilorðsbundinn dómur
Dómstóll í Suður-Kóreu breytti
þriggja ára fangelsisdómi stofh-
anda Hyundai í skilorðsbundinn
dóm.
Reuter, NTB
Utlönd
Þrír ákærðir fyrir skemmdarverk á norskum hvalbát:
Grænfriðungar lausir
úr haldi lögreglunnar
Grænfriðungarnir þrír sem hafa
verið ákæröir fyrir gróft skemmdar-
verk með því aö skera á skutulslín-
una í norska hvalbátnum Senet voru
látnir lausir seint í gærkvöldi. Skipi
grænfriöunga, Siriusi, er einnig
heimilt að sigla frá bænum Egersund
en lögreglan lagði hald á fjóra létta-
báta svo áhöfn skipsins geti ekki
haldið áfram að trufla hvalveiðar.
Vakt var yfir bátunum í nótt.
Þremenningarnir, tveir Bretar og
einn Hollendingar, eiga yfir höfði sér
allt að íjögurra ára fangelsi, verði
þeir fundnir sekir.
Norska lögreglan lagði einnig hald
á myndbandsvél og spólu sem sýnir
ástandiö um borö í Siriusi þegar
strandgæslan tók skipið í sína vörslu
á sunnudagskvöld.
„Það voru uppi efasemdir um lög-
mæti þess að halda Siriusi og hinum
þremur ákærðu,“ sagði Magnar
Sandstöl, yfirlögregluþjónn í Eger-
sund. Ástæðan er sú að Sirius var
tekið á alþjóðlegri sighngaleið þótt
það hafi verið innan norskrar efna-
hagslögsögu.
„Það er ljóst að þetta fólk er með
duglega lögfræðinga á sinum snær-
um og þá er það jú mikilvægt að
maður sé réttum megin við lögin. Það
er jú alltaf mikilvægt að fara eftir
þeim,“ sagði Sandstöl.
Hrefnan sem Senet var með í eftir-
dragi þegar grænfriðungar skáru á
línuna hvarf í haíiö og er ekki ljóst
hvort hún lifði af. Kjötið af dýrinu
var metið á um eina og hálfa irúlljón
íslenskra króna.
Grænfriðungar hafna fullyrðing-
um Norðmanna um að með atferli
sínu hafi þeir aðeins framlengt þján-
ingar dýrsins. „Þaö átti veika von.
Það er betra en ekkert," sagði græn-
friöungurinn Stefan Flothmann sem
var um borð í Siriusi.
NTB, Reuter
■^inaÍiÉ’y__________________________________
Lítil stúlka kælir sig með vatni úr brunahana í bænum Graz í Austurríki. í síðustu viku hefur mikil hitabylgja gengið yfir miðhluta Evrópu og hitinn farið yfir
30 gráður. Almenn ánægja rikir með þessa veðursæld og fólk flykkist i laugarnar eða i skemmtigarða til að njóta sólarinnar og hitans. Simamynd Reuter
ísól
og sumaryl
Hjónaband Michaels Jacksons og Lisu Presley:
Jackson neitar öllu
Yasser Arafat:
Flytur heim eftir
áratuga útlegð
Yasser Arafat, leiðtogi PLO, hef-
ur flutt heimkynni sín til Gaza
svæðisins á heimastjórnarsvæði
Palestínumanna í ísrael eftir ára-
tuga útlegð. Arafat fór fyrir mikilli
skrúðgöngu með konu sinni, Suhu
yfir Egypsku landamærin í morg-
un og nam staðar í þorpinu Rafah
á heimastjórnarsvæðinu.
Arafat lýsti því yfir að þó að hann
hefði flutt heimkynni sín til Gaza,
muni hann halda áfram baráttunni
fyrir réttindum þjóðar sinnar á
hernumdum svæðum ísraela.
„Menn mega ekki gleyma því að
þjóðfélagsbygging Palestínuaraba
hrundi gjörsamlega á meðan á
hernámi Israela stóð og það er því
ljóst að við verðum að byggja hana
upp frá grunni,“ sagði Arafat.
Viðræður fara nú fram í Kairó
miUi fulltrúa ísraela og liðsmanna
PLO um sjálfstjóm Palestínu-
manna á afganginum á Vestur-
Yasser Arafat er fluttur til Gaza.
Símamynd Reuter
bakkanum og hvemig standa eigi
að stjórn Palestínumanna á svæð-
inu sem koma til að leysa ísraelsk-
ar hersveitir af hólmi. Arafat eyddi
síðustu nótt sinni í útlegö í Kaíró
í gærkvöldi í einni af höllum Hosni
Mubaraks, forseta Egyptalands.
Reuter
Sögusagnir um að poppgoðið Mic-
hael Jackson hafi gengið í hjónaband
með Lisu Mariu Presley, dóttur Elvis
Presley, fengu byr undir báða vængi
þegar frægur rithandarsérfræðingur
lýsti því yfir aö undirskriftin á hjú-
skaparsáttmálanum væri Jacksons.
Talsmaður Michaels Jacksons hefur
hins vegar borið þessar sögusagnir
alfarið til baka.
Fyrstur til að koma þessum sögu-
sögnum af stað var dómarinn Al-
varez Perez frá Dóminíska lýðveld-
inu. Hann sór og sárt við lagði í sam-
tah við fjölmiðla að hann hefði gefið
Jackson og Lisu Mariu Presley sam-
an í lok maímánaðar í kapellu sinni
í þorpinu Vega aðviðstöddum tveim-
ur vitnuni og lífvörðum Jacksons.
Að sögn Perezar kysstust brúðhjónin
að lokinni vígslunni, þó án ástríðu.
Fáir lögðu trúnað á sögu Perzar þar
til honum barst óvæntur liðsauki.
Einn færasti rithandarsérfræðingur
Bandaríkjanna, Charles Hamilton,
kannaði undirskriftina á hjúskapar-
sáttmálanum og komst að því, sjálf-
um sér til miklllar fúrðu, að undir-
skriftin væri Jacksons. „Ég er 75%
viss um að ég hef rétt fyrir mér, en
ég hef boriö undirskriftina saman við
Talsmenn poppgoðsins Michaels
Jacksons bera til baka sögusagnir
um að hann hafi gengið i hjonaband
með Lisu Mariu Presley, dóttur Elvis
Presleys. Símamynd Reuter
30 rithandarsýnishom frá Jackson."
sagði Hamilton.
Hann er einn þekktasti sérfræðing-
ur Bandaríkjanna í rithandarsýnis-
homum og þekktastur fyrir að hafa
flett ofan af „dagbókum Hitlers" og
sannað að þær væru falsaðar.
Reuter