Dagur - 20.12.1979, Side 14

Dagur - 20.12.1979, Side 14
HEIÐDIS NORÐFJÖRÐ: BARNA- GAMAN — Attu við okkur? — spurðu litlu kertin, alveg und- randi. — Hvað getum við gert til gagns? Við, sem erum svo lítil. — Hlustið þið nú á, — Sagði altariskertið, — Eitthvert kvöldið verður reist tré, fallegasta tré, sem hægt er að hugsa sér. Það verður alskreytt fánum, sveigum, hjörtum, kramar- húsum og stjörnum. Börnin taka hvert í höndina á öðru og dansa kringum það og syngja um grænar greinar þess, þar sem ljósin tindra eins og Gesturinn: Hvað er þetta í súpunni? Þjónninn: Ég veit það ekki. Ég er enginn skor- dýrafræðingur. ★ ★ ★ V JÓLAKERTIN Ævintýri fyrir börn Greniugla Ævintýrið gerðist í kertabúð, endur fyrir löngu. Búðar- glugginn var fagurlega skreyttur. Hann var alveg fullur af kertum. Kertin voru af öllum mögulegum gerðum og litum. Þar voru há og mjó kerti, hvít kerti til að setja í stjaka, stutt og digur kerti og svo voru líka kerti, sem voru afskaplega skrítin í laginu. Sum voru eins og hjörtu, önnur eins og jólasveinar, og einnig voru þar kerti, sem voru eins og jólatré. í búðar- glugganum voru líka pappa- kassar með smákertum, sem lágu hvert við annars hlið. Fyrir utan gluggann, stóð fólk og skoðaði kertin. Sumir fóru meira að segja inn í búðina og keyptu kerti. En þeir fengu ekki kertin, sem voru í glugg- anum, þvi að þau voru bara til skrauts og sýnis. Dagurinn leið að kvöldi og búðinni var lokað. Svo kom- nóttin, og þá fóru kertin að tala saman. — Við erum fallegustu kertin í allri búðinni. — sögðu nokkur hárauð kerti, sem stóðu saman í hnapp. — Þegar veislur eru haldn- ar, erum við látin standa á borðinu. Okkur hefur verið sagt, að í fínum veislum séum við eingöngu notuð, en ekki rafmagnsljósin. — — Nú þykir mér týra, — sagði eitt af hvítu, sléttu kert- unum. — Ef fólk á kertastjaka úr silfri, notar það okkur, því að við erum fyrirmannlegust. — — Svei því öllu, — sagði eitt kertið hlægjandi, en það var alveg eins og jólasveinn í laginu. — Þegar fólk ætlar að skemmta sér reglulega vel, notar það okkur. Okkar ætt er gríðarlega stór, og í henni eru til kerti fyrir hvaða veislu, sem vera skal. 1 vor var notað heil- t mikið af okkur, það er að segja þeim, sem eru eins og egg í laginu, það var nefnilega á páskunum. — bætti jóla- sveinakertið við og það gætti hreykni í röddinni. — Það kærir sig sjáifsagt enginn um okkur, — hvíslaði lítið hvítt kerti, sem lá í kassa við hlið sjö annarra lítilla kerta. ‘'hM'- stjömur himinsins, og það er- uð þið, sem þau syngja um. — — Er það mögulegt, að börnin syngji um okkur? hvisluðu litlu kertin undrandi og feimin. — Já, það gera þau sann- arlega, — svaraði stóra altar- iskertið, — Og þið sitjið á greinum fallega trésins og ljómið miklu skærar en nokkur önnur ljós, þegar þið endurspeglist í glöðum augum barnanna. Vitið þið hvers vegna? Það er vegna þess, að þið eruð jóla- kerti. — Og öll hin kertin í búðar- glugganum, óskuðu þess að þau gætu verið í sporum litlu hvítu og rauðu jólakertanna. Tekið úr Jólablaði barnanna 1948 Notið greniköngul í ugl- una. Teiknibólur fyrir augu og pappír, brúnan eða hvítan, sem verða eyrun. Furumús Notið furuköngul í þessa litlu mús. Stein fyrir höfuð og í eyrun notið þið brot úr greniköngli og límið á steininn. Wf?'.---' Óvanur ræðumaður átti að tala í veizlu og tók þannig til máls: — He-he-heiðruðu ges-gestir, þegar ég kom hingað í kvöld, vissu aðeins guð og ég, hvað ég ætlaði að segja hér — og nú veit það enginn nema guð einn! Um nóttina fóru kertin aó taka saman. — Við erum svo lítil og leiðinleg. — — Já, og þess vegna eigið þið að þegja. — sagði gult og digurt kerti. — Mín ætt er miklu virðu- legri. Við erum stutt og digur, en það getur logað ákaflega lengi á okkur. Þegar veislur eru haldnar, kveikir fólk á okkur, og svo getur það kveikt í sígarettunum sínum við ljós- ið á okkur, því að viðendumst alla nóttina. Við erum sko kerti sem talandi er um, við erum bæði til skrauts og gagns. — , — Bara að við gætum sagt hið sama, — sögðu litlu hvítu kertin átta, og andvörpuðu og rauðu systkinin þeirra, sem lágu í öðrum kassa, hugsuðú á sömu leið. — Ég skil ekkert í því, hvers vegna fólk býr okkur til, — sagði eitt þeirra, — okkur, sem erum svo lítilfjörleg. — — Eigum við ekki að velja kóng og drottningu úr okkar hópi? spurði eitt af hárauðu stóru kertunum. — ÉG er viss um, að ég væri góður kóngur, því að ég er rautt eins og kápan kóngs- ins, og svo myndi ég velja mér hvíta stóra kertið fyrir drottn- ingu. — En hin kertin voru ekki á sama máli. Þau fóru að tala öll í einu, svo að af því varð mikill há- vaði og ókyrrð. — Viðjið þið bara þegja. — heyrðist allt í einu sagt með djúpri röddu uppi yfir þeim, og þeim brá svo við, að þau steinþögnuðu. Þau höfðu öll gieymt einu kertinu, en það vat það, sem nú lét að sér kveða. Inn&t í glugganum stóð gríðarstórt hátt og digurt, hvítt kerti. Það var altariskerti, sem átti að standa í kirkju og loga þar tímunum saman. — Ég hef hlustað á allt, sem þið hafið sagt, og þið eruð mestu heimskingjar og hroka- gikkir, flest ykkar, — sagði altariskertið. — Ekkert ykkar er öðru betra. Ykkur er ætlað sitt starfið hverju, og skemmtileg- asta starfið, það starf sem mesta gleði vekur, er ykkur ætlað, litlu hvítu og rauðu kerti þarna í kössunum. — Um jólin er töluvert um það, að vinafjölskyldur bjóði hver annarri heim. Hér eru nokkrir leikir, sem bæði böm og fuliorðnir gætu haft gaman af að fást við í slíkum heimboðum. Hlátur og grátur Þátttakendur setjast í hring. Einn þeirra kastar peningi upp í loftið um leið og hann segir: — Tala eða merki. — Allir fylgjast með, hvort kem- ur upp. Éf talan kemur upp, eiga allir að taka til og hlæja, en ef merkið kemur upp, eiga allir að gráta. Sá, sem hlær þegar á að gráta, eða öfugt, verður annaðhvort að vera úr, eða afhenda pant. Frá því peningurinn er tekinn upp af gólfinu og þar til hann lendir þar aftur, verða allir að vera hljóðir og enginn má láta nein svipbrigði sjást. Taka ofan Þátttakendur standa í hring, með hendur fyrir aftan bak. Einn hefur hatt á höfði. Annar situr við hljóðfæri og leikur eitthvert lag, en verður helst að snúa baki við þátttakend- um. Þegar hljóðfæraleikarinn byrjar að leika, ganga allir þátttakendurnir í hring, og sá, sem hefur hattinn setur hann á höfuðið á þeim, sem er fyrir framan hann. Þannig gengur það koll af kolli. Enginn má flytja hendurnar af bakjnu fyrr en hatturinn er kominn á höfuðið. Sá, sem hefur hattinn á höfðinu þegar tónlistin hættir, er úr leik. Að lokum eru aðeins tveir eftir. Þeir standa hver á móti öðrum og annar hefur hattinn á höfðinu. Þegar tónlistin byrjar, gengur hatturinn á milli og þegar tónlistin hættir hefur sá unnið, sem hattlaus er. Tekið úr Ljósberanum jóla- blaði 1960. 14.DAGUR

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.