Dagur - 21.09.1988, Síða 15
21. september 1988 - DAGUR - 15
Nemendur, foreldrar og gestir hlýða á setningarræðu skólameistara.
þeim nýjungum með opnum
huga og þekkingu þá yrðu þær
undir í baráttunni um tilveru
sína. Með tóma pyngju en fersk-
an hug og áræði settu hinir fram-
sýnu Þingeyingar markið hátt og
linntu ekki baráttu sinni fyrr en
þeir höfðu byggt Laugaskóla,
skóla alþýðunnar, skóla
fólksins.“
Steinþór tók á mörgum málum
í ræðu sinni, m.a fjallaði hann
um gildi skóla og skólagöngu,
námsleiða og nauðsyn þess að
skólastarfið fylgi kröfum tímans.
Rakti hann síðan aðdragandann
að stofnun Framhaldsskólans á
Laugum, upplýsti hverjir starfa
mundu við skólann í vetur og að
lokum beindi hann máli sínu til
nemenda og sagði þá m.a.: „Ég
vil enn bjóða ykkur hjartanlega
velkomin í Lauga. Ég hlakka til
þess að vera með ykkur í vetur.
Frá fyrsta degi mínum hér hafa
nemendur reynst mér vel og ég
hefi reynt að endurgjalda það.
Með gagnkvæmu trausti og virð-
ingu skulum við leggja okkur
fram um að þar verði framhald
á.“ IM
Þórhildur Jónsdóttir og Dröfn Heimisdóttir, nemendur við Laugaskóla.
Þórhildur og Dröfn:
„HeimavistarskóK
er allt öðruvísi“
Þórhildur Jónsdóttir og Dröfn
Heimisdóttir voru mættar að
skólasetningunni og ætla að
stunda nám við Laugaskóla í
vetur
- Þið eruð báðar frá Flúsavík,
hvað eruð þið að gera í Lauga-
skóla?
„Það er svo gott félagslíf
hérna," sagði Þórhildur.
„Ég var hérna í fyrra, í níunda
bekk en fer í fornám núna, Þór-
hildur fer á almenna bóknáms-
braut. Bróðir minn var hérna á
undan mér og honum fannst
æðislega fínt að vera hérna og
mælti með skólanum við mig,“
svaraði Dröfn.
- Hvað líkaði þér best hérna í
fyrra?
„íþróttimar og félagslífið og
svo eru góðir kennarar hérna.“
- Er ekkert hallærislegt að
vera svona úti í sveit?
„Það er gaman að prufa eitt-
hvað nýtt,“ sagði Þórhildur en
Dröfn hefur reynsluna, m.a. af
stríðni kunningjanna í skólafrí-
um:
„Nei, þó allir segi að það sé
sveitalykt af manni þegar ég kem
heim, það gerir ekkert til, ég finn
hana ekki. Það er allt, allt öðru-
vísi að vera í heimavistarskóla.
Hérna kynnist maður krökkun-
um betur og er einhvern veginn
frjálsari, getur alltaf farið í sund
eða íþróttir. Gallinn er sá að þeg-
ar mann langar heim er kannski
ekki hægt að fara heim. Það er
helgarfrí aðra hvora helgi en
kennt annan hvern laugardag,
mér finnst það fínt því í staðinn
er hver önn styttri." IM
Benóný Arnórsson, oddviti:
„Var og er góður skóli“
Benóný Arnórsson, oddviti
Reykdælahrepps var að sjálf-
sögðu mættur að setningu
Framhaldsskólans á Laugum.
Að setningarathöfninni lokinni
var Benóný spurður hvað hon-
um væri efst í huga.
„Mér er efst í huga sú sam-
staða sem náðist meðal sveitar-
félaganna um framtíð þessa skóla
og held að þetta hefði aldrei tek-
ist ef samstaðan hefði ekki verið
slík sem hún var. Ég hef verið að
frétta fram á síðustu stundu hvað
þessir skólar stóðu tæpt og hvað
litlu mátti muna að ekki færi
verr.“
„Ertu mikill Laugamaður.“
„Já, ég er mikill Laugamaður
og var hér við nám, þá var ekki
Benóný Arnórsson, oddviti Reyk-
dælahrepps.
kominn gagnfræðaskóli á Húsa-
vík og ég fór í Lauga og stundaði
nám í tvo vetur. Hér kynntist ég
konunni minni en hún var einnig
nemandi hérna. Börnin okkar sjö
hafa öll verið hér við nám, meira
og minna. Svo þetta kemur af
sjálfu sér að menn verða miklir
Laugamenn. Við eigum góðar
minningar héðan og þetta var og
er góður skóli eftir því sem ég
skil það hugtak. Auk þess er
staðurinn geysilega stórt atriði
fyrir sveitarfélagið sem slíkt.
Ég vil gjarnan nota tækifærið
og koma á framfæri þakklæti
mínu til Þingeyinga fyrir sam-
stöðuna um að efla skólahald á
Laugum. í dag finnum við og
sjáum árangur starfsins." IM
Kristján Guðmundsson, kokkur á Laugum:
,Aldrei hægt að
gera öllum til hæfis“
í setningarræðu sinni kynnti
skólastjórinn kennara og ann-
að starfslið við skólann, meðai
annarra nýjan kokk, Kristján
Guðmundsson matargerðar-
mann, fyrrverandi nemanda
skólans frá Raufarhöfn. Krist-
ján var ekki við setningarat-
höfnina því hann var önnum
kafinn í eldhúsinu við að
undirbúa veitingar sem bornar
voru fram að henni lokinni.
Dagur leit inn í eldhúsið og
heilsaði upp á Kristján.
„Það er gaman að vera kominn
hingað aftur, mér hefur fundist
dásamlegt að vera hérna og átti
hér ógleymanlega daga á mínum
skólaárum."
- Nú eru viss tímamót hér í
dag með setningu nýs framhalds-
skóla, hvað er þér efst í huga?
„Að allt gangi vel, þetta verði
Kristján Guömundsson frá Raufar-
höfn, matargerðarmaður Lauga-
skóla.
góður vetur og einnig þeir vetur
sem á eftir koma. Ég vona að
þessari skólastofnun vegni vel í
framtíðinni. Það þarf að hlú vel
að framhaldsskólunum úti á landi
en ekki eingöngu blína á þá sem
eru á Reykjavíkursvæðinu.“
- Hvernig er fæðið í skóla-
mötuneyti?
„Það er mjög gott. Það er auð-
vitað aldrei hægt að gera öllum til
hæfis þar sem 150 nemendur eru
en ég vona að þetta gangi eins vel
og best getur verið. Ég ætla að
hafa það allrabesta sem völ er á í
matinn.“
- Hvernig tilfinning er það að
taka við stjórn mötuneytis þar
sem maður hefur verið í fæði sem
nemandi áður?
„Það er dásamlegt að vera
kominn aftur út á landsbyggðina,
í rólegheitin, eftir að hafa verið í
Reykjavík." 1M
Gunnar Páll og Benedikt:
„Félagslíf, íþróttahús
og góðir kennarar“
Gunnar Páll Baldursson frá
Raufarhöfn og Benedikt ívars-
son frá Grundarfirði á Snæ-
fellsnesi stunduðu báðir nám
við Laugaskóla í fyrra og voru
mættir aftur til leiks. Gunnar
ætlar að stunda nám á almennri
bóknámsbraut en Benedikt á
öðru ári á viðskiptabraut.
- Af hverju varð Laugaskóli
fyrir valinu hjá ykkur?
„Strákur sem var hérna í hitt-
iðfyrra sagði að þetta væri ágætur
skóli og mér hefur líkað mjög
vel,“ svaraði Baldur en Benedikt
sagði: „Ég á skyldfólk hérna
nálægt og það sagði mér frá
skólanum. Ég var óákveðinn í
hvert ég ætti að fara en tók séns-
inn og prófaði. Hér eru góðir
kennarar og gott að vera.“
- Farið þið heim hálfsmánað-
arlega í helgarfríunum?
„Sjáfsagt ekki,“ sagði Gunnar.
„Það kemur ekki til greina,“
svaraði Benedikt. Þeir félagarnir
sögðust skreppa til Akureyrar
eða vera á Laugum og nota
íþróttahúsið þegar fríhelgamar
kæmu því þeir væru ekki reknir
neitt í burtu.
Gunnar Páll Baldursson og Benedikt
- Finnst þér skólinn ekkert
langt að heiman, Benedikt?
„Hann er það svosum en þetta
hefur bæði sína kosti og ókosti.
Það er þægilegt að koma á nýjar
slóðir, hér er gott veður og
gróðursæld og margt öðruvísi en
heima. En svo fær maður stund-
um heimþrá."
- Hvað líkar þér best við
skólann, Gunnar?
ívarsson, nemendur við Laugaskóla.
„Aðallega félagslífið og svo er
gott að geta haft afnot af íþrótta-
húsinu allan daginn. Náttúrlega
líka að hér eru góðir kennarar.“
- Jæja piltar, eitthvað sérstakt
sem þið vilduð segja að lokum?
„Ég bið að heilsa mömmu,“
sagði Benedikt og síðan kvaddi
Dagur þessa bráðhressu ungl-
inga. IM