Dagur - 15.06.1988, Blaðsíða 13
Sækist eftir ætinjóla á hverju sumri:
„Eins og hvert annað
hollt grænmeti“
- segir Mývetningurinn Illugi Jónsson
Hvannarótarbrennivín hafa
margir heyrt nefnt en að æti-
hvönn eða ætinjóli væri herra-
mannsmatur grunar að líkind-
um færri. Þessi jurt vex víða og
er hana helst að finna á þeim
stöðum þar sem skepnum er
haldið frá. í Mývatnssveit er
þennan njóla víða að finna og
einmitt um þetta leyti sumars
eru Mývetningar sem aldir eru
upp við að borða þessa jurt,
farnir á stúfana að leita æti-
njólans.
Illugi Jónsson á Bjargi í
Mývatnssveit heimsótti ritstjórn
Dags á dögunum og hafði með-
ferðis tvo ætinjóla. Illugi vandist
sem barn við að borða ætinjólann
en segist gjarnan reka sig á að
fólk viti ekki að hægt sé að borða
þessa jurt.
„Njólinn vex víða við ár hér á
Norðurlandi þannig að fólk ætti
að geta fundið hann a.m.k. þar
sem skepnur hafa ekki étið hann
upp,“ segir Illugi.
Illugi segir að það sé njóla-
stöngullinn sem sé ætur en þegar
búið er að skera njólann þá er
stöngullinn flysjaður rétt eins og
banani. Blöð ætinjólans má líka
nota í súpur og sósur til að gefa
bragð.
„Þetta er bara eins og hvert
annað hollt grænmeti. Börn eru
vitlaus í njólann ef þau hafa ung
vanist á að borða hann en margir
fullorðnir veigra sér við að borða
hann,“ segir Illugi.
Sauðfé sækir mikið í land þar
sem njólinn vex og þar sem mikið
er af njólanum hefur ekki verið
þyngdarmunur á dilkum sem
ganga undir á allt sumarið eða
undanvillingum. Telja menn eng-
an vafa á að þarna eigi þessi góm-
sæta og holla jurt sinn þátt. JÓH
Illugi Jónsson með ætinjólann.
15. júní 1988- DAGUR-13
/------------------------------\
Breyting á
útgáfudögum
Frá og með 20. júní verðursú breyt-
ing á útgáfu Dags að mánudagsút-
gáfa blaðsins verður felld niður en
þess í stað hafin útgáfa blaðs á laug-
ardögum.
Par með verður útgáfu blaðsins
hagað á svipaðan hátt og hjá flest-
um Reyk/avfkurblaðanna.
Fyrsta laugardagsblaðið kemur út
25. júní nk.
Skilafrestur auglýsinga í laugar-
dagsblaðið er sá sami og fyrir
föstudagsblaðið, fyrir kl. 11 á
fimmtudögum, og þriggja dálka
auglýsingar eða stærri fyrir kl. 4 á
miðvikudögum.
Auglýsingadeild.
Atvinnuastandið í mai:
Mun fleiri konur en
karlar án atvinnu
I maímánuði voru skráðir tæp-
lega 12 þúsund atvinnuleysis-
dagar á landinu öllu. Þetta
svarar til þess að 544 hafí verið
á atvinnuleysisskrá að meðal-
tali í mánuðinum eða 0,4% af
áætluðum mannafla á vinnu-
markaði. Þetta er 15% fækkun
frá aprílmánuði en fækkunin
var mest hjá körlum, 27%, en
aðeins 7% hjá konum.
Þessar upplýsingar koma fram
í yfirliti frá Vinnumálaskrifstofu
félagsmálaráðuneytisins. Þar seg-
ir einnig að 65% af skráðu
atvinnuleysi í maímánuði hafi
verið hjá konum og er skýring-
una að finna í eftirfarandi klausu:
„Þegar Iitið er til landsins í
heild voru skráðir atvinnuleysis-
dagar í nýliðnum mánuði 3 þús-
und fleiri en í sama mánuði í
fyrra. Þessi aukning atvinnuleysis
milli ára átti sér einkum stað í
þremur landshlutum, þ.e. Norð-
urlandi vestra, Vesturlandi og á
Suðurlandi, en þessi svæði hafa
öll orðið fyrir því að sauma- og/
eða prjónastofur hafa hætt starf-
semi sinni á umræddu tímabili.
Þetta skýrir óvenju hátt hlutfall
kvenna í skráðu atvinnuleysi í
maí.“
A Norðurlandi vestra voru
skráðir 1.799 atvinnuleysisdagar í
maí, 83 atvinnulausir, 25 karlar
og 58 konur. Á Norðurlandi
eystra voru atvinnuleysisdagarnir
1.947, 90 atvinnulausir, 40 karlar
og 50 konur. Á landinu öllu var
191 karl á atvinnuleysisskrá en
353 konur. SS
Pólsk grafík:
Wojciech
Pakowski
í Glugganum
Laugardaginn 18. júní kl. 16
verður opnuð sýning á grafík-
myndum Wojciech Pakowski í
Glugganum Glerárgötu 34.
Wojciech Pakowski er pólskur
svartlistamaður fæddur í
Varsjá 1958 og stundaði þar
nám við Listaháskóla borg-
arinnar frá 1978 til 1983.
Þótt ungur sé hefur Pakowski
vakið mikla athygli, hann hefur
tekið þátt í fjölmörgum alþjóð-
legum grafíksýningum og nokkr-
um sinnum unnið þar til verð-
launa. Þetta er fyrsta sýning
Pakowski á íslandi og verður
áreiðanlega forvitnilegt að skoða
sýninguna því pólsk svartlist er
rómuð um allan heim.
Sýningin verður opnuð laugar-
daginn 18. júní kl. 16 og stendur
til sunnudagsins 26. júní. Glugg-
inn er opinn daglega frá kl. 14 til
16, nema lokað er á mánudögum.
Allt í útili eg un a
\\| sí'''C~—-'-'"tf háSh’i \ v i JUÆbA \\ i '.IHHBri! {frcOBE \\lj ^ r^lJWiiIíraKBb y.i jyÆiÉ&ÉlMlMjb ytjESÉBk I «■1— /B ii T.d. Tjöld 2ja-5manná., Hústjöld. gic&jiSiAil\ \\ //} \i\\ *\’ y,<y/ Svefnpokar. Bakpokar, Kælitöskur. fKælitöskur 24ra-40 1. Útigrill. Nrillkol. • •
lli EYFJORÐ g Hjalteyrargötu 4 - Sími 22275
I