Dagur - 21.12.1960, Blaðsíða 30

Dagur - 21.12.1960, Blaðsíða 30
Draumurinn og dysin við Stafnsrétt ÞEGAR JÖRÐIN dunar undir þúsund- um harðra hófa stóðsins og fjöll og heið- ar verða lifandi af hvítum fjárbreiðum á leið til réttar, liggur leið margra til Stafnsréttar í Svartárdal í Húnavatns- sýslu. Sú rétt var lengi talin önnur fjár- flesta rétt landsins og auk þess mikil stóðrétt. Þangað kemur fjöldi fólks á hverju hausti, bæði bændur og búalið úr Skaga- fjarðar- og Húnavatnssýslum og aðrir, stundum langt að komnir, til að lifa rétt- argleðina, og taka þátt í hinum sérstæða fagnaði, sem göngum og réttum hefur fylgt frá upphafi. En þegar réttargleðin stendur sem hæst, drukkið er af stút, nýjum vini sögð æ'visagan og kærleiksböndin treyst í titr- andi lofti hneggs og jarms og við hita sterkra veiga, getur hálfgleymd saga skotið upp kollinum og sótt fast á. Gömul sögn. Var það ekki einhvers staðar hér, sem skagfirzkan bónda dreymdi ógnþrunginn draum í göngum, rétt áður en manna- beinin fundust við Stafnsrétt? Nokkur svör við þeirri spurningu fengust með því að neimsækja tvo eldri Skagfirðinga, sem gleggst máttu þennan atburð muna, og grafa upp gamlar heim- ildir. Þær segja eitthvað á þessa leið: Miðvikudaginn 20. september árið 1933 ráku gangnamenn fjársafn í Lækja- hlíð við Fossdal hjá Stafnsrétt og fundu þá höfuðkúpu af manni við fjárgötuna. En fyrr um daginn hafði einn gangna- manna, Vilhjálm Sigurðsson bónda í Syðra-Vallholti dreymt voveiflegan draum. En hann var þá staddur, ásamt fleiri mönnum í fyrirstöðu á þessum slóðum, skammt frá dysinni. Draumurinn. Vilhjálm sótti svefn svo ákaflega, að hann lagðist fyrir og sofnaði þegar. Þá birtist honum maður einn, hraustlegur, hvatlegur og vígalegur ásýndum. Kom- Vilhjálmi í hug, að hann gæti ekkert við- nám veitt, ef maður þessi ætlaði að gera sér mein. Maðurinn kemur til Vilhjálms en gerir ekkert illt af sér. í sama mund og maðurinn staðnæmist hjá Vilhjálmi, kom rýtingur á lofti og rekst í brjóst honum. Vilhjálmur hrökk við þetta upp úr dvalanum og vaknaði. En á hann leið sami höfgi á ný, svo að hann sofnaði aftur. Sami maður birtist honum þegar og sagði hann: „Þessu er leynt“. Breytt- ist þá draumurinn og virtist Vilhjálmi hann sjálfur líða þær kvalir, sem hnífs- stungan olli. Og enn verður sú breyting, að Vilhjálmi þótti sem hann lægi undir þungu fargi og mætti sig hvergi hræra. Síðan vaknaði hann en var þá mjög máttfarinn og leið illa. Skömmu síðar um daginn hitti Vil- hjálmur Sigurð Oskarsson á Krossanesi. Vilhjálmi var þá enn svo brugðið, að Sigurður hafði orð á. En daginn eftir, er gangnamenn gengu um Lækjarhlíðarrana, sjá'þeir eitthvað hvítt og töluðu um hvað vera mundi. Þetta var hauskúpa af manni. Ekki var hreyft við dysinni í það sinn, eh þjóð- minjavöröur kom þarna litlu síðar og rannsakaði hana. Hann áleit, að maður sá, er þarna hvíldi, hefði verið meðal- maður á stærð og ekki meira en hálf- fimmtugur að aldri. I dysinni fannst sproti af ólarenda, gerður úr kopar og grafinn haglega beggja vegna og með vargshaus yzt. Taldi þjóðminjavörður hlut þennan sennilega frá 9 öld. Ryð- trefjar fundust einnig, en ekki heillegir hlutir úr járni. Beinin lágu óreglulega og bentu til þess, að áður hafði verið grafið í dys þessa. GanénamaSur segir frá. Við Björn Guðmundsson fyrrum varð- stjóri í lögregluliði Akureyrar og nú framfærslu- og heilbrigðisfulltrúi, vorum nýlega á ferðalagi vestur í sýslum. Bar sögu þessa í tal. En Björn er ættaður frá Reykjahóli í Skagafirði. Hann kann- aðist þegar við söguna og var einmitt í göngum þetta haust og í sama leitar- flokki og Vilhjálmur draumamaður. Um þessar göngur og atburðinn segir Björn á þessa leið: „Til stafnsréttar reka gangnamenn fé og stóð af Eyvindarstaðaheiði og Stafns- heiði austan Blöndu. Þetta eru fjögurra daga göngur. Gangnamenn í miðflokki, sem ég var í þetta haust, og var skipað- ur 10—20 mönnum, fara fyrsta daginn að Bugavatni og gista í Bugakofa, sem er nokkuð framarlega á afréttinni. Þaðan er farið suður að Bláfelli, sem er suður undir Hofsjökli. Þar er göngum skipt og gengið norður, aftur gist í Bugakofa og fé og hross rekið þangað. Þriðja daginn er gengiö niður Einarsdal og fjórða dag- inn er féð rekið í svonefnda Lækjahlíð, en stóðið réttað í Stafnsrétt. Féð er svo réttað næsta dag, eða á fimmta degi frá því lagt er upp í göngurnar. Athöínin viö Stafnsrétt. Þetta haust var Vilhjálmur Sigurðsson neðstur gangnamanna og gekk eftir Stafnsgili, einnig Haraldur Jónasson frá Völlum, Sigurður Óskarsson í Krossa- nesi, Valdimar Guðmundsson í Vall- holti, sem var gangnaforinginn, og fleiri. Þeir, sem fóru Sauðadalinn og Stafns- fell þurftu lengri leið en þeir, sem neðst- ir gengu og ekki máttu fara á undan. Og 30 JÓLABLAÐ DAGS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.