Dagur - 15.06.1988, Page 2
2 - DAGUR - 15. júní 1988
Reglur um merkingu neytendaumbúða:
Hvað er ávaxtadiykkur?
Sigrún Þorstcinsdóttir á fundi með starfsfólki Mjóikursamlags KEA. „Nú
eru háværar raddir sem spyrja hvernig standi á þessari fjölmiðlaþögn.“
Mynd: TLV
Forsetakosningar:
„Ég veit að þessi þjóð
getur bmgðist hratt við“
- segir Sigrún Þorsteinsdóttir
Sigrún Þorsteinsdóttir forseta-
frambjóðandi var á ferð um
Norðurland nýverið og hélt
m.a. fund í Mjólkursamlagi
KEA á Akureyri og heilsaði
upp á fólk í Slippstöðinni og
Útgerðarfélagi Akureyringa.
Aðspurð kvaðst hún ánægð
með viðtökurnar og sagði að
fólk væri farið að átta sig á því
að hér væri um nýstárlegt
framboð að ræða, en hins veg-
ar var hún ósátt við áhugaleysi
fjölmiðla.
„Nú eru háværar raddir sem
spyrja hvernig standi á þessari
fjölmiðlaþögn og þá er fólk sér-
staklega að tala um sjónvarp.
Fólk veit ekki nógu mikið um
þetta framboð og við höfum
heyrt að margir eru óánægðir
með það að Vigdís skuli ekki
vilja mæta mér í sjónvarpsvið-
ræðum. Hún fékk sjálf slíkt tæki-
færi fyrir átta árum," sagði
Sigrún.
Hún ítrekaði það að þetta væri
ekki framboð gegn Vigdísi Finn-
bogadóttur heldur gegn kerfinu,
en fyrst og fremst væri þetta
framboð með auknu lýðræði.
Hún vitnaði í stjórnarskrána máli
sínu til stuðnings þar sem segir
m.a. að ef forseti samþykkir ekki
lagafrumvarp frá Alþingi þá skuli
það borið undir þjóðaratkvæði.
Hún sagði aö aukiö vald forseta
þýddi aukið vald fólksins og þar
með virkara lýðræði.
Aðspurð um þær raddir sem
telja framboð hennar sóun á fjár-
munum sagði Sigrún að hún gæ.ti
ekki sett samasemmerki milli lýð-
ræðis og peninga. Lýðræði væri
frekar nátengdara mannslífum en
peningum og sem dæmi nefndi
hún að þegar fólk væri í sjávar-
háska þá væri ekki byrjað á því
aö spá í kostnaðinn og reikna út
hvort björgun myndi borga sig.
Hún sagði að kosningar tilheyrðu
lýðræðinu.
„Ég vil biðja fólk að athuga
það, að hvert atkvæði sem þetta
framboð fær er eins og skilaboð
til ráðamanna um það að fólk
vilji ekki láta ráðskast með sig,
að það vilji fá að taka meiri þátt í
að móta það þjóðfélag sem við
komum til með að hafa hér í
framtíðinni, að það uni því ekki
að eitt sé sagt fyrir kosningar og
annað gert á eftir. Ég veit að
þessi þjóð getur brugðist hratt
við og ég vil hvetja þá sem hafa
áhuga á framboði mínu að draga
ekki af sér, heldur fara á milli og
tala um þetta, ekki að láta þegja
framboðið í hel,“ sagði Sigrún að
lokum. SS
„Ekki er heimilt að nefna
vöruna „ávaxtadrykkur/berja-
drykkur“ (s.s. appelsínudrykk-
ir) eða „ávaxtaþykkni/berja-
þykkni“, nema hlutfall af
hreinum safa í tilbúnum drykk
sé 10% eða meira.“ Þetta
kemur fram í drögum að nýrri
reglugerð um merkingu neyt-
endaumbúða fyrir matvæli ug
aðrar neysluvörur, í þessu til-
felli drykkjarvörur.
Þar segir ennfremur að ekki sé
heimilt að myndskreyta umbúðir
með ávöxtum eða berjum nema
hlutfall af hreinum safa í tilbún-
um drykk sé 10% eða meira og
við auglýsingar á drykkjum sem
innihalda aldinsafa skal þess gætt
að neytendur fái ekki rangar hug-
myndir um samsetningu vörunn-
ar.
í fylgiskjali með þessum drög-
um er þó kveðið á um að heimilt
sé að nota eftirfarandi heiti fyrir
gosdrykki: Appelsín/Appelsín
límonaði og Grape/Grape fruit.
Önnur sérákvæði fyrir drykkj-
arvörur eru m.a. þau að heimilt
er að merkja og auglýsa kaffi sem
„kaffeinfrítt" eða „kaffeinlaust"
ef varan inniheldur innan við 100
mg kaffein í 100 g. Þá er heimilt
að merkja gosdrykki sérstaklega
og auglýsa þá með tilliti til þess
Stjórnkerfisbreytingar hjá
Akureyrarbæ eru smátt og
smátt að taka á sig mynd og á
síðasta fundi bæjarstjórnar
voru samþykktar nýjar starfs-
lýsingar fyrir bæjarritara,
bæjarverkfræðing og félags-
málastjóra. Aðrar starfslýsing-
ar bíða samþykktar bæjar-
stjórnar.
Þá voru á síðasta bæjarstjórnar-
fundi samþykktar breytingar á
starfsháttum bæjarráðs þannig að
nú eiga viss mál að fara í gegnum
ráðið á leið til bæjarstjórnar í
að þeir innihaldi ekki kaffein.
Ákvæði þetta á þó einungis við
um þær tegundur gosdrykkja sem
venjulega innihalda kaffein. SS
stað þess að bæjarstjórn vísi þeim
til bæjarráðs eins og gjarnan
tíðkast.
Húsnæðismál bæjarins eru hins
vegar í biðstöðu en að sögn Sig-
fúsar Jónssonar bæjarstjóra
liggja fyrir tillögur frá embættis-
mönnum þar að lútandi og hann
sagðist jafnvel vonast til að málið
yrði afgreitt á næsta bæjarstjórn-
arfundi. „Húsnæðismálin eru
flókin og það tekur langan tfma
að koma þessum breytingum í
kring," sagði Sigfús, en þar er
m.a. um að ræða tilflutning á
stofnunum bæjarins. SS
Kvöldkyrrð í Skagafirði. Mynd: bjb
Akureyrarbær:
Breytingar á starfs-
háttum bæjarráðs
Atvinnumálanefnd Sauðárkróks:
Átaksverkefni í atvinnu-
og byggðaþróun kannað
Atvinnumálanefnd Sauðár-
króks og bæjarstjórn eru
þessa dagana að kynna sér
átaksverkefni um byggða-
þróun á Austurlandi, með
það í huga að kanna hvort
hægt sé að koma slíku á á
Sauðárkróki. Atvinnumála-
nefnd hefur notið til þess for-
ystu og fulltingis Unnar
Kristjánsdóttur iðnráðgjafa á
Norðurlandi vestra. Ataks-
verkefnið á Austurlandi sem
verið er að kynna sér er i
gangi á Seyðisfirði og Egils-
stöðum. Byggðastofnun styrk-
ir það verkefni.
Átaksverkefnið byggist fyrst
og fremst á því að virkja áhuga
og frumkvæði heimamanna,
þeir brjóti málin til mergjar og
komi á framfæri sínum hug-
myndum um atvinnumöguleika
á hverjum stað fyrir sig.
„Það hefur verið nokkuð jöfn
fólksfjölgun á Sauðárkróki síð-
ustu tvo áratugi og hún hefur
byggst á ákveðinni atvinnuþró-
un. Þegar nánar er að gáð kem-
ur í ljós að bæjarstjórn Sauðár-
króks hefur haft afgerandi for-
ystu á hverjum tíma og varið
miklum fjármunum til þessarar
upþbyggingar. Má þar t.d.
nefna Utgerðarfélag Skagfirð-
inga, stofnun Fjölbrautaskólans
og nú síðast Steinullarverk-
smiðjuna. En það er nokkuð
víst að ekki verður gengið frek-
ar í bæjarkassann, í bili
a.m.k.,“ sagði Jón Karlsson for-
maður atvinnumálanefndar.
Þá benti Jón á að ef vilji
manna er til áframhaldandi
þróunar þá verði að finna nýjar
leiðir. „Við þurfum bara að
spyrja okkur: Hvernig viljum
við hafa samfélagið hér eftir 10-
20 ár? Viljum við reyna að
stuðla að frekari fólksfjölgun,
meiri atvinnu, áframhaldandi
atvinnuþróun?“ sagði Jón.
„Með því að kynna okkur
þetta átaksverkefni Austfirð-
inga þá erum við að stíga okkar
fyrstu skref með að kanna nýjar
leiðir. Við höfum átt viðræður
við Austfirðinga, en enn hefur
ekkert verið ákveðið í þessum
málum og ég á ekki von á að
það verði fyrr en í haust,“ sagði
Jón að lokum. -bjb
Bílvelta á Reykjaströnd:
Beltin
björguðu
Síðdegis á laugardag valt bíll á
Reykjaströnd í Skagafirði,
nálægt bænum Fagranesi. I
bðnum voru ökumaður og einn
farþegi og sluppu þeir með lítil
meiðsl. Bfllinn er gjörónýtur
og að sögn lögreglunnar mesta
mildi að ekki fór verr, en það
voru beltin sem björguðu að
þessu sinni.
Að sögn lögreglunnar á Sauð-
árkróki var talsverð ölvun á föstu-
dagskvöldið, en tveir dansleikir
voru þá í sýslunni, í Ketilási og
Miðgarði. Eitthvað var um ölv-
unarakstur og of hraðan akstur.
Þá þurfti lögreglan að hafa
afskipti af einum ballgesti í Mið-
garði sem brá sér til sunds að
loknum dansleik í Húseyjarkvísl,
fyrir neðan Varmahlíð. Lögregl-
unni tókst að ná honum upp úr
ánni áður en sundið varð kappan-
um ofviða. -bjb