Dagur - 09.12.1989, Blaðsíða 7
Laugardagur 9. desember 1989 - DAGUR - 7
Kvikmyndasíðan
Jón Hjaltason
Dnuirmilictjíui hennar Jane I'onda
Jane Fonda er ekki aðeins síung,
íþróttakennari og leikkona, hún
er einnig kvikmyndaframleið-
andi. Hvernig sem menn kjósa að
líta á það þá er hún í forystusveit
kvenna í Hollywood, auðug,
aðlaðandi, frábær leikkona og
með bein í nefinu.
Nýjasta kvikmynd Fonda
byggir á skáldsögu eftir Ambrose
Bierce, en hann var samtíma-
maður Mark Twains, þó ekki
nándar nærri jafn frægur. Þetta
er ástarævintýri sem látið er ger-
ast í Mexíkó í einni af fjölda-
mörgum byltingum sem
Mexíkanar hafa upplifað. Jane
Fonda leikur sjálf aðalhlutverk-
ið, miðaldra kennslukonu og pip-
arjómfrú, Harriet Winslow.
Gregory Peck er í hlutverki hins
aldna rithöfundar er snýr baki við
öllu í leit að einhverju sem skiptir
máli. í honum endurspeglast
tómhyggja Bierce sjálfs. Peck er
gamli bleikskinninn, Old Gringo,
eins og myndin heitir á frummál-
inu.
Aðalsjarmör Old Gringo er þó
ekki Gregory Peck heldur Puerto
Ricani að nafni Jimmy Smiths.
Leitaði víða
„Mig vantaði ahrifamikinn mann
í þetta hlutverk, kynæsandi og
tilfinningaríkan, en þójafnframt
trúverðugan leiðtoga. Eg leitaði
eftir slíkum karlmanni á Spáni, í
Mexíkó, Argentínu, Puerto Rico
og Bandaríkjunum. Á því augna-
bliki þegar Jimmy steig inn á
skrifstofuna mína vissi ég að
hann var rétti maðurinn."
Þannig lýsir Jane Fonda leit
sinni að mexíkanska elskhugan-
um sínum í Old Gríngo og við-
tökur myndarinnar í Bandaríkj-
unum og víðar sýna að konan í
henni er næm á karlmenn. Það er
skemmst frá því að segja að hinn
33 ára Jimmy Smiths hefur slegið
í gegn í hinni einkar fallegu og
hugljúfu mynd um gamla bleik-
skinnann.
Enda þótt við íslendingar
þekkjum hvorki haus né sporð á
Smiths þá er hann ekki alveg
ókunnur sjónvarpsáhorfendum í
Bandaríkjunum og Evrópu.
Hann hefur þegar öðlast nokkrar
vinsældir fyrir hlutverk sitt í sjón-
varpsþáttunum um málafærslu-
manninn Sifuentes. Við sjálft lá
þó fyrir nokkrum árum að Smiths
myndi gerast daglegur gestur á
skjánum hjá okkur hér uppi á
Fróni þegar hann var valinn til að
leika á móti Don Johnson í
Miamy-þáttunum. En af ein-
hverjum ástæðum þótti framleið-
endunum rétt að drepa Smiths
strax í fyrsta þætti til að greiða
götu Philips Michael Thomas er
uppfrá því gerðist hægri hönd
Sonny Crocketts lögreglumanns.
Smiths lét ekki hugfallast við
þetta, hann átti leiklistarnám að
baki og var sannfærður um að
hann ætti eftir að ná langt í
Hollywood. Ári eftir vonbrigðin
með Miami-lögguþáttinn fékk
hann hlutverk Sifuentes sem gef-
ið hefur honum brauð að bíta í.
Nú vonar Smiths að Old Gríngo
muni opna honum greiða leið inn
í heim kvikmyndanna, og eftir
undirtektunum sem sú mynd fær
virðist hann hafa ástæðu til bjart-
sýni.
Smiths býr nú í Beverly Hills
með dansaranum Wöndu De
Jesus. Að baki sér á hann mis-
heppnað hjónaband, sem bar
ávöxt í tveimur börnum, stúlku
sem nú er 13 ára og dreng sem er
6 ára.
Jimmy Smiths. Líklega eiga þeir sem sjá Old Gríngo eftir að fallast á það með mér að þessi Ijósmynd er nokkuð
langt frá því að vera sanngjörn í garð draumaelskhuga Jane Fonda.
Hægindastólar
ODINSET: Leðurstóll m skammeli og
stillanlegu baki.
Litir: Svart, brúnt, hvítt og grátt.
Verð kr. 26.460,- stgr.
EINNIG STÓRKOSTLEGT ÚRVAL
ANNARRA STÓLA
MED EÐA ÁN SKAMMELS
œri vprubœr'í
1 HUSGAGNAVERSLUN
TRYGGVABRAUT 24 PÓSTHÓLF 266 602 AKUREYRI SfMI (96)21410
HAUSTHAPPDRÆTTI KRABBAMEINSFÉLAGSINS
VINNiNGAR
3 Subaru Legacy
Station 4WD.
SAMEIGINLEGUR VINNINGUR
• Öflugri krabbameinsvarnir!
STUÐNINGUR YKKAR ER OKKAR VOPN
4 Hálf milljón upp í bifreið að eigin vali.
33 Ferð með Samvinnuferðum-Landsýn eða vörur frá Japis
eða Húsasmiðjunni fyrir 100 þús. kr.
60 Vörurfrá Heimilistækjum eða IKEAeða Útilífi fyrir 50 þús. kr.
é
t. Krabbameinsfélagið
'c& V?'
-