Dagur - 21.12.1960, Blaðsíða 6

Dagur - 21.12.1960, Blaðsíða 6
horni. Skipshöfnin hafði barizt við storm og stórsjó mest alla nóttina og setti alla ycn sína á það, að ná fyrir Stokksnesið og komast í stilltari sjó í Lón-bugtinni. En mundi þetta takast? Sjólagið benti Óneitanlega til þess, að þeir vaeru í- skyggilega nálægt landi. Allt í einu ríð- ur ógurlegur brotsjór undir skipið, sem berst á fleygiíerð með öldufaldinum, án þess að nokkuð verði ráðið við, stefnu þess, og í einni svipan skeður það, að skipið situr fast á kietti. Skipverjar áttu nú von á því, að næsta ólag riði yfir og þar með væri öllu lokið. En það fór á aðra leið. Sjór kom aldrei að skipinu eftir þetta. Þarna sat það á réttum kili milli tveggja steina, eins og því hefði verið ráðið til hlunns og mennirnir gengu þurrum fótum i land. Skipið hafði stranþað sunnan á Stokknesinu og klett- urinn, sem það sat á, er 6—8 m. yfir sjávarmáli. Má nokkuð af því ráða, hvernig sjólag hefur verið. Skipstjórinn gaf nú þá skipun, að skipið skyldi yfir- gefið og skipshöfnin leita bæja, sjálfur kvaðst hann ætla að skreppa niður í káetuna og sækja skipsskjölin. En skip- stjórinn kom ekki aftur. Og þegar farið var að grennslast um hann, fannst hann örendur í koju sinni, hafði tekið eitur. Sagt var, að þetta hefði verið þriðja skipbrot hans, og hefði hann ekki viljað eiga fleiri slík á hættu. Þe&at herskipin komu. Einn dag að áliðnu sumri 1874, sá beimilisfólk á Horni, hvar herskip kom öslandi af hafi og stefndi inn á Horns- vík. Ekki var laust við, að nokkur beyg- ur væri í fólki yfir komu þessa skips, því að menn óttuðust að hér kynnu að vera ræningjar á ferð. Sögur af Tyrkjarápinu voru þá enn sagðar manna á milli og þeir atburðir ekk,i svo víðsfjarri í hugum fólksins. Hér var þó ekki um neitt ræningjaskip að ræða, heldur var herskip þetta sent af frönsku stjórninni rakleitt í heimsókn að Horni. Erindið var, að heiðra Horns- bændur i þakklætisskyni fyrir móttöku hinna frönsku skipbrotsmanna veturinn áður. Voru Hornsbændur sæmdir heið- ursrnerkjum úr gulli, en auk þess var þeim afhentur fiskibátur með öllum bún- aði og Eyjólfi timburmanni færðu þeir öll trésmíðaverkfæri sem handverki hans tilheyrðu. Munu þau verkfæri flest öll vera til enn á Horni. Einhver spurði Eyjólf að því nokkru síðar, hvort hann hefði fengið kross. „Nei“, svaraði hann snög'gt. „Eg vil ekki 6 JÓLABLAÐ DAGS skitnýta danskan kross hjá frakknesku heiðursmerki". Sonarbörn Eyjólfs, sem nú búa á Horni, varðveita þetta heiðursmerki afa síns sem helgan dóm. Lifir Eyjólfur? Mörgum árum eftir að þessir atburðir gerðust, var það eitt sinn sem oftar, að farið var í fiskiróður úr Hornshöfn. I þessum róðri höfðu Hornsmenn sam- band við franska skútu þar á miðunum, sem ekki var óalgengt í þá daga. Höfðu frönsku skútukarlarnir ýms viðskipti við íslenzku sjómennina, keyptu af þeim vettinga og sokka i skiptum fyrir „pom- polabrauð" og rauðvín, og þóttu það góð viðskipti á báða bóga. Þó að málið væri ólíkt, komust þeir fljótt upp á það að skilja hvorir aðra, það skapaðist eins konar sérmál, sem Frakkar og Islending- ar notuðu sín á milli á Austfjörðum. I þetta sinn var þó einn gamall maður á hinni frönsku skútu, sem talaði nokkuð íslenzku, og þegar hann heyrði, að þessir harðlegu sjómenn væru frá Horni, varð hann hugsi, en sagði svo: „Lifir Eyjólfur á Horni enn?“ Var honum tjáð að svo væri. Þá bað sá franski fyrir góðar kveðjur og sagðist hafa verið einn af þeim, sem nutu gistivináttu Hornsbænda veturinn 1873. Þó að Hornafjörður væri um langan aldur eitt afskekktasta hérað hér á landi og mjög erfitt um alla aðdrætti úr kaup- stað, en verzlun þurfti lengi að sækja til Djúpavogs eða alla leið til Seyðisfjarð- ar, þá munu Hornfirðingar alltaf hafa bjargast allvel af því, sem aflaðist til lands og sjávar, og þurftu ekki æfinlega mikið fyrir þeim afla að hafa. Mikið af loönu gekk oft inn i fjörðinn, eða hún barst þangað með straumi, og á eftir henni rann þorskurinn og stundum hval- ir, sem þá festust á sandeyrum í firðin- um og voru þá stungnir til bana. Þorsk- urinn, sem inn í fjörðinn lenti, varð held- ur ekki langlííur, því að hann fékk fljót- lega sand og jökulleir í tálknin, og af þeim sökum flaut hann upp. Þurftu menn því ekki annað veiðarfæri en lít- inn gogg eða bara hendurnar til að tína fiskinn upp. Þannig hlóðu menn oft báta sína af stórum og feitum þorski. Samvinna í lífsbaráttunni. Einangrun héraðsins kenndi mönnum þau sannindi, að samvinna og samhjálp er mikilvæg i lifsbaráttunni, og ef ein- hver varð fyrir skakkaföllum, voru ótal hendur tilbúnar til hjálpar. Ef einhver þurfti t. d. að byggja yfir heimilisfólk sitt eða fénað, komu nágrannarnir og aðstoð- uðu hann með því að leggja fram eitt eða fleiri dagsverk í vinnu. Ekki var ætlazt til að þessi vinna væri greidd, nema þá gagnkvæmt þegar annar þurfti á að halda. Þetta voru nokkurskonar óskráð lög þar um slóðir og eru vist í fullu gildi enn, þó að allar aðstæður og efnaleg af- koma hafi breytzt til hins betra á seinni árum. Hagleiksmenn. I Hornafirði hafa löngum verið hag- leiksmenn, en á því timabili sem hór hefur aðallega verið dvalið við, bera þeir hæst Eyjólfur á Horni, Jón i Þinganesi og Eymundur Jónsson í Dilksnesi. Eymundur hafði numið járnsmíði í Kaupmannahöfn og var snilldarsmiður, ekki einungis á járn og aðra málma, held- ur einnig á tré. Það bar til eitt sinn eftir að vélbáta- útgerð hófst í Hornafirði, að bátur frá Austfjörðum varð fyrir þvi óhappi í byrjun vertíðar, að skrúfuöxullinn, sem var úr kopar, brotnaði. Ekkert vélaverk- stæði var þá á Hornafirði og var því ekki annað sýnna, en að senda þyrfti öx- ulinn til Seyðisfjarðar til viðgerðar, en það mundi taka langan tíma, vegna þess hve samgöngur voru þá slæmar. Það var því allt útlit fyrir, að báturinn mundi að mestu tapa af vertíðinni og eigendur hans verða fyrir stórtjóni. Þá datt ein- hverjum Eymundur i hug, en hann var þá orðinn fjörgamall maður, og einn þeirra þremenninganna, sem enn var of- ar moldu. Gamli maðurinn var nú sóttur til að skoöa öxulinn, sagðist hann ekkert geta við þetta átt, hefði ekki áhöld til slíkrar smíði. Eitthvað mun hann þó hafa gefið í skyn, að hann hefði nú einhvern tíma treyst sér til þess að koma þessu saman, að minnsta kosti fór það svo, að öxull- inn var fluttur heim í smiðju til Ey- mundar og þaðan kom hann heill út aft- ur, var settur á sinn stað í bátinn og dugði vertíðina á enda og kannske leng- ur. Þótti þetta ganga galdri næst, enda má segja að það hafi verið vel af sér vikið þegar litið er á það, að áhöldin til að framkvæma verkið voru ekki annað en smiðjuloginn og nokkur einföldustu handverkfæri. Nokkur metingur eða kapp var á milli þeirra Eymundar og Jóns í Þinganesi um það, hvor þeirra gæti leyst af hendi

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.