Dagur - 21.09.1988, Qupperneq 7
21. september 1988 - DAGUR - 7
Barnaskóli Húsavíkur:
80 ár frá vígslu gamla
bamaskólahússins
DANSSKOU
SiUa
Síðustu innritunardagar
- Störf hafm hjá 323 nemendum og 23 kennurum
Frá vígslu gamla barnaskólahússins.
í dag hefur gamla barnaskólahúsið verið flutt um set og þjónar sem íbúðar-
hús.
Kennsla hófst við Barnaskóla
Húsavíkur 6. sept. en skólinn
var settur 2. sept. Nemendur í
vetur eru 323, nokkrum
nemendum fleiri en í fyrravet-
ur, kennarar eru 23, þar af sex
nýir starfskraftar við skólann.
„Það hafðist að fá kennara til
starfa,“ sagði Halldór Valdi-
marsson skólastjóri, aðspurður
um hvernig hefði gengið. „Ég
er ákaflega ánægður nú þegar
við byrjum skóla með mjög
gott kennaralið þar sem flest-
allir eru réttindamenn. En það
er áhyggjuefni að ekki skuli
meira sótt um kennarastöður
þegar þær eru auglýstar.“
„Vandinn er sá að við þurfum
að tvísetja í hverja kennslustofu.
Þetta er mjög bagalegt og við get-
um eiginlega ekki veitt þá þjón-
ustu sem við þurfum og erum
með lágmarkskennslu í mörgum
greinum," sagði Halldór,
aðspurður um húsnæðisvandræði
skólans. Á döfinni er að byggja
við skólahúsið, teikningar eru til-
búnar og sagðist Halldór vona að
hafist yrði handa næsta vor. Eftir
teikningunum að dæma mun við-
byggingin falla sérlega vel að
skólahúsinu, á þeim er fyrirhug-
að bráðskemmtilegt rými fyrir
bókasafn og gert er ráð fyrir að
tónlistarskólinn fái aðstöðu, en
sambúð skólanna undir sama
þaki hefur gefist sérlega vel.
Varðandi nýjungar við kennsl-
una sagði Halldór að ýmsar hug-
myndir væru uppi, unnið hefði
verið nýbreytnistarf við skólann
sem mikilvægt væri að þróa og
halda áfram með. Starfsemin á
bókasafninu yrði aukin en hún
miðaði að því að börnin lærðu
sjálfstæði í vinnubrögðum.
Við skólasetninguna minntist
Halldór þess að 2. nóv. verða 80
ár liðin frá vígslu gamla barna-
skólahússins á Borgarhóli. Vitn-
aði hann í fundargerð þar sem
sagt er frá vígsludeginum. Þar
kvæði sem hann nefndi Borgar-
hól. Sigurður Sigfússon, sölu-
stjóri las kvæði eftir Jón Stefáns-
son frá Vaðbrekku. Forstöðu-
maður unglingaskólans, Benedikt
Björnsson setti síðan sinn skóla.
Athöfninni lauk með því að
söngflokkurinn söng þrjú vers af
kvæðinu ísland, ísland, ó
ættland.
Halldór vitnaði í kvæði Ara
Jochumssonar í setningarræðu
sinni, sígild orð sem eiga jafnt við
í dag og fyrir 80 árum. Halldór
sagði að fyrirhuguð viðbygging
við skólann væri sér ofarlega í
huga, menn stæðu á vegamótum
nú varðandi húsnæðismálin eins
og verið hefði fyrir 80 árum. IM
Langar þig að læra að dansa?
Nú er tækifærið.
Nýr og ferskur dansskóli
Kennsla hefst 26. september.
Kennslustaður: Gránufélagsgata 49, efri hæð.
10 tíma námskeið í:
★ Barnadönsum ★ Unglingadönsum ★ Samkvæmis-
dönsum ★ Gömludönsum ★Rock og tjútt.
Námskeið fyrir félagasamtök, hópa og einstaklinga.
Innrítun og nánarí upplýsingar í síma 26624
milli kl. 12 og 18.
Sigurbjörg D.S.Í.
Vinkonurnar og frænkurnar Kristín og Sigríður í frímínútum.
kemur m.a. fram að 200 manns,
auk barna hafi verið viðstaddir
vígsluna. Hreppsnefndaroddvit-
inn Jónas Sigurðsson afhenti
skólanefndinni húsið og þakkaði
iðnaðarmönnum, sérstaklega
yfirsmiðnum, Páli Kristjánssyni.
Steingrímur Jónsson, sýslumaður
flutti ræðu og söngflokkur söng
undir stjórn Stefáns Guðjónsen.
Formaður skólanefndarinnar,
sóknarprestur Jón Arason hélt
ræðu sem fjallaði um hvað hug-
takið skóli væri, var mál manna
að sú ræða hafi smekkleg og
vel samin verið, eins og segir í
fundargerðarbókinni. Valdimar
Valvesson, yfirkennari talaði og
Ari Jochumsson flutti sjö erinda
Fjör í frímínútum við barnaskólann.
Fyrirtæki -
Einstaklingar
Töl vupappí rsvinnsla
er hafin
Bjóðum upp á framleiðslu og prentun
hvers konar viðskiptaforma á tölvu-
pappír.
Nýjung! Eigum á lager 60 gr Mikro-rif-
gataðan pappír í stærðinni A-4
(21x29.7 cm).
Erum að hefja framleiðslu á grænstrik-
uðum pappír í ýmsum stærðum.
Lítið inn og kynnist
þjónustu okkar
24222
Strandgötu 31