Dagur - 21.09.1988, Qupperneq 1
Útgerðarfélag Akureyringa hf.:
Gunnar ráðinn
framkvæmdastjóri
- „Með þessari ráðningu er brotið blað
í sögu Útgerðarfélagsins“
segir Sigurður Jóhannesson
A stjórnarfundi Útgerðar-
félags Akureyringa hf. í gær-
morgun, var Gunnar Ragnars
ráðinn framkvæmdastjóri
fyrirtækisins frá og með næstu
áramótum. Gunnar sem er við-
skiptafræðingur að mennt,
hefur starfað sem forstjóri
Slippstöðvarinnar á Akureyri
undanfarin ár.
„Það er brotið blað í sögu
Útgerðarfélagsins með þessari
ráðningu og rofin sú eining sem
hefur verið um það að hafa vissa
pólitíska breidd í stjórnun fyrir-
tækisins," sagði Sigurður
Jóhannesson einn stjórnarmanna
ÚA í samtali við Dag.
Hann sagði einnig að þeir þrír
sem nú yrðu í forsvari fyrir
Útgerðarfélagið, báðir fram-
kvæmdastjórarnir og stjórnar-
formaðurinn, hafi allir verið á
lista Sjálfstæðisflokksins til
bæj arstj órnarkosinga.
„Ég geri ég ráð fyrir að Pétur
Bjarnason fulltrúi Alþýðuflokks í
stjórn ÚA hafi valið þann mann í
starfið sem hann taldi hæfastan
og bestan. En ég tel h'ka að for-
ingjar krata á Akureyri hafi ekki
þorað að setja á neina pólitíska
pressu, af ótta við að meirihluta-
samstarfið mundi springa," sagði
Sigurður ennfremur. -KK
Mjólkursamlag KEA:
Framleiðsla bænda sam-
kvæmt Mvirðisrétti
- á síðasta verðlagsári
mjólk í kálfa, búið til smjör og
jafnvel skyr.“ VG
í ágúst var tekið á móti tæpum
2 milljónum Iítra af mjólk hjá
Mjólkursamlagi KEA á Akur-
eyri sem er mun meira en á síð-
asta ári. Þegar verðlagsárinu
lauk, höfðu verið framleiddir
alls 20.543.617 lítrar hjá bænd-
um á svæðinu, sem er aðeins
100 þúsund lítrum umfram
fullvirðisrétt verðlagsársins
1987-1988, en hann nam
20.447.449 lítrum. Ofan á
hann bætist réttur bænda til
þess að sækja um að framleiða
5% af kvóta næsta árs svo
segja má að bændur hafi lagað
sig vel að þessu kerfi.
Frestur bænda til þess að sækja
um rétt til að framleiða 5% af
mjólkurkvóta næsta verðlags-
tímabils, hefur nú verið lengdur
svo þeir sem enn hafa ekki sótt
um, geta gert það á næstu
dögum. „Ég vil endilega hvetja
bændur til þess að sækja um
þennan rétt, því í ágúst og júlí
var alls 71 bóndi sem fór fram úr
kvóta, skilaði inn mjólk en sótti
ekki um rétt til að framleiða af
kvóta næsta árs,“ sagði Þórarinn
Sveinsson samlagsstjóri Mjólk-
ursamlags KEA í samtali við
blaðið. Hann sagði jafnframt, að
alls 110-120 bændur sem fóru
fram úr kvóta, hafi sótt um leyfi
til að framleiða meira og ef þessi
71 sæki um líka, hafi rúmlega
helmingur bænda á svæðinu not-
fært sér þennan rétt.
Eftir er að úthluta 34 þúsund
lítrum til viðbótar af fullvirðis-
réttinum samkvæmt áður útgefn-
um regium landbúnaðarráðu-
neytisins um útjöfnun.
Þórarinn sagðist ekki vita til
þess að bændur hafi hellt niður
mikilli mjólk. „Ég veit hins vegar
til þess að þeir hafa notað mikla
1 gær voru gömul fjárhús brennd í Lækjargili á Akurcyri að höfðu samráði
VÍð slökkviliðið. Mynd: GB
Skagaströnd:
Góður
afli hjá
togur-
unum
- þeir fylltu afla-
kvótann í júlí
Togarar Skagstrcndings hf.
hafa aflað mjög vel það sem af
er þessu ári og voru búnir að
fylla aflakvóta sinn í júlí. Síðan
hcfur kvóti verið keyptur frá
öðrum útgerðum sem ekki
hafa nýtt kvóta sinn til fulls.
Að sögn Sveins Ingólfssonar,
framkvæmdastjóra Skagstrend-
ings hefur frystitogarinn Örvar
3800 tonna aflamark og ísfisk-
togarinn Arnar 3000 tonna afla-
mark. Þann afla voru skipin búin
að færa að landi í júlí en tekist
hefur að fá keyptan kvóta sem
ætti að duga skipununt fram til
20. nóv. Verð á aflakvóta sem
seldur er á milli útgerða er nú 8
krónur á kílóið í þoskígildi.
Heildar aflaverðmæti þessara
skipa varð á síðasta ári 265 millj-
ónir króna en það sem af er þessu
ári er verðmæti þess afla sem
skipin hafa fært að landi orðiö
290 milljónir. Útgerð þessara
skipa hefur alltaf gengið mjög vel
og þau hafa verið meðal afla-
hæstu togara á landinu. fh
Stjórnarmyndunartilraunir Steingríms Hermannssonar:
Möguleikununi fækkar eftir
afsvar Kvennalistans
Eftir fundi fulltrúa Kvennalist-
ans með fulltrúum Alþýðu-
bandalags, Framsóknar og
Alþýðuflokks í gær er Ijóst að
Kvennalistinn myndar ekki
stjórn með flokkunum
þrcmur. Konurnar halda fast í
hugmyndina um þjóðstjórn
allra flokka en innan flokk-
anna þriggja telja menn hug-
myndina lítt áhugaverða. Að
afloknum síðari fundi Kvenna-
listans með fulltrúum flokk-
anna þriggja átti Steingrímur
Hermannsson fund með Stefáni
Valgeirssyni þar sem ræddur
var möguleiki á aðild hans að
hugsanlegri stjórn.
Skiptar skoðanir virðast innan
Alþýðu- og Framsóknarflokks á
stjórn flokkanna þriggja með
Stefáni Valgeirssyni, þingmanni
Samtaka um jafnrétti og félags-
hyggju. Bent er á að sú stjórn
hafi mjög nauman meirihluta,
eða 32 þingmenn, en aðrir tclja
að vert sé að láta reyna á slíkt
samstarf.
Miklar þreifingar voru bak við
tjöldin í gær og margir möguleik-
ar ræddir. Þeir framsóknar- og
alþýðuflokksmenn sem blaðiö
ræddi við töldu samstarf viö
Kvennalistann útilokað og einnig
meinbugi á samstarfi við Alþýðu-
bandalagið. Þar kemur til ósætti í
forystusveit flokksins. Borgara-
flokksmenn hafa gefið þá yfirlýs-
ingu að þeir séu tilbúnir til við-
ræðna við alla og benti flest til
þess að við þá yrði næst talað í
stjórnarmyndunarþreifingum.
í gær fór sú hugmynd á loft
meðal stjórnmálamanna hvort
möguleiki sé á myndun ríkis-
stjórnar sömu flokka og áður,
þ.e. Framsóknar-, Alþýðu- og
Sjálfstæðisflokks. Breytingin yrði
hins vegar sú að framsóknar-
menn veittu nýrri stjórn forsæti.
í samtali við blaðið lýsti einn
alþýðuflokksmanna þeirri skoð-
un sinni að þessi leið væri sú eina
færa fyrir Steingrím Hermanns-
son, sem nú hefur umboð forseta
til myndunar meirihlutastjórnar.
Innan Alþýðuflokks styðji margir
þessa hugmynd en rninni eráhug-
inn meðal framsóknar- og sjálf-
stæðismanna. Línurnar í stjórn-
armyndun Steingríms Hermanns-
sonar skýrast með hverjum deg-
inum en búast má við að Stein-
grímur skili umboði sínu í síðasta
lagi á föstudag, takist stjórnar-
myndun hans ekki. JÓH
> I
Bæjarstjórn Akureyrar
Fjörugar umræöur
Miklar umræður urðu á fundi
Bæjarstjórnar Akureyrar um
fjármál bæjarfélagsins í gær.
Komu þar fram mismunandi
skoðanir bæjarfulltrúa á því
hvort bæjarfélagið ætti í fjár-
hagsvanda eða ekki og hvern-
ig bæri að skilgreina vand-
ann.
Gunnar Ragnars, forseti
bae^Mssfijswnar, sagði að skoðun
mannx ii skuldastöðu bæjarins
mótaðist af því frá hvaða sjón-
nhóli væri horft. Úlfar Hauks-
um prhagsvanda
son, fráfarandi hagsýslustjóri,
hefði kosið ákveðið sjónarmið,
þ.e. skuldastöðu bæjarsjóðs, í
hugleiðingunt sínurn um málið.
Þar hefði ekki verið horft á aðr-
ar hliðar eins og útistandandi
kröfur bæjarsjóðs á hendur rík-
inu eða hlutfali skulda á móti
veltufjárkröfum, sem voru 175
milljónir króna um áramótin.
Þá kæmi ekki fram að ríkið
skuldaði bæjarsjóði stórar upp-
hæðir vegna Síðuskóla. Vegna
þessara skulda hefði verið gerð-
ur samningur unt lántöku til að
koma þar á móti, en ríkið
endurgreiðir féð á nokkrum
árum. Skýrsla Úlfars fæli ekki í
sér heildarmynd af fjárhag
bæjarins.
Sigurður Jóhannesson ítrek-
aði, ásamt Sigríði Stefánsdóttur
og Heimi Ingimarssyni, að fjár-
hagur bæjarins væri lélegur og
gæti hæglega komið til þess að
ekkert svigrúm yrði til fram-
kvæmda, ef svo héldi áfram sem
hingað til. EHB