Dagur - 21.12.1960, Qupperneq 4
Scð yfir Hafnarkauptún og Skardsfjiirð. í baksýn (frá vinstri): 1 Skarðstindur, II Almannaskarð og hluti af
Skarðsdal, III Klifatindur, IV Rustanöf, V Litla horn. (Ljósmynd: Sn.)
hægri Litla horn. Af Almannaskarði er
ein fegursta útsýn þegar veður er gott.
Þaðan sér yfir allt landnám frilluson-
arins Þórólfs, Rögnvaldssonar Mæra-
jarls, en það eru þrjár sveitir, Nes,
Mýrar og Suðursveit. Fjallahálfhringur
girðir þessar sveitir frá austri ti vest-
urs, en sandrif, um 30 km langt, lokar
hringnum að sunnan, en nokkurnveg-
inn á því miðju er Hornafjarðarós við
svonefnda Hvanney, sem er þó algjör-
lega gróðurlaus klettur, og er næsta ó-
trúlegt, að þar hafi nokkru sinni vaxið
hvönn, því að sjór þvær þarna yfir
klappirnar þegar brim er mikið. Innan
við sandrifið, eða Fjöirurnar eins og
það nefnist í daglegu tali, er svo fjörð-
urinn tryggilega varinn fyrir úthafs-
öldunni, sem aldrei nær þangað inn.
Hafnarkauptún stendur á nesi, sem
skiptir firðinum nærri í tvennt. Heitir
austari hlutinn Skarðsfjörður. — A
Hornafirði eru margar eyjar, líklega
um eða yfir fimmtíu talsins, og bera
sumar þeirra allsérkennileg nöfn. I
Skeggey hvílir Skeggi undir steinnökkva,
4 JÓLABLAÐ DAGS
en Ketillaug, kerling hans, kaus sér leg-
stað á toppi Ketillaugarfjalls, og hafði
hún með sér gullketil í dysina.
Einnngrunin roíin.
Þarna eru Hríseyjar þrjár, Langanes,
Saltnes, Þýfisey, Dýrey, Krókalátursey,
Borgey, Kesknishöfði, Flangey, Kerling-
arey og Garðey, svo nokkrar séu nefnd-
ar. Ekki er vitað af hverju eyjarnar hafa
fengið nöfn sín, nema hvað gera má ráð
fyrir að einhvern tíma hafi verið króka-
látur í Krókalátursey og hrís í Hríseyj-
um. Þó verður ekki um það deilt af
hverju Garöey hefur fengið nafn sitt,
því að þar sér glöggt fyrir garðbroti, og
hefur garður þessi verið hlaðinn í hring.
Mér vitanlega eru ekki til neinar sagnir
um það, hvernig á þessum garði stend-
ur, en tilgátur eru um það, að þarna hafi
verið annaðhvort hof eða virki á sögu-
öld og hefur eyjan þá líklega verið fast
land. Vafalaust hefur landslag í Horna-
firði verið með öðrum svip en það er
nú, þegar Þórólfur landnámsmaður tók
sér bólfestu undir Skarðsbrekkum, því
að þar mundi engum óvitlausum manni
detta í hug að setjast að nú. Trúlega hef-
ur þá verið mikið land þar sem Skarðs-
fjörður er nú. Skammt austan við Litla
horn og austast í landnámi Þórólfs,
stendur bærinn Horn. Var sá bær löng-
um afskekktur mjög, þar sem algjör veg-
leysa var frá Almannaskarði að Horni,
og varla fært nema gangandi mönnum,
enda ferðuðust Hornsmenn að jafnaði á
fararskjótum postulanna og voru göngu-
garpar miklir. En svo kom blessað stríð-
ið með herstöð í næsta nágrenni við
þennan afskekkta bæ, og þar með var
aldagömul einangrun hans rofin. Akveg-
ur var lagður út með fjallinu og heim í
hlað á Horni.
Skammt austan við bæinn Horn er
Hafnartangi og Hornshöfn, en þaðan var
útræði áður fyrr, meðan sjór var sóttur
á opnum bátum, en stutt var á fengsæl
fiskimið, þé róið var úr Hornshöfn.
Kolbeinn gekk aítur.
Stutt frá Hornshöfn er Kolbeinshellir
og ber hann nafn sitt af því, að þar hafð-