Dagur - 21.09.1988, Page 19
21. september 1988 - DAGUR - 19
íslenska landsliðið í handknattleik:
Fyrsta hindrun að baki
- Sjö marka sigur á Bandaríkjamönnum í Seoul í gær
íslenska landsliðið í hand-
knattlcik steig fyrsta skrefið í
átt að úrslitakeppni ólympíu-
leikanna þegar liðið sigraði
Bandaríkjamenn 22:15 í Seoul
í gær. Þrátt fyrir að sigurinn
hafi verið þetta stór var hann
ekki jafn öruggur og tölurnar
gefa til kynna því íslendingar
áttu í hinu mesta basli framan
af, leikaðferð Bandaríkjamanna
setti þá út af laginu og í leikhléi
var staðan 8:8.
Það var jafnt á öllum tölum í
fyrri hálfleik og oftar en ekki
höfðu Bandaríkjamenn frum-
kvæðið. Þrátt fyrir að liðið leiki
ekki skemmtilegan handbolta bar
leikaðferð þess góðan árangur í
fyrri hálfleiknum. Það hékk á
boltanum og spilaði langar sóknir
sem enduðu allt of oft með því að
íslensku varnarmennirnir sofn-
uðu á verðinum. Unt leið var
sóknarleikur íslenska liðsins
fálmkenndur og leikmönnum
þess virtist liggja mjög á að koma
knettinum í netið. Fjöldi ótfma-
bærra skota rataði annað hvort
yfir markið eða í bandaríska
markvörðinn - hvorki gekk né
rak.
Bandaríkjamenn skoruðu
fyrsta markið í síðari hálfleik en
síðan skoraði Kristján Arason
tvö mörk í röð og kom íslending-
um yfir. íslendingar höfðu nú
greinilega náð frumkvæðinu en
Knattspyrna:
Drengjalandsliðið
mætir Norðmönmim
Drengjalandslið íslands skipað
leikmönnum 16 ára og yngri
mætir landsliði Noregs í
Reykjavík í dag. Tveir norðan-
menn eru í liðinu; Ægir Þ.
Dagsson markvörðurinn efni-
legi úr KA og Siglfiröingurinn
Steingrímur O. Eiðsson.
Leiknir verða tveir leikir og fer
síðari leikurinn fram í Osló eftir
níu daga. Það lið sem sigrar tekur
þátt í úrslitakeppni Evrópukeppni
drengjalandsliða í Danmörku
næsta vor.
Leik liðanna á Norðurlanda-
mótinu í ágúst sl. lauk með sigri
Norðmanna 2:1 eftir jafnan leik.
Það má því búast við spennandi
leik og getur stuðningur áhorf-
enda haft úrslitaáhrif þar á. Þess
má geta að leikurinn fer fram á
KR-vellinum klukkan 12 á
hádegi.
Lárus Loftsson þjálfari hefur
valið eftirtalda leikmenn til að
leika fyrir íslands hönd:
Arnar B. Gunnlaugsson ÍA
Bjarki B. Gunnlaugsson ÍA
Lárus O. Sigurðsson ÍA
Friðrik I. Þorsteinsson Fram
Guðmundur P. Gíslason Fram
Pétur H. Marteinsson Fram
Gunnar Þ. Pétursson Fylki
Þórhallur D. Jóhannsson Fylki
Nökkvi Sveinsson Tý
Sigurður Ómarsson KR
Steingrímur 0. Eiðsson KS
Kjartan P. Magnússon Stjarnan
Kristinn Lárusson Stjarnan
Ægir Þ. Dagsson KA
Dagur Sigurðsson Val
Ásgeir Baldursson Breiðablik
AP
þeim gekk erfiðlega að hrista
andstæðingana af sér og það tók
þá um 10 mínútur að ná tveggja
marka forystu. Kristján Arason
small í gang og skoraði 6 af 7
fyrstu mörkum íslenska liðsins,
annað hvort úr vítaköstum eða
með þrumuskotum utan af velli
og um miðjan hálfleikinn voru
Bandaríkjamennirnir greinilega
farnir að þreytast. íslendingarnir
gengu á lagið og þegar upp var
staðið var munurinn orðinn 7
mörk.
Þrátt fyrir basl framan af þess-
um leik er engin ástæða til svart-
sýni. Bandaríska liðið var óþekkt
stærð og í raun lítið við því að
segja þótt tíma hafi tekið að kom-
ast inn á leikskipulag þess. í síð-
ari hálfleiknum kom í ljós greini-
legur munur á liðunum - leik-
reynsla íslendinganna og góð
þjálfun fór að segja til sín og þá
var ekki að sökum að spyrja.
Þorgils Óttar Mathiesen og
Kristján Arason voru bestu menn
íslenska liðsins í gær ásamt Einar
Þorvarðarsyni, sem reyndar
meiddist lítillega á ökkla í leikn-
um. Kristján skoraði flest mörk
liðsins eða átta, þar af fjögur úr
vítum, og Þorgils Óttar sjö. Guð-
mundur Guðmundsson skoraði
fjögur mörk og þeir Alfreð Gísla-
son, Bjarki Sigurðsson og Sigurð-
ur Gunnarsson eitt hver. JHB
Kristján Arason átti góöan leik gegn Bandaríkjamönnum og skoraði átta
mörk.
Drengja- og stúlknamót UNP:
Austri
sigurvegan
Drengja- og stúlknamót UNÞ í
frjálsum íþróttum fór fram í
síðasta mánuði. 15 keppendur
frá þremur félögum mættu til
leiks og kepptu þeir um verð-
Knattspyrna:
Landsleikur gegn
Ungveijum í kvöld
íslendingar mæta Ungverjum í
vináttulandsleik í knattspyrnu
á Laugardalsvelli í kvöld. Sieg-
fried Held landsliðsþjálfari
hefur valið eftirtalda leikmenn
í hópinn:
Markverðir:
Bjarni Sigurðsson Brann
Guðmundur Hreiðarss. Víkingi
Aðrir leikmenn:
Arnljótur Davíðsson Fram
Atli Eðvaldsson Val
Guðni Bergsson Val
Gunnar Gíslason Moss
Ólafur Þórðarson ÍA
Ómar Torfason Fram
Pétur Arnþórsson Fram
Pétur Ormslev Fram
Ragnar Margeirsson ÍBK
Rúnar Kristinsson KR
Sigurður Grétarsson Luzern
Sigurður Jónsson Sheffield W.
Sævar Jónsson Val
Viðar Þorkelsson Fram
Leikurinn hefst kl. 17.30. Fyrir
leik og í hálfleik mun hinn
klassíski Hornaflokkur Kópa-
vogs leika undir stjórn Björns
Guðjónssonar. AP
Körfuknattleiksdeild Þórs:
Æfingar heflast á morgun
Körfuknattlcikstímabilið geng-
ur senn í garð og nú hefur
körfuknattleiksdeild Þórs
gengið frá æfingatímum fyrir
meistaraflokk og yngri flokka
félagsins. Æfingar hefjast á
morgun og hér á eftir fer yfirlit
yfir æfíngatíma hvers flokks.
Meistaraflokkur:
Mánud. kl. 20.30-22.00 í Skemmunni.
Miðvikud. kl. 19.00-20.30 í Skemmunni.
Fimmtud. kl. 19.00-20.30 í íþróttahöllinni.
Föstud. kl. 18.00-19.00 í Skemmunni.
Þjálfari: Eiríkur Sigurðsson.
3. flokkur:
Miðvikud. kl. 18.00-19.00 í Skemmunni.
Fimmtud. kl. 22.00-23.00 í íþróttahúsi
Glerárskóla.
Sunnud. kl. 15.00-16.00 í íþróttahöllinni.
Þjálfari: Jóhann Sigurðsson.
4. flokkur:
Þriðjud. kl. 20.00-21.00
Miðvikud. kl. 17.00-18.00 í
Fimmtud. kl. 21.00-22.00
Þjálfari: Kristján Rafnsson.
Minnibolti:
Þriðjud. kl. 17.00-18.00
Sunnud. kl. 13.30-15.15
Þjálfari: Kristján Rafnsson.
í íþróttahúsi
Glerárskóla.
Skemmunni.
í íþróttahúsi
Glerárskóla.
í íþróttahúsi
Glerárskóla.
í íþróttahúsi
Glerárskóla.
launapeninga sem Samvinnu-
bankinn á Kópaskeri gaf fyrir
þrjú efstu sætin í hverri grein
og farandbikar sem Abyrgð
hf., tryggingafélag bindindis-
manna, gaf til mótsins. Það var
Austri sem vann bikarinn í
þriðja sinn en árangur í ein-
stökum greinum varð þessi:
Drengir (18 ára og yngri)
100 m hlaup sek.
1. Sigurður H. Helgason, Au. 12,4
2. Halldór Þór Arnarson, Sn. 13,5
3. Hjörtur B. Halldórsson, Öx. 14,8
1500 m hlaup mín.
1. Halldór Þór Arnarson, Sn. 5.03,0
2. Davíð Búi Halldórsson, Öx. 5.23,6
3. Ægir Þormar Pálsson, Au. 5.42,5
Langstökk m
1. Sigurður H. Ólafsson, Au. 5,35
2. Halldór Þór Arnarson, Sn. 5,16
3. Davíð Búi Halldórsson, Öx. 4,35
Hástökk m
1. Halldór Þór Arnarson, Sn. 1,60
2. Sigurður H. Ólafsson, Au. 1,55
3. Sævar Sverrisson, Au. 1,35
Þrístökk m
1. Sigurður H. Ólafsson, Au. 11,44
2. Halldór Þór Arnarson, Sn. 10,80
3. Sindri Önundarson, Au. 8,72
Kúluvarp (6,25 kg) m
1. Sigurður H. Ólafsson, Au. 9,27
2. Halldór Þór Arnarson, Sn. 8,88
3. Sævar Sverrisson, Au. 7,79
Kringlukast (1,75 kg) m
1. Sigurður H. Ólafsson, Au. 27,11
2. Halldór Þór Arnarson, Sn. 23,60
3. Sævar Sverrisson, Au. 17,66
Spjótkast (800 g) m
1. Sigurður H. Ólafsson, Au. 38,26
2. Halldór Þór Arnarson, Sn.
3. Sævar Sverrisson, Au.
31,80
26,65
Stúlkur (18 ára og yngri)
100 m hlaup sek.
1. íris Erlingsdóttir, Au. 16,1
2. Dóra Dröfn Skúladóttir, Au. 16,1
3. Auður Aðalbjarnardóttir. Öx. 17,5
800 m hlaup mín.
1. Auður Aðalbjarnard., Öx. 3.29.5
2. íris Erlingsdóttir, Au. 3.48,5
Langstökk m
1. íris Erlingsdóttir, Au. 3,66
2. Dóra Dröfn Skúladóttir, Au. 3,23
3. Auður Aðalbjarnardóttir, Öx. 2,97
Hástökk m
I. íris Erlingsdóttir, Au. 1,10
Kúluvarp (4 kg) m
1. Inga F. Sigurðardóttir, Sn. 6,86
2. íris Erlingsdóttir, Au. 6,85
3. Guðrún AgústaGústafsd., Au. 6,13
Kringlukast (1 kg) m
1. íris Erlingsdóttir, Au. 18,77
2. Guðrún A. Gústafsd., Au. 14,21
3. Inga F. Sigurðardóttir, Sn. 13,65
Spjótkast (600 g) m
1. Guðrún Á. Gústafsd., Au. 20,53
2. íris Erlingsdóttir, Au. 15,68
3. Kristín Þormar Pálsd., Au. 13,67
Héraðsmet:
1500 m hlaup strákar mín.
Davíð Búi Halldórsson, UMFÖ 5.23,6
Langstökk strákar m
Davíð Búi Halldórsson, UMFÖ 4,35
Spjótkast drengir m
Sigurður H. Ólafsson, Austri 38,26
Stig félaga: stig
1. Umf. Austri Raufarhöfn 94
2. Umf. Snörtur Kópaskeri 35
3. Umf. Öxfirðinga 21