Dagur - 21.09.1988, Qupperneq 5
21. september 1988 - DAGUR - 5
kvikmyndarýni
Sannarlega stórgóð mynd
Borgarbíó sýnir:
Bannsvæði (Off limits).
Leikstjóri: Christopher Crowe
Helstu leikendur: William Dafoe og
Gregory Hines.
Twentieth Century Fox 1988
Það einasta sem Bandaríkin
græddu á Víetnamstríðinu var
afsönnun Dómínókenningarinn-
ar, hugmyndarinnar um að félli
eitt ríki kommúnistum á vald
hlytu fleiri að fylgja í kjölfarið
uns kæmi að bandaríkjum Norð-
ur-Ameríku. Vegna Dómínó-
kenningarinnar var stríðið í Víet-
nam frelsisstríð háð til að verja
sjálf Bandaríkin. Ekkert var frá-
leitara en þó féll þessi áróður í
frjóan jarðveg. Fyrir vikið misstu
tugþúsundir bandarískra ung-
menna lífið og hundruð þúsund
Víetnama lágu í valnum áður en
yfir lauk.
Petta tilgangslausa stríð var ólíkt
öllum öðrum sem Bandaríkja-
menn höfðu háð áður. Víglína
var ekki til, sömu landsvæðin
voru hertekin margsinnis án þess
að það hefði nokkurt gildi, óvin-
irnir voru alls staðar en þó
hvergi. Að fara inn á kaffihús í
Saigon gat verið álíka hættulegt
og að þramma um skóginn. Fyrir
utan borgirnar mátti alls staðar
eiga von á pokasprengjum, þær
grænu tóku fótinn af en þær
rauðu lífið. Eiturefni, sem áttu
að breyta frjósömu landinu í
auðn, lögðust jafnt á gróður og
skepnur, Víetnama og banda-
ríska hermenn. Konur fólu
sprengjuefni á kornabörnum og
sveinstaular sprengdu bandaríska
jafnaldra sína í loft upp. Fólsku-
verk voru framin af báðum aðil-
um.
Nýjasta mynd Christophers
Crowes, A bannsvæði, gerist í
skugga Víetnamstíðs. Sjónar-
sviðið er Saigon, sem nú heitir
Ho Chi Minh borg, tíminn er
janúar 1968.
Petta voru dagar mikilla við-
burða. Víetnamar hófu þá mikla
stórsókn og létu drauma banda-
rískra hershöfðingja um almenni-
legar orrustur loks rætast. Þessir
atburðir verða Crowes þó ekki að
yrkisefni. Hann segir aðeins ein-
falda lögreglusögu í óvenjulegu
umhverfi. Félagarnir Buck
McGriff, sem leikinn er af
Wiliam Dafoe, og Albaby
Perkins, sem Gregory Hines leik-
ur, stunda leynilögreglustörf inn-
an bandaríska hersins. Meira fyr-
ir tilviljun en nokkuð annað
komast þeir á snoðir um að
morðóður landi þeirra leikur
lausum hala í borginni. Fórnar-
lömb hans eru portkonur en allar
eiga þær sameiginlegt að hafa
eignast börn með bandarískum
hermönnum. Börnin lætur hann
óáreitt óafvitandi um að hlut-
skipti þeirra á eftir að verða
þyngra en annarra þjóðfélags-
þegna í heiminum. Undir þeirri
stjórn kommúnista, sem í dag
stýrir sameinuðum hlutum Norð-
ur- og Suður-Víetnams, eru kyn-
blendingar með bandarískt blóð í
æðum nánast útskúfaðir úr sam-
félaginu. Þeim er neitað um alla
menntun, vinnu og jafnvel mat-
arskömmtunin nær ekki til
þeirra. Betl og glæpir eru lifi-
brauð þessara ógæfusömu ung-
menna. Að hætti Austur-Þjóð-
verja hugðust stjórnvöld í Víet-
nam versla með þessa einstakl-
inga en starfsbræður þeirra í
Bandaríkjunum voru ekki gin-
keyptir fyrir „vörunni". Að lok-
um féllst Reagan forseti og þing-
ið þó á að leyfa fáeinum af þess-
um óvelkomnu börnum að flytj-
ast til feðra sinna í Bandaríkjun-
um. Þrátt fyrir þetta ganga mörg
þúsund þeirra þrautaveginn í
Víetnam. Þau eru dæmd til písl-
William Dafoe og Albaby Perkins í ójöfnum leik.
argöngu. Enginn vill þau.
Skiljanlega snertir þetta vanda-
mál ekkert þá félaga McGriff og
Perkins. Landar þeirra eru enn
að heyja stríð í Víetnam en tví-
menningarnir eru á höttunum
eftir morðingja sem kann jafnvel
að vera ofursti. Inn í morðingja-
söguna fléttast óvenjulegur ástar-
kafli, hann er þó varla sjáanlegur
annars staðar en í augum leik-
endanna.
Það er engum ofsögum sagt að
Bannsvæði hefur til að bera flest
það sem má prýða góða spennu-
mynd. Og hún hefur svolítið
umfram það. Crowe tekst
afbragðsvel að sýna borg í stríðs-
ástandi, borg þar sem hnefarétt-
urinn einn virðist gilda, borg sem
er eins og maður ímyndar sér að
Saigon hafi verið árið 1968. Og
það mætti segja mér að Bann-
svæði dragi ekki upp neitt síðri
mynd af ástandinu í Víetnam en
Platoon gerir. William Dafoe lék
hetjuna í þeirri mynd og kannski
leikur hann hér enn nokkurs kon-
ar hetju en hún er ekki án bletta.
Skoðunarplássið er hins vegar
sitthvað í þessum tveimur
myndum, í annarri takmarkað
við landsbyggðina, göngur í
skógum og átök. Einmitt af þess-
um sökum var Platoon alls ekki
rökrétt. Það vantaði í hana borg-
arlíferni hermannanna því auð-
vitað vörðu þeir ekki öllum sín-
um tíma í að þramma um óyndis-
lega regnskóga.
Bannsvæði er hins vegar nær öll
tekin í borgarumhverfi. Og hand-
ritið er þannig uppbyggt að þetta
er fyllilega eðlilegt. Þeir félagarn-
ir McGriff og Perkins hafa ekkert
að gera út fyrir borgarmörkin.
Frá þessu gerist að vísu ein
undantekning sem skiptir þó
engu máli hér. Niðurstaðan verð-
ur því sú að Platoon og Bann-
svæði bæta hvor aðra upp þó sú
síðarnefnda sé nær því að gefa
raunsanna mynd en hin fyrr-
nefnda.
Skammdegið, hættulegasti
tíminn í umferðinni
Mjög mikilvægt er að nota gangbrautir, þar sem þær eru fyrir hendi.
Svona á alls ekki að bera sig að þegar farið er út á götu.
Hættutími er genginn í garð. Það
sýnir reynsla undanfarinna ára.
Nú eykst umferð mikið í þéttbýli,
og um leið versna akstursskilyrði.
Sól skín nær lárétt í augu öku-
manna á leið í og úr vinnu, og
myrkrið sækir stöðugt á. Rigning
og myrkur valda vegfarendum,
akandi og gangandi, miklum erf-
iðleikum.
Einmitt við þessar aðstæður
hefja mörg þúsund skólabörn
sjálfstæða þátttöku í umferðinni.
Þá reynir á okkur, annars vegar
foreldra barnanna, hins vegar
ökumenn. Og við skulum minn-
ast þess að meira og minna er um
sama fólkið að ræða.
Umferðarráð biður ökumenn
að huga nú sérstaklega að eftir-
töldum atriðum:
- Sjáum við börn við akbraut,
lítum þá á þau sem „lifandi
hættumerki“.
- Börn hafa ekki reynslu okkar
sem eldri erum, og þekking
þeirra er takmörkuð við til-
tölulega fá atriði.
- Þrátt fyrir að börnin hafi verið
frædd mikið um umferðarmál
eiga þau til að gleyma sér, jafn-
vel þegar síst skyldi.
- Börn skynja hraða og fjarlægð-
ir mun verr en fullorðnir, því
sjón- og heyrnarsvið þeirra er
takmarkað.
- Lítið barn hefur ekki mögu-
leika á að sjá jafn langt og full-
vaxið fólk.
- Umferðaraðstæður eru meira
og minna í þágu fullorðinna -
fólks í bílum.
En ökumenn bera ekki einir
ábyrgðina. Hún er ekki síður í
höndum foreldra og skóla. Til
þess að auðvelda fræðslu um
þetta efni hefur Umferðarráð í
samvinnu við menntamálaráðu-
neytið sent öllum börnum sem
eru að hefja skólagöngu í fyrsta
sinn, meðfylgjandi bækling „Á
leið í skólann“ og veggspjald um
sama efni. Þar er að finna ýmsar
ráðleggingar um umferðina. For-
eldrum er m.a. bent á að fylgja
barninu fyrstu skóladagana, og
finna með því öruggustu leiðina
til og frá skóla. Að endurskins-
merki ættu að vera á öllum skóla-
töskum, og auðvitað á börnunum
sjálfum o.s.frv.
Á haustmánuðum verða oft
mörg alvarleg umferðarslys og
því miður koma börn þar oft við
sögu. Það er samt ekkert sem
segir að slysin séu óhjákvæmileg.
Hjá þeim á að vera hægt að kom-
ast með réttum aðgerðum, var-
kárni og vitund um þær hættur
sem leynast í umferðinni. Lög-
reglan um allt land fylgist nú
gaumgæfilega með umferð í
nágrenni skólanna. Slíkt eftirlit
þurfa ökumenn ekki að óttast aki
þeir eins og þeir vilja að aðrir aki
í nánd við börnin sín.
í skammdeginu eru endursldnsmerkin nauðsynlegt öryggisatriði.