Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1994, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1994, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1994 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjórar: JÖNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNUSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14. 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SÍMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð i lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk. Að ráði Mandela Mikilvægt er, að ísland haldi áfram að taka þátt í efna- hagslegum refsiaðgerðum og öðrum þvingunum gegn ríkjum og stofnunum, sem ganga svo langt út fyrir mörk velsæmis, að samstaða næst á fjölþjóðlegum vettvangi um að reyna að kúga ráðamenn þeirra til endurbóta. Stundum er haldið fram, nú síðast af íjórtán íslenzkum undirskriftamönnum, að refsiaðgerðir eigi ekki rétt á sér, því að þær feh 1 sér hóprefsingu, sem komi niður á saklausu fólki. Refsingum megi aðeins beita gegn ein- stakhngum, ekki hópum, og ekki án dóms og laga. Undirskriftamenn telja, að refsiaðgerðir umheimsins komi mest niður á almenningi í þessum ríkjum og auki þannig beinlínis kúgun fólks. Mest þjáist böm, sjúkhngar og gamalmenni í ríkjum eins og Serbíu, Líbýu og írak, þar sem stjómvöld sæta efnahagslegum refsiaðgerðum. Viðurkenndir fuhtrúar hinna kúguðu í ríkjum af þessu tagi hafa þurft að taka afstöðu til þessara sjónarmiða. Þeir telja allir, að efnahagslegar refsiaðgerðir af háifu umheimsins séu nauðsynlegar, þótt skjólstæðingar þeirra finni meira fyrir þeim en valdhafarnir. Þannig barðist Nelson Mandela ahtaf fyrir efnahags- legum refsiaðgerðum gegn Suður-Afríku og þannig berst séra Aristide fyrir efnahagslegum refsiaðgerðum gegn Haítí. íslenzku undirskriftamennimir fjórtán eru því að hafna ráðleggingum þessara mætu mannréttindasmna. Nelson Mandela hefur tjáð sig rækilega um þetta ágreiningsefni. Hann sagði, að erííðleikar skjólstæðinga sinna vegna refsiaðgerðanna væm að vísu sárir, en tíma- bundnir, því að refsiaðgerðimar mundu leiða th fahs kúgunarvaldsins, svo sem raunin varð á í Suður-Afríku. Þeir, sem hafa öðlazt frelsi í Suður-Afríku, em áreiðan- lega að öhum þorra sammála um, að erfiðleikar vegna refsiaðgerða hafi verið tiltölulega hthl fórnarkostnaður th að ná þeim glæshega árangri, sem nú er öhum ljós, þegar Nelson Mandela er orðinn forseti ríkisins. Galhnn við efnahagslegar refsiaðgerðir er ekki sið- ferðhegur, heldur sá, að stundum ná þær ekki árangri, af því að þær em framkvæmdar með hangandi hendi. Þannig haifa aðgerðimar gegn Serbíu ekki náð árangri, einkum af því að Grikkir hafa smyglað vörum th Serbíu. Með því að leyfa gróðafíknum Grikkjum að halda uppi glæpastjóminni í Serbíu em leiðtogar vestrænna stórvelda að sphla árangri refsiaðgerðanna og gera þús- undum Serba kleift að stunda þá glæpi gegn mannkyn- inu, sem hefur gert þá að verst ræmdu þjóð vorra daga. Ráðamönnum Vesturlanda ber raunar að heíja efna- hagslegar refsiaðgerðir gegn Grikklandi fyrir aðstoð þess við Serbíu. Sama má segja um refsiaðgerðir gegn Dómin- íska lýðveldinu fyrir að leyfa víðtækt smygl th Haítí. Refsiaðgerðir mega aldrei vera gatasigti. Þar á ofan er nauðsynlegt, að ráðamenn Vesturlanda geri sér grein fyrir takmörkunum refsiaðgerða. Þær ná stundum ekki árangri, nema menn hafi póhtískan vhja th að fylgja þeim eftir með hemaðaraðgerðum, þegar búið er að rýra vamarmátt hinna hlu stjómvalda. Auðvitað verður fólk að átta sig á, að efnahagslegar refsiaðgerðir em aðeins viðeigandi, þegar útbreidd sam- staða er með lýðræðisríkjum heims um skhgreiningu vandans. Slíkar aðgerðir em afar slæmar, ef þær em einkum þáttur í viðskiptastríði og hagsmunapoti. Af framansögðu er ljóst, að það er siðferðisskylda stjómvalda að verða ekki við ósk fjórtán undirskrifta- manna um, að ísland hverfi frá aðhd að refsiaðgerðum. Jónas Kristjánsson Greinarhofundur segir minnkandi aflaheimildir og lækkandi afurðaverð hafa komið geysihart niður á svæðum eins og Vestfjörðum þar sem atvinnulifið er háð þorskveiðum. Bætt samkeppn- isstaða Árum saman háðu forsvarsmenn útflutningsfyrirtækja og lands- byggðar sameiginlega baráttu fyrir hagsmunum sínum við efnahags- stjórnun í landinu. í málflutningi þeirra var sem rauður þráður sú skoðun að skynsamleg efnahags- stjórnun væri forsenda bætts hags landsbyggðarinnar og útflutnings- atvinnuveganna. Hvers var krafist? í þessu sambandi lögðu talsmenn atvinnulífs og landsbyggðar meg- ináherslu á að kveða niður verð- bólguna. Stöðugt var uppi krafan um að skrá gengi krónunnar svo að það stuðlaði að jafnvægi í við- skiptum við útlönd og þar með jafn- ræði með útflutnings- og innflutn- ingsgreinum. Enn fremur lögðu forsvarsmenn atvinnulífs og landsbyggðar áherslu á mikilvægi þess að vextir lækkuðu og yrðu í samræmi við það sem gerðist í samkeppnislönd- um okkar. Þá var ævinlega bent á mikilvægi þess að leggja niður veltu- og kostnaðarskatta sem legð- ust á fyrirtæki án tillits til afkomu þeirra. Hvað hefur áunnist? Nú þegar við lítum yfir sviöið er athygbsvert að bera saman raun- veruleika dagsins við kröfur fyrri ára. Verðbólgan er að minnsta kosti ekki meiri en í samkeppnislöndum okkar; í sumum tilvikum lægri. Raungengið hefur ekki verið hag- stæðara útflutningi og samkeppn- isgreinum um áratugi. Það er jöfn- uður í viðskiptum við útlönd og við erum jafnvel farin að greiða niður Kjallarinn Einar K. Guðfinnsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum erlendar skuldir. Vextir hafa lækkað á síðustu misserum þótt við blasi að bank- arnir hafi ekki fylgt vaxtalækkun hins opinbera eftir, eins og öll efni standa þó til. Loks hefur verið gert sérstakt átak í því að lækka skatta á fyrirtækjum og afnema aðra al- veg eins og aöstöðugjaldið, til þess að styrkja stöðu atvinnulífsins. Er þá allt í lagl? Menn geta þá kannski spurt. Er þá allt í himnalagi? Því er fljótsvar- að. Því miður er svo alls ekki. Ytri skilyrði hafa veriö okkur sérlega óhagstæð. Lækkandi afurðaverð og minnkandi aflaheimildir hafa kom- ið geysihart niður. Sérstaklega á svæðum eins og Vestfjörðum þar sem atvinnulífið er háð þorskveið- um. Tæplega þohr nokkur atvinnu- grein eða byggð svo skelfilegt tekjutap sem þar hefur orðið í kjöl- far aflasamdráttar. Þess vegna er nauðsynlegt að bregðast við þeim vanda með sérstökum hætti til þess að koma í veg fyrir byggðavá og atvinnubrest. Hagsmunir okkar sem þjóðar liggja í því að byggja upp öflugt atvinnulíf. í þeim efnum megum við ekki láta héraðaríg villa okkur sýn. Það geta ekki verið hagsmunir einna eða neinna að láta atvinnulíf- ið fara á hhöina á tilteknum land- svæðum. Þess vegna hljóta menn að standa saman um þá viðreisn sem nauðsynleg er í atvinnulífinu. Einar K. Guðfinnsson „Hagsmunir okkar sem þjóöar liggja 1 því að byggja upp öflugt atvinnulíf. í þeim efnum megum við ekki láta hér- aðaríg villa okkur sýn.“ Skoðanir annarra Gnótt frídaga „Öllum ætti að vera ljóst að ástand efnahags- mála undanfarin ár hefur síður en svo búið í haginn fyrir það aö á íslandi gildi einhverjar aðrar og rýmri leikreglur en annars staðar. Hugur manna hefur löngum staðið til aukins frítíma, hvort sem hann er fenginn með styttri vinnuviku eða fleiri frídögum, og þaö er sannarlega langtímamarkmið atvinnurek- enda aö menn beri meira úr býtum fyrir minna erf- iði. En ef íslendingar ætla að veita sér lilunnindi umfram aðrar þjóðir verða þær kjarabætur sóttar í bætta afkomu og vöxt fyrirtækja.“ Guðni N. Aðalsteinsson hagfr. i Fréttabréfi VSÍ Á goðastalli „Margoft hefur verið bent á hvar uppspretta fikniefnavandans er og hverjir auglýsa vöruna mest og best. En flestir kjósa að hta fram hjá því og beina sjónum að sölumönnum, sem í raun gera ekki annað en sinna kahi markaðarins. Vandamálin eru neyt- endumir og fyrirmyndir þeirra. Dýrkendur sjá aldrei neitt neikvætt í fari eða gjörðum þeirra sem þeir dýrka... Fjölmiðlunin fer afar mjúkum höndum um þá sem hún lyftir á goðastah, þegar þeim verður á í messunni, og um þá gilda aht önnur siðgæðislög- mál en annað folk.“ Oddur Ólafsson í Tímanum 9. júlí Krafa til sveitarf élaga „Það sem helst ógnar hinum efnahagslega bata, sem farið er að örla á hér á landi, er hinn mikh haha- rekstur ríkissjóðs á undanfömum árum. Er ljóst að ef ekkert veröur að gert er hætta á að vaxtalækkanir undanfarinna mánaöa verði skammgóður verm- ir... Að lokum em það líka skattgreiðendur, einstakl- ingar jafnt sem fyrirtæki er verða að fjármagna um- frameyðsluna. Það verður því ekki síður að gera þá kröfu th sveitarfélaga landsins en ríkisins að miða útgjöldin við tekjur.“ Úr forystugrein Mbl. 9. júlí

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.