Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1994, Qupperneq 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1994
Sviðsljós
f hringiðu helgarinnar
Það má með sanni segja að vel hafi tekist til hjá söngvurunum í Hárinu á frumsýningarkvöldinu á fimmtudegin-
um. Áhorfendur jafnt sem leikendur skemmtu sér konunglega.
Hann Ásbjörn Björnsson flugáhugamaður var stoltur
með listflugvéhna sína, UFO, sem er 10 ára gömul, á
flugsýningu flugmódelfélagsins Þyts á Hamranesi á
sunnudag.
Ólafsdóttir voru á frumsýningunni á Hárinu í íslensku
óperunni sl. fimmtudagskvöld og eins og sjá má voru
þær stórhrifnar af sýningunni.
Merming___________
Sumartónleik-
ar í Skálholti
Tónleikahald í Skálholti virðist ætla að verða með
svipuðu sniði í sumar og undanfarin sumur. Á laugar-
dag voru tvennir tónleikar haldnir þar sem leikin voru
verk frá barokktímanum. Undirrituöum gafst kostur
á aö koma á síðari tónleikana. Þar lék Bachsveitin í
Skálholti ásamt einleikurunum Önnu M. Magnúsdótt-
ur á sembal og Ulf Söderberg á orgel. Konsertmeistari
var Ann WaUström. Á efnisskránni voru verk eftir
G.F. Hándel, H.I.F. Biber og J.S. Bach.
Eins og er yfirleitt með tónleikahald hér á landi
hafa Skálholtstónleikar notið mikillar aðsóknar und-
anfarin ár. Er þaö í sjálfu sér umhugsunarefni hvern-
ig á því stendur. Svo virðist sem fólk fáist yfirleitt
ekki til þess að gera neitt nú til dags, nema í kjölfarið
á harðvítugum auglýsingaherferðum. Á tónleika hins
vegar streymir fólk árið um kring hvatningarlítið eða
hvatningarlaust af sjálfsdáðum og er gott til þess að
vita. Laugardegi í Skálholti er vel variö í tónlist, kaffi
og spjall í fógru umhverfi og óvíst að lífið hafi upp á
margt öllu betra að bjóða.
Meðal verkanna sem flutt voru má nefna tvo parta
úr Mensa Sonora eftir Biber, lipurlega skrifað verk
með fínlegum þokka en ekki sérlega stórt í andanum.
Orgelkonsert Hándels í B dúr hljómaði einnig vel. Þar
mátti m.a. heyra fræga passacagliu sem trúlega er
flestum kunnari í útsetningu fyrir tvær fiðlur. Þegar
kom aö sembalkonsert Bachs í d moll var hins vegar
eins og ný veröld, víðari og dýpri, birtist hlustendum.
Krafturinn í hinni einfóldu laghnu sem konsertinn
hefst á er með óUkindum. Sami andans styrkur svifur
yfir vötnum í Hljómsveitarsvítu Bachs nr. 1 í C dúr,
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
sem undirritaður gat því miður ekki hlýtt á til enda.
Flutningurinn á þessum tónleikum var svoUtið mis-
jafn. Einleikararnir áttu ágætt framlag og margir ein-
stakir hlutir komu vel út í hljómsveitinni. SamspiU
var hins vegar stundum ábótavant og samstillingu
sömuleiðis. Svo virtist sem til bóta hefði verið að hafa
strangan hljómsveitarstjóra til að halda flutningnum
betur saman. Oft getur gefið góða raun að leika án
hljómsveitarstjóra ef sveitin er ekki of stór og þátttak-
endur eru vel samspilaðir fyrir eða æfmgatími ótak-
markaður. Þegar þessi skilyrði eru ekki fyrir hendi
er yfirleitt betra að hafa stjórnanda.
Þær Herdís Þorvaldsdóttir leikkona, Ólöf Pálsdóttir, myndhöggvari og fyrr-
verandi sendiherrafrú, og Sigrún Jónsdóttir myndhst-
arkona voru viö opnun sýningar Ragnheiðar Jónsdóttur Ream í Norræna
húsinu á laugardag. Þeim fannst sýningin yndisleg og myndimar framkaUa
Hún Hanna María Einarsdóttir, sem mun gifta sig 16. júU næstkomandi, var
klædd upp sem spákonan „Madam Rosíta" af vinkonum sínum sem héldu
henni gæsapartí. Hún spáði fyrir vegfarendum á Austurvelli fyrir aðeins 10
kr. og gekk svo vel að hún gat fengið sér að borða eftir spádómana.
Mynd H.J.
Það var líf og íjör og hörð barátta á Sandskeiði á sunnudag. Hann Þórir
Kristinsson var þar að keppa á íslandsmóti í mótokrossi. Aö hans sögn var
brautin fín en keppendur voru orðnir þreyttir eftir fyrri umferðina og svo
byrjaöi að rigna mönnum til mikiUar armæðu en við spyrjum að leikslokum.
Hann Pálmi Karlsson fisksali var glaður í bragði um helgina en hann var
mjög vinsæll þar sem hann var svo heppinn að hafa hrefnukjöt tU sölu í
Kolaportinu um helgina. Að hans sögn er þaö ekki bara landinn sem kann
að meta hrefnuna, útlendingar eru stórhrifnir líka og þá sérstaklega ítalir,
Þjóðverjarog Japanar. DV-myndSIS