Dagur - 21.12.1960, Blaðsíða 10

Dagur - 21.12.1960, Blaðsíða 10
kliðmjúkum röddum kríunnar og höfgur ilmurinn frá steinbrjótunum sem glitra í dimmgrænum mosanum í básvík orkar á óvit mitt eins og íturvaxinn karlmaður í sólbaði á sumarströnd Nú var Pegasus orðinn reiður. Hann fór að ausa, prjóna og verða staður. Svo frísaði hann útúr sér, vonzkulega: „Því yrkirðu svona, kvenmaður." Svo var hann horfinn. Ég veit ekki hvort hann sökk eða varð uppnuminn. Ég hef ekki séð hann síðan. Þarna stóð ég eftir, hálfringluð eftir þetta andans afrek, en áttaði mig samt fljótt og hélt til strandar, því ég átti eftir að kynna mér útgerðina. Hitti ég þá tvær stúlkur, sem voru að snúa töðuflekk, tók ég þær tali og spurði þær ráða. Ráðlögðu þær mér að ganga þar út með klöppunum og niður með sjónum og gerði ég svo. í bakaleið kom ég að litlu húsi. Voru þar net á trönum, til þerris. Ekki leizt mér að þau mundu veiðin í Mývatni. Hafði ég nú kynnzt útgerðinni nokkuð. Þarna hitti ég gott fólk og gestrisið. Bauð það mér inn í kaffi, þáði ég það með þökkum. Sá ég að það var sama fólkið og verið hafði í flugvélinni um morguninn, nema halti karlinn og fé- lagi hans. Sagði ég því frá fornum kynnum af Grímsey, gegnum Aðal- björgu og fólki því, er hún hafði mest talað um þar. Kannaðist það við þessa atburði af afspurn, er þar höfðu skeð og ráðið örlögum hennar og burtför. „Við skulum kalla á afa,“ sagði einhver viðstaddur. Var þá komið með gamlan mann, myndar karl, og skýran í svör- um, er var sýnilega setztur að í skjald- borg sinni eftir unnin afrek. Hafði hann verið drengur, þegar Baldvin dó, og vissi um atvik öll að því slysi og fékk ég þar staðfestingu á mörgu því, er Aðalbjörg hafði sagt mér áður. Sá ég nú enn betur en áður, hver með mér var og hafði hingað vísað. Þarna dvaldi ég nokkra stund í góðum fagnaði og félagsskap, unz tími minn var á þrot- um, og flugvélin á förum. Kvaddi ég þá þetta ágæta fólk og Grímsey og fékk góðan byr til Akureyrar um kvöldið, 10 JÓLABLAÐ DAGS Það er suinarfagurt i Grímsey (Ijósrn. ED). og þóttist hafa gert góða ferð til Gríms- eyjar, þó ég hefði kosið þar dvöl lengri. Nú er það svo, að þegar vér höfum, að sjálfsmati, gert ódauðleg afrek á andlegu sviði, verður þess ekki að fullu notið, nema einhver njóti þess með oss. Hafoi ég nú um stund hljótt um þetta listaverk okkar P.egasusar. Stuttu eftir Grímseyjarförina, fór góður gestur að venja komur sínar í Listigarðinn og urðum við málvinir. Þetta var eldri bóndi úr Grímsey og hafði búið að Básum, er hann taldi feg- ursta útsýn frá af öllum bújörðum á landi hér. Við töluðum oft um skáldkap og fag- urfræði. Þetta var náinn ættingi Matt- híasar. Þar var kominn rétti maðurinn til að lesa fyrir kvæði mitt og líklegur til að meta það og skilja. Einn fagran morgun vorum við á göngu í Lystigarðinum milli bjarka og blóma, í rómantískum, hástemmdum hughrifum, að ég tek að lesa honum kvæði mitt. Ég fann strax, að ég hafði góðan áheyranda, og þegar ég hafði lokið lestrinum, varð djúp þögn. Er maðurinn svona yfir sig hrifinn, hugsaði ég, að hann er mállaus, eða hefur mér nú orðið eitthvað á. Svo kom slagið. Það eru bara engar súlur i Grímsey, sagði minn góði á- heyrandi. Engar súlur í Grímsey, át ég eftir honum vonsvikin, er þá kvæðið mitt ónýtt. Nei, svaraði hann, þær voru þar einu sinni, en svo hrundi úr bjarginu, þar sem þær voru, og þá hurfu þær, kann- ske koma þær einhvern tíma aftur. Hann fann með næmleika karl- mannsins hve mikið mér varð um þetta og vildi segja eitthvað fallegt til að hugga mig. Mér er snma hvar ég hefði heyrt þetta kvæði. Ég hefði þekkt, að það var eftir þig, bætti hann við. Það dró ský frá sólinni. Hann sagði að kvæðið væri eins og eftir mig. Ég var ekki í neinum vafa lengur. Þrátt fyrir þetta leiðinlega atvik með súlurnar, vnr kvæðið gott. 30. nóvember 1960. 4

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.