Dagur - 21.09.1988, Blaðsíða 20
Akureyri, miðvikudagur 21. september 1988
TEKJUBREF• KJARABRÉF
Qh
FJARMAL ÞIN - SÉRGREIN OKKAR
TJARFESTINGARFELAGID
Ráðhústorgi 3, Akureyri
Nemendur Síðuskóla afhenda bæjarstjóra mótmæli sín.
Mynd: GB
8. bekkingar í Síðuskóla á Akureyri:
Vilja ekki fara í
Glerárskóla næsta ár
Viljum vera í okkar skóla“
Stjórn veitustofnana:
Menn þvingaðir til
að taka hitaveitu
- ella snarhækki rafhitunartaxtinn
55
Krakkar úr 8. bekk Síðuskóla
á Akureyri héldu til fundar við
Sigfús Jónsson bæjarstjóra í
gærmorgun. Afhentu þau
bæjarstjóra mótmæli sín við
þeirri ákvörðun að þau skuli
næsta haust setjast í 9. bekk í
Glerárskóla. Krakkarnir sem
flest hafa verið í Síðuskóla frá
því þau voru í 4. bekk barna-
skóla kunna ráðstöfun þessari
illa og vilja vera áfram í
skólanum sínum.
Sigfús Jónsson tók við mót-
mælum unglinganna og sagðist í
raun ekki geta gert annað en vísa
málinu til skólanefndar og þaðan
færi það fyrir bæjarstjórn. En af
hverju líst krökkunum svo illa á
að setjast í 9. bekk í Glerár-
skóla?
„Við viljum bara vera í okkar
skóla, þar sem við höfum verið.
Akureyri:
Þvotti stolið
af snúrum
Ibúar við Helgamagrastræti og
Munkaþverárstræti á Akur-
eyri, urðu fyrir því í fyrrinótt,
að þvotti sem þeir voru með
úti á snúru, var nánast öllum
stolið.
íbúar í nokkrum húsum höfðu
samband við blaðið og sögðu að
tekið hefði verið töluvert af þvotti.
Sem dæmi tapaði einn níu skyrt-
um og einum vinnubuxum en
tvær skyrtur voru skildar eftir.
Frá öðrum íbúa var stolið treyju
af rándýrum íþróttagalla, en bux-
urnar voru skildar eftir. Priðji
íbúinn tapaði buxum.
Fólkið var að vonum óánægt
með þetta framferði og vill skora
á þjófinn eða þjófana, að skila
þvottinum aftur í skjóli nætur.
-KK/VG
Við viljum ekki fara í Glerár-
skóla vegna þess að þar eru fyrir
krakkar sem hafa verið í skólan-
um lengi og líta á hann sem sinn
skóla. Það verður erfitt fyrir okk-
ur að koma þar inn,“ sögðu
nokkrir nemendanna í samtali
við blaðið. Pau gerðu grein fyrir
þessum sjónarmiðum í mótmæl-
um sínum.
Ingólfur Ármannsson skóla-
fulltrúi Akureyrarbæjar sagði að
ástæður þess að krakkarnir ættu
dýpka
A fundi Hafnarstjórnar Sauð-
árkróks fyrir skömmu var á
dagskrá framkvæmdaáætlun
Hafnamálastofnunar fyrir árin
1989-1992. Þar kom m.a. fram
að Hafnamálastofnun gerir ráð
fyrir dýpkun Sauðárkrókshafn-
ar á næsta ári, 1989, en það
verk hafði Hafnarstjórn gert
ráð fyrir að yrði unnið árin
1991-1992. Til framkvæmda í
Sauðárkrókshöfn á næsta ári
hafði Hafnarstjórn gert ráð
fyrir 34,5 milljónum en tillögur
Hafnamálastofnunar hljóðuðu
upp á 12,3 milljónir í fram-
kvæmdir, og þá aðallega dýpk-
un hafnarinnar.
Þá er í áætluninni gert ráð fyrir
að þær framkvæmdir sem Hafn-
arstjórn áætlaði á árinu 1989
verði á árinu 1990. Hafnamála-
stofnun sleppir í tillögum sínum
stálþili við Norðurgarð og frá-
gangi á því ásamt lýsingu.
Hafnarstjórn Sauðárkróks setti
fram framkvæmdaáætlun 25. apríl
sl. og hefur ákveðið að halda sig
að stunda nám í Glerárskóla
næsta vetur væri sú að í Síðu-
hverfi væri mest fjölgun, en aftur
í Glerárskóla væri fækkun í yngri
árgöngunum. Húsnæði er ekki
fyrir hendi í Síðuskóla og því
gripið til þess ráðs að nota það
húsnæði sem byðist. Pá sagði
Ingólfur að í framtíðinni væri
fyrirhugað að kenna 9. bekk ein-
ungis á tveimur stöðum í bænum,
í Glerár- og Gagnfræðaskólan-
um. mþþ
við hana eftir að hafa skoðað til-
lögur Hafnamálastofnunar. Pá
var samþykkt á fundinum að
óska eftir viðræðum við Hafna-
málastofnun um framkvæmdir
við Sauðárkrókshöfn í framtíð-
inni og fara þær viðræður fram
nk. föstudag. „Við munum halda
stíft við okkar áætlun, hún er
mjög skynsamlega unnin og á
sínum tíma unnin í samráði við
Hafnamálastofnun. Nú koma
þeir með niðurskurðaráætlun,
þetta eru tillögur og við munum
ræða þær. Okkar samstarf við
Hafnamálastofnun hefur ætíð
verið mjög gott og ég hef ekki
ástæðu til að ætla annað en að
svo verði áfram,“ sagði Hörður
Ingimarsson formaður Hafnar-
stjórnar Sauðárkróks í samtali
við Dag.
Á næsta ári hafði Hafnarstjórn
gert ráð fyrir 10 milljónum í
smábátahöfn, 12 milljónum í við-
legubryggju og malbikun á gáma-
svæði. Alls átti að framkvæma
fyrir 34,5 milljónir króna. Árið
Stjórn veitustot'nana hefur fal-
iö hitaveitustjóra og rafveitu-
stjóra aö tilkynna þeini aðilum
sem enn hita hús sín með raf-
hituðu vatni eða næturhitun, í
þeirn hverfum þar sem hita-
veita hefur verið lögð, að þeim
verði ekki geflnn kostur á að
kaupa raforku samkvæmt töxt-
um C1 og C2 frá 1. janúar
1989. Hér er um ákveðnar
þrýstiaðgerðir að ræða með
hliðsjón af markaðsátaki Hita-
veitu Akureyrar.
Þegar umrætt markaðsátak var
ákveðið í apríl 1987 var þeim
íbúum sem hituðu hús sín með
rafhitun í hitaveituhverfi gefinn
frestur til að skipta yfir í hita-
veitu. Sá frestur er að renna út og
þegar taxtar C1 og C2 standa
þeim ekki lengur til boða má
búast við verulegri taxtahækkun,
sem þeir fá að súpa seyðið af er
ekki skipta yfir í hitaveitu.
„Jú, við höfum fengið kvartan-
ir vegna þessa, menn eru ekkert
hrifnir af því að láta þvinga sig,
en við getum ákaflega lítið gert.
Þetta er pólitísk ákvörðun. Við
viljum auðvitað ekki missa þessa
kaupendur en það er ákvörðun
stjórnvalda að beina þeim frekar
til hitaveitu en rafveitu," sagði
Svanbjörn Sigurðsson rafveitu-
stjóri.
Hann sagði jafnframt að í
kjölfar markaðsátaks Hitaveitu
Akureyrar hefði Rafveita Akur-
eyrar hafið markaðssókn. Raf-
veitan verður af umtalsverðum
tekjum með hverju rafhituðu
húsi sem dettur út en hún hefur
1990 átti að verja 33 milljónum í
framkvæmdir samkvæmt áætlun
Hafnarstjómar og 35,5 milljónum
árin 1991-1992. Sem fyrr segir var
áætlun Hafnamálastofnunar fyrir
næsta ár 12,3 milljónir og 1990
33,2 milljónir til framkvæmda.
„Niðurskurðurinn hjá Hafna-
mætt því með aukinni raforku-
sölu til iðnaðar og heldur nokk-
urn veginn í horfinu enn sem
komið er. SS
Verkamannabústaðir
á Akureyri:
Saniið um
byggingu
10 íbúða
Stjórn verkamannabústaða á
Akureyri samdi nýlega við
byggingafyrirtækið S.S. Byggi
sf. um smíði tíu íbúða fyrir
verkaniannabúst aðakcrflð.
S.S. Byggir s.f. hefur áður
byggt allmarga verkamanna-
bústaði á Akureyri.
Hér er um að ræða samning
upp á 50 milljónir króna. Að
sögn Hákonar Hákonarsonar,
stjórnarformanns verkamanna-
bústaða, eru íbúðirnar tveggja
til fjögurra herbergja, allar við
Hjallalund 20. Afhendingartími
er eftir eitt ár.
Alls hefur verið samið um
byggingu þrjátíu og átta íbúða í
verkamannabústaðakerfinu á
Akureyri á þessu ári. Hákon
Hákonarson sagði að eftir væri
að semja um byggingu fleiri
íbúða á þessu ári, m.a.leiguíbúð-
ir fyrir Félagsmálastofnun Akur-
eyrar. EHB
málastofnun er fyrst og fremst á
næsta ári. Það sem hangir á spýt-
unni er að þegar menn eru með
svona áætlanir í höndunum þá
koma einhverjar nýjar forsendur
á næsta ári og þá verður líka
skorið niður,“ sagði Hörður.
-bjb
Andarnefja á Pollinum
I gær og í fyrradag varð vart við andarnefju á Pollinum við Akureyri, sem
svamlaði þar um með miklum tilþrifum. Fyrir skömmu varð eiwrig vart við
andarnefju við Rcykavík og Akrancs en ekki er vitað hvort um sama gripinn
er að ræða. Mynd: gb
Sauðárkrókshöfn:
I ialiiamálastofiiun vill
höfnina á næsta ári