Dagur - 15.06.1988, Side 7
15. iúní 1988 - DAGUR - 7
þarf ekki að teygja sig til að setja
fiskinn í allt að fjóra bakka. Eg
myndi ekki vilja skipta aftur og
ég held að enginn vilji það. Mér
finnst fólkið almennt vera jafn
ánægt með þetta og það kveið
fyrir þessu í upphafi," sagði
Aslaug. Hún sagðist telja að fólk
hafi verið hrætt við það að vinna
í einum hóp.
Allir vinna að
sama markmiði
Auk stórkostlegra breytinga á
vinnuskipulagi og vinnuaðstöðu
hefur hið nýja kerfi óhjákvæmi-
lega í för með sér nýtt launakerfi.
Undanfarin ár hefur svokallað
einstaklingsbónuskerfi verið við
lýði í öllum fiskvinnslufyrirtækj-
um. Allt sem fer til og frá hverj-
um starfsmanni er vegið og metið
og hver og einn keppist við að
skila sem mestri og bestri vöru.
Þessar skráningar allar gerast
ekki af sjálfu sér heldur útheimta
talsverðan fjölda starfsmanna,
allt eftir því hve margir starfs-
menn eru. „Þessi sífelldi eltinga-
leikur við nýtingu og samsetn-
ingu hjá hverri konu var genginn
út í öfgar,“ segir Finnbogi.
í flæðilínukerfinu er ekki hægt
að notast við þetta fyrirkomulag
enda vinna starfsmenn nú allir að
sama markmiði í einni samfellu.
Ekki aðeins á þetta við um starfs-
menn í snyrtingu og pökkun
heldur alla þá sem koma nálægt
fiskinum, frá móttöku þar til
pakkningarnar eru komnar í
frystigeymslu.
Hópbónus hefur leyst einstakl-
ingsbónusinn af hólmi og fækkað
þjónustustörfunum við skrán-
ingu. Segja má að þessi breyting
hafi komið á heppilegum tíma
því um svipað leyti var einmitt
verið að taka hópbónuskerfi upp
víðar um landið t.d. á Vestfjörð-
um.
Nýtt launakerfi hefur leitt til
þess að bónusinn hefur hækkað.
„Við komumst áður hæst upp í
159 krónur en nú höfum við farið
í 169 krónur á tímann í bónus.
Og þennan bónus fá allir starfs-
mennirnir auk um 212 kr. fast
kaup á klst.,“ sagði Áslaug.
Eitt svarið við
erfiðleikum fískvinnslunnar
Við uppsetningu flæðilínukerf-
anna hefur þeirri reglu verið fylgt
að starfsfólki er vandlega gerð
grein fyrir þeim breytingum sem
vænta má á vinnutilhögun með
tilkomu þeirra. Á fundum sem
haldnir voru með starfsfólki
frystihúss KEA í Hrísey var m.a.
spurt hvaða væntingar fólk bæri
til „flæðilínuvæðingarinnar“.
Yfirleitt virtist fólkið gera sér
grein fyrir því hvers mætti vænta
því flest af því sem upp kom hef-
ur staðist. Hærra kaup, þægilegri
vinnutilhögun og betri nýting var
meðal þess sem nefnt var. Fram
kom sú fullyrðing að gamla kerf-
ið væri „gengið sér til húðar og
allt væri betra en það“.
Endurnýjun vinnslukerfis
hafði staðið fyrir dyrum í Hrísey
um nokkurt skeið þegar ákveðið
var að fjárfesta í þessu nýja kerfi.
„Ég held að þetta geti verið eitt
svarið við þeim erfiðleikum sem
steðja að fiskvinnslunni," segir
Sigmar Halldórsson verkstjóri í
frystihúsinu.
Að sögn Sigmars hefur hið
nýja kerfi gert alla verkstjórn
auðveldari þar sem vinnslurásin
er styttri. Þá er nú mun auðveld-
ara að skipta um fisktegund í
vinnslu og einnig að breyta um
vinnsluaðferð.
„Það sem mér finnst vera einn
stærsti kosturinn við þetta er að
fólk segir ekki lengur: Mér kem-
ur þetta ekki við því ég er að
vinna við hitt. Nú eru allir að
vinna að sama marki og fá sömu
greiðsluna og það er ætlast til
hins sama af öllum,“ sagði
Sigmar. ET
Úr móttökunni. Fiskurinn fer eftir færiböndunum tveimur upp í vigtar og
þaðan í vélarnar í vinnslusalnum.
Ein snyrtilína í stað margra borða áður. Allar hreyfingar eru í lágmarki og
allt sem til þarf er innan seilingar.
Vélarnar sem taka við fiskinum frá vigtunum. Frá þeim fer fiskurinn nú á
færibandi til snyrtingar og niðurskurðar í stað þess að áður var hann fluttur
í bökkum.
Pökkunarborðin. í baksýn sést eftirlitslínan sem er í beinu framhaldi af
snyrtilínunni.
Finnbogi Alfreðsson framkvæmda-
stjóri Framlciðni. Mynd: GB
Sigmar Halldórsson verkstjóri.
Hrossaeigendur
í Saurbæjarhreppi
Sleppa má hrossum á afrétt og ógirt heimalönd eftir
15. júní 1988.
Oddvitinn.
fLeikja- og íþrótta-
námskeið KA
Næsta námskeið hefst mánudaginn 20. júní.
Bryndís Þorvaldsdóttir, íþróttakennari leiöbeinir.
Innritun í KA-heimilinu alla daga í síma 23482.
Þátttökugjald fyrir 2ja vikna námskeið aðeins kr.
400,- með grillveislu og allt.
Þriðja námskeiðið hefst 4. júlí ef næg þátttaka
verður.
Knattspyrnudeild KA.
Tilkynning til sölu-
skattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að gjalddagi
söluskatts fyrir maímánuð er 15. júní. Ber þá að skila
skattinum til innheimtumanna ríkissjóðs ásamt söluskatts-
skýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
EYFJÖRÐ
Verslið við .
fagmenn.
Merkið tryggir
gæðin.
crrr