Dagur - 21.09.1988, Side 3
21. september 1988 - DAGUR - 3
Hjónin á Mýri
í Bárðardal:
Heimtu
útigönguíe
- á með tvær gimbrar
og voru allar með lömb
Það þykir ekki tiltökumál þó
að á stóru fjárbúi vanti eina og
eina á eftir að smalað hefur
verið að hausti. í fyrrahaust
vantaði hjónin á Mýri í Bárð-
ardal, þau Tryggva Höskulds-
son og Guðrúnu Sveinbjörns-
dóttur m.a. á með tvær
gimbrar.
Nú í haust komu þær hins veg-
ar í leitarnar og voru þá allar með
lömb. Ærin með tvö en gimbr-
arnar sitt hvort og því heimtu
hjónin á Mýri alls 7 gripi. Þær
mæðgur hittu fyrir lambrút frá
Birkihlíð í Ljósavatnsskarði sem
ráfaði um öræfin og slóst hann í
för með þeim.
Búið var að leita mikið að
ánni í fyrrahaust, bæði gang-
andi og á vélsleðum en án árang-
urs. Féð kom fram í Illugastaða-
rétt, þannig að sennilega hefur
það gengið á framdölum Fnjóska-
dals. -KK
Búseti á
Akureyri
lognaðist
út af
- óvíst með framhaldið
Húsnæðissamvinnufélagið Bú-
seti í Reykjavík hefur kveikt
áhuga manna á búsetukerfinu
með byggingu fjölbýlishúss í
Grafarvogi og hafa bæjarfélög
lýst yfir áhuga á samstarfi í
kjölfar úthlutunar lána til
kaupleiguíbúða. Félagið Bú-
seti á Akureyri var stofnað
árið 1984 en það mun hafa
lognast út af.
Gylfi Guðmarsson var formað
ur Búseta á Akureyri rneðan
félagið var við líði. Hann sagði
að félagið hefði ekki verið endur-
lífgað en taldi þó líklegt að full
þörf væri á því, ef bæjaryfirvöld
hefðu hug á samstarfi við slíkt
félag um byggingu kaupleigu-
íbúða.
í ágústmánuði samþykkti
Húsnæðismálastjórn að veita lán
til 10 almennra kaupleiguíbúða
og 5 félagslegra kaupleiguíbúða á
Akureyri. Gylfi sagðist hafa ver-
ið í sambandi við framkvæmda-
stjóra Búseta eftir að lög um
kaupleiguíbúðir voru samþykkt
og skriður fór að komast á
búsetuíbúðir í Reykjavík. Hann
hafði síðan samband við fulltrúa í
bæjarstjórn Akureyrar og fékk
þær upplýsingar að bæjaryfirvöld
hefðu ekki ákveðið hvernig stað-
ið yrði að byggingu kaupleigu-
íbúðanna.
„Mér líst vel á hugmyndir um
samstarf bæjaryfirvalda og félaga-
samtaka á borð við Búseta.
Menn bera kannski meiri virð-
ingu fyrir eigninni þegar þeir
bera sjálfir einhverja ábyrgð á
henni. Ég held að slíkt samstarf
væri skynsamlegra en að bærinn
réðist í þetta upp á eigin spýtur,“
sagði Gylfi. SS
Sjúkrahúsið í Neskaupstað:
Gífurlegt álag á starfsfólki
Mikið álag hefur verið á starfs-
fólki Fjórðungssjúkrahússins í
Neskaupstað það sem af er
þessu ári, en skortur á hjúkr-
unarfræðingum hefur verið
áberandi. Þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir hefur ekki tekist að
manna allar stöður sjúkrahúss-
ins, en stöðugildin eru 58 og á
sjúkrahúsinu eru 40 rúm.
Kristinn ívarsson fram-
kvæmdastjóri sjúkrahússins sagði
að nokkrar stöður hjúkrunar-
fræðinga væru ómannaðar og það
ætti einnig við um stöður sjúkra-
liða og ófagjærðs starfsfólks.
„Þetta er óviðunandi ástand, við
höfum mikið reynt að fá fólk, en
það ekki skilað árangri," sagði
Kristinn, en hann sagðist ekki
muna eftir að ástandið hafi áður
verið svo slæmt. Starfsfólk væri
orðið langþreytt á mikilli vinnu.
Skortur á starfsfólki hefði ver-
ið leystur með yfirvinnu þeirra
sern fyrir eru. Kristinn sagði að
fólk væri þó ekki ýkja hrifið af
mikilli yfirvinnu eftir að stað-
greiðslukerfi skatta var tekið
upp.
Fjórðungssjúkrahúsið í Nes-
kaupstað er eina sjúkrahúsið á
svæðinu frá Húsavík til Vest-
mannaeyja sem býður upp á
bráðaþjónustu og þar eru til stað-
ar tvær skurðstofur. Ekki væri
því hægt að grípa til þess ráðs að
, loka deildum og færa fólk á milli.
„Hingað er komið með slasaða
sjómenn og við verðum því alltaf
að vera viðbúin öllu,“ sagði
Kristinn.
Hann benti á sem lausn á þess-
um vanda sem blasir víða við á
sjúkrahúsum, að það starfsfólk
sem ynni aðhlynningarstörf fengi
notið eins konar ívilnana í skatta-
kerfinu í líkingu við sjómenn.
„Það þarf að gera þessi störf
eftirsóknarverð.“ mþþ