Dagur - 21.09.1988, Qupperneq 13
21. september 1988 - DAGUR - 13
Þeir komu síðast fyrir 63 árum:
Stúdentakór Kaupmannahaíhar
í heimsókn á fslandi
- Tónleikar í Skagafirði annað kvöld
og á Akureyri föstudagskvöld
Stúdentakór Kaupmannahafnar-
háskóla er karlakór sem þessa
dagana er í heimsókn hér á landi.
A síðustu áratugum hefur kórinn
sungið víða, m.a. í Bandaríkjun-
um, Vestur-Indíum, ísrael,
Frakklandi, Ungverjalandi,
Finnlandi, Noregi og Svíþjóð, á
Grænlandi og í Færeyjum.
ísland varð fyrir valinu í þess-
ari utanlandsferð kórsins, bæði
vegna þess að hann vill styrkja
norræn sambönd, en ekki síður
vegna þess að það er orðið langt
síðan kórinn heimsótti ísland,
eða 1925. Þá ferðuðust kórfélag-
arnir með gufuskipi og ferðin var
því nokkuð erfið, en þetta var
stórkostleg ferð hjá þeim.
Kórinn er búinn að starfa frá
1839 og á því 150 ára afmæli á
næsta ári. Hann er jafnframt elsti
starfandi kór Danmerkur. Af-
mælishátíðin er í fullum undir-
búningi, það verður mikið um að
vera, nokkrir tónleikar og upp-
tökur fyrir útvarp og sjónvarp.
Það eru rúmlega 250 félagsmenn
í Stúdentakór Kaupmannahafn-
arháskóla en virkir söngvarar í
kórnum eru u.þ.b. 60 og af þeim
koma um 40 með til íslands.
Þar sem kórinn hefur starfað
þetta lengi eða 149 ár þá hefur
hann haft marga stjórnendur.
Þekktastir eru án efa Peter Heise
ogJ.P.E. Hartmann á síðustu öld
og á þessari öld Johan Hye-
Knudsen og John Frandsen sem
báðir voru hljómsveitarstjórn-
endur við Konunglega leikhúsið,
Eiffred Eckart-Hansen, sem í
mörg ár var tónlistarstjóri Tívolís
í Kaupmannahöfn og nú síðast
Támas Vetö, sem einnig er
hljómsveitarstjóri Konunglega
leikhússins. Núna stjórnar kórn-
um hinn þrítugi Niels Muus, en
hann hefur upp á síðkastið vakið
mikla athygli í tónlistarlífi Dana,
bæði sem píanóleikari og stjórn-
andi.
Efnisskrá kórsins hefur alla
jafna verið fjölbreytt, allt frá
rómantískri tónlist frá síðustu öld
til nútímaverka, sem hafa verið
skrifuð sérstaklega fyrir kórinn.
Þegar kórinn ferðast erlendis,
leggur hann mesta áherslu á að
kynna danska kórtónlist og að
þessu sinni verður hann með í
hafurtaskinu kórverk eftir Heise,
Bridgesamband
Norðurlands:
Bikarkeppnin
hefst í
nóvember
Bikarkeppni Bridgesambands
Norðurlands hefst í byrjun
nóvember. Um er að ræða
sveitakeppni með útsláttarfyrir-
komulagi og er öllum bridds-
sveitum á Norðurlandi heimil
þátttaka.
Örn Einarsson í síma 21058 og
Stefán Ragnarsson í sírna 22175,
taka á móti þátttökutilkynning-
um, en þær þurfa að berast fyrir
lok októbermánaðar.
Þátttökugjald er 3000 krónur á
sveit.
Kuhlau og Hartmann, Carl Niel-
sen, Poul Schierbeck, Knud
Jeppesen, Finn Hóffding, Poul
Rovsing Olsen, Bernhard Lew-
kovitch, Leif Thybo.
Tónleikar kórsins verða sem
hér segir: í Miðgarði, Varma-
hlíð, Skagafirði fimmtudaginn
22. september 1988, kl. 21.00;
Akureyrarkirju föstudaginn 23.
september 1988, kl. 20.30 og í
Langholtskirkju, Reykjavík
laugardaginn 24. september
1988, kl. 17.00.
Ný trygging frá Samvinnutryggingum
F-trygging fyrir fjölskyldur.
Hver er ávinningurimi?
Hér er stærsti ávinningurinn.
Sameinuð kaup þín á tiyggingum í KJARNA veita þér
magnafslátt á iðgjöldum.
Við kaup á tryggingum til viðbótar KJARNA færðu 15% afslátt.
Hafir þú bifreið heimilisins tryggða hjá Samvinnutiyggingum
færðu 10% afslátt af öllum tiyggingum í KJARNA, en 15% ef
bifreiðamarerutvær.
Annargóðurkostur:
Heildaiyfirsýn þín yfir tiyggingamál fjölskyldunnar. Ekkert er
oftryggt, ekkert er vantryggt.
Ogaðlokum.
í krafti samsafnaðra tryggingaviðskipta gerir þú, ef þú óskar
greiðslusamning við Samvinnutiyggingar.
Bifreiðatryggingar má einnig auðveldlega flétta inn í slíkt
greiðslufyrirkomulag.
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ÁRMÚLA3 SÍMI681411
•Fyrirfjölskyidur