Dagur - 21.09.1988, Side 2
2 - DAGUR - 21. september 1988
Stjórn Kennarasambands íslands:
Mótmælt er hugmyndum
um niðurskurð
Síðustu daga og vikur hcfur mikið verið rætt um sparnað í ríkis-
kerfínu og m.a. munu yfírvöld fræðslumála hafa fengið fyrirmæli
um að skera niður kostnað af skólahaldi og þar með rýra þjónustu
við nemendur í grunnskólum og framhaldsskólum.
Stjórn Kennarasambands
íslands hefur miklar áhyggjur af
þeim vanda sem skólastarfi er
búinn ef hinar takmörkuðu fjár-
veitingar sem þegar eru ætlaðar
skólastarfinu verða enn
minnkaðar. Eins og jafnan áður
þegar niðurskurður er á döfinni
er hætt við að þeir sem minnst
mega sín og síst geta borið hönd
fyrir höfuð sér verði fyrir barðinu
á slíkum aðgerðum.
Bridds:
Norðurlandsmót
í tvímenningi
Hið árlega Norðurlandsmót í
tvímenningi verður haldið á
Akureyri laugardaginn 8. okt-
óber n.k. og hefst spila-
mennska kl. 10.00 í Félags-
borg.
Spilaðar verða tvær umferðir
eftir Mitchell-fyrirkomulagi.
Þátttökugjald er kr. 2000 á par.
Tilkynningar um þátttöku
þurfa að berast Erni Einarssyni,
sími 21058 eða Stefáni Ragnars-
syni, sími 22175, fyrir 5. október
nk.
Nú hafa borist fréttir af því að
stórlega verði dregið úr því tíma-
magni sem ætlað er nemendum
með sérkennsluþarfir - og er það
þó ærið takmarkað fyrir og full-
nægir hvergi nærri þeirri þörf sem
sérfræðingar skólakerfisins hafa
greint og staðfest.
Með grunnskólalögunum frá
1974 og reglugerðum sem við þau
hafa verið sett er leitast við að
tryggja öllum börnum jafnan rétt
til náms, óháð kyni, búsetu, efna-
hag og/eða andlegu eða líkam-
legu atgervi. Með slíkri lagasetn-
ingu hefur samfélagið tekist þá
skyldu á hendur að sinna þörf
barna og unglinga sem þurfa á
sérstakri aðstoð að halda til þess
að þeim nýtist nám og kennsla til
fullnustu. Þeim skyldum verður
að sinna.
Stjórn Kennarasambands ís-
lands mótmælir harðlega öllum
hugmyndum og áformum um að
skerða þjónustu skólanna við
nemenur og skorar á stjórnvöld
að standa vörð um jafnréttis-
ákvæði grunnskólalaga með því
að tryggja að virt verði greind og
rökstudd þörf þeirra nemenda
sem þurfa á sérkennslu að halda.
Kristín Aðalsteinsdóttir tekur á móti viðurkenningarskjalinu.
Mynd: GB
Sérkennari fær viðurkenningu
Kristín Aðalsteinsdóttir, sér-
kennari, fékk afhent viður-
kenningarskjal fyrir skömmu
frá British Council, en það er
stofnun sem sér um að veita
erlendum nemendum styrki til
náms við framhaldsskóla í
Bretlandi.
Kristín Aðalsteinsdóttir vinnur
nú að lokaverkefni við háskól-
ann í Bristol. Stephen Parris,
sendifulltrúi, afhenti henni skjal-
ið í skrifstofu breska konsúlsins á
Akureyri, Aðalsteins Jónssonar.
Sendifulltrúinn gat þess í ræðu
sem hann flutti við þetta tækifæri
að Kristín hefi sýnt mikinn dugn-
að og áhuga í námi og starfi og
því væri sér einstök ánægja að
afhenda viðurkenningarskjalið
sem staðfestingu þess að hún
hefði fengið styrk frá British
Council.
Lokaverkefni Kristínar er
mastersritgerð sem fjallar um
þjónustu við sérkennslubörn í
skólum á Norðurlandi eystra.
EHB
Fasteignamarkaðurinn:
Eftírspurnin mikil og
verðið þokast rólega upp
Verð á fasteignum á Akureyri
hefur verið að þokast rólega
upp og hefur frá áramótum
hækkað um 10-15%. í sumar
hefur gott verð fengist á mark-
aðinum og eftirspurnin er
mikil. Stærri eignir eru talsvert
þungar í sölu, en fara þó með
tímanum.
Björn Kristjánsson sölumaður
hjá Fasteigna-Torginu sagði eftir-
spurnina mikla og ekki hefði úr
99
Frístæl-
keppni“ í
SjaJlanum
Frístælkeppnin á Akureyri
1988 verður haldin í Sjallan-
um á Akureyri þann 22.
október.
Hún er haldin á vegum
tímaritsins Hárs & fegurðar og
hársnyrtifólks á Akureyri.
Þetta er opin keppni og getur
því hársnyrtifólk alls staðar af
landinu tekið þátt.
Síðasta keppni á Akureyri
var stórglæsileg þar fékk hár-
snyrtifólkið að njóta sín á list-
rænan máta og komu fram
margar skemmtilegar „fanta-
síur“.
Fólk á Akureyri og Norður-
landi má því eiga von á stór-
skemmtilegri uppákomu.
Frístælkeppnir hjá tímarit-
inu og hársnyrtifólki á íslandi
hafa vakið gífurlega athygli,
ekki bara hér heima heldur
einnig úti ý heimi þar sem
keppnirnar hafa verið kynnt-
ar.
henni dregið ennþá. Hann sagði
að miklu munaði á framboði og
eftirspurn og nokkur skortur væri
á minni einbýlishúsum sem og
raðhúsum með bílskúr. Húsnæði
sem mikið hefði af áhvílandi lán-
um færi mjög fljótt.
„Verðið var mjög gott í sumar,
og enn hefur ekki dregið úr því,“
segir Björn. Hann sagði áberandi
að fólk utan Akureyrar væri að
spyrjast fyrir um húsnæði hér.
Fólk væri í talsverðum mæli að
flytja til bæjarins.
„Það virðist vera frekar bjart
yfir þessu," sagði hann.
Pétur Jósepsson sölumaður hjá
Fasteigna og skipasölu Norður-
lands sagði að hreyfingin væri
minni en í fyrra, en verðið orðið
stöðugra og hefði það hækkað
nokkuð, eða um 10-15% frá ára-
mótum. Markaðurinn er mjög
háður húsnæðiskerfinu, en það
þykir heldur þungt í vöfum og
sagði Pétur að fólk gengi um með
lánsloforð en gæti ekki fjárfest
fyrr en dagsetningar lánanna
færðust nær t tímanum.
Raðhús af öllum stærðum og
gerðum gengju best út, en eldra
húsnæði fer hægt. „Það hefur set-
ið eftir,“ segir Pétur. Hann sagði
að verðfall hefði orðið á eldri
eignum og hefði húsnæðiskerfið
þar haft mikil áhrif á. Langflestir
vildu fjárfesta í nýju húsnæði
þegar lánsupphæðin væri á bilinu
2,3-2,5 milljónir króna. Pétur
sagði að taka þyrfti pólitíska
ákvörðun varðandi þetta mál,
þannig að fólk sem vildi kaupa
gamalt húsnæði fengi einhverja
fyrirgreiðslu svo mætti gera það
upp. mþþ
Fatahreinsun á Húsavík
Nýtt fyrirtæki, Fatahreinsun
Húsavíkur, var opnað að
Brúnagerði 5 sl. föstudag. Það
eru hjónin, Guðmundur Valdi-
marsson og Kolbrún Péturs-
dóttir sem eru eigendur fata-
hreinsunarinnar og starfa við
fyrirtækið.
Auk véla til að hreinsa fatnað
keyptu Guðmundur og Kolbrún
þvottavél og þurrkara og geta því
þvegið og/eða þurrkað þvott fyrir
fyrirtæki og einstaklinga. Og það
er ekki eingöngu fatnaður sem
tekið er við til hreinsunar heldur
einnig mottur, svefnpokar og
fleira þess háttar. Hjónin sögðust
ætla að leggja áherslu á fljóta og
góða afgreiðslu.
Segja má að þau Kolbrún og
Guðmundur berist á móti
straumnum. Fyrir þrem árum
fluttu þau til Reykjavíkur þar
sem Kolbrún lagði stund á
sjúkraliðanám. Nú er hún komin
heim til Húsavíkur, útskrifuð
sem sjúkraliði en sér fram á að
hafa næg verkefni við fatahreins-
unina ásamt Guðmundi og er því
að hugsa um að hætta störfum á
sjúkrahúsinu. Sl. vetur hætti
Kaupfélag Þingeyinga rekstri
efnalaugar og síðan hefur ekki
verið boðið upp á slíka þjónustu
á Húsavík. Um páskana skruppu
Kolbrún og Guðmundur í heim-
sókn til Húsavíkur og voru þau
þá að hugsa um að selja nýlegt
einbýlishús sitt þar og búa áfram
fyrir sunnan. En þegar þau
heyrðu um efnalaugarskortinn í
bænum ákváðu þau að flytja aftur
í húsið sitt, kaupa vélar til fata-
hreinsunar og setja á fót fyrirtæki
í bílskúrnum.
Guðmundur vann í fatahreins-
un fyrir sunnan og Kolbrún
kynnti sér einnig starfið, sagði
hún það vera eins gott, mikið
væri að gera hjá þeim og heilmik-
il vinna gæti verið við hverja flík.
Aðspurður sagði Guðmundur að
ekki þýddi annað en að vera
bjartsýnn á framtíðina og rekstur
fyrirtækisins. Dýrt væri að koma I nýju hreinsuninni
þessu upp en fólk væri jákvætt og | mjög vel tekið.
hefði
verið
IM
Guðmundur Valdimarsson og Kolbrún Pétursdóttir í nýju fatahreinsuninni
ásamt dóttur sinni. Mynd: im