Dagur - 15.06.1988, Blaðsíða 3
15. júní 1988 - DAGUR - 3
Aðstaðan fyrir sundlaugargesti er hin vistlegasta eftir breytingarnar og húsa-
kynnin björt og smekkleg. Mynd: gb
Syðra-Laugaland:
Sundlaugin opnuð
eftir breytingar
Sundlaugin að Syðra-Lauga-
landi í Óngulsstaðahreppi hef-
ur nú verið opnuð eftir gagn-
gerar endurbætur. Þar var allt
endurbyggt innan dyra og skipt
um innréttingar, hreinlætis- og
blöndunartæki og er aðstaða
fyrir sundfólk hin ákjósanleg-
asta. Sundlaugin verður opin
fyrir almenning í sumar.
Stefán Árnason og Vilberg
Jónsson hafa tekið laugina á leigu
yfir sumartímann ásamt Hús-
mæðraskólanum gamla. Á vet-
urna fer þar fram sundkennsla
fyrir nemendur Laugalandsskóla
en laugin er í eigu Ongulsstaða-
hrepps og er hún byggð árið
19<53.
í spjalli við Stefán Árnason
kom fram að sundlaugin verður
opin fyrir almenning í sumar frá
klukkan tvö á daginn og fram á
kvöld. „Fólk getur líka pantað
einkatíma í lauginni og það er til-
valið fyrir fjölsky!dur eða vina-
hópa að taka sig saman og fá
laugina út af fyrir sig,“ sagði
Stefán.
Aðspurður sagði Stefán að
hingað til hefði sundlaugin lítið
verið opin fyrir almenning en
fólk hefði gjarnan sótt í laugarn-
ar að Hrafnagili og Pelamörk
enda væri Akureyrarsundlaugin
oft troðfull á sumrin. Hann sagð-
ist vera bjartsýnn á að fólk myndi
flykkjast í sund að Laugalandi
þar sem opnunartíminn hefði
verið rýmkaður og aðstaðan
batnað til muna. Auk þess sem
það væri alltaf dálftið spennandi
að skreppa út í sveit til að fara í
sund og losna við ys og þys bæjar-
lífsins.
Þeir Stefán og Vilberg hafa
líka í hyggju að hasla sér völl í
ferðamannaiðnaðinum og bjóða
upp á svefnpokapláss og mat í
skólanum, en ekki búast þeir við
að sú þjónusta komist í gagnið
fyrr en næsta sumar. SS
Ruslaílátum komið fyrir við hafnir:
Meira um að
skip komi með
ruslið í land
Fiski- og flutningaskip koma
nú í auknum mæli meö sorpúr-
gang, sem til fellur um borö,
að landi. Nokkur umræða hef-
ur verið um þessi mál að
undanförnu enda sjást þess
merki víða við strendur lands-
ins að mikið af alls konar plast-
rusli hefur verið hent frá borði.
Siglingamálastofnun hefur sent
út bréf til hafnarstjórna þar sem
rætt er um að koma upp sorpílát-
um við hafnir en nú þegar hefur
verið komið upp slíkum ílátum
við margar hafnir. Við Dalvíkur-
höfn voru settir upp ruslagámar í
vor og þetta mál var nýlega rætt í
hafnarstjórn Ólafsfjarðar.
Hafnarstjórn Ólafsfjarðar
samþykkti að beina því til bæjar-
stjórnar að hugað verði að þess-
um málum um leið og nýtt skipu-
lag verður tekið upp varðandi
sorphirðu í bænum en nú er
Ólafsfjarðarbær í samvinnu við
sveitarfélög innan við Múlann að
byggja sorpbrennsluþró. Varð-
andi þjónustu við skip í Ólafs-
fjarðarhöfn er talið að ekki sé
brýn nauðsyn nú á að setja upp
Flóðin í Eyjafjarðará:
Varpland
undir vatn
Mikiö varpland fór undir vatn í
llóðununi í Eyjafjarðará á
dögunum. Rúnar Sigmundsson
umdæmisstjóri Flugmála-
stjórnar á Akureyrarflugvelli
telur að mikið hafi flotið upp
undan öndum, kríu og mófugli
í leysingunum.
Flugvallarverðir sáu eitthvað
af hálfdauðum ungum og eggjum
á floti, en Rúnar veit ekki hvort
það hafi verið í miklum mæli.
Hins vegar sást á atferli fuglsins
að mikið af varplandi fór undir
vatn. Flóðin hafa nú sjatnað og
telur Rúnar að þeim sé lokið í ár.
kjó
Sýningarsalurinn opinn alla virka daga og laugardaga frá kl. 11-16.
Höldursf.
Tryggvabraut 10 • Símar sölumanna: 27015,27385 & 21715