Dagur - 10.07.1987, Síða 14
14 - DAGUR - 10. júlí 1987
Helgar-
upplyfting
Matur /<^ý'si-siír: Myndlist
Vín X*l-rkV£'/ Tónlist
Opið föstudag 14.00-23.30.
Opið laugardag 14.00-23.30.
Opið sunnudag 14.00-18.00.
Matseðill laugardagskvöld:
Forréttir:
Hrátt Piparhangikjöt m/melónu.
Karryristaður humar f rjómasósu.
Villiuxahalasúpa.
Fiskréttir:
Rækjufylltur marhnútur „Gratin".
Ristaður hlýri í cantarellusósu.
Pönnusteikt karlloðna
að hætti hússins.
Rjómasoðinn skötuselur
m/perlulauk og vínberjum.
Kjötréttir:
Gráðostfyllt nauta T-beinsteik.
Flamberaðar lambalundir.
Sveskjufylltar grlsakótilettur.
Eftirréttir:
Laxdalsís m/húsfriðunarsósu.
Gráfíkjuæði m/rjóma.
Mateiðslumeistari:
Hermann Huijbens.
Hinn passlegi Jazz sem vera átti
í Laxdalsgarði sfðasta laugardag
(féll niður vegna veðurs)
verður nú á laugardaginn
(ef veður leyfir)
frá kl. 17.30-19.30.
Matargestir sitja fyrir borðum
og þjónustu
meðan á tónleikunum stendur.
Upplýsingar og borðapantanir
í símum 22644 og 26680.
Verið velkomin
i Laxdalshús.
Hagkvæmara að hel I u-
leggja en steypa
- ef um er að ræða t.d. bílaplön
Nú er sá tími árs sem fólk not-
ar til að vinna í görðum sínum
og bílaplönum. Gjarnan útbýr
fólk stéttir og sólpalla og hefur
um þrjá kosti að velja í þeim
efnum. Þeir eru að malbika,
stcypa eða helluleggja. Nú kýs
fólk helst að heliuleggja og
blaðið leitaði upplýsinga um
hvað á boðstólum er hjá þeim
fyrirtækjum sem framleiða
hellur hér á Akureyri.
Hjá Hellusteypunni eru fram-
leiddar 6 gerðir af hellum og auk
þess kantsteinar. Að sögn
Tryggva Gunnarssonar eiganda
fyrirtækisins er algengast að fólk
kaupi I-stein og Uni-stein til
lagningar á bílaplön og gangstétt-
ir. Þessar hellur eru af minni
gerðinni og því þola þær meiri
þunga en stærri hellurnar. Fer-
metrinn af þessum hellum kostar
750 kr. Einnig er algengt að fólk
noti sexkanthellur sem kosta
787,50 kr. fermetrinn. Hinar
klassísku gangstéttarhellur í
20x20
Krosssteinn
stærðunum 40x40 og 20x40 cm.
fást einnig og kosta 780 kr. fer-
metrinn. Tryggvi sagði að einnig
væri hægt að fá hellurnar litaðar
og væru þær um 20% dýrari en ef
fólk hefði áhuga á að kaupa hvít-
ar hellur væru þær um 70-80%
dýrari sem lægi í því að til fram-
leiðslu þeirra þyrfti hvítt sement
sem flutt væri frá Danmörku og
því bættist við mikill kostnaður
vegna þess.
Hjá Möl og sandi hófst í vor
framleiðsla á gangstéttarhellum.
10x10
Stubbur
20x20
Hella
10x20
Kubbur
Fyrirtækið keypti vél til þessarar
framleiðslu en vegna ýmissa
óviðráðanlegra orsaka dróst að
framleiðslan gæti hafist en nú er
allt komið á fullt. Hellurnar hjá
Möl og sandi fást í 5 gerðum.
Einnig eru þær fáanlegar í mis-
munandi þykktum. Sama verð er
á þremur þessara tegunda þ.e.
krosssteini, kubb, hellu og lauf-
steini, kosta 750 kr. fermetrinn
þ.e.a.s. ef um er að ræða heilar
hellur. Að sögn Sigmundar
Ófeigssonar hjá'Möl og sandi er
einnig hægt að fá hálfar hellur til
að leggja utan með og jafna
brúnir og eru þær dýrari. Því fer
það eftir því hve stórir fletir eru
sem fólk leggur hvert fermetra-
verðið er endanlega. Einnig
framleiðir fyrirtækið litla stubba,
sem þeir kalla svo, og kosta þeir
950 kr. fermetrinn. Þessa stubba
getur fólk notað með öðrum
gerðum til að gera mismunandi
munstur en hægt er að raða þess-
um gerðum saman á mismunandi
vegu.
20x20
Laufsteinn
I-steinn
UNI-steinn
Kantsteinn
50x20x10
Til samanburðar má geta þess
að rúmmetri af steypu kostar
6170 kr. og hann þekur um 5 fer-
metra ef um er að ræða venjulegt
bílaplan. Þannig getur verð á
hvern fermetra orðið rúmlega
1200 kr. og því er hellulögnin
hagkvæmari. Undirbygging fyrir
bæði hellulögn og steypu er svip-
uð og kostnaður því álíka mikill.
JÓH
Heimsókn í reiðskóla hestamannafélagsins Léttis og Æskulýðsráðs:
„Hvað ungur nemur, gamall temur"
Mörg börn fá snemma áhuga á
hestum en erfítt er fyrir þau
sem búa í kaupstöðunum að
svala þessum áhuga sínum.
Margir kaupstaðarbúar eiga þó
hesta og má glöggt sjá merki
þess hér á Akureyri hve áhug-
inn er mikill þar sem stórt og
myndarlegt hesthúsahverfí er
fyrir ofan bæinn. En þeir sem
ekki hafa aðgang að hestum
hafa möguleika á að senda
börn sín í reiðskóla þar sem
þau fá fræðslu um hestinn og
því sem hestamennskunni
tengist. Hér í bæ er starfandi
reiðskóli sem hestamanna-
félagið Léttir sér um í sam-
starfí við Æskulýðsráð Akur-
eyrar
Þessi reiðskóli hefur verið
starfandi í hartnær 25 ár. Skólinn
hefur verið fram að þessu á flakki
hvað varðar aðstöðu. Hann hefur
verið í Litla Garði, á Eyjafjarð-
arbökkum við hesthús hesta-
manna ofan við bæinn og nú síð-
ast var hann við Jaðar. Nú í vor
var skólinn fluttur að Hamra-
borgum við Kjarnaskóg og hafa
starfsmenn æskulýðsráðs og
bæjarins unnið við að koma
aðstöðunni upp. Æskulýðsráð og
Akureyrarbær standa að kostn-
aði við uppbygginguna. Fluttur
var skúr ofan úr Hlíðarfjalli að
Hamraborgum og í honum hefur
verið útbúin aðstaða fyrir
kennara, snyrting og geymsla fyr-
ir hnakka og áhöld sem tengjast
skólanum. Sett var upp gerði fyr-
ir hestana og byrjað að leggja
stíga í nágrenni skólans.
Það var síðan um miðjan júní
sem fyrstu námskeiðin byrjuðu.
Aðsókn að skólanum er mjög
asta og besta barnahesta. „Þetta
verða samt að vera þýðgengir og
góðir hestar, það þýðir ekkert að
vera með einhverja jálka fyrir
börnin," sagði Jón Matthíasson.
Hermann Sigtryggson, æsku-
lýðsfulltrúi Akureyrarbæjar hef-
ur mikið starfað að þessari upp-
byggingu. Hann sagði að síðasta
tímabil námskeiðanna hefjist í
næstu viku og enn væru nokkur
pláss laus. Aðsóknin að skólan-
um hefur verið mjög góð í sumar
og útlit er fyrir að um 110 börn
alls komi í reiðskólann. Her-
mann sagði að ef peningar fengj-
ust væri áhugi fyrir að gera fleiri
reiðstíga í kringum skólann og
jafnvel í framtíðinni gætu börnin
fengið að kynnast fleiri þáttum
sem tengjast sveitinni og sveita-
störfunum. JÓH
Jón Matthíasson leiðbeinir nemanda sínum við að leggja á.
mikil og fullbókað hefur verið á
námskeiðin hingað til. Börnin
eru á aldrinum 8-12 ára en eldri
börn hafa komið á námskeiðin
jafnvel allt upp í 16 ára. Jón
MatthíasSon, sem er kennari á
námskeiðunum, sagði í samtali
við blaðamann að kennt væri í
þremur hópum eftir aldri barn-
anna. Þau yngstu fá leiðbeiningar
um umgengni við hestinn, læra
að kemba og leggja á og síðan er
farið með þau í styttri útreiðar-
túra. Jón sagði að þau eldri
fengju að fara í lengri útreiðar-
túra og auk þess fengju þau
fræðslu um ganga hestsins. Hvert
námskeið stendur í 10 daga og fá
börnin tvo tíma í kennslu á dag.
Hestarnir eru leigðir frá hesta-
mönnum í hestamannafélaginu
Létti og reynt er að fá sem róleg-
Þinn er miklu feitari en minn
Þaö skein áhuginn úr augum
yngstu barnanna þegar viö
heimsóttum reiðskólann.
Börnin tóku hestana, kembdu
þá og lögöu á. Flest voru þó
svo lág í loftinu að þau áttu í
erfíðleikum með að ná upp á
bak hestanna til að kemba og
því heyrðust þau gjarnan kalla
á kennarann til hjálpar.
Ög hverjum þykir sinn fugl
fagúr segir í máltækinu. Þetta
kom upp í huga blaðamanns þeg-
ar börnin fóru að metast á um
hesta sína. „Þinn er miklu feitari
en minn,“ sagði einn guttirin. Og
viðmælandi hans var fljótur til
svars. „Já, en þinn er með bólur,
ekki minn,“ svaraði hann að
bragði og þóttist drjúgur.
Þegar Jón kennari spennti
hnakkinn á hestana stóðu börnin
hjá og fylgdust með. Áttu sum í
erfiðleikum með að komast á bak
en það tókst þó að lokum. Síðan
var að hafa rétta lengd í ístaðs-
ólunum og mörg gátu stillt hana án
hjálpar. Þegar börnin voru öll
komin á bak lét kennarinn þau
fara nokkra hringi í gerðinu til
þess að sjá hvort ekki væri rétt
lengd í ólunum og börnin sætu
rétt. Þegar þessu var lokið héldu
börnin í halarófu í útreiðartúr-
inn.
íris, yngsta stelpan í hópnum
sagði að hún hefði komið áður á
svona námskeið og þetta væri
mjög gaman. „Þessi hestur heitir
Nótt og hún er góð. Ég fór fyrst á
hestbak hjá vinkonu minni í
Danmörku. Það var stór hestur,
stærri en Nótt. Já, ég ætla að fara
aftur á námskeið,“ sagð íris og
var þar með rokin með hópnum í
útreiðartúrinn. JÓH