Dagur - 20.12.1979, Side 8

Dagur - 20.12.1979, Side 8
Prýðum landið Plöntum trjám nytjaskógræktar, þykir þeim ekki minna um vert þann þáttinn í skógræktar- og trjáræktarmálum, sem ekki verður metinn beint til verðs. Trjárækt við bæi í sveitum og hús í þéttbýli hefur ótvírætt gildi. Þar hefur víða náðst svo ótvíræður árangur, að erfitt væri að hugsa sér marga bæi, t.d. Ak- ureyri, án trjágarðanna. Enginn einn þáttur er mikilvægari til að fegra umhverfi manna en að rækta þar tré og runna, sem veita ekki aðeins mönnum og öðrum gróðri heldur einnig og húsunum sjálfum skjól, sem ekki ber að vanmeta. Á þessu sviði hafa einstakling- ar staðið betur að verki en félög og opinberir aðilar. Það er nötur- legt að sjá nýjar og vel gerðar byggingar rísa naktar og skjól- lausar upp úr umhverfi sínu, þar sem augljóslega mætti rækta í kringum þær trjágróður. Því miður virðist áhugi fyrir því að fegra þannig í kringum almenn- ingsbyggingar sumsstaðar hafa dofnað. Eða að menn þrýtur dugnað og framkvæmdamátt þegar sjálfri byggingunni erlokið. Á ári trésins ættu félög og op- inberir aðilar, sem að slíkum byggingum standa að hefjast handa á skipulagsbundinn hátt. Ef ekki er búið að skipuleggja það hvernig umhverfi bygginganna á að verða þarf að hafa samband við kunnáttumenn á því sviði, og fá svo ráðleggingar, trjáræktar- fróðra manna um val á trjáteg- undum og tilhögun alla. Allt það sama mætti segja um fjölmargar aðrar byggingar, verksmiðjur, verkstæði og iðjuver hverskonar. Við viljum hafa vinnustaðina og umhverfi þeirra svo hreinlegt og heilsusamlegt sem tök eru á, en hvers vegna ekki að planta trjám á lóð frystihússins eða verkstæðisins eins og í kring- um heimilin? Lerki i Fljótsdal. Hér vex ierki með ágætum úr skóglausu og mögru landi. Úfivistarsvæði og skógrækt Hvarvetna um landið verður nú vart áhuga á að koma upp aðlað- andi útivistarsvæðum fyrir fólk, sem leitar út frá þéttbýlinu. Flest stærri bæjarfélög munu vera með slíkar hugmyndir eða komnar með þetta á framkvæmdastig. Á öllum slíkum stöðum þykir skógrækt sjálfsagður þáttur. Skógræktarmenn hafa líka geng- ið þarna á undan. Nægir þar að benda á Heiðmörk við Reykjavík, sem friðuð var eftir langa baráttu Skógræktarfélags íslands og síðar Skógræktarfélags Reykjavíkur, og svo Kjamaskóg við Akureyri, þar sem ræktað hefur verið upp af skóglausu landi hið ákjósanleg- asta útidvalarsvæði. Skógræktarfólk á Islandi hefur fyrst og fremst orðið að sigrast á vantrú og hugardeyfð til að vinna hugðarefni sínu fylgis. Skógrækt- arfélag Islands sem er samband þrjátíu héraðsskógræktarfélaga víðsvegar um landið hefur alla tíð verið í forystu í þessari baráttu til að glæða trú og efla áhugann á því að bæta landið með hvers- konar skógrækt. Ætíð hefur verið hin besta samvinna á milli Skóg- ræktar ríkisins og Skógræktarfé- lags íslands, enda hafa starfs- menn skógræktarinnar víða borið uppi störf skógræktarfélaganna. Með ári trésins vilja þessir aðilar og margir aðrir, sem hafa gengið til liðs við þá, hvetja alla til meiri ræktunarstarfa, meiri trjáræktar og skógræktar. Það er von þess- arra aðila, að sem allra flestir gerist nú virkir skógræktarmenn og taki þátt í að prýða landið með því að planta trjám. Ung stúlka við vinnu í Kjarna. Og enn erum viö í Kjaraa. SKIPADEILD S.I.S. ANNAST VÖRUFLUTNINGA FRÁ ÍSLANDI. VÖRUFLUTNINGA TIL (SLANDS. LEITIÐ UPPLÝSINGA UM FERÐIR. Óskum öllum landsmönnum gleðilegra jóla og farsœls nýs árs SKIPADEILD S.Í.S. — Gleðileg jól Farsœlt nýtt ár Þökkum ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða Einhverju sinni, þegar ég heimsótti Jóhann gamla Pétur og kerlu hans, barst tal okkarað hjónaböndum. Þá trúði Jóhann Pétur mér fyrir þessu, þó svo, að kona hans heyrði: — Fyrst eftir, að ég gifti mig, var ég logandi hræddur um, að hjóna- bandið ætlaði að verða barnlaust, enda voru liðnar nærri þrjár vikur frá brúðkaupinu, þangað til fyrsti strákurinn fæddist. Ingimar Eydal: JÓLABOÐSKAPU Nú er desember og peningakass- arnir hringja jólin inn. Þessa setningu gaf að líta i jósku dag- blaði fyrir nokkrum árum. Setn- ingin varð fleyg og barst vítt og breitt, mönnum fannst blaða- maðurinn hafa hitt naglann á höfuðið. Jól neyslusamfélagsins eru í æ ríkara mæli að verða matar- og magajól, svo og gjafa- jól. Við höfum fjarlægst fæðing- arhátíð frelsara okkar um leið og jólahald var gert að flókinni og íburðarmikilli hátíð, þar sem ekkert má skorta. Það er æfaforn venja að líta á samneyslu matar og drykkjar sem menningarlega athöfn. Við þekkjum það úr sögu trúarbragða, að slík samneysla hafi táknræna merkingu. En veisluhaldið má aldrei verða tak- mark i sjálfu sér. Sá siður að gefa gjafir á jólum hefur mér alltaf fundist táknrænn og fallegur. Hann er framar öllu öðru tákn um þá góðvild sem ríkja á í mannlegum samskiptum, ekki bara á jólum, heldur allt árið um kring. En það sama gildir um þá venju og aðrar, að gildi hennar mé ekki gleymast, ekki týnast og drukkna í óhófi og samkeppni þar sem jólagjafirnar þjóna því hlutverki að vera nokkurs konar stöðutákn. Hverfun nú í huganum að ein- faldara jólahaldi fyrri tíma. 1 kvæðinu „Jól“ eftir örn Arnarson er þetta erindi: Nú rennur.jólastjarna og stafað geislum lætur, á strák í nýjum buxum og telpu í nýjum kjól. 8.DAGUR

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.