Dagur - 15.06.1988, Qupperneq 20
Kelduhverfi:
Tuttugu punda
á svarta vofu í
Fáir telja mánudaga vera
happadaga eða töiuna 13
happatölu og því áttu fæstir
von á nokkru góðu mánudag-
inn 13. júni. Gústav Axel
Guðmundsson, matreiðslu-
maður á Húsavík var við veið-
ar í Litluá í Kelduhverfi
umræddan dag og taldi sig
aldeilis ekki óheppinn við
veiðarnar er hann dró tæplega
20 punda urriða að landi.
Risaurriðann veiddi Gústav á
straumflugu, Black Ghost (sem
þýðir svarta vofan) no 4 og
aðeins liðu sjö mínútur frá því
fiskurinn tók fluguna þar til hann
var kominn á land. Urriðinn vóg
tæp 20 pund, var 87 cm á lengd
og 56 cm að ummáli.
Gústav fékk tvo aðra urriða
sama dag, einn 12 punda sem
urriði
Litluá
mældist 74 cm á lengd og einn 6
punda.
Urriðinn stóri er sá stærsti sem
veiðst hefur í Litluá og er þetta
þriðja árið í röð sem Gústav
dregur metfiska úr ánni. Sumarið
1986 fékk Gústav 9 punda urriða
sem þá var stærsti fiskur sem
þarna hafði veiðst. í fyrra fékk
hann 15 punda urriða og nú tæp-
lega 20 punda urriða. IM
Þjóðhagsstofnun:
- Atvinnuvegina vantar 2900 starfsmenn
„Enn varir svipað ástand og
vorið 1987. Veruleg þensla er á
vinnumarkaði og ætla má að í
heild séu um 2.900 stöður
ófylltar í þeim atvinnugreinum
sem könnunin nær til. Þetta
eru um 3,2% af heildarmann-
afla þessara greina.“ Þessi tíð-
indi koma fram í könnun Þjóð-
D
Auglýsendur
athugið
Dagur kemur ekki út föstu-
daginn 17. júní. Auglýsendum
er bent á að skilafrestur augl-
ýsinga fyrir fimmtudagsblað er
til kl. 11 fyrir hádegi í dag.
hagsstofnunar og Vinnumála-
skrifstofu félagsmálaráðuneyt-
isins á atvinnuástandi og
atvinnuhorfum.
Könnunin nær til flestra
atvinnugreina nema landbúnað-
ar. fiskveiða og opinberrar þjón-.
ustu (þó ekki sjúkrahúsin) og
miðað við greidd laun lætur nærri
að hún nái til 75% af atvinnu-
starfsemi á landinu öllu. Fram
kemur að mestur skortur er á
verkafólki, eða 1.300 störf, og er
fjórðungur þeirra á höfuðborgar-
svæðinu.
„Áframhaldandi skortur er á
starfsfólki í fiskvinnslu á lands-
byggðinni. Þar vantar mest
verkafólk. Hins vegar hcfur veru-
lega dregið úr manneklu í fisk-
vinnslu á höfuðborgarsvæðinu.
Mikill skortur er enn á sérhæfðu
starfsfólki og ber enn mest á þörf
sjúkrahúsanna fyrir hjúkrunar-
fólk og annað sérmenntað
starfsfólk."
í fiskvinnslu vantar 750 manns,
eöa 7,9% af heildarfjölda
starfsmanna. Þessi skortur er
aðeins á landsbyggðinni. í heild
vantar 1.400 starfsmenn á höfuð-
borgarsvæðinu (2,7%) og 1.500 á
landsbyggðinni (3,8%). Þessar
tölur eru miðaðar við aprílbyrjun
en alls voru 640 manns á atvinnu-
leysisskrá í apríl þrátt fyrir þessa
eftirspurn. SS
Gústav með tæplega 20 punda urriða og annan 12 punda.
Forsetakosningarnar:
Metþátttaka í utan-
kjörfundarkosningu
Metþátttaka virðist ætla að
verða í kosningu utankjör-
fundar á Akureyri í forseta-
kosningunum því eftir 12 daga
Grímsey:
Verið að skipta úr
netum yfir í færi
„Við erum að skipta af netum
yfir á færi. Það hefur verið
mjög lítið flskerí í vetur svo
núna eru allir hættir með netin.
Sumir eru þcgar farnir að veiða
með færum og aðrir eru að búa
sig undir að hefja veiðar með
þeim,“ sagði Þorlákur Sigurðs-
son oddviti í Grímsey.
Að sögn Þorláks skapast oft
eins konar millibilsástand meðan
skiptin standa yfir. Það þarf að
ganga frá netunum og öllu sem
þeim tilheyrir og jafnvel stundum
að verka bátana.
Smærri bátar staðarins eru yfir-
leitt á færum yfir sumartímann en
stærsti báturinn er núna á rækju-
veiðum. „Það hefur verið lítil
veiði ennþá hjá eyjabátunum,"
sagði Þörlákur. „Eg hef séð
nokkra aðkomubáta hérna
undanfarið og eftir því sem ég
best veit hefur ekki gengið betur
hjá þeim.“
Þar sem lítið fiskerí var í vetur
telur Þorlákur að talsvert sé eftir
af kvóta heimamanna. Hann
sagðist þó ekki hafa neina
nákvæma tölu yfir það en vissi
ekki til þess að hann væri búinn
hjá neinum.
„Hann var óvenju tregur hérna
á færinu í fyrrasumar og núna er
sjókuldi meiri en í meðalári, en
maður vonar alltaf það besta,“
sagði Þorlákur að lokum. KR
voru 242 búnir að greiða
atkvæði á skrifstofu bæjar-
fógeta en í forsetakosningun-
um 1980 voru 113 búnir að
kjósa á sama tíma. Þátttakan
nú er því yfir 100% meiri en
1980.
Ásgeir Pétur Ásgeirsson héraðs-
dómari sagði að í forsetakosning-
unum 1980 hefði verið metþátt-
taka í kosningum utankjörfund-
ar, hvort sem um væri að ræða
forseta-, alþingis-, eða bæjar-
stjórnarkosningar. Hann sagði að
hin mikla þátttaka nú væri að
mörgu leyti óvenjuleg.
„Ekki verður maður var við að
nein kosningabarátta sé í gangi
og því er þessi mikla kjörsókn
enn athyglisverðari fyrir vikið.
Það hlýtur eitthvað merkilegt að
vera að gerast," sagði Ásgeir
Pétur.
Utankjörfundarkosning hófst
30. maí og stendur fram á
kjördag, laugardaginn 25. júní.
Eftir öllum sólarmerkjum að
dæma sýnir fólk forsetakosning-
unum mikinn áhuga þótt ekki sé
mikið fjallað um þær og bjóst
Ásgeir Pétur við að nú færi að
koma skriður á kjörsókn.
Hann sagði að fólk gæti komið
á bæjarfógetaskrifstofuna á
venjulegum skrifstofutíma og
kosið en einnig væri opið kl. 17-
19 og kl. 20-22 á virkum dögum
og kl. 13-16 um helgar. SS
Á kjörstað.
Mynd: GB
Veruleg þensla
á vinnumarkaði